Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
Samtök um jafnrétti
miili landshluta;
Þórarinn
Lárusson
kosinn
formaður
FULLTRÚAR í fylkjunum
fimm í Samtökum um jafnrétti
milli landshluta komu saman
til fundar um helgina. Þar var
kjörin ný sljórn, rædd staða
félagsins og fjármál og hvaða
verkefni hefðu forgang fram
að aðalfundi sem haldinn verð-
ur í júní.
Að sögn Þórarins Lárussonar á
Skriðuklaustri, nýkjörins formanns
samtakanna, var fundurinn haldinn
til að fyrirbyggja allan miskilning
um að samtökin, sem eru þver-
pólitísk, séu tengd stjómmálaflokki.
„Þeir sögðu af sér Pétur Valdimars-
son, sem var formaður og Ámi
Steinar Jóhannsson en þeir em í
framboði fyrir Þjóðarflokkinn í
Norðurlandskjördæmi eystra. Því
vildum við taka af öll tvímæli og
endurreisa stjómina," sagði Þóra-
inn.
í bráðabirgðastjórn félagsins,
sem skipuð er fram að aðalfundi,
eiga nú sæti auk Þórarins, þau
Magnús B. Jónsson á Hvanneyri
og Helga Eiðsdóttir á Akureyri.
INNLENT
Islandslax hf
Islenska
fóðrið
reynist
ágætlega
Grindavík.
HJÁ íslandslax hf. í Grindavík
er elsta eldisfiskinum gefið
nýja íslenska blautfóðrið sem
Lýsi og mjöl hf. í Hafnarfirði
hóf framleiðslu á síðastliðið
haust.
Að sögn Jóns Þórðarsonar
framkvæmdastjóra íslandslax hf.
Fóðrinu ausið út í kerið til elsta eldisfisksins.
...
Morgunblaðið/Kr. Ben.
>n fóðurkassann sem á að gefa úr.
hófst þessi íslenska blautfóðurs-
framleiðsla hjá Lýsi og mjöl hf.
fýrir tilstuðlan þriggja fiskeldis-
stöðva, Islandslax, Sjóeldis og
Fiskeldis Grindavíkur.
„Við gefum elsta fiskinum, eða
þeim sem hefur náð 600 gramma
þyngd, þetta fóður. Fiskurinn tek-
ur fóðrið betur en norska þurrfóð-
rið og þrífst mjög vel, þannig að
hér heftir það reynst ágætlega.
Við skráum mjög nákvæmlega
alla fóðurgjöf, en endanleg niður-
staða liggur ekki strax fyrir. Við
höfum samt ástæðu til að vera
bjartsýnir á framtíðina," sagði
Jón.
- Kr. Ben.
Held að hægt
sé að taka til
á markaðnum
- segir Haukur Gröndal, framkvæmda-
stjóri Innkaupasambands bóksala
„ÉG ætla að leggja málið fyrir
stjórn Innkaupasambands bók-
sala í lok vikunnar. Persónulega
tel ég enga ástæðu til að hætta
við alla þá blaðatitla, sem til
umræðu eru hjá konunum, þar
sem þessi blöð eru seld allt í
kringum okkur. Þó geri ég ráð
fyrir að hægt sé að taka til á
markaðnum og henda sumum
þessarra blaða út,“ sagði Haukur
Gröndal, framkvæmdastjóri Inn- '
kaupasambands bóksala, í
samtali við Morgunblaðið.
Eins og fram hefur komið vinnur
nú hópur kvenna sem kallar sig
„Konur gegn klámi" að því að svo-
kölluð klámblöð verði fjarlægð úr
hillum bókaverslanna og telja þær
að samkvæmt lögum sé innflutning-
ur og sala slíkra rita ólögmæt.
Haukur sagði að Innkaupasam-
bandið hefði aldrei sóst sérstaklega
eftir því að flytja blöð þessi til lands-
ins heldur hefði þetta verið þróunin
í gegnum árin. Bókaverslanir um
land allt væru með fastar vikulegar
pantanir og einnig pöntuðu sumar
verslanimar blöðin sjálfar erlendis
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Frá fundinum um fiskmarkað á Suðurnesjum í Keflavík. Frá vinstri: Logi Þormóðsson, Ágúst Einars-
son, Grétar Már í ræðupúlti og Ellert Eiriksson fundarstjóri.
Fiskmarkaður á Suðurnesjum:
Keflavik.
ALMENNUR fundur um fiskmarkað á Suðurnesjum var haldinn í
Keflavík sl. sunnudag. Þar kom fram mikill áhugi meðal heima-
manna og virtust menn vera spenntir fyrir fjarskiptamarkaði þar
sem afli bátanna yrði seldur í gegnum fjarskiptanet. Með því mætti
bæði spara tíma og fyrirhöfn.
Kosnir voru fímm menn í fram-
kvæmdanefnd til undirbúnings
stofnunar fiskmarkaðar á Suður-
nesjum eftir nokkrar umræður um
þessi mái þar sem Logi Þormóðsson
fiskútflytjandi og Ágúst Einarsson
frá fiskmarkaðsnefnd höfðu fram-
sögu. Þar kom fram að mönnum
leist ekki á að keyra með flskinn á
markað til Hafnarfjarðar þar sem
hann yrði seldur og síðan jafnvel
að koma með hann aftur til vinnslu
á svæðinu. Einnig var upplýst að
um 200 þúsund tonnum af bolfíski
er landað á Suðumesjum sem væri
yflrgnæfandi meirihluti af bolfísks-
afla landsmanna.
í framkvæmdanefndina voru
Menn spenntir fyrir
fj arskiptamarkaði
kosnir Logi Þormóðsson fiskútflytj-
andi, Grétar Már, skipstjóri, Krist-
ján Ingibergsson skipstjóri,
Sigurður Garðarsson útgerðarmað-
ur og Jón Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri. Logi Þormóðsson var
kosinn formaður nefndarinnar og
sagði að ekki væri eftir neinu að
bíða í þessum málum og þegar yrði
hafíst handa í þessu máli. Heppileg-
asti tíminn til að koma fiskmarkaði
sem þessum á laggirnar yrði trúlega
að hausti í byijun vertíðar og yrði
miðað við þann tíma. — BB
frá í stað þess að panta þau hjá
Innkaupasambandinu. Þetta gerðu
til dæmis Bókaverslunin Eymunds-
son, Bókabúð Braga og Bókahúsið.
Bókaverslun Máls og menningar
hefði hinsvegar nýverið hætt inn-
flutningi og sölu á klámblöðum í
kjölfar umræðu um lögmæti slíks
innflutnings.
Bæklingur
um kosn-
ingalögin
ÞORKELL Helgason, pró-
fessor við raunvísindadeild
Háskóla íslands, hefur sent
frá sér bækling, Nokkrar
greinar um ný kosningalög,
þar sem er að finna grein-
argerðir hans og nýlega
blaðagrein um kosninga-
iögin.
I bæklingnum er að fínna
ýfirlit yfírnýju kosningalögin,
-sern' Þorkell átti þátt í að
semja; rakinn er annáll kosn-
ingalagamálsins veturinn
1982-1983 og fjallað um mis-
munanidi aðferðir við úthlutun
bingsæta. Þá greinir Þorkell
frá eigin sjónarmiðum um
efnið.
Seyðisfjörður:
Reyklaus dag-
ur 27. mars
Seyðwfirði.
REYKLAUS dagur um land allt
verður næstkomandi föstudag og
er það Reykingavarnarnefnd
sem að því stendur. Af þessu til-
efni mun heilsugæslustöðin á
Seyðisfirði bjóða fólki í reyklaust
kaffisamsæti á Hótel Snæfelli.
Allar verslanir sem selja tóbak á
Seyðisfirði munu taka það úr
hillum sínum og verða ekki með
neitt tóbak til sölu þennan dag,
en þetta eru: Kjörbúðin
Brattahlíð, Kaupfélag Héraðs-
búa, Söluskáli Shell, Félags-
heimilið Herðubreið, Verslunin
Lollípopp, Verslun Filipusar Sig-
urðssonar og Söluskáli Esso.
Á vegum heilsugæslustöðvarinn-
ar hefur að undanförnu staðið yfir
námskeið fýrir fólk sem vill hætta
að reykja. Atli Ámason læknir hef-
ur séð um fræðsluefni fyrir
námskeiðin og flutt erindi um skað-
semi reykinga. 19 manns hafa sótt
þetta námskeið, auk þess hefur
þetta fólk að einhvetju leyti haft
áhrif á annað reykingafólk í sínu
umhverfi, s.s. í sínum fjölskyldum
og á vinnustað og er talið að ná-
lægt 40 manns hafí hætt reykingum
vegna þessa námskeiðs og hafa
þeir sem selja tóbak á Seyðisfirði
orðið áþreifanlega varir við minnk-
un á sölu tóbaks._
Að sögn Atla Ámasonar læknis
er fyrirhugað að halda samskonar
námskeið seinna í vetur þar sem
árangur af þessu hefur verið þetta
góður.
- Garðar Rúnar