Morgunblaðið - 27.03.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
Bandaríkjamenn
af sér spikið
Regluleg ganga er átakaminni og
jafnvel heilsusamlegri en skokk
New York. Reuter.
NÚ geta menn faríð að leggja á
hilluna leikfimigallann og
hlaupaskóna, önnur og átaka-
minni aðferð við að ná af sér
ístrunni og aukakilóunum er að
komast i tísku. Hér er átt við
venjulega göngu, nýjasta heilsu-
ræktaræðið í Bandaríkjunum.
Gangan er ekki síðri en skokkið
við að brenna óþarfa hitaeiningum
og hún hefur jafnvel betri áhrif á
likamann og hjartað. Á síðasta ári
stunduðu um 30 milljónir Banda-
ríkjamanna göngu reglulega og
nærri tvær milljónir lögðu a.m.k.
48 km að baki á viku hverri. Göngu-
mennimir, sem margir hveijir hafa
aldrei iðkað neins konar líkams-
Káre Willoch tekur við embætti
forseta Alþjóðasamtaka hægrí-
flokka.
rækt, eru nú miklu fleiri en þeir,
sem stunda aðrar íþróttir sér til
heilsubótar.
„Gangan er nú á sama stigi og
skokkið var snemma á síðasta ára-
tug,“ sagði Harvey Lauer, starfs-
maður fyrirtækis í New York, sem
annast skoðanakannanir um
íþróttaiðkan. „Sumir hafa stundað
hana árum saman án þess, að nokk-
ur hafi tekið eftir því. Skokkarinn
fer ekki framhjá neinum en fáir
taka eftir göngumönnunum."
Langt er um liðið síðan læknar
tóku að ráðleggja fólki, sem þjáðist
af hjarta- eða lungnasjúkdómum,
offítu eða öðrum krankleika, að
ganga sér til hressingar. Rösk
ganga er mjög góð fyrir æðakerfíð,
lækkar blóðþrýsting og minnkar
Iíkamsfítuna. í samanburði við
hlaup er lítil hætta á meiðslum.
Þegar gengið er leggst hálf önnur
líkamsþyngdin á fótinn en á hlaup-
um rúmlega þrefaldur líkamsþung-
inn.
Gönguáhuginn hefur alið af sér
alls konar starfsemi og þjónustu,
t.d. hafa gönguklúbbar skotið upp
kollinum um land allt og í nýju tíma-
riti, sem gefíð er út í hálfrí milljón
eintaka, er fyallað um göngu frá
öllum hliðum. í öllum stærri borgum
eru nú komnar verslanir, sem ein-
göngu hafa á boðstólum gönguskó
og annan búnað fyrir göngumenn.
Sovétríkin:
John Fleming (í miðjunni á milli lögreglumanna) við komuna
til Heathrow í gær. Menn frá Scotland Yard gengu þegar um
borð í vélina, handjárnuðu Fleming og fluttu hann á brott til
yfirheyrslu. Hann er grunaður um að vera höfuðpaurínn í ran-
inu mikla á Heathrow-flugvelli í nóvember 1983.
Bretland:
John Fleming
loksá
valdi rétt-
vísinnar
London, Reuter.
BRETINN John Fleming, sem
framseldur var frá Bandaríkjun-
um á miðvikudag, var i gær
yf irheyrður vegna meintrar þátt-
töku hans i mesta ráni, sem
nokkru sinni hefur veríð framið
í Bretlandi. Gerðist það á Heat-
hrow-flugvelli í nóvember 1983,
er sex vopnaðir menn helltu
bensíni yfir varðmenn í vöru-
geymslu þar og hótuðu að bera
eld að þeim, ef þeir afhentu ekki
lyklana að öryggisgeymslunum.
Talið er, að ræningjamir hafi
haft á brott með sér gull og gim-
steina að værðmæti 40 millj.
dollara (um 1,600 millj. ísl. kr.)
Fleming, sem er 45 ára gamall,
var settur um borð í flugvél í Miami
í Bandaríkjunum á miðvikudags-
kvöld. Er flugvélin lenti í Heathrow,
gengu lögreglumenn þegar um borð
í vélina, handjámuðu Fleming og
fluttu hann á burt með sér til yfír-
heyrslu. Hann hefur hins vegar
ekki verið ákærður enn.
Á meðan Fleming dvaldist í
Bandaríkjunum, reyndi hann hvað
eftir annað að fá leyfi dómsyfir-
valda til að fá að fara til Panama,
Dóminíkanska lýðveldisins, Perú,
Venésúela og Nicaragua en árang-
urslaust.
Lögfræðingar hans hafa jafnan
haldið því fram, að hann sé saklaus
af ráninu í Heathrow. Tveir af ræn-
ingjunum og einn úr hópi öryggi-
svarðanna hafa verið’ dæmdir í
fangelsi vegna ránsins.
Káre Willoch
forseti IDU
KÁRE Willoch, fyrrum forsætis-
ráðherra Noregs og núverandi
formaður utanríkismálanefndar
Stórþingsins, verður kjörinn for-
seti Alþjóðasambands hægri-
flokka, IDU, í september, og mun
hann taka við af Alois Mock, ut-
anríkisráðherra Austurríkis.
Willoch verður kjörinn forseti
IDU, þegar fulltrúar hægriflokk-
anna koma saman til fundar í
Vestur-Berlín í september. Meðal
þátttakenda verða Helmut Kohl,
kanslari Vestur-Þýskalands, Marg-
aret Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, George Bush, varafor-
seti Bandaríkjanna, Jacques Chirac,
forsætisráðherra Frakklands og
Susumu Nikaido, varaformaður
Fijálslynda lýðræðisflokksins í
Japan.
-Þetta er í fyrsta sinn sem norr-
ænn hægrileiðtogi tekur við for-
ystustarfí innan IDU, sagði Svein
Grönnem, aðalritari norska Hægri-
flokksins í viðtali við Aftenposten.
-Það var ánægjulegt, hversu góðar
viðtökur framboð Willochs fékk, og
hann hefur þar nú mjög sterka
stöðu innan samtakanna.
200.000 embættísmenn
sakaðir um spillingu
Moskvu, AP.
200.000 sovéskir embættismenn
voru sakaðir um spillingu og
tóku út viðeigandi refsingu á
síðasta ári, að því er skýrt var
frá í Prövdu, málgagni sovéska
kommúnistaflokkins, í gær.
Alexander Rekunkov yfírsak-
sóknari ritaði langa grein í mál-
gagnið um herferð stjómvalda gegn
spillingu. Rekunkov gat þess ekki
í hveiju refsing embættismannanna
hefði verið fólgin en bætti við að
enn væru menn að störfum sem
gerst hefðu sekir um spillingu. Rek-
unkov gagnrýndi einnig þá sem
hann sagði standa í vegi fyrir um-
bótaherferð Mikhails S. Gorbachev
Sovétleiðtoga.
í greininni var harðlega vegið
að þeirri spillingu og pukri sem ein-
kenndi valdaskeið Brezhnevs
fyirum Sovétleiðtoga þó svo að
nafns hans væri hvergi getið. Þá
var landslýður hvattur til þess að
tilkynna um embættisglöp opin-
berra starfsmanna. Rekunkov sagði
að spilling hefði náð að festa rætur
innan dómskerfísins en unnið væri
að því að uppræta hana. Háttsettum
embættismönnum hefði verið vikið
frá en enn væri dug- og ábyrgðar-
leysi of áberandi.
Greinarhöfundur gat þess ekki
hversu margir þeirra sem fengu að
kenna á refísvendi umbótanna
hefðu starfað innan dómskerfísins
eða á vegum öryggislögreglunnar
(KGB). Á síðasta ári vom 60.000
ólögmætar ákæmr embættismanna
bomar til baka og 11.000 verka-
menn, sem reknir höfðu verið úr
starfí fyrir rangar sakir, fengu upp-
reisn æm, að því er sagði í Prövdu.
í lok greinar sinnar hvatti Rek-
unkov til þess að lögleidd yrðu hert
refsiákvæði við spillingu. Sagði
hann að afglöp og ósvífni embættis-
manna hefðu kostað Sovétríkin
milljónir rúblna og nefndi því til
sannindamerkis víðtæka spillingu
sem uppvíst varð um í Sovétlýðveld-
inu Uzbekistan á síðasta ári.
Sendiherra Eþíópíu biðst
hælis í Bandaríkjunum.
Tókló, Reuter, AP.
SENDHIHERRA Eþíópíu f
Tókió, Abebe Kebede, hefur
beðið um pólitískt hæli í Banda-
ríkjunum, að þv í er starfsmenn
japanska utanríkisráðuneytisins
sögðu í dag. Reuter-fréttastofan
Framtíð Macau kínversk eftir 1999
Peking, Reuter.
FULLTRÚAR Kínveija og
Portúgala gengu loks endan-
lega frá samningi sínum
varðandi smánýlenduna Macau
á ströndum Kfna. Portúgalar
hafa ráðið þessu svæði í fjögur
hundruð ár. Eins og við hafði
veríð búizt var samið um, að
Kínveijar tækju við stjórn Mac-
au áríð 1999, nánar tiltekið
þann 20.desember.
Eins og fram hefur komið í
fréttaskýringu í Morgunblaðinu
nýlega, var í reynd enginn telj-
andi ágreiningur um það, hvort
Kínveijar tækju við stjóm Macau,
heldur, hvenær það yrði, og þó
fyrst og fremst, hvemig hags-
munir þeirra 40-60 þúsund manna
í Macau sem hafa bæði portú-
galskt og kínverskt vegabréf yrðu
bezt tryggðir. Nú hefur verið um
það samið, að þeir haldi þessum
tvíþætta ríkisborgararétti, en héð-
an af tjói ekki fyrir fleiri að sækja
um slíkt og að engin diplómatisk
vemd verði veitt þeim sem hafa
tvöfaldan ríkisborgararétt um-
fram aðra eftir 1999.
Aðalfulltrúi Portúgala í Ioka-
viðræðunum við Kínveija var Rui
Medina. Hann skálaði í kampavíni
við aðalsamningamann Kínveija ,
Zhou Nan, í Peking í dag. Báðir
fögnuðu, að samkomulag hefði
náðzt og væri það til merkis um
vináttu Kína og Portúgals og
beggja tveggja sveigjanleika.
Zhou sagði, að Taiwan væri nú
eina kínverska svæðið, sem væri
utan yfírráða eða væntanlegra
yfírráða Alþýðulýðveldisins, en nú
hlyti röðin að koma að Taiwan,
væntanlega fyrir árið 2000.
Kínveijar munu ekki breyta
efnahagskerfi Macau, né heldur
hrófla við spilavítunum, sem eru
ein helzta tekjulind Macau.
hefúr það eftir heimildum innan
sendiráðsins, að sendiherrann,
kona hans og fimm börn hafi
ekki sézt síðustu tvær vikur.
Mál manna er að sendiherrafjöl-
skyldan haldi til í bandaríska
sendiráðinu í Tókíó, en það hefur
ekki fengizt staðfest. Abebe er
rúmlega fertugur að aldri og tók
við embættinu í júlí 1985. Sendi-
ráðswmaður í Japan hefur ekki
leitað eftir að fá pólitískt hæli síðan
pólski wsendiherrann í Japan leit-
aði hælis árið 1981, einnig í
Bandaríkjunum.