Morgunblaðið - 25.03.1987, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
51
Anna Kristjáns-
dóttir — Minning
Anna Kristjánsdóttir, tengda-
móðir mín, lést 13. mars sl., sjötíu
og sjö ára að aldri. Úr tilverunni
er horfinn litríkur tónn.
Anna var Eskfírðingur að ætt.
Hún ólst upp á fátæku myndar-
heimili, dóttir hjónanna Lukku
Friðriksdóttur og Kristjáns Indriða-
sonar. Faðir Onnu missti heilsuna
á unga aldri og í þá daga var ekki
sótt í sjóð samneyslunnar, heldur
skyldi hver standa sig. Og Anna
ólst upp við harða vinnu, elst sex
systkina og eina dóttirin.
Sextán ára gömul réðst hún í
vist til Bjarna Jónssonar og Önnu
Tómasdóttur á Svalbarði í Vest-
mannaeyjum og giftist seinna syni
þeirra, Haraldi.
Fyrstu kynni okkar Önnu voru
ekki hnökralaus. Síðan höfum við
lengst af deilt kjörum, oftast vinir,
stöku sinnum óvinir. Anna var ekki
kona lítilla sanda og sæva og hún
setti mark sitt á þá sem hún kynnt-
ist. Hún var geðrík kona sem sagði
umbúðalaust meiningu sína hverj-
um sem hlut átti að máli, skeleggur
vinur þeirra sem henni fannst órétti
beittir og lét lífið í kringum sig
koma sér við.
Það kvað að Önnu við hvaðeina
sem hún tók sér fyrir hendur og
kunni hún aldrei að lifa sjálfri sér.
Gekk hún löngum til hinna erfið-
ustu verka, vann við fískþvott,
spyrðingu, sá um mötuneyti, hafði
kostgangara — sami forkurinn að
hveiju sem hún gekk. Uppruna
sínum trú var hún talsmaður hinna
vinnandi stétta og tók á yngri árum
virkan þátt í pólitískri verkalýðs-
baráttu ásamt manni sínum.
Hégómalausari konu en Önnu
hefí ég varla kynnst. Á mannfund-
um var hún jafnan hrókur alls
fagnaðar. Á unga aldri átti hún
kannski einn sparikjól árum saman,
en var drottning samkvæma og
skemmti sér best af öllum, þótt vin-
konur hennar mættu í nýjum kjól
hveiju sinni. Persóna hennar bar
þá reisn sem ekki þurfti á pijáli að
halda. Og ekki sóttist hún eftir
mannvirðingum. Metnaður hennar
var heiðarleiki og stolt sitt lagði
hún í það að vinna hvert það verk
vel sem hún tók að sér og gæta
að smáu sem stóru af stakri sam-
viskusemi.
„Hún má eiga það hún Anna að
hún virðir eignarréttinn þótt hún
sé helvítis kommúnisti,“ varð einum
nágranna hennar eitt sinn að orði
— því hún stytti sér aldrei leið (í
strætó) með því að ganga yfír tún-
ið hans eins og aðrir gerðu. Hún
gekk ekki á rétt annarra hún Anna,
og ekki safnaði hún veraldarauði.
Hún gaf það sem hún aflaði og var
höfðingi gagnvart þeim sem henni
komu við. Sjálfri sér veitti hún varla
það sem öðrum fínnst sjálfsagðir
hlutir og hafði jafnvel á síðustu
árum vissar áhyggjur af því, að hún
ætti ekki fýrir útför sinni.
Mann sinn missti Anna árið 1955
og einkasonur hennar, Sverrir Har-
aldsson listmálari, lést fyrir tveim
árum.
Gagnvart harmleik lífsins stóð
Anna upprétt, bognaði ekki, en
hlúði áfram að lífinu. Vildi ekki lifa
engum til gagns og auðnaðist að
halda reisn sinni til hinstu stundar.
Fáar manneskjur hafa reitt mig
oftar til reiði, en fáum manneskjum
er ég þakklátari.
Steinunn Marteinsdóttir
MEÐEINUSÍmU
er hægt að breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir það verða áskrift-
argjöldin skuldfærð á
viðkomandí greiðslukortareikn-
SÍMINNER
691140
691141
ISergtmblaíiiíi
Nú er líf í tuskunum og
við erum í hátíðarskapi
þessa dagana, því við
erum að taka upp nýju vor- og sumar-
línuna í álnavöru. Dustið nú
rykið af saumavélunum
eða lítið við hjá Pfaff hf.
eða Gunnari Ásgeirssyni hf.
og nýtið ykkur tilboð þeirra.
Húsmæður
góðar, hafið
þið hugleitt,
að þið
getið saumað ykkur
þrjár flíkur fyrir eina
tilbúna?
Q Hvað með börnin og bónd
ann? Og allar hátíðirnar
y' framundan?
Öll getum við orðið okkar eigin tískuhönn
uðir. Sníðapakkarnir okkar (jQ
eru svo aðgengilegir og holl
ensku blöðin full af nýjungum^Q]
Nú er í tísku að hanna og
sauma fötin sín sjálfur.
(tilefni af
því bjóðum
við undirritaðar ykkur
hjartanlega velkomnar
í sértilboðin okkar
um land allt. Hlökkum
til að sjá ykkur.
Kveðja,
§amadagar23.símts
Útsölustaðir:
Vefta, Reykjavík
Inga, Kópavogi
Nýja línan, Akranesi
Thelma, Seltjarnarnesi
Hjá Sigriði, Reykjavik
Horn, Kópavogi
Frístund, Hafnartirði
Nafnlausa búðin, Reykjavík og Hafnarfirði
Dömu- og herrabúðin, Reykjavik
Zikk-zakk, Garðabæ
Álnabúðin, Mosfellssveit
Nanó, Kópavogi
Metra, Reykjavik
Álnabær, Keflavík
Hannyrðaverslunin íris, Selfossi
Teko, Reykjavík
Enoss, Akureyri
Palóma, Grindavík
Egill Jacobsen, Reykjavik
Amaro, Akureyri
Skemman, Akureyri
Virka, Reykjavík
Rún, Griridavik
Klemma, Húsavik
Pálina, Akureyri
Ðaðstofan, Isafirði
Vogue, Reykjavik og Hafnarfirði
Bjólfsbær, Seyðisfirði
Mósart, Vestmannaeyjum
Femlna, Keflavik
Þóra, ólafsvík
Hólmkjör, Stykkishólmi
Efnaval, Vestmannaeyjum
Pöntunarfélag Eskfirðinga. Eskifirði
SKUTBÍLL 1500
Höfum þennan frábæra farkost til
greiðslu á mjög stuttum tíma.
Verð aðeins 216.000.-
Góð greiðslukjör.
Opið virka daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá
kl. 10—16. Beinn sími í söludeild 31236. Verið velkomin
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR <
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur jTjMRn