Morgunblaðið - 27.03.1987, Síða 37

Morgunblaðið - 27.03.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 37 Mjólkursamlag KEA: Smjörvasalan orðín svipuð og smjörsalan - segir Þórarinn E. Sveinsson, mjólkursamlagssljóri, en samlagið sér öllu landinu fyrir smjörva SALA á smjörva hefur aukist jafnt og þétt frá því framleiðslan hófst fyrir um 5 árum. Á móti hefur sala á smjöri minnkað og er nú svo komið að smjörvasalan er orðin svipuð og smjörsalan. Þetta kom fram i samtali við Þórarin E. Sveinsson, mjólkur- samlagsstjóra á Akureyri, en Mjólkursamlag KEA sér öllu landinu fyrir smjörva. Neyslubreyting Þórarinn sagði að þessi breyting væri hluti af þeirri neyslubreytingu sem ætti sér stað í þjóðfélaginu, fólk teldi smjörvann hollari, en einn- Sjónvarp Akureyri FÖSTUDAGUR 27. mars 18.00 Ástarævintýri (Falling in Love). Bandarísk kvikmynd með Robert de Niro og Meryl Streep í aðalhlutverkum. Molly og Frank rekast hvort á annað í jólaösinni á Manhattan. Fliss- andi fara þau hvort í sína áttina. Um vorið hittast þau aftur af til- viljun og þá byrjar ævintýriö. 19.50 Viðkvæma vofan. Teikni- mynd. 20.15 Benny Hill. Breskur gaman- þáttur. 20.50 Klassapiur. 21.20 Geimálfurinn. 21.50 Elsku skaltu nágranna þinn (Love Thy Neighbour). Tvenn hjón hafa verið nágrannar um árabil og börn þeirra leikfélagar. Málin flækjast verulega þegar eiginmaðurinn og eiginkonan úr sitt hvoru húsinu stinga af saman. 23.30 Hættustörf í lögreglunni (Muggable Mary). Bandarísk sjónvarpsmynd með Karen Va- lentine, John Getz og Anne DeSalvo. Einstæð móðir fær stad í sérsveitum lögreglunnar, til að sjá sér og sínum farborða. Henni reynist erfitt að sam- ræma spennandi starf uppeldi sonar sins. 1.10 Alcatraz. Seinni hluti banda- rískrar sjónvarpsmyndar um flótta úr einu rammgerðasta fangelsi í Bandaríkjunum á eyj- unni Alcatraz. Aöalhlutverk: Telly Savalas, Michael Beck, Art Carney og James Macrthur. ig kæmi það til að smureiginleikar hans væru betri en smjörsins. Smjörvinn kæmi alltaf mjúkur úr ísskápnum. Annað dæmi um þessa neyslubreytingu er samdráttur í sölu á nýmjólk en aukning í létt- mjólk og undanrennu. Aftur á móti hefur sala á ijóma aukist. Heimamarkaður Mjólkursamlags KEA breytist á svipaðan hátt og heildarmjólkurmarkaðurinn, að sögn Þórarins. Um mitt síðasta ár fór salan að aukast og hefur aukn- ingin haldið áfram. Þórarinn sagðist ekki vita skýringarnar á þessu, en sagði að auglýsingar mjólkurdags- nefndar og skólamjólkin ættu örugglega einhvern hlut að máli. 500 tonn á ostalager Um 30% af innveginni mjólk hjá Mjólkursamlagi KEA fer sem dag- vörusala, það er mjólk, léttmjólk, undanrenna, ijómi, súrmjólk, jógúrt og kotasæla, en um 70% framleiðsl- unnar er ostar og smjör. Samlagið er annað stærsta mjólkursamlag landsins og eru framleiðsluvörur þess nærri helmingur af þeim vör- um sem Osta- og smjörsalan í Reykjavík sér um sölu á. Samlagið er eina mjólkursamlagið á landinu sem framleiðir smjörva, eins og áður segir, en það er líka eina sam- lagið sem framleiðir óðalsost og kotasælu. Þórarinn sagði að óðals- osturinn væri sú ostategund sem gæfí lang skásta verðið í útflutn- ingi, en hann er svo til eingöngu fluttur til Bandaríkjanna. Miklar birgðir af osti eru nú í landinu og Síðasta sýningar- helgin hjá Bjarna SÝNINGU Bjarna Einarssonar í Dynheimum lýkur um helgina. Hún er opin frá kl. 17.00 til 21.00 í kvöld, á morgun og á sunnudag- inn. Bjarni sýnir þarna olíumál- verk og sáldþrykksmyndir unnar á síðustu árum. Sýningin hefur staðið yfir í hálfan mánuð. er stór hluti þeirra geymdur í kæli- geymslum Mjólkursamlags KEA, líklega um 500 tonn, að sögn Þórar- ins. 20% af mjólkurfram- leiðslu landsins Á svæði Mjólkursamlags KEA eru 250 mjólkurframleiðendur í Eyjafjarðarsýslu og vestustu hrepp- um Suður-Þingeyjarsýslu. Innvegin mjólk hjá samlaginu var 21,7 millj- ónir lítra á síðastliðnu ári, en það er svipuð framleiðsla og mörg und- anfarin ár, eða tæp 20% af mjólkur- framleiðslunni í landinu. Er það næststærsta mjólkursamlag lands- ins, næst á eftir Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi. Kúabúin í Eyjafírði eru tiltölu- lega stór. Heildarmjólkurinnleggið var að meðaltali 87 þúsund lítrar á hvem framleiðanda á síðásta ári, en landsmeðaltalið er undir 60 þús- und lítrum. Flestir mjólkurframleið- endur í Eyjafírði eru með 90—110 þúsund lítra framleiðslu á ári, en nokkrir eru með framleiðslu á bilinu 250—280 þúsund lítra á ári. Mjólkurframleiðsla samlagsins var 24—25 milljónir lítra á ámnum 1978-79, þegar framleiðslan náði hámarki, en framleiðslugeta stöðv- arinnar er enn meiri, eða um 30 milljónir lítra. Getur samlagið bætt við sig allri framleiðslu mjólkursam- lagsins á Húsavík, svo dæmi sé tekið, án þess að þurfa að leggja í viðbótarfjárfestingu. „Mjólkursamsala Norðurlands“ Mjólkursamlögin á Norðurlandi hafa átt í viðræðum um samvinnu, eða jafnvel sameiningu. Þórarinn vinnur með nefnd samlaganna sem fjallað hefur um þessi mál í heilt ár. Hann sagði að nefndin gengi út frá því að öll samlögin verði til áfram, en vinnsla þeirra verði sér- hæfð. Samlögin myndu þá einbeita sér að framleiðslu ákveðinnar vöru og ætti það að geta gert framleiðsl- una ódýrari, en mjólkin yrði þá að einhveiju leyti flutt á milli samlag- anna á tankbílum. Öll samlögin yrðu sett undir eina stjóm. Þá þyrfti að reyna að finna önnur verk- efni fyrir samlögin til að vinna að, en ef það tækist ekki gæti komið til þess að éinstaka samlög legðust alveg niður, nema mjólkurfram- leiðslan ykist aftur. Morgunblaðið/Helgi Bjamason Þórarinn E. Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri, grípur i pökkun nýrr- ar súrmjólkurtegundar, svokallaðrar ab-mjólkur. Ostafjallið á Akureyri. í kæligeymslu Mjólkursamlags KEA eru nú um 500 tonn af ostum. Oli G. Jóhannsson sýnir í Gamla Lundi ÓLI G. Jóhannsson, Iistmálari, heldur málverkasýningu í Gamla Lundi um helgina. Óli opnar sýn- inguna á morgun, laugardag, kl. 15.00, og verður hún einungis opin á morgun og sunnudag. Báða dagana verður opið frá kl. 15.00-22.00. Að sögn Óla verða á sýningunni bæði myndir gerðar með akrýl á pappir og oliumál- verk. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Óli að leggja siðustu hönd á eitt verkanna í vinnustofu sinni. Styðjum Þór til sigurs Strákarnir komu úr 3. deild í fyrra — fara þeir beint upp í 1. deild? Um leið og handknattleiksdeild Þórs þakkar Akureyrint/um frábæran stuðning í iret- ur, hvetur hún alla til að mæta á úrslitaleikinn gegn IBV í kvöld kl. 20. látið AFRAM Þ0R hljóma í HÖLLINNI í KVÖLD, ÞAÐ GETUR SKIPT SKÖPUM. Handknattleiksdeild Þórs. jw HERRADEILD 'sBrti SíÆkk tfkvöR? 'REmíwua y y BATASMiajA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.