Morgunblaðið - 25.03.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
10 skip enn á
loðnuveiðum
LOÐNUVERTÍÐ er nú langt kom-
in. X.040.000 lestir hafa veiðzt og
Iíklegt er að um 10.000 lestir veið-
ist til viðbótar. Aflakvóti var
1.015.000 lestir en vegna heimildar
báta til að veiða upp í kvóta næsta
árs, hefur veiðin farið yfir kvót-
ann. Loðnan hefur undanfama
daga veiðzt sunnan Reykjaness og
tíu skip eru enn að veiðum.
Auk þeirra skipa, sem áður hefur
verið getið, tilkynntu eftirtalin skip
um afla á fostudag: Guðmundur VE
880, Hilmir SU 1.050, Helga II RE
340 og Bergur VE 300 lestir.
Á laugardag voru tvö skip með afla,
Dagfari ÞH 500 og Sighvatur Bjama-
son VE 670 lestir.
Eftirtalin skip voru með afla á
sunnudag: Sigurður RE 1.400, Bjami
Ólafsson AK 850, Huginn VE 600,
Hilmir SU 1.200, Guðmundur VE
850, Gullberg VE 600, Gígja VE 750,
Pétur Jónsson 800 og Helga II RE
530 lestir.
Á mánudag vom eftirtalin skip með
afla: Víkingur AK 700, Jón Finnsson
RE 1.200, Júpíter RE 550, Keflvíking-
ur KE 510 og Dagfari ÞH 350 lestir.
Síðdegis á þriðjudag hafði eitt skip
tilkynnt um afla; Gullberg VE með
500 lestir.
Opinber heimsókn utanríkisráðherra Noregs til íslands
Morgunblaðið/Einar Falur
Thorvald Stoltenberg utanríkisráðherra Noregs afhenti íslensku þjóðinni að gjöf drykkjarhom frá norsku þjóðinni, í Þjóðminjasafninu í
gær. Matthias Á. Mathíesen utanríkisráðherra tók við gjöfinni og afhenti Þór Magnússyni þjóðminjaverði homið til varðveislu.
I/EÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gœr: Á sunnanverðu Grænlandshafi er 982
millibara djúp sem þokast austsuðaustur. Yfir norðaustanverðu
Grænlandi er 1035 millibara hæð.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt um land allt, víða stinningskaldi
eða allhvasst (6-7 vindstig). Slydduél víða á annesjum norðanlands
og við austur- og suðurströndina en úrkomulaust að mestu annars
staðar. Hiti á bilinu 0 til 4 stig.
1/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR og FÖSTUDAGUR: Norðaustanátt, víða allhvöss
(7 vindstig), og hiti rétt undir frostmarki. Él við norður- og austur-
ströndina en bjart veður suðvestanlands.
Heiðskírt
TÁKN:
o
\JmL Léttskýjað
A
m Hálfskýjað
A_
•Mi Skýjað
Wsmm
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■JO Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða ,
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
R Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hitl 4 veður úrkomaígr.
Reykjavik 3 skýjað
Bergen 4 hálfskýjað
Helsinki 1 komsnjór
Jan Mayen -1 snjóól
Kaupmannah. 2 þokumóða
Narssarssuaq -7 alskýjað
Nuuk -11 snjókoma
Osló 2 snjókoma
Stokkhólmur 2 þokumóða
Þórshöfn 4 skýjað
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 8 þoka
Aþena 14 skýjað
Barcelona Berlln 7 vantar þokumóða
Chicago 9 skýjað
Glasgow Feneyjar 12 vantar þokumóða
Frankfurt 9 rigning
Hamborg 8 þokumóða
Las Palmas 21 hálfskýjað
London 12 rigning
Los Angeles 12 heiðskírt
Lúxemborg 7 súld
Madríd 14 skýjað
Malaga 18 skýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Miami 22 alskýjað
Montreal 1 þokumóða
NewYork 7 lóttskýjað
Paris 12 alskýjað
Róm 16 lóttskýjað
Vln 8 rigning
Washington 7 mistur
Winnipeg -1 alskýjað
Rætt um afstöðu
þjóðanna til Evr-
ópubandalagsins
„UMRÆÐURNAR snérust um sameiginleg áhugamál íslands og
Noregs," sagði Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra að loknum
fundi með Thorvald Stoltenberg utanríkisráðherra Noregs í gær,
en hann kom í opinbera heimsókn hingað til lands.
Að sögn Matthíasar var rætt um
Evrópubandalagið og afstöðu þjóð-
anna til þess. Thorvald Stoltenberg
ræddi sérstaklega hvaða skoðun
hann hefði á viðhorfi Norðmanna á
næstunni til Evrópubandalagsins.
„Ég vék að því sem við höfum ver-
ið að gera til að ná góðu sambandi
og samstarfi við Evrópubandalag-
ið,“ sagði Matthías.
„Þá ræddum við um loðnumálin
en fundur verður á Grænlandi 6.
apríl þar sem Noregur, Færeyjar
og Grænland koma saman og ég
lagði áherslu á að hægt yrði að
ganga frá skiptingu loðnunnar milli
þessara landa á þeim fundi," sagði
Matthías. „Við ræddum síðan um
öryggis- og varnarmál og samstarf
innan Atlantshafsbandalagsins og
ég gerði grein fyrir því sem helst
hefur verið að gerast í þessu
kjörtímabili sem er að ljúka og vék
utanríkisráðherra Noregs að svip-
uðum málefnum hjá Norðmönnum.“
Utanríkisráðherramir ræddu
dagskrá fundar utanríkisráðherra
Norðurlanda sem hefst í dag og þá
bar á góma hugmyndina um kjam-
orkuvopnalaus Norðurlönd. Ákveð-
ið var að vísa þeirri umræðu til
fundar utanríkisráðherranna fimm.
Thorvald Stoltenberg heimsótti
fyrir fundinn með Matthíasi í gær
Þjóðminjasafnið og Ámastofnun og
sat í gærkvöldi kvöldverðarboð
Matthíasar Á Mathiesen í Ráð-
herrabústaðnum.
Árdegis í dag ræðir Stoltenberg
við Þorstein Pálsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, Steingrím Her-
mannsson, forsætisráðherra og
forseta Islands, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur. Að þessum viðræðum
loknum heimsækir hann Granda
hf., heldur síðan blaðamannafund
og að honum loknum býður hann
getsgjöfum sínum til hádegsverðar
í norska sendiráðinu.
Stóriðjunefnd:
Viðræðunefnd Rio Tinto
Zink skoðaði álvenð
VIÐRÆÐUNEFND Rio Tinto Zink samsteypunnar fundaði
með stóriðjunefnd í Reykjavíká mánudag. Að sögn Birgis
Isleifs Gunnarssonar formanns nefndarinnar voru engar
ákvarðanir teknar á þessum fundi. Unnið er að endur-
hönnun kísilmálmverksmiðju sem ætlaður er staður á
Reyðarfirði og munu aðilar
mitt ár, að hans sögn.
Fulltrúar Rio Tinto Zink
skoðuðu að þessu sinni álverk-
smiðjuna í Straumsvík, en áður
hafa þeir skoðað Jámblendi-
verksmiðjuna á Grundartanga.
Var þeim gerð grein fyrir að
frumkvæði um stækkun verk-
smiðjunnar væri nú í hendi
íslendinga. Rio Tinto Zink á
hluti í álverksmiðjum þar á
meðal á Bretlandi. Fram kom
að viðræður um þáttöku sam-
steypunnar í þessari stækkun
koma vel til greina. Birgir
sagði að Jóhannes Norðdal
formaður nefndar um stækkun
taka afstöðu til hennar um
álversins hefði tekið þátt í
heimsókninni. Samsteypan
væri aðeins einn fjölmargra
erlendra aðila sem nefndin
hyggðist kynna álverið með
samstarf um stækkun þess í
huga.
Endurhönnun kísilmálverk-
smiðjunnar tekur mið af því
að lækka stofnkostnað hennar
þannig að hann nemi ekki
meira en 3485 milljónum
króna. Miðað við þá fjárfest-
ingu þyrfti verksmiðjan að
skila 10% arðsemi.