Morgunblaðið - 27.03.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
31
Rúmlega 50.000 íbúar Sao Reuter
Paulo tóku þátt í atkvœða- Það dettur hvorki né drýpur
greiðslu um hvort borgarstjór- af Janio Quadros, borgarstjóra
inn ætti að snúa aftur úr Sao Paulo, þótt á móti blási.
sumarfríi í Evrópu.
I Sao Paulo taka
stjórnmál á sig
undarlegar myndir
JANIO Quadros, borgarstjóri Sao Paulo, stærstu borgar á suður-
hveli jarðar, og fyrrum forseti Brasilíu, hefur með stjórnarháttum
sinum hvað eftir annað valdið ólgu og ýfingum.
Deilumar um Quadros náðu há-
marki í febrúar þegar hann skrifaði
undir lög um að smíða bílageymslur
undir nokkrum þeirra fáu gróður-
vinja, sem leynast hér og þar milli
óhreinna, grárra skýjakljúfa í stór-
borginni.
Fjóldi borgara fylltist bræði og
yfirvöld i borginni eru í þeirri að-
stöðu að þurfa að stefna borgarstjór-
anum fyrir brot á umhverfisvemdar-
lögum ef hann gerir útboð til að
grafa út bílageymslumar.
Fjrrr í borgarstjómartíð sinni ráð-
gerði Quadros að reisa byggingu
fyrir borgina. Sá galli var á gjöf
Njarðar að 300 þúsund manns hefðu
þurft að flytjast búferlum til þess
að heija mætti framkvæmdir. Horfið
var frá þessum ráðagerðum vegna
andstöðu almennings.
Menn eru ekki gætnir í orðavali
þegar deilt er um hinn sjötuga borg-
arstjóra, en Quadros sneri aftur á
svið stjómmálanna með glæsilegum
árangri þegar hann var kjörinn í
embætti árið 1985. Hann var forseti
Brasilíu í sjö mánuði árið 1961. Af-
sögn hans hefur akdreu verið skýrð
til fulls, en hún kom af stað öng-
þveitinu, sem leiddi til valdatöku
hersins árið 1964.
Walter Feldman læknir situr í
borgarstjóm Sao Paulo fyrir stjóm-
arandstöðuna. Hann hefur tekið
saman 570 blaðsíðna skýrslu um
Quadros og krafist þess fyrir rétti
að hann verði látinn sæta geðrann-
sókn. „Ég er þess fullviss að
maðurinn ætlar eyðileggja borgina,"
segir Feldman, félagi í Flokki lýð-
ræðisfylkingarinnar.
Krafa Feldmans hefur verið lögð
fyrir félagsdóm. Quadros ypptir ein-
faldlega öxlum þegar hann er
minntur á aðgerðir Feldmans og eitt
sinn svaraði hann fullum hálsi: „Það
mætti athuga hvort borgarstjómar-
fulltrúinn sé með alnæmi."
Feldman var ekki lengi að bregð-
ast við og sýndi skömmu síðar
læknisvottorð um að hann væri ekki
haldinn alnæmi á borgarstjómar-
fundi.
Feldman hefur gripið til annarra
ráða til að beita borgarstjórann
þrýstingi. í síðustu viku lét hann
fara fram atkvæðagreiðslu um hvort
íbúar Sao Paulo vildu að Quadros
kæmi heim úr sumarfni í Evrópu,
eða sneri aldrei aftur. í þessari viku
var tilkynnt að 57.228 manns hefðu
tekið þátt í atkvæðagreiðslunni og
hefðu 53.341 verið þeirrar hyggju
að Quadros ætti ekki að koma aftur.
Þessi atkvæðagreiðsla hefur ekki
lagalegt gildi, en að baki hennar
stóðu ýmis stéttarfélög. Má þar
nefna félag lögfræðinga, kennara,
starfsmanna almenningsfarartækja
og málmiðnaðarmenn.
„Bílageymslumar eru bijálæðis-
legasta hugmyndin hans,“ sagði
miðaldra kona, sem greiddi at-
kvæði. Önnur kona kvartaði undan
strætisvagna- og lestafargjöldum,
sem borgarstjórinn hefur hækkað
um 233 prósent.
Andstæðingar bílageymslanna
kveðast þess fullvissir að aldrei verði
hafist handa við að gera bílageymsl-
umar og íbúar Sao Paulo, sem em
sextán milljónir, geti áfram notið
hinna fáu gróðurreita í borginni.
„Hann gleymir væntanlega btla-
geymslunum í fríi sínu — og kemur
aftur með einhveijar nýjar hug-
myndir," sagði lögfræðingurinn
Marco Antonio de Barros, sem starf-
ar í umhverfísráði borgarinnar.
Quadros, sem meira að segja hef-
ur sjálfur sektað menn fyrir að bijóta
af sér í umferðinni, iðrast einskis.
Og hann er sannfærður um að
stjómartíð hans muni ljúka farsæl-
lega. „Vinsældir og fylgi valda mér
síður en svo hugarangri. Eftir fyrsta
ár mitt í embætti verð ég grýttur,
eftir annað árið mun fjöldinn hylla
mig og eftir þriðja árið mun hann
bera mig á öxlum sér,“ sagði Quad-
ros í blaðaviðtali fyrr ( þessum
mánuði. „Ég mun fara úr embætti
með lárviðarsveig á höfði eins og
sigursæll rómverskur hershöfðingi.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll Háaleitis-
braut 1, á laugardögum frá kl. 10-12.
Er þar tekið á móti hvers kyns fyrir-
spurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 28. mars verða til viðtals Magnús L. Sveinsson forseti borgar-
stjórnar og formaður Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Helga Jóhannsdóttir í
stjórn umferðanefndar og SVR og Hulda Valtýsdóttir formaður menningarmála-
nefndar.
PILUKAST
Pílur 3 stk.
kr. 194-2.300.
Allt til pílukasts
fyrir byrjendur jafnt
sem keppendur
Pílusett 3 pílur og skífa
kr. 484-852.
Skífur kr. 666—2.600.
Öryggispílusett kr. 630—839.
Ármúla 40.
★ Sendum f pöstkröfu.
★ Kreditkortaþjónusta
|Sími 35320.
414RI
D
NÚ ER ÓPARFIAÐ
SLEPPA AÐ SMYRJA
« * 1 ? ffy f1* T $ ). f . ' .
' • 1
AUK hf. 9.169/SlA