Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 25.03.1987, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ Ítalía: Juve og Milan halda áfram baráttunni • Steinar Birgisson var markakóngur norsku 1. deilarinnar í handknattleik. Hann skoraði 166 mörk í 22 leikjum. Noregur: Steinar Birgisson markakóngur Frá Bjarna Jóhannssyni í Noregi. STEINAR Birgisson handknatt- leiksmaður sem leikur með Kristjansand varð markakóngur í norsku 1. deildinni. Hann skoraði 166 mörk í 22 leikjum. Lið hans tryggði sér um helgina sseti í 4-liða úrslitakeppni um norska meistaratitilinn með þvi að vinna stórsigur á Kolbotn á útivelli, 25:16. Steinar var óstöðvandi í leiknum gegn Kolbotn á laugardaginn og skoraði 12 mörk og tryggði sér markakóngstitilinn í 1. deild. Hann hefur verið besti leikmaður liðsins í vetur. Björgvin Björgvinsson er þjálfari Kristjansand og hefur liðið undir stjórn hans komið mjög á óvart því enginn hafði reiknað með áð liðið kæmi til með að leika um meistaratitilinn. Kristjansand hafnaði í 4. sæti með 28 stig, Stavanger varð efst með 38 stig, Urædd í öðru með 31 stig Bækkelaged í þriðja með 28 stig og lið Helga Ragnarssonar og Erl- ings Kristjánssonar, Fredriks- borg/ski, varð í fimmta sæti með 26 stig og komst því ekki í úrslita- keppnina sem hefst í kvöld. Kristj- ansand mætir þá Stavanger og verður leikið heima og heiman. Athyglisvert er að fjögur af fimm efstu liðum deildarinnar hafa er- lenda þjálfara. Daninn, Mortin Stig LEIKIRNIR í átta liða úrslitum bik- arkeppni karla í handbolta fara fram á þremur stöðum í kvöld. Þrír byrja klukkan 20 og einn klukkan 21.30. Bikarmeistarar Víkings leika gegn ÍBV í Eyjum. Auðveldur leikur samkvæmt bókinni fyrir meistar- ana, en Víkingar hafa áður leikið í Eyjum og lent í mestu vandræðum. Eyjamenn hafa staðið sig vel í 2. deildinni í vetur og með sigri gegn Þór á Akureyri um næstu helgi leika þeir í 1. deild næsta keppnis- tímabil. Stórleikur verður í Digranesi. Þar keppa UBK og Valur, en liðin Christjansen, þjálfar Stavanger, Björgvin er meö Kristjansand, Helgi Ragnarsson með Fredriks- borg /ski og svo er sænskur þjálfari með Urædd. eru í 2.-3. sæti í 1. deild með 22 stig. Valur vann fyrri leik liðanna í 1. deild 29:17, en gera má ráð fyrir jafnari viðureign í kvöld. Fram og FH leika í Höllinni klukk- an 20 og Fylkir og Stjarnan klukkan 21.30. Framarar töpuðu fyrir Haukum um síðustu helgi, en FH sigraði Víking, og verða Hafnfirð- ingarnir að teljast mun sigur- stranglegri í kvöld. Fylkir er í næst neðsta sæti 2. deildar, en Stjarnan um miðja 1. deild. Stjörnunni var spáð íslands- meistaratitlinum í haust, en hann er fyrir bí og leggja Garðbæingar því allt í bikarinn. Frá Brynju Tomer á Ítalíu. YFIRMENN ítölsku knattspyrnu- liðana Juventus og Milan sætta sig ekki við þá málalyktun að aðeins tveir erlendir leikmenn verði leyfðir í hverju fyrstu deildar liði. Margir segja að það hefði ekki verið Juve líkt að samþykkja svo mikilvægt mál þegjandi og hljóðalaust, enda hafi Juventus- menn með eindæmum ákveðnar skoðanir á hlutunum. Boniperti, forseti Juve, hefur um nokkurn tíma barist fyrir því að fá þrjá erlenda leikmenn í ítölsk fyrstu deildar lið og nú hefur hann ákveð- ið að leita til aðalstöðva Evrópu- bandalagsins í Lúxemborg til að fá skorið úr um hvort ítalska knatt- spyrnusambandið hefur lagalegan rétt til að takmarka fjölda erlendra leikmanna á Ítalíu. Boniperti segir að knattspyrnumenn sóu eins og hver annar maður sem stundar sína vinnu og hann sjái ekki annað með þessari takmörkun en verið sé að brjóta í bága við lög Evrópu- bandalagsins sem kveða á um að meðlimir þess geti starfað í öðru landi jafn réttháir íbúum viðkom- andi lands. Talsmenn Juventus og Milan hafa verið sérstaklega áberandi í umræðum um þetta mál og nú nýtur Boniberti stuðnings virtustu lögfræðinga Ítalíu til að fá máli sinu framgengt. Bræðurnir og lögfræð- ingarnir Gianni og Umberto Agnelli, eigendur Juventus og Fíat-verksmiðjanna, eru dyggir stuðningsmenn Bonipertis og einnig hefur Chiusano, opinber lögfræðingur félagsins, lagt sitt af mörkum til að þriðji erlendi leik- maðurinn verði leyfður í ítölskum liðum. „Það er rétt hjá Boniperti að gefast ekki upp, heldur halda áfram baráttunni," sagði Gianni Agnelli við fréttamenn í gær. Michael Platini hefur enn ekki gefið út opinbera yfirlýsingu um hvað hann hyggst gera að loknu þessu keppnistímabili, en heyrst hefur að hann hafi þegar tilkynnt Boniperti að hann muni yfirgefa knattspyrnuna og þar með Juvent- us. Laudrup hefur valdið töluverð- um vonbrigðum, því frammistaða hans til þessa hefur ekki verið jafn góð og menn vonuðust til. Þó er talið líklegt að hann verði áfram í liðinu. lan Rush er væntanlegur til Torino í sumar og mun honum vera ætlaður staður Platinis á vell- inum. Belginn Scifo og Vestur- Þjóðverjinn Matthaeus hafa verið nefndir sem líklegir leikmenn liðs- ins á næstunni, jafnvel á næsta leikári, með þeim skilyrðum þó að Laudrup verði látinn fara og Boni- perti vinni málið um þriðja erlenda leikmanninn. Bikarkeppni HSÍ: Leikið í kvöld Keila: Þröstur sigraði SENDIBÍLASTÖÐIN Þröstur sigraði í miðsvetrarmóti fyrirtækja i keitu. Sextán fyrirtæki tóku þátt og var leikið eftir monradkerfi. Keppnin var mjög spennandi og að lokinni 5. umferð var Vega- gerð ríkisins, sem keppti í fyrsta skipti í keilu, í 2. sæti. Það sæti hreppti hins vegar Teppaland, þegar upp var staðið. B.B. smiðjan hafnaði í 3. sæti, Fógetinn í því fjórða og Sólning 1 f fimmta sæti. Sigurvegararnir eru frá vinstri: Gunnar Hersir, Haildór sigurðsson, Björn baldursson og Stefán Þorvarðarson. 1X2 •O o £ c 3 S 2 > O Tíminn c ^c 1 'a Dagur a e (0 1 « 5 oc Bylgjan Sunday Mirror Sunday People Newi of the World Sunday Expreas Sunday Telegraph SAMTALS 1 2 4 Arsenal — Everton 2 1 X 2 X i 2 X X 1 X X 3 6 3 A. Villa — Coventry 2 1 2 X 1 1 2 2 1 2 X 2 4 2 6 Chartton — Chelsea 2 2 2 1 1 1 1 4 0 3 Leicester — Man. Clty 1 1 1 X 1 1 1 1 1 X 1 X 9 3 0 Luton — Tottenham X 1 1 2 2 1 1 1 1 X 1 X 7 3 2 Man. Utd. — Nott. For. 1 1 X 1 X 1 1 1 2 1 X X 7 4 1 Newcastle - South’ton 1 1 1 X 1 1 1 1 X 1 1 1 10 2 0 Oxford — Sheff. Wed. 1 X X 1 2 2 1 X X 1 X X 4 6 2 OPR — Nonwich 1 1 1 1 1 1 1 X 2 1 1 X 9 2 1 9 1 1 1 X 1 1 9 1 9 1 Y 2 9 3 OIHham UVRA 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1? o n Portammifh — Sundarl. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 JL. 0_ Getraunir: Einn með tólf rétta leiki Fékk rúmlega sjö hundruð þúsund krónur EINN seðill með tólf réttum leikj- um kom fram hjá ísienskum getraunum um helgina. Tólfan gaf 571.470 krónur, en á seðlin- um voru einnig níu raðir með 11 réttum leikjum, sem hver gaf 15.307 krónur, þannig að sá heppni fékk 709.233 krónur í sinn hlut. Mikið var um óvænt úrslit í ensku deildarkeppninni um helgina og fyrir bragðið urðu vinningarnir í Getraununum hærri, en aðeins 16 raðir voru með 11 leikjum rétt- um. Tólfan kom á opinn kerfisseðil með 162 röðum, sem kostaði 810 krónur, og er full ástæða til að vekja athygli á þessum seðlum. Þeir eru grænir, án leikja, en í stað- inn eru tölurnar 1-12, sem tákna númer leikjanna. Minnst er hægt að tippa á 81 röð á hvern seöil, en að öðru leyti eru fjölmargir möguleikar fyrir hendi. Þessir opnu kerfisseðlar voru teknir í notkun síðastliðiö haust, en fjölmargir tipparar hafa ekki enn áttað sig á möguleikunum, sem þeir bjóða upp á, fyrir utan tímann, sem sparast við útfyllinguna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.