Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
35
Selfoss:
Nýir eigendur taka við
Prentsmiðju Suðurlands
Selfossi. »
hlutafjáreign sína og keypti eignar-
hluta Vigfúsar Jónssonar. Þessir
fjórir aðilar eiga samtals um 75%
hlutafjár fyrirtæksins.
Om Grétarsson hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri í stað
Haraldar Hafsteins Péturssonar,
sem láta mun formlega af því starfi
á 30 ára afmæli fyrirtækisins í júlí.
Hjá prentsmiðjunni vinna 12
manns í fullu starfi og hefur afkoma
fyrirtækisins verið viðunandi á und-
anfömum ámm. Hinir nýju eigend-
ur sögðust fyrst og fremst beina
kröftunum að markaðnum austan
heiðar en jafnframt afla verkefna
annars staðar frá.
— Sig. Jóns.
Á AÐALFUNDI Prentsmiðju
Suðurlands hf. á Selfossi, 12.
mars siðastliðinn, tóku nýir eig;
endur .við stjórn fyrirtækisins. í
stjórn þess eiga nú sæti Guð-
mundur Signrðsson, sem er
stjórnarformaður, Grétar Símon-
arson og Gunnar Jónsson.
Prentsmiðja Suðurlands er rót-
gróið fyrirtæki á Selfossi og hóf
starfsemi fyrir 30 ámm. Hinir nýju
aðaleigendur fyrirtækisins eru:
Guðmundur Sigurðsson, Grétar
Símonarson og Örn Grétarsson,
sem keyptu eignarhluta Haraldar
Hafsteins Péturssonar, Gísla
Bjamasonar og Arnolds Pétursson-
ar. Jón G. Jóhannsson prentari jók
Morgunblaðið/Sigurður P. Björnsson
Öm Grétarsson nýr-
áðinn framkvæmda-
stjóri og Guðmundur
Sigurðsson formaður
stjórnar.
Laxveiðimenn æfa köst
Húsavík.
MEÐ hækkandi sól er farinn
að koma fiðringur í laxveiði-
menn á Húsavík. Nýlega tóku
þeir fram kaststangir sínar og
hófu að æfa köst í hinu nýja
og glæsilega íþróttahúsi. Leið-
beinandi var Árni Guðbjörns-
son frá Reykjavík. Á myndinni
er Árni að leiðbeina elsta þátt-
takandanum, Hallmari Helga-
syni, 83 ára, áður velþekktur
sjómaður en er nú hættur öllum
veiðum, nema laxveiði, sem
hann stundar enn af miklum
áhuga.
Reykhólaskóli:
Söfnuðu í ferðasjóð með
því að hlaupa 100 km
Miðhúsum, Reykhólasveit.
NEMENDUR Reykhólaskóla
söfnuðu áheitum í ferðasjóð sinn
nýlega með því að hlaupa 100
km. Hver nemandi hljóp að með-
altali 2,4 km. Sumir nemendur
hlupu lengra en aðrir styttra.
Samtals runnu í ferðasjóðinn
vegna áheitanna 21.500 krónur.
Nemendaráð hefur verið duglegt
að efla sjóðinn og á öskudaginn
beitti það sér fyrir miklum fagnaði,
sem foreldrar, kennarar og nem-
endur tóku þátt í. Þá klæddust öll
börnin furðufötum og var höfð úti-
Morgunblaðið/Jón Ólafsson
Það verður að hvíla sig eftir
svona langt hlaup.
GENGIS-
SKRÁNING
Nr. 56 - 23. mars 1987
Kr.
Ein.Kl. 09.15 Kaup
Dollari
St.pund
Kan.dollari
Dönskkr.
Norsk kr.
Sænskkr.
Fi.mark
Fr.franki
Belg. franki
Sv.franki
Holl. gyllini
V-þ. mark
ft. líra
Austurr.seh.
Port. escudo
Sp. peseti
Jap.yen
írsktpund
SDR (Sérst.)
38,960
62,881
29,796
5,6845
5,6558
6,1186
8,7198
6,4259
1,0329
25,5425
18,9448
21,4007
0,03007
3,0461
0,2775
0,3054
0,25853
57,215
49,6233
ECU, Evrópum. 44,4456
Kr.
Sala
39,080
63,075
29,888
5,7020
5,6732
6,1374
8,7466
6,4457
1,0361
25,6212
19,0032
21,4666
0,03017
3,0555
0,2783
0,3064
0,25932
57,391
49,7758
44,5825
Toll-
gengi
39,290
60,135
29,478
5,7128
5,6431
6,0929
8,7021
6,4675
1,0400
25,5911
19,0617
21,5294
0,03028
3,0612
0,2783
0,3056
0,25613
57,422
49,7206
44,5313
Ný álma tekin í notkun
Stykkishólmi.
FYRRI hluta marsmánaðar var
ein álman í nýja sjúkrahúsinu í
Stykkishólmi opnuð til afnota.
Við þetta tækifæri var systrun-
um sýndur mikilsverður sómi,
margar blómagjafir og hlý hand-
tök frá fjölmörgum velunnurum
sem samglöddust þeim og Hólm-
inum með þetta verulega átak í
heilbrigðis- og sjúkrahúsmálum
hér i bæ. Meðal þeirra sem fluttu
árnaðaróskir var sveitarstjórinn,
Sturla Böðvarsson, og formaður
Verkalýðsfélagsins, Einar Karls-
son, en þeir hafa um árabil ásamt
systur Renee verið í byggingar-
nefnd sjúkrahússins.
Þessi viðbygging við sjúkrahúsið
er 7 hæðir alls og er þarna meðal
annars heilsugæslustöð. J.E. Þor-
steinsson arkitekt teiknaði hana en
yfirumsjónarmaður með bygging-
unni er Hörður Kristjánsson
húsasmíðameistari en yfirsmiður
byggingarinnar er Ásgeir Gunnar
Jónsson húsasmíðameistari í Stykk-
ishólmi.
Þessi álma sem tekin var nú í
notkun er á þriðju hæð og alls 450
fermetrar. I henni eru 13 ný sjúkra-
rúm með allskonar þægindum, svo
sem baði, salerni, útvarpskerfi og
öryggistækjum til að gera vart við
sig. Rúmin eru sérstaklega hönnuð
og létu sjúklingar vel af. Þá er rúm-
góð og þægileg dagstofa með
bókasafni, útvarpi og sjónvarpi.
Vinnuherbergi hjúkrunarfræðinga,
vaktherbergi starfsfólks og eldhús.
Þá er ný lyfta sem tekin hefír verið
í notkun og stór gangur milli her-
bergja. Allt er þetta vandað og
sérstakt. Margir iðnaðarmenn hafa
lagt hér á gjörva hönd, Andrés
Kristjánsson í Stykkishólmi séð um
pípulögn, Eggert Sigurðsson s.st.
annast teppa- og dúklagnir, starfs-
fólk Aspar unnið byggingavinnu og
Sigurþór Guðmundsson séð um raf-
lagnir.
Það fer ekki á milli mála að með
Morgunblaðið/Ámi
4 l
í
Byggingameistarinn Ásgeir
Gunnar Jónsson, systir Renee og
systir Lena.
opnun þessa áfanga er brotið blað
í heilbrigðismálum Stykkishólms,
sem allir fagna og vita að á eftir
að skila góðum verðmætum í heil-
brigði bæjarins. Príorinna er nú
systir Lena Verbeek. Yfírlæknir
sjúkrahússins er Óli Kr. Guðmunds-
son en heilsugæslulæknar þeir
Pálmi Frímannsson og Friðrik Jóns-
son.
Kjallarahæð er að mestu lokið,
en 5 hæðir er eftir að ganga frá.
Þetta kemur allt, en hvenær, því
ræður það fjármagn sem næst á
hveijum tíma. Sjúkrahúsið sjálft
fjármagnar bygginguna að Vio hlut-
um. Hitt kemur frá ríkinu og
Stykkishólmshreppi.
Á sjúkrahúsinu vinna nú um 70
-manns í allt en af þeim eru nokkrir
í hálfu starfí og er sjúkrahúsið því
einn stærsti atvinnurekandi hér í
bæ og þess má geta að í sambandi
við sjúkrahúsið er myndariegt dag-
heimili fyrir böm, sem kemur sér
vel fyrir vinnandi bæjarbúa._
— Árni
, hNHí
skemmtun í sumarveðri og þar á
eftir var höfð löng dagskrá og
grímuball. Á eftir var öllum boðið
til kaffidrykkju.
Nemendur skólans eru nú sextíu
og níu kennarar, þar af nokkrir í
hlutastarfi. Skólastjóri er Steinunn
Rasmus.
— Sveinn
Hver nemandi hljóp að meðaltali
2,4 km.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Prentsmiðja Suðurlands stendur á horni Eyrarvegar og Engjavegar
á Selfossi.
Sjúkrahús Stykkishólms:
Nýja álman í sjúkrahúsinu sem tekin var í notkun í byrjun mars.