Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
25
Gömul mynd frá félagsfundi í Óðni.
Stétt með stétt!
eftir Sólveigu
Pétursdóttur
Sumir menn eru fljótir að gleyma
— einkum ef það, sem gleyma skal,
er eitthvað óþægilegt eða vand-
ræðalegt. Þannig eru það hreint
ótrúlega margir alþýðubandalags-
menn, sem virðast vera búnir að
gleyma, eða þykjast vera búnir að
gleyma, viðskilnaði vinstri stjórnar-
innar árið 1983. Verðbólga mældist
í þriggja stafa tölu, kaupmáttur
launa í lágmarki, húsnæðismála-
stefna stjómvalda undir forystu
húsnæðisráðherra, Svavars Gests-
sonar, var í molum. Eftir stjórnar-
setu Alþýðubandalagsins, frá 1978
til 1983, hafði verðbólga færst frá
35 prósentustigum í 130 prósentu-
stig. Verður það met vonandi aldrei
eða mjög seint slegið. Svo var kom-
ið málum, að Alþýðubandalagið,
undir forystu Svavars Gestssonar,
setti fram neyðaráætlun til fjögurra
ára gegn kreppu og atvinnuleysi.
Með þessar staðreyndir í huga
gengu kjósendur að kjörborðinu í
kosningunum árið 1983 og höfnuðu
á eftirminnilegan hátt frekari af-
skiptum Alþýðubandalagsins af
stjómun íslands, a.m.k. næstu fjög-
ur árin.
Og þessum staðreyndum halda
nú forystumenn Alþýðubandalags-
ins að kjósendur séu búnir að
gleyma. Það er svo sem ekkert
skrýtið, því þeir eru nefnilega alveg
búnir að gleyma því sjálfir. Rétt
eins og óvitarnir, sem aðspurðir eru
löngu búnir að gleyma því af hveiju
buxurnar eu blautar — og hvort það
sé þeim að kenna eða einhveijum
öðmm!
Nú getum við aftur
Og nú eru alþýðubandalagsmenn
komnir á kreik á ný — fjórum árum
síðar. Líkt og ekkert hafi í skorist
ganga þeir nú fram fyrir háttvirta
kjósendur og bjóða þeim þjónustu
sína. í leiðinni gera þeir lítið úr
því, sem áunnist hefur á undan-
fömu kjörtímabili og segja næstum
að þetta sé bara tómur grís! Það
hafi árað svo vel til lands og sjávar
að það hafi verið ómögulegt annað
en standa sig vel. í nýlegu kosn-
ingablaði Þjóðviljans er grein eftir
höfund, sem katlar sig AS. Ef að
líkum lætur er hér um að ræða
Ásmund Stefánsson, forseta ASÍ
og frambjóðanda Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík. Greinin er rituð
undir fýrirsögninni: „Frelsi ein-
staklingsins eða fijálshyggja.“
Greinin hefst á þessum orðum: „Fé-
lagsleg viðhorf verkalýðs- og
vinstrihreyfingar, krafan um sam-
stöðu og gagnkvæma ábyrgð eru í
skarpri andstöðu við mannfyrirlitn-
ingu þeirrar fijálshyggju, sem nú
veður uppi hjá hægri öflunum. Sum-
ir kunna á tímabili að hafa ruglast
á hugtökunum hægri og vinstri en
grimmdaráróður fijálshyggju-
manna hefur að nýju dregið and-
stæðurnar skýrt fram.“
Það virðast fleiri en Alþýðuflokk-
urinn ætla að róa á atkvæðamið
Sjálfstæðisflokksins, eða hvenær
hefur Alþýðubandalagið stutt frelsi
einstaklingsins í orði eða á borði?
Er það ekki ÁS sjálfur, sem hér
ruglar saman hugtökunum hægri
og vinstri? Það væri að vísu ósköp
gaman, ef frambjóðandinn væri
með þessu að boða stefnubreytingu
hjá Álþýðubandalaginu og þar með
stefnu, sem tryggði frelsi einstakl-
inga í fijálsu landi. Stefnu, þar sem
sóst er eftir samstöðu stétta og
gagnkvæmri ábyrgð, en á slíkri
stefnu byggir Sjálfstæðisflokkurinn
tilveru sína. En við nánari lestur á
grein ÁS læðist að manni sá sann-
leikur, að hér sé ekki verið að boða
nýtt fagnaðarerindi. Frekar virðist
hér vera um örvæntingarfullan
kosningaáróður að ræða. Talað er
um grimmdaráróður og mann-
fyrirlitningu hægri aflanna. Þessi
fullyrðing er í sjálfu sér ekki svara-
hæf, en segir sitt um það svart-
nætti, er nú ræður ríkjum í búðum
Alþýðubandalagsins. Til slíkra full-
yrðinga grípa menn í flokki, þar sem
málefnafátækt er yfirþyrmandi og
tilvistarvandi staðreynd.
Óðinn — félag launþega
í Sjálfstæðisflokknum
Eitt af kjörorðum Sjálfstæðis-
flokksins er: „Stétt með stétt.“ Það
á rætur að rekja til Málfundafélags-
ins Óðins, sem er félag sjálfstæðis-
manna í verkalýðshreyfingunni og
var stofnað árið 1938. Hið mikla
fylgi Sjálfstæðisflokksins meðal
verkamanna og launþega hefur frá
stofnun Óðins verið dugmiklu starfi
Óðinsmanna að þakka. Enn benda
nýjar skoðanakannanir til þess, að
fylgi Sjálfstæðisflokksins sé mjög
mikið meðal þessara hópa, en af fáu
öfunda andstæðingar sjálfstæðis-
manna þá meir en þessu fylgi.
Óðinsmenn, sem eru vafalaust
með dyggustu stuðningsmönnum
Sjálfstæðisflokksins, hafa beitt sér
fyrir mörgum góðum málum.
lfyrsta stórverkefni félagsins var
að vinna að því, að leysa verkalýðs-
samtökin skipulega úr þeim flokks-
viðjum, sem þau voru þá reyrð í.
Verkamenn máttu ekki kjósa í trún-
aðarstöður innan sinna samtaka eða
á alþýðusambandsþingum, nema
þeir fylgdu Alþýðuflokknum að
málum. Þeirþurftu jafnvel að undir-
rita stefnuskrá hans. í öðru stórmáli
létu Óðinsmenn einnig mikið til sín
taka. Það voru húsnæðismál verka-
manna. Þeir lögðu á það áherslu,
að mönnum væri gefínn kostur á
DÓMNEFND í ljóða- og smá-
sagnasamkeppni á vegum
Útgáfufélags framhaldsskól-
anna, ÚFF, hefur lokið störfum
og verðlaunað sex verk.
Verkin sem dómnefndin hefur
valið er þessi:
í ljóðaflokki:
Sólveig Pétursdóttir
„Það virðast fleiri en
Alþýðuflokkurinn ætla
að róa á atkvæðamið
Sjálf stæðisf lokksins,
eða hvenær hefur Al-
þýðubandalagið stutt
frelsi einstaklingsins í
orði eða á borði?“
að vinna sem mest sjálfir við bygg-
ingu eigin íbúðar og komu því til
leiðar, að su vinna yrði skattfijáls.
Stefna Óðins var og er að tryggja
verkamönnum stöðuga atvinnu og
auka skilning og samstarf verka-
manna og vinnuveitenda. Þessi
stefna helst mæta vel í hendur við
verk sjálfstæðismanna á síðasta
kjörtímabili. I tíð núverandi ríkis-
stjórnar hefur skapast gagn-
kvæmt traust á milli ríkisstjórn-
arinnar og aðila vinnumarkaðar-
ins. Þessu trausti hefur ekki verið
fyrir að fara í ríkisstjórnum með
þátttöku Alþýðubandalagsins á
undanfömum árum. Það er því von,
að ÁS biðli til verkalýðshreyfingar-
innar nú fyrir þessar kosningar.
1. Stjömur eftir Steinar Guð-
mundsson.
2. 39 dagar eftir Þómnni Bjöms-
dóttur.
3. Hugannir eftir Ugga Jónsson.
Í smásagnaflokki:
1. Minningar spámanns eftir Garð-
ar Amarson.
2. Skeljar eftir Ugga Jónsson.
En eru menn og konur þar jafn fljót
að gleyma og forystumenn Ál-
þýðubandalagsins? Tæplega.
Hvað gerði Alþýðu-
bandalagið fyrir verka-
lýðshreyfinguna?
Undir forystu Sjálfstæðisflokks-
ins hefur markvisst verið unnið að
því undangengin fjögur ár að reisa
við efnahagslíf þjóðarinnar og bæta
kjör almennings. Jafnhliða hefur
verið losað um hömlur og höft á
ýmsum sviðum og grunnur lagður
að alhliða framförum. Þegar Al-
þýðubandalagið fór frá árið 1983,
eftir 5 ára stjómarsetu, blasti við
rekstrarstöðvun fjölda fyrirtækja
og víðtækt atvinnuleysi í frámhaldi
af þeirri verðbólguþróun, sem
minnst var á í upphafí þessarar
greinar.
Þegar Alþýðubandalagið fór frá
völdum árið 1983 námu erlendar
skuldir landsins 60% af þjóðarfram-
leiðslu og stefndu mun hærra.
Efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinn-
ar var stefnt í voða.
Á valdaferli Alþýðubandalags-
ins 1978—83 voru verðbætur á
iaun skertar 14 sinnum og geng-
islækkanir voru fleiri en nokkru
sinni fyrr.
Um samráð við verkalýðshreyf-
inguna á þessum árum sagði
Ásmundur Stefánsson, forseti ASI,
í Þjóðviljanum 24. ágúst 1982: „Því
er fljótsvarað. Það hefur ekkert
verið og vegna ummæla einstakra
ráðherra verður að taka skýrt fram,
að formlegt samráð við ASÍ hefur
ekki átt sér stað.“
Óðinsmenn hafa mótað þjóðholla
og ábyrga stefnu í verkalýðsmálum.
Sú stefna sameinar það tvennt, að
bæta svo sem verða má lífskjör
verkamanna og annarra launþega
og stuðla um leið að eflingu fram-
leiðslu og heilbrigðari efnahags-
þróun í landinu. Þeir hafa hafnað
stéttasundrungarstefnu Alþýðu-
bandalagsins og fylkt sér undir
merki Sjálfstæðisflokksins undir
kjörorðinu „Stétt með stétt".
Varla verða þeir sakaðir um
mannfyrirlitningu fyrir vikið!
Höfundur er lögfrædingur og
skipar 8. sæti á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins við komandi
kosningar.
3. Þegar ég opnaði... eftir Elsu
Valsdóttur.
í fréttatilkynningu frá Útgáfufé-
lagi framhaldsskólanna segir að
þau ljóð og sögur sem bárust verði
gefín út í bókaformi og að fyrir-
hugað sé að bókin komi út fyrir
skólaslit í vor.
Úrslit 1 ljóða- og smásagna-
keppni framhaldsskólanema
ALBERT Hver
er'ann? Hvað gerð'ann? Hverjir
styðj'ann? Sagð'ann ósatt I
þingflokknum? Er Þorsteinn
Pálsson að missa tökin i Sjálf-
staeðisflokknum?
ÁLAFOSS Fram-
kvæmdasjóður á Álafoss. Fyrir-
tækiö skuldar 1000 milljónir.
Samningar um að SÍS yfirtaki
Álafoss? Það er spurning.
TOMAS Helgason
geðlæknir ! opnuviðtali. Hann
er bróðir Ragnhildar Helgadótt-
ur ráðherra, sonur Helga
Tómassonar og fer á sklði á
sumardaginn fyrsta!
NÚ
eru tannlæknar farnir
að lakka tennur skólabarna I
Reykjavik. Eru Karíusog Baktus
að verða húsnæðislausir? Eða
gamli tannburstinn að verða
óþarfur?
13 ARA leikhús-
stjóri Magnús Geir Þórðarson (
viðtali...
H>
FRAMDRIF
ÍSLENSKRA
FJÖLMIÐLA