Morgunblaðið - 25.03.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
45
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag ætla ég að fjalla um
árið framundan hjá Hnitum
(20. mars—19. apríl). Ein-
ungis er miðað við afstöður á
sólarmerkið. Önnur merki
hafa því einnig áhrif hjá
hveijum og einum.
Þensla
Júpíter verður í Hrútsmerk-
inu allt næsta ár og því má
segja að árið komi til með að
einkennast af bjartsýni,
þenslu og þörf fyrir að víkka
sjóndeildarhringinn. Það get-
ur m.a. birst í mörgum nýjum
áformum og ferðalögum.
Nýjungar
Það að Júpíter er í Hrúts-
merkinu táknar að í ár er
gott að breyta til, færa út og
stækka við sig. A hinn bóginn
er þetta ekki gott ár fyrir
vanabindingu. Hrútar mega
því búast við að finna fyrir
óþolinmæði og þörf fyrir að
hugsa stærra og horfa lengra
en áður. Þeir þurfa einungis
að varast að láta bjartsýnina
ganga of langt. Því er vissara
að kunna sér hóf og gæta
þess að nýju áformin verði
ekki of stór og óhófskennd.
Skipulag
Þeir Hrútar sem fæddir eru
frá 5.—15. aprfl fá hagstæðar
afstöður frá Satúrnusi á ár-
inu. Það táknar að þeir eiga
auðveldara með að skipu-
leggja líf sitt en áður og geta
búist við meðbyr í ýmsum
hagnýtum athöfnum.
SjálfstœÖi
Þeir Hrútar sem fæddir eru
frá 13.—18. apríl fá hagstæð-
ar afstöðu frá Uranusi. Það
táknar að þeir eiga nú auð-
velt með að breyta til, geta
losað sig undan hömlum og
öðlast aukið sjálfstæði.
Næmleiki
Þeir Hrútar sem eru fæddir
frá 26,—30. mars þurfa að
takast á við Neptúnus. Það
táknar að næmleiki þeirra
eykst á árinu, að augu þeirra
opnast fyrir stærri veruleika
en áður. Víðsýni eykst því til
muna, en einnig getur óvissa
aukist, sérstaklega fyrst í
stað.
Andleg áhrif
Best er að beina orku Neptún-
usar inn á andleg og listræn
svið. T.d. getur verið gott að
vinna fyrir líknarfélög, eða
hugsa meira um hag náung-
ans en áður og almennt að
rétta fólki hjálparhönd. Árið
er einnig tilvalið til að læra
á hljóðfæri, sækja danstíma,
myndlistarnámskeið, leikhús
o.s.frv.
Vímugjafar
Þeir Hrútar sem fá Neptúnus
yfír sig þurfa hins vegar að
varast vímugjafa á komandi
ári og tilhneigingu til að flýja
ábyrgð. Þeir þurfa að gæta
þess að ganga hreint til verks
og varast að fara of miklar
krókaleiðir að markmiðum
sínum. Neptúnusi fylgir oft
hræðsla við að horfast í augu
við staðreyndir og berjast ein-
arðlega fyrir málstað sínum.
Gott ár
Þegar á heildina er litið verð-
ur næsta ár hins vegar að
teljast gott og Hrútnum hag-
stætt. Plútó er hlutlaus.
Satúrnus er hagstæður. Úr-
anus er einnig hagstæður.
Neptúnus er eina plánetan
sem getur verið varhugaverð
(fyrir 26.—30. mars). Það fer
þó eftir því hvemig á málum
er haldið. Síðast en ekki síst
er Júpíter í sjálfu Hrútsmerk-
inu. Kraftur og bjartsýni
fylgir því Hrútnum. Einungis
er gott að muna að allt er
best í hófi.
/v nni ir*
uAKrUK
GRETTIR
DYRAGLENS
n
|ií !<(
ji(
(ík fh.
([ii' íliÍL-
©1986 Trlbun* M«dia Servicaa. Inc.
LJOSKA
AF HVEfZJU
LESTU ÞAO
FASÆTlN
OKlCAf?
FERDINAND
SMAFOLK
ONE TMINS ABOUT
LIV/IN6 IN THE.PE5ERT..
THERE'5 ALWAY5 50METHIN6
EXCITIN6 TO PO...
[~*er
LIKE RI6HT NOU),
FOR IN5TANCE...
A R0U5IN6 6AME OF
“HATONTHE CACTU511 í
Jæja, nýr dagur!
Það góða við að búa í eyði-
mörkinni er að það er
alltaf eitthvað spennandi
að gera ...
Eins og til dæmis núna.
Æsispennandi leikur,
„Hattur á kaktus“!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er alltaf viss hætta á því
að menn missi áhugann þegar
gosi er hæsta spilið á hendinni
og andstæðingarnir melda sig
hratt og örugglega upp í
slemmu. En það getur verið dýr-
keypt að láta slíkt áhugaleysi í
ljós gegn næmum sagnhafa.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁD92
¥ ÁKG63
♦ 3
♦ Á54
Vestur
♦ 65
¥ 1097542
♦ G9
♦ 1072
Austur
♦ KG73
¥D
♦ D108752
♦ D6
Suður
♦ 1084
¥8
♦ ÁK64
♦ KG983
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta Pass 1 grand
Pass 2 spaðar Pass 6 gríind!
Pass Pass Pass
Suður fór rólega af stað í
sögnum, en eftir „reverse" norð~
urs taldi hann sig eiga nóg í
slemmu. Og hjartatían lá á borð-
inu áður en austur náði að
kyngja munnvatninu.
Sagnhafí skoðaði blindan
nokkra hríð. Spilið yrði greini-
lega að liggja vel. Oþolinmæði
vesturs og svitaperlurnar á enni
austurs urðu til þess að sagn-
hafí stakk upp á hjartaás í fyrsta
slag. Þar með er fyrsti bjöminn
unninn og næst var að prófa
laufíð. Drottningin kom sjálf-
krafa í leitimar, og nú vantaáf'
aðeins einn slag. Spaðasvíningin
„blasti við“ en það mælti þó
ýmislegt á móti henni. Austur
átti eitt hjarta og tvö lauf, svo
hin tíu spilin hlutu að vera spaði
og tígull. Auk þess virtist vestur
undarlega áhugalaus, en austur
á hinn bóginn sem hengdur upp
á þráð.
Suður ákvað að fylgja tilfinn-
ingunni og spila austur upp á
spaðakónginn. Þá ynnist spilið
ef hann ætti í það minnsta sex
tígla. Sagnhafí spilaði öllum
laufunum og fór svo inn á blind-
an á spaðaás:
Vestur Norður ♦ D9 ¥ G6 ♦ 3 ♦ - Austur
♦ 6 ♦ KG
¥109 111 ¥ —
♦ G9 ♦ D108
*- ♦ -
Suður >
♦ 108 ¥ — ♦ ÁK6 ♦ -
Hjartagosinn „knúsaði" aust-
ur í „hörðu“ litunum. Til að
missa ekki valdið á tíglinum
neyddist hann til að henda
spaðagosanum. Og þá mátti
sækja 12. slaginn á spaða í ró-
legheitunum.
Sterkurog .
hagkvæmur
auglýsingamiðiU!