Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
Morgunblaðið/RAX
Danska flutningaskipið Arktis River á strandstað við Töskuvita utan við Rifshöfn í gærdag.
Danskt flutningaskip strandaði við Rif í fyrrinótt:
Göt komin á olíu-
geyma í gærkvöldi
Óðinn átti að reyna að ná
skipinu á f lot í nótt
VARÐSKIPIÐ Óðinn gerði í
gær árangurslausar tilraunir
til að ná danska flutningaskip-
inu Arktis River af strandstað
utan við Rif á Snæfellsnesi. í
gærkvöldi gerðu varðskips-
menn sér vonir um að ná
skipinu á flot á flóðinu í nótt.
Skipið strandaði á rifinu við
Töskusker, utan við Rifshöfn,
í fyrrinótt, en áhöfnin er ekki
talin í hættu.
Danska flutningaskipið er í
flutningum fyrir Sölusamtök
íslenskra fískframleiðenda. Und-
anfama daga hefur það verið að
lesta saltfisk á ýmsum höfnum
og var á leiðinni til Rifshafnar í
fyrrinótt til að taka meiri fisk
þegar það strandaði. Skipið fór
öfugu meginn við vitann á Tösku-
skeri, sigldi inn til hafnar með
hann á bakborða, en átti að hafa
hann á stjómborða og lenti því
upp á rifinu út af Tösku. Meira
en hálft skipið var uppi á rifínu
1 gær.
Eftir óhappið var björgunar-
sveitin á Hellissandi kölluð út og
síðan var vélbáturinn Hamar
fenginn til að reyna að toga skip-
ið á flot. Það tókst ekki. Tíu
manns voru um borð, 8 manna
dönsk áhöfn og tveir íslenskir
hleðslumenn. Fimm úr áhöfninni
vom fluttir í land eftir strandið í
fyrrinótt, en þeir fóru aftur um
borð í skipið síðdegis í gær. Varð-
skipið Óðinn kom á strandstað í
gærmorgun og könnuðu kafarar
frá því aðstæður. Á flóðinu um
miðjan dag í gær gerði Óðinn
síðan tilraun til að ná danska
flutningaskipinu á flot, en tókst
ekki. Þó telja varðskipsmenn að
þeir hafi náð að draga skipið um
20 metra og gerðu sér vonir um
að ná skipinu á flot á flóðinu í
nótt. Um 60 sentimetra hærra
flóð var í nótt en í gærdag. Óðinn
lá rétt utan við skipið í gær með
víra tengda við danska skipið og
beið eftir flóðinu.
Arktis River er nýlegt skip,
rúmlega 2 þúsund tonn að stærð.
í skipinu eru 570 tonn af saltfiski
sem fara á til Portúgals og er
verðmæti farmsins um 80 milljón-
ir króna. í gærkvöldi hafði ekki
komist vatn í lestar skipsins eða
vélarrúm, en göt voru komin á
2—3 olíugeyma og einhver olía lak
í sjóinn.
Ríkisstjórnm um vanda hitaveitnanna:
Leggur til skuldbreytingu og
tekur ákveðnar skuldir á sig
Utanríkisráð-
herrar Norð-
uriandanna
funda í dag
FUNDUR utanríkisráðherra
Norðurlandanna hefst í
Reykjavík í dag.
Ráðherramir fimm, Matthías Á.
Mathiesen, Uffe Ellemann-Jensen
frá Danmörku, Paavo Váyrynen frá
Finnlandi, Thorvald Stoltenberg frá
Noregi og Sten Andersson frá
Svíþjóð, hittast í fundarsal ríkis-
stjómarinnar að Borgartúni 6 kl.
16.15 í dag. Fundurinn stendur til
kl. 18, en þá verður gert hlé. Matt-
hías Á. Mathiesen býður síðan til
kvöldverðar að Hótel Sögu í kvöld.
Fundinum verður fram haldið í
fyrramálið, kl. 9 og stendur þá í
tvær klukkustundir. Að honum
loknum verður blaðamannafundur
og síðan býður forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, til hádegis-
verðar í Ráðherrabústaðnum í
Tjamargötu.
Borgaraflokk-
urinn sækir
um listabók-
stafinn S
HÓPUR manna, sem kallar sig
Borgaraflokkinn, sótti í gær
um listabókstafinn S í komandi
kosningum. Á lista, sem
Hreggviður Jónsson fram-
kvæmdastjóri kom með í
dómsmálaráðuneytið, er meðal
annars að finna nöfn hans og
Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar
verslunarmanns, en báðir til-
heyra þeir hulduhernum
svokallaða, stuðningsmanna-
hópi Alberts Guðmundssonar.
Á listanum, sem Hreggviður
afhenti í dómsmálaráðuneytinu,
eru nöfn 62 manna, en 50 manns
þarf til að bókstaf sé úthlutað.
Aðrir sem sótt hafa um listabók-
stafi hafa allir tilgreint fulltrúa
sinn eða umboðsmann, en svo er
ekki með Borgaraflokkinn. Á list-
anum er ekki tilgreind nein
niðurröðun manna, enda er hér
ekki um framboðslista að ræða,
heldur eingöngu umsókn um lista-
bókstaf. Þá kemur ekki fram á
umsókninni hvort Borgaraflokk-
urinn hefur í hyggju að bjóða fram
í einu kjördæmi eða fleiri. Frestur
til að sækja um bókstaf og til-
kynna framboð rennur út á
föstudag.
Hreggviður Jónsson vildi ekki
segja neitt um þessa umsókn en
sagði að það kæmi í ljós síðar
hverjir ættu þarna hlut að máli
og hvort framboð væri fyrirhugað
í einu kjördæmi eða fleiri.
Nafn Alberts Guðmundssonar,
sem á þingflokksfundi Sjálfstæð-
isflokksins í gær baðst lausnar frá
ráðherraembætti, er ekki að finna
á þessum lista Borgaraflokksins.
Félagar í Hjúkrunarfélagi ís-
lands eru um 2000 og þar af eru
um 1500 starfandi. Félagið, sem er
í Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja, hafði ekki boðað verkfall. I
samtali við Morgunblaðið sagði
Pálína Sigurjónsdóttir formaður fé-
RÍKISSTJÓRNIN fjallaði á
fundi sínum í gær um vanda
hitaveitna og varð niðurstað-
lagsins að samninganefnd þess
hefði álitið rétt að ganga að tilboði
ríkisins. Það yrði síðan að koma í
ljós hvort aðrir fengju meira síðar.
Félag háskólamenntaðra hjúkr-
unarfræðinga, sem er í BHMR, er
í verkfalli. Að sögn Magnúsar Ól-
an sú að hitaveitur þær sem
hér um ræðir fá aðstoð ríkis-
sjóðs við að fá skuldbreytingu
afssonar formanns félagsins er
samninganefnd ríkisins að skoða
tilboð sem FHH lagði fram og verð-
ur nýr fundur boðaður þegar því
er lokið.
Magnús sagði að samningur
Hjúkrunarfélags íslands myndi
engu breyta um samningsstöðu
Félags háskólamenntaðra hjúkr-
unarfræðinga og sagðist hann
fagna því ef Hjúkrunarfélagið hefði
náð þeim samningum sem það teldi
viðunandi.
í langtímalán. Jafnframt er
fyrirhugað að aðrar smærri
hitaveitur fái samskonar fyr-
irgreiðslu hjá ríkissjóði.
Þetta leiðir til þess, að sögn
Þorsteins Pálssonar, fjár-
málaráðherra, að Hitaveita
Akureyrar, Hitaveita Vest-
mannaeyja og Hitaveita
Akraness og Borgarfjarðar
geta nú lækkað afnotagjöld
sín um 20%, þannig að verð-
skráin verði hin sama og
útsöluverð hjá Rafmagnsveit-
um ríkisins.
„Það var rætt um þijár hita-
veitur, Hitaveitu Akureyrar,
Hitaveitu Vestmannaeyja og
Hitaveitu Akraness og Borgar-
§arðar,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
að afloknum ríkisstjómarfundi í
gær. Hann sagði að það hefði
komið fram tillaga um með
hvaða hætti ríkisvaldið gæti
komið þessum hitaveitum til að-
stoðar og hún hefði verið
samþykkt í ríkisstjóminni.
Ríkissjóður mun aðstoða hita-
veitumar við skuldbreytingu,
þannig að lánstíminn lengist
mjög mikið, að sögn forsætisráð-
herra. Auk þess myndi ríkissjóð-
ur taka á sig ákveðinn
skuldabagga af Hitaveitu Akra-
ness og Borgarfjarðar, þar sem
skuldbreytingin dygði ekki til hjá
því fyrirtæki. Það sagði hann
að gæti kostað ríkissjóð allt að
175 milljónum króna.
Fjármálaráðherra sagði að
ljóst væri að heimamenn þyrftu
að taka meirihluta vandans á sig
sjálfír, en reynt yrði að útvega
þeim hagstæð lán, til þess að
þeir réðu við vandann. Ríkið
myndi leggja fram á bilinu 125
til 175 milljónir króna.
Hjúkrunarfélag Islands og
ríkið gera kjarasamning
HJÚKRUNARFÉLAG íslands og samninganefnd ríkins skrifuðu
undir nýjan kjarasamning í fyrrinótt og verður hann kynntur
á félagsfundi í Hjúkrunarfélaginu í kvöld. Að sögn formanns
félagsins er samningurinn svipaður og gerður hefur verið við
aðra ríkisstarfsmenn.