Morgunblaðið - 25.03.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
31
Bandaríkin:
Fundu kóka-
ín fyrir
324 milljón-
ir dollara
Los Angeles. Reuter.
LÖGREGLAN fann yfir 870 kíló
af kókaíni, að verðmæti um 324
milljónir dollara, á mánudag og
handtók tvo Kólumbíumenn og
einn Kúbumann vegna málsins.
Tveir mannanna voru handtekn-
ir, þegar þeir voru að bera ferða-
tösku með 30 kílóum af efninu í
út úr bíl.
í húsi, sem mennirnir höfðu ver-
ið í, fundust 840 kíló af kókaíni til
viðbótar, að því er talsmaður lög-
reglunnar sagði. Þar var þriðji
maðurinn handtekinn.
Mennimir voru leystir úr haldi
gegn 100.000 dollar tryggingu.
Lögreglan ætlar að fara fram á að
tryggingarféð verði hækkað í fimm
milljónir dollara.
Lögreglan í Los Angeles hefur
fundið 1.670 kíló af kókaíni, að
verðmæti um 628 milljónir dollara,
• það sem af er þessu ári, næstum
tvisvar sinnum meira en á sama
tíma í fyrra.
Menningarmálaráðherra Frakka:
Mistðk að
hefja herferð
gegn klámritum
París, Reuter.
FRANCOIS Leotard, menn-
ingarmálaráðherra Frakk-
lands, sagði á mánudag að
tilraunir stjórnarinnar til að
banna viss klámrit væru
„ótrúleg pólitísk mistök“.
Leotard sagði í útvarpsviðtali
að tilraunir Charles Pasqua inn-
anríkisráðherra til að hreinsa til
á blaðsölustöðum og í sjoppum
væru neyðarlegar.
Innanríkisráðuneytið hefur
þegar bannað dreifingu og sölu
fimm klámrita verði dreift og þau
seld þar sem allur almenningur
hefur aðgang að, samkvæmt
umdeildum lögurn um barna-
vernd frá árinu 1949.
Fimm önnur rit, þ. á m. hið
vinsæla hommablað Gai-Pied,
franska útgáfan af Penthouse og
ljósmyndablaðið Photo, eiga bann
yfir höfði sér. Lög þessi eru
venjulega aðeins notuð til að
stöðva útgáfu svæsins kláms.
„Það er rangt að halda að
tímaritið Photo stríði gegn sam-
visku nokkurs manns,“ sagði
Leotard. Lögin frá 1949 kveða á
um að yfirvöld megi banna sölu
tímarita án þess að málið fari
fyrir rétt. Þessi herför innanríkis-
ráðherrans hefur verið hædd og
hefur hún mætt andstöðu allra
flokka. Bæði háttsettir hægri
menn og sósíalistinn Francois
Mitterrand forseti hafa mótmælt
henni.
En Pasqua hefur heitið að
halda ótrauður áfram og sagði
hann gaulistum á sunnudag að
sér bæri skylda til að sjá til þess
að farið væri eftir lögunum með-
an þau væru í gildi.
Reutcr
Háskalegt nautaat
Spánveijinn Juan Cuellar sótti ekki gull i greipar þessa 497 kg
tarfs á Las Ventas leikvanginum í Madrid á sunnudag. Cuellar
er að læra að verða nautabani, en ekkert skal sagt um hvort
sveiflur af þessu tagi eru hluti af námi hans. Hann var færður
á slysavarðdeild og var þar gert að sárum hans. Cuellar reyndist
ekki mikið slasaður.
Júgóslavía:
Stjómvöld sýna
vilja til að
miðla málum
Belgrad, Reuter.
STJORNVÖLD í Júgóslavíu hyggjast milda nokkuð þær ráðstafanir
sem gripið hafði verið til í því skyni að bæta efnahag landsins. Til-
kynnt var í fyrrakvöld að gerðar yrðu breytingar á löggjöf um
frystingu launa og komið til móts við starfsmenn þeirra fyrirtækja,
sem verst hafa orðið úti.
Verkamenn víða um land hafa
gripið til skyndiverkfalla til að mót-
mæla frystingu launa og hafa
talsmenn þeirra sagt að í sumum
tilfellum jafngildi þetta helmings-
íækkun launa. Samkvæmt löggjöf-
inni áttu laun verkamanna að
haldast í hendur við framleiðni fyr-
irtækja. Talsmenn verkamanna
sögðu löggjöfina vera ósanngjama
þar eð framleiðni_ fyrirtækja væri
oft árstíðabundin.Á föstudag skýrði
Branko Mikulic, forsætisráðherra
Júgóslavíu, frá því að verðstöðvun
á tilteknum vörum hefði verið leidd
í lög til að vega á móti frystingu
launa. Um síðustu helgi lýsti Mik-
ulic frá því að valdhafar myndu
ekki hika við að beita hervaldi til
að koma í veg fyrir ólögleg verk-
föll og andóf.
Nú hafa stjórnvöld boðað að lög-
gjöfín verði milduð gagnvart starfs-
mönnum þeirra fyrirtækja, sem
hafa með höndum árstíðabundna
starfsemi og má þar nefna bygg-
ingariðnað og ferðamannaþjónustu.
Þá munu kjör þeirra sem starfa
innan heilbrigðis- og menntakerfís-
ins verða bætt. Hagfræðingur sem
Reuters fréttastofan ræddi við
sagði að erfítt væri að skilgreina
hugtakið „árstíðabundinn rekstur“
og því bentu þessar tilslakanir til
þess að stjórnvöld hefðu látið undan
þiýstingi almennings. Vestrænir
sendimenn í Júgóslavíu sögðu ráð-
stafanir þessar í raun fela í sér
viðurkenningu á því að „frysting
launa“ hefði verið ósanngjörn og
stjómvöld virtust reiðubúin til mála-
miðlunar.
Sovézkur tölvufræð-
ingur biður um hæli
Aþena, Reuter
ÞRJÁTIU og tveggja ára gam-
all sovézkur tölvufræðingur
Alexei Rismenyi, sótti um að fá
pólitískt hæli í Grikklandi
skömmu eftir að hann kom til
Aþenu frá Vínarborg á mánu-
dagskvöld. Fréttin hefur verið
staðfest af opinberum aðilum
Heimildir Reuter fréttastofunn-
ar segja að eiginkona Rismenyi,
sem er búlgörsk hafí kennt við
Tónlistarháskólann í Aþenu
síðustu fjögur ár. Ekki hefur verið
ákveðið, hvort tölvufræðingurinn
fær hæli og rannsaka yfirvöld nú
mál hans.
il
PÍ ? í:.'
íííiíií
i
I
Auglýsing um innlausn
happdrættísskuldabréfa
rödssjóðs
J flokkur 1977
Hinn 1. apríl nk. hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóös
í J flokki 1977, (litur: grænn).
Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 2.500,00, nú kr. 25,00,
verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á
framfærsluvísitölu frá útgáfudegi á árinu 1977 til gjalddaga í ár.
Innlausnarverð hvers skuldabréfs í greindum flokki er kr. 886,00
Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda á,
að bréfin eru eingöngu innlevst í afgreiðslu Seðlabanka íslands.
Hafnarstræti 10, Revkjavfk.
Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu
Seðlabankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða
hvar sem er á landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans.
Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar framfærsluvísitölu
Skuldabréfin fyrnast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 1. apríl 1987.
Reykjavík, mars 1987
I
í.-.v:
i
Íívl
SEÐLABANKI ÍSLANDS