Morgunblaðið - 25.03.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
25
Ef starfsmenn Bifreiðaeftirlitsins gera athugasemd við ástand bifreiða og leita verður til verk-
stæða sjá þau um að setja hvíta miðann í rúðuna að viðgerð lokinni.
Verkstæði ljúka skoðun
bifreiða eftir viðgerðir
Bifreiðaeigendur, sem
þurfa að fara með bifreiðar
sínar á verkstæði vegna at-
hugasemda bifreiðaeftirlits-
ins, þurfa nú ekki að fara
aftur á skoðunarstöðina,
heldur fá þeir fullnaðarskoð-
un á verkstæðinu að viðgerð
lokinni.
Jón Helgason dómsmálaráð-
herra kynnti þessa nýju tilhögun
á fundi með fréttamönnum. Hann
sagði að bifreiðaeigendur á höfuð-
borgarsvæðinu, á Suðurlandi og
Vesturlandi ættu kost á þessari
þjónustu frá og með deginum í
dag, en Vestfirðir, Austur-Skafta-
fellssýsla, Vestmannaeyjar og
Suðurnes eru þar undanskilin.
Þessi svæði auk annarra sem ekki
eru hér nefnd munu einnig falla
undir þetta kerfi, en tími hefur
ekki unnist þar til undirbúnings
enn. „Þetta hefur verið reynt á
Akureyri í tvö ár og gefið góða
raun þar,“ sagði ráðherra. „Við
erum að reyna að létta á skoðun-
arstöðvunum með þessu, auk þess
sem það er mun þægilegra fyrir
viðskiptavininn að þurfa ekki að
fara á skoðunarstöðina aftur að
lokinni viðgerð. Verkstæðin eru
skoðuð af bifreiðaeftirlitsmönnum
og þau ábyrgjast að bifreiðin sé
í skoðunarhæfu ástandi þegar við-
gerð er lokið."
Guðni Karlsson, forstöðumaður
Bifreiðaeftirlits ríksins, sagði að
ef eftirlitsmenn gerðu athuga-
semd við ástand bifreiðar þá yrði
eigandinn að koma henni í við-
gerð. Nú væri kerfið þannig að
eigandinn þyrfti, að viðgerð lo-
kinni, að koma afturtil eftirlitsins.
„Með þessu nýja kerfi er sú aukaf-
erð óþarfi, því viðgerðarmennirnir
líma hvíta miðann í bílrúðuna og
senda eftirlitinu upplýsingar um
að viðgerð sé lokið,“ sagði Guðni.
„Þær upplýsingar ei-u síðan færð-
ar inn á tölvukerfi eftirlitsins.
Bifreiðareigandinn greiðir verk-
stæðinu ekkert aukagjald fyrir
skoðunina, því skoðunargjald hef-
ur hann þá þegar greitt hjá
eftirlitinu. Þetta nýja kerfi nær
yfír allar venjulegar fólksbifreið-
ar, en ekki atvinnubifreiðar. Þá á
þetta heldur ekki við ef bifreið er
í svo Iélegu ástandi að hún fær
rauðan miða í rúðuna, sem þýðir
að henni má eingöngu aka beint
á næsta verkstæði. Ef svo er þá
verður að koma aftur með bifreið-
ina til eftirlitsins, en sem betur
fer er fátítt að bifreiðar séu svo
illa farnar.“
Ef bifreiðaeftirlitsmenn gera
athugasemdir við ástand bifreiða
geta eigendur þeirra kynnt sér á
staðnum hvaða verkstæði hafa
fengið löggildingu til starfans.
Staðarbakki:
Fundu lamb
við Amarvatn
Staðarbakka.
FELAGAR úr Flugbjörgunar-
sveit Vestur-Húnavatnssýslu
fundu síðastliðinn sunnudag
lamb við Arnarvatn. Það var illa
á sig komið og var bjargað til
byggða. Það mun vera úr Sveins-
staðahreppi. Björgunarsveitar-
mennirnir voru á þessum slóðum
í eins konar æfingarferð, en ekki
til að leita fénaðar.
Eins og annars staðar á landinu
hefur verðrátta hér verið með ein-
dæmum hagstæð á þessum vetri
og oftast svo til auð jörð í sveitum
en nokkur snjór á heiðum og háls-
um. En nú um miðjan mánuðinn
kólnaði nokkuð og þann 20. gerði
stórhríð af norðri. Vonzkuveður var
en stóð ekki lengi. Fór að birta
aftur um kvöldið.
Síðastliðinn sunnudag fóru félag-
ar úr Flugbjörgunarsveit Vestur-
Húnavatnssýslu á 6 snjósleðum í
leiðangur fram á Tvídægru og Arn-
arvatnsheiði. Var ferðin aðallega
farin til að reyna tæki og útbúnað
sveitarinnar og þó einnig til að líta
eftir leitarmannaskýlum á afréttin-
um. En alltaf má gera ráð fyrir að
eitthvað fari þar úrskeiðis á vet-
urna. Færi var gott en veður var
ekki vel bjart en stillt. Öll húsin,
sem voru ein 7, sem þeir komu í,
voru í sæmilegu standi.
Þó ekki væri gert ráð fyrir að
fénaður fyndist í þessari ferð, fór
þó svo að eitt lamb fannst við Arn-
arvatn, utan leitarsvæðis Miðfirð-
inga. Lambið mun vera úr
Sveinsstaðahreppi og var illa farið,
sem ekki er að undra. Félagarnir
munu hafa farið um 100 kílómetra
leið á sleðunum og kom ekkert
óhapp fyrir og láta þeir vel af ferð-
inni.
Benedikt
BYGGINGA
vðrnr
Það er gott að geta gripið
með sér málninguna,
pensla, rúllu og spartl um
leið og þú kaupir í matinn.
Líttu við í byggingavöru-
deildinni og kynntu þér
Þér verður vel tekið heima.
HAGKAUP
Skeifunni
Til enskukennara og nem-
enda á grunnskólastigi
í Morgunblaðinu, sunnudaginn
22. mars, birtist auglýsing frá
Bókaforlaginu Erni og Örlygi, þar
sem vitnað er til orða, sem ég á
að hafa viðhaft þannig, að ekki
verður öðruvísi skilið en ég sé að
mæla með „Enskri skólaorðabók“
þessa forlags. Þetta eru vísvitandi
ragnfærslur. Ég hef aldrei mælt
með þessari tilteknu orðabók né
nokkurri annarri. Til þess skortir
mig í fyrsta lagi þekkingu og í öðru
lagi hef ég sem starfsmaður við
menntamálaráðuneytið enga heim-
ild til að mæla með eingtökum
bókum í nafni þess. Þegar fyrrnefnt
bókaforlag fór þess á leit við mig,
að ég mælti með umræddri orða-
bók, sagði ég þeim, að þeir mættu
bera mig fyrir því að áreiðanlega
væri notkun ensk-íslenskrar orða-
bókar til gagns. Lengra hafa þau
meðmæli aldrei náð. Ég er þó síður
en svo að lasta útkomu þessarar
orðabókar, en hvort hún er betri
en aðrar íslensk-enskar orðabækur
á tíminn eftir að leiða í ljós.
Reykjavík, 23. mars 1987.
Jacqueline Friðriksdóttir
Mývatnssveit:
Fjölmenni á samkomu eldri borgara
Björk í Mývatnssveit.
KIWANISKLÚBBURINN Herðu-
breið í Mývatnssveit bauð eldri
borgurum í sveitinni til mann-
fagnaðar í Hótel Reynihlíð
síðastliðinn laugardag. Fjöl-
menni var. Til skemmtunar var
upplestur, myndasýning, samspil
og söngur. Þá var kvöldverður
og siðast dans.
Samkoma þessi tókst mjög vel.
Það er vissulega ánægjulegt að
geta glatt eldra fólk með slíkum
hætti, ekki síst það sem kemur afar
sjaldan á mannamót. Virtust allir
viðstaddir skemmta sér hið besta.
Ástæða er til að þakka kiwanis-
klúbbnum þetta framtak við eldri
Mývetninga.
Kristján
Krýsuvíkursamtökin
Þverholti 20
minna á átak til
hjálpar gegn vímu-
efnum.
ATAK
TILHJÁLPAR
- 9»nn vinwfnum -
Hægt er að greiða framlög inn á gíróreikning 621005
eða
hringja í síma 621005 og láta bóka framlög sem síðan
er hægt að greiða með heimsendum gíróseðli sem
greið-
ist í næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi. Einnig má
greiða framlög gegnum innheimtukerfi VISA.
Hljómplatan/hljómsnældan
„MIRRORED IMAGE“ er til sölu á
skrifstofu Krýsuvíkursamtakanna í
Þverholti 20 og kostar kr. 1000.-
4f
VERTU ÁHYGGJUIAUS
MEÐAN BÖRNIN BAÐA SIG!
Danfoss baöblöndunartækin eru hitastillt. Þú
ákveður hitastigiö og skrúfar frá - Danfoss held-
ur hitanum stöðugum. Öryggishnappur kemur í
veg fyrir að börnin stilli á hærri hita en 38°C.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2,SlMI 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA