Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ Útgefandl Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulitrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö. Albert axlar ábyrgðina Akvörðun Alberts Guðmunds- sonar um að biðjast lausnar frá ráðherraembætti og sú niður- staða stjórnar Fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík að taka skipan framboðslista sjálf- stæðismanfta í höfuðborginni ekki til endurskoðunar í kjölfar afsagnar ráðherrans, ætti að leiða til viðun- andi friðar í Sjálfstæðisflokknum. Vissulega eru íjölmargir Sjálfstæð- ismenn og kjósendur Sjálfstæðis- flokksins ósáttir við þá ákvörðun, að Albert Guðmundsson víki ekki af framboðslistanum. Með sama hætti fer ekki á milli mála, að fjöl- margir stuðningsmenn Alberts Guðmundssonar una því illa, að hann skuli ekki hafa tekið ákvörðun um að efna til sérframboðs í kom- andi kosningum. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, stóð frammi fýrir erfíðri ákvörðun, vegna þeirra athugasemda sem skattrannsókn- arstjóri hefur gert við skattframtal fráfarandi iðnaðarráðherra og alveg sérstaklega, þar sem þær snerta ráðstafanir, sem hann hafði gert meðan hann var fjármálaráðherra og yfirmaður skattamála í landinu þ.á m. skattrannsókna. Ef formað- ur Sjálfstæðisflokksins hefði sem fjármálaráðherra gefíð fyrirmæli um, að mál Alberts Guðmundssonar fengi ekki almenna meðferð, hefði mátt saka hann um að hylma yfír skattalagabrot. Hefði hann tekið frumkvæði um að skýra opinberlega frá athugasemdum skattyfírvalda, þegar er honum urðu þær kunnar, hefði hann verið sakaður um of- sóknir á hendur Albert Guðmunds- syni. Fjármálaráðherra ræddi málið í fyrstu einslega við Albert Guð- mundsson og hvatti hann til þess að taka frumkvæði um að skýra frá athugasemdum skattrannsóknar- stjóra opinberlega. Nokkrum vikum eftir að málið kom upp var ljóst, að óhjákvæmilegt væri að skýra þingflokki Sjálfstæðisflokksins frá því og var það gert 13. marz. Þeg- ar vikublað birti upplýsingar um málið 19. marz átti Þorsteinn Páls- son ekki annarra kosta völ en að staðfesta opinberlega, að mál þetta hefði komið upp, þótt Albert Guð- mundsson væri þá staddur erlendis. Þjóðin hefði einfaldlega ekki sætt sig við þriggja daga þögn, eftir að málinu hafði verið hreyft opinber- lega. Menn getur greint á um, hversu alvarlegt skattalagabrot hér er um að ræða, ekki sízt í ljósi þess, að undanskot frá skatti er nánast þjóð- aríþrótt á íslandi. Hér er hins vegar um að ræða skattframtal þáverandi fjármálaráðherra landsins. Málið varðar því annars vegar skyldur opinbers embættismanns og hins vegar trúnað stjómmálamanns og stjómmálaflokks við umbjóðendur sína. Stöðu sinnar vegna hlaut Þor- steinn Pálsson því að taka af skarið, sem hann og gerði. Margir af stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins munu gagn- rýna Þorstein Pálsson fyrir það, að krefjast þess ekki, að Albert Guð- mundsson víki af framboðslistanum í Reykjavlk, en þar skipar hann efsta sæti og er því oddviti sjálf- stæðismanna í höfuðborginni í kosningabaráttunni. Þeir munu segja sem svo, að úr þvi', að ráð- herrann hafí orðið að segja af sér hinu háa embætti vegna þessa máls, geti hann ekki frekar skipað þetta sæti. Morgunblaðið varaði við því sl. haust, að þessi skipan fram- boðslistans ætti eftir að leiða af sér vandamál, ekki sízt fyrir Albert Guðmundsson sjálfan, vegna við- kvæmrar stöðu hans í tengslum við Hafskipsmálið. En eins og mál hafa nú skipast er sú gagnrýni á for- mann Sjálfstæðisflokksins hins vegar ósanngjöm, að hann hefði átt að ganga lengra en raun ber vitni. Með því að segja af sér ráð- herradómi hefur Albert tekið óhjákvæmilega ábyrgð á eigin herð- ar. Hann tekur afleiðingunum með afsögn. Það er sjaldgæft í íslenzk- um stjómmálum. Sú höfuðskylda hvílir á hveijum þeim, sem gegnir formennsku í Sjálfstæðisflokknum, að halda flokknum saman. Með þessari nið- urstöðu tryggir Þorsteinn Pálsson viðunandi frið í flokknum. Sjálf- stæðismenn hefðu átt erfítt með að sætta sig við nýjan klofning eft- ir erfíðleika fyrri ára. Albert Guðmundsson hefur af sinni hálfu lagt fram skerf til þess að tryggja þennan frið. Sá hljóm- grunnur, sem hann hefur hlotið síðustu daga, gefur til kynna, að sérframboð Alberts hefði notið öflugs stuðnings fólks úr öllum átt- um. Sú afstaða hans að fara ekki þá leið, sýnir, að honum er í mun að varðveita einingu Sjálfstæðis- manna. Þeir, sem kunna lítt að meta þennan umdeilda stjómmála- mann, eiga að virða við hann, að sjálfur tekur hann á sig veruleg skakkafoll í hópi stuðningsmanna sinna með því að hlíta ekki kalli þeirra um sérframboð í komandi þingkosningum. Stjómmálabaráttan hér á íslandi er orðin afar miskunnarlaus. Því veldur ekki sízt það mikla návígi, sem fjölmiðlamir skapa. Þeir, sem taka þátt í stjómmálum, þurfa að hafa býsna hreint borð. Annars eiga þeir á hættu að kalla yfír sig og fjölskyldur sínar mikil óþægindi. Það er alltaf þungbært að horfa upp á mál af þessu tagi. Enginn veit hver verður næst fyrir skakka- föllum. Þess vegna skyldu menn varast að gera vandamál sem þessi að pólitísku bitbeini. Það skiptir máli fyrir þjóðarheildina að menn komist sæmilega ósárir frá stjóm- málabaráttunni. Því miður er það fremur sjaldgæft. Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert upp sín mál í augsýn alþjóðar. Margir verða ósammála niðurstöð- unni en þeir hinir sömu gera engum greiða með því að neita að slíðra sverðin. Albert Guðmundsson lagði fram lausnarbeiðni sína í gær: Þingflokkurinn féllst á lausnarbeiðni hans „ÞINGFLOKKSFUNDI var að ljúka. Á þessum fundi var ein- ungis eitt mál á dagskrá: Það var lausnarbeiðni Alberts Guð- mundssonar," sagði Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, i upphafi blaðamannafundar sem hann, ásamt Albert Guðmundssyni og Þorsteini Pálssyni, hélt í húsa- kynnum Alþingis að afloknum þingflokksfundi síðdegis í gær. Ólafur sagði að þingflokkurinn hefði fallist á lausnarbeiðnina, jafnframt því sem þingflokkur- inn hefði falið formanni flokks- ins, Þorsteini Pálssyni að gegna embætti iðnaðarráðherra á með- an þessi ríkisstjórn situr, auk embættis fjármálaráðherra. Albert kvaðst hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum í þessu máli og hann sagðist ekki sjá neina ástæðu fyrir því að málum væri nú komið eins og raun bæri vitni. Hann kvaðst bæði vera særður og þreytt- ur. Hann var spurður hvort þetta hefði verið erfið ákvörðun og vísaði hann á formann þingflokksins, til svara við þeirri spumingu: „Fyrir þingflokkinn var þetta erfið ákvörð- un, því svara ég játandi," sagði Ólafur. Albert var mikið spurður um það hvort hann teldi að stjórn fulltrúa- ráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík myndi taka ákvörðun um að kalla saman fulltrúaráðsfund, með það í huga að víkja honum úr efsta sæti framboðslistans í Reykjavík. Albert svaraði spurning- um þess efnis á þann veg að vera hans í ríkisstjórn hefði verið eina tilefni þess þingflokksfundar sem var tilefni fundarins með frétta- mönnum. Taldi hann af og frá að reynt yrði að víkja honum af lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Albert var spurður hvort hann myndi ekki gera kröfu um ráð- herraembætti í næstu ríkisstjórn, sem efsti maður á lista Sjálfstæðis- flokksins: „Það getur vel verið, en ég veit ekkert hvort það verður Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins: „ A ekki að höggva tvisvar í sama knérunn sama dag“ ÞORSTEINN Pálsson formað- ur Sjálfstæðisflokksins mætti á fund stjórnar fulltrúarráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik i gær og gerði stjórn- inni grein fyrir atburðum þeim sem átt höfðu sér stað fyrr um daginn, þegar Albert Guð- mundsson baðst lausnar frá embætti iðnaðarráðherra og þingflokkurinn féllst á þá beiðni hans. Þorsteinn vék af fundi ráðsins, við svo búið, og beið niðurstöðu ráðsins á skrif- stofu sinni í Valhöll. Þorsteinn sagði í samtali við Morgunblaðið, eftir að fulltrúa- ráðsfundinum var lokið: „Albert Guðmundsson hefur í dag axlað pólitíska ábyrgð með því að taka sjálfur ákvörðun um að segja af sér ráðherraembætti af þessum sökum. Ég gerði stjórn fulltrúa- ráðsins grein fyrir þróun þessa máls og niðurstöðunni,“ sagði Þorsteinn, „en nú finnst mér vera kominn tími til að menn snúi sér að mikilvægari málum. Ég hef það ekki á tilfinningunni að Sjálf- stæðisflokkurinn eigi að höggva tvisvar í sama knérunn á þessum degi.“ Þorsteinn var spurður hvort þetta mál hefði ekki komið upp á yfírborðið, ef ekki hefðu komið til blaðaskrif í síðustu viku: „Ég var búinn að gera Albert Guðmunds- syni grein fyrir minni afstöðu og að ég teldi að hann ætti að segja af sér eftir að hann hafði sent skattrannsóknarstjóra skýringar sínar. Þetta mat mitt kynnti ég síðan í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins á fundi, áður en Albert Guðmundsson fór til Kaupmanna- hafnar. Honum var því fullljós afstaða mín, áður en hann hélt utan,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn sagði þegar hann var spurður hvort það kæmi til greina að Albert yrði ráðherra í næstu ríkisstjóm: „Albert verður ekki ráðherra aftur." Steingrímur Hermannsson: Þykir þetta mjög leitt „ÉG HEFÐI kosið, að þessi ríkis- stjórn hefði getað setið óbreytt út kjörtímabilið. Það er ekki langt eftir,“ sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á afsögn Alberts Guð- mundssonar. „Mér þykir mjög leitt að fá þetta svona á seinasta mánuðinum. En „MÉR finnst þetta ekki koma Kvennalistanum nokkurn skap- aðan hlut við. Þetta er mjög augljóslega innanflokksmál Sjálfstæðisflokksins og tímasetn- ingin fáránleg, þar sem hún byggist ekki á neinu nýju atriði í málinu. Þetta er hundgamalt vandamál og ef þetta er spurning um siðgæðisvitund ráðherranna átti Albert auðvitað að vera bú- inn að segja af sér fyrir löngu,“ sagði Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Kvennalistans, þegar ég ítreka það sem ég hef áður sagt, að á þessu stigi málsins er þetta ákvörðunaratriði viðkomandi flokks. Ég vil því ekki leggja mat á þessa afsögn." Forsætisráðherra sagði, að af- sögn iðnaðarráðherra hefði ekki í för með sér nein eftirmál í ríkis- stjóminni. Morgunblaðið leitaði álits hennar á afsögn Alberts Guðmundsson- ar. „Það fer einstaklega í taugamar á mér, að þetta persónuvandamál Sjálfstæðisflokksins skuli yfír- skyggja alla umræðu í fjölmiðlum og taka m.a. athyglina frá baráttu kennara og heilbrigðisstétta fyrir bættum kjömm. Fjármálaráðherra ætti að beina orku sinni og tíma frekar að lausn þeirrar deilu,“ sagði Kristín Halldórsdóttir ennfremur. Stjómarfundur fulltrúaráðsins stó flokksins, vék af fundi stjórnarini Kristín Halldórsdóttir: Skyggir á baráttu kenn- ara og heilbrigðisstétta fyrir bættum kjörum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.