Morgunblaðið - 27.03.1987, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
Er aðförin að Albert
Guðmundssyni samsæri?
eftir Erling B.
Thoroddsen
Skrif Helgarpóstsins um afslátt-
argreiðslur Hafskips til Alberts
Guðmundssonar hafa óneitanlega
vakið upp ýmsar spumingar hjá
einum og ýtt óþyrmilega við öðrum
og hafa jafnframt skapað mikla
spennu í röðum sjálfstæðismanna.
Fjölmiðlar hafa tekið þessari frétt
fegins hendi. Formaður Sjálfstæðis-
flokksins kom fram fyrir alþjóð og
sagði næsta lítið, annað en það að
hann hefði þegar rætt þessi mál
við Albert og að hann ætlaði að
ræða þetta mál við hann aftur þeg-
ar hann kæmi heim.
Pólitísk aftaka Alberts er yfirvof-
andi. Óvægnir andstæðingar hans
úr röðum Sjálfstæðisflokksins eru
reiðubúnir að sparka honum. Rýmk-
ast þá fyrir pólitískum framagosum,
sem aldrei hafa viljað hann, og
gamlar erjur ætla að fá óvænt enda-
lok. Andstæðingar Sjálfstæðis-
•-flokksins kíma, og eru tilbúnir að
hremma til sín þau atkvæði, sem
skipta um skoðun vegna þessa
máls? Og forysta annarra flokka
er ekki búin að láta frá sér heyra,
er þetta er fest á blað. Þar má
ekki láta óvænt úr hendi rakna.
En er þetta mál eins slétt og
fellt og virðist í framsetningu Helg-
arpóstsins? Er þessi áhrifaríka
tímasetning á birtingu fréttarinnar
tilviljun? Eða er þetta spil úthugs-
að, svo að andstæðingar Alberts
nái að veita honum banahöggið?
Mér, leikmanninum, er það undr-
unarefni hversu allt ætlar að ganga
upp. Þá eru mér efst í huga nokkur
eftirfarandi atriði:
1. Landsþingi Sjálfstæðisflokksins
er nýlega lokið. Ekki rekur mig
minni til að þessi mál hafi borið
á góma þar. Hvers vegna ekki?
Voru bræðralagið og samheldnin
þar svo mikil, að svona „smá“-
mál gleymdust? Eða, það sem
ég álít öllu sennilegra, hefði
þetta „stór“mál splundrað sam-
einingunni og skipt flokknum
upp í hin stríðandi öfl, sem hann
hefur verið undanfarin ár?
2. Þinglausnir fóru fram daginn
sem fréttin var birt. Var það til-
viljun? Var það samsæri við
Albert? Ef svo, þá samsæri
hverra?
3. Albert var erlendis. Var það til-
viljun? Eða máttum við eiga von
á því, að hann kæmi heim með
sama glæsibrag og fjármálaráð-
herra, þegar hann kom heim frá
París fyrr í vetur? Eða var til
þess ætlast að hann kæmi heim
eins og sneyptur hundur, tilbú-
inn að sleikja hönd húsbónda
síns? Tilbúinn að hlýða honum í
einu og öllu.
4. Fréttafundur fjármálaráðherra.
Var til hans stofnað af tauga-
veiklun, eða var hann að reyna
að firra sig því að hafa rætt
þessi mál við Albert en ekkert
aðhafst? Eða var hann aðeins
að segja alþjóð að hann gæti
ekki tjáð sig um málið. Fjár-
málaráðherra veit ekkert í sinn
haus, eða hvað?
5. Framboðsfrestur er að renna út.
Verði Albert sparkað, þá er
tímasetningin hámákvæm. Hon-
um vinnst þó lítill tími til að
taka ákvörðun um sérframboð.
Hann gæti lent í tímahraki.
Með þessi ofantalin atriði í huga
kemst ég ekki hjá því að líta svo
á, að þessi tímasetning sé ekki til-
viljun og að fréttin sjálf sé sett fram
með því hugarfari að koma höggi
á Albert. Og ef hún hefur verið
sett fram og tímasett með vitneskju
einhverra forkólfa innan Sjálfstæð-
isflokksins er það að mínu mati
öllu alvarlegra mál en það sem Al-
bert er í.
Eg ætla ekki að verja skattamál
Alberts. Skiptir mig engu hvort
hann var fjármálaráðherra eða ekki
þegar afsláttargreiðslumar bárust
honum. Hafí honum eða fyrirtæki
hans láðst að telja þessa peninga
fram hefur hann tækifæri til að
gera leiðréttingu á sínu framtali
eins og aðrir þegnar þessa lands. í
mínum augum verður hann sá sami.
En fyrst þessi umfjöllun er nú
komin af stað og aftaka Alberts
yfirvofandi væri þá ekki tilvalið að
gefa fleiri þingmönnum og þing-
mannsefnum Sjálfstæðisflokksins
tækifæri til þess að upplýsa alþjóð
um hvort þeir hafi einhvem tímann
fengið bankað upp á hjá sér frá
skattrannsókn, eða fengið bréf með
fyrirspumum sem hafa svo leitt til
þess, að einhver aukaskattur hafi
verið lagður á þá vegna einhvers
smáræðis, sem hafði ekki komið
fram í bókhaldinu, ellegar gleymst.
Að þessum upplýsingum fengnum
mætti spyrja þá sem ekki gæfu sig
fram, hvort þeir hefðu nokkru
gleymt og hvort þeir vildu þá ekki
senda skattrannsóknarstjóra línu
og gera leiðréttingu á framtölum
sínum ef svo væri. Hinum, sem
hafa engu að leyna fyrir skattrann-
sóknarstjóra, ætti þá einum að vera
treystandi fyrir máli Alberts. Slíkir
menn eru heilagir og ósnertanlegir.
Efa ég að þeir fínnist margir innan
raða Sjálfstæðisflokksforystunnar
svo fullkomnir.
Viðbrögð almúgans eru misjöfn.
Þó held ég að fæstir þeirra, sem
sjónvarpsfréttamenn spurðu á förn-
um vegi í dag og töldu að Albert
ætti að sitja áfram, hafí verið stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins.
Glæpurinn er í þeirra augum ekki
stærri en það. Fólkið lét ekki blekkj-
ast af þessu sjónarspili.
Forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins er vandi á höndum, sem
stafar aðallega af þeirra eigin
klaufaskap. Svo barnalega hafa
þeir hlaupið til og tekið óhöndug-
lega á einföldu máli, að þeir eru
að klúðra því. Þetta er ekki í fyrsta
og eina skiptið, sem þeir klúðra
einföldum málum vegna harðsvír-
aðra eija um völd og stóla. Er ekki
kominn tími til að bera klæði á
„bakstunguhnífana" og fara að
vinna heilir að málum flokksins og
einbeita sér að væntanlegum kosn-
ingum. Látið andstæðinga flokksins
um róginn og tortryggnina. Reynið
að vinna traust þeirra kjósenda,
sem ennþá trúa á frelsi til athafna.
Sjálfstæðisflokkurinn er eini stjóm-
málaflokkurinn sem höfðar til mín
og margra annarra, á meðan flokk-
ur hægra megin við hann hefur
ekki verið stofnaður. Stefnan er
nokkuð rétt, þó framkvæmd hennar
sé það ekki alltaf. Flokkurinn hefur
verið alltof eftirgefanlegur í brýn-
um málum. Og samheldnin orðin
tóm. Togstreitan um völdin hefur
kostað flokkinn alltof mikið. Ef
Sjálfstæðisflokkurinn klofnar nú út
af þessu máli og Albert fer í sér-
framboð var betur heima setið og
étið súrt.
Höfundur er skrifstofumaður.
Erlingur B. Thoroddsen
„En fyrst þessi umfjöll-
un er nú komin af stað
og aftaka AJberts yf ir-
vofandi væri þá ekki
tilvalið að gefa fleiri
þingfmönnum og þing--
mannsefnum Sjálfstæð-
isflokksins tækifæri til
þess að upplýsa alþjóð
um hvort þeir hafi ein-
hvern tímann fengið
bankað upp á hjá sér
frá skattrannsókn, eða
fengið bréf með fyrir-
spurnum sem hafa svo
leitt til þess, að einhver
aukaskattur hafi verið
lagður á þá, vegna ein-
hvers smáræðis, sem
hafði ekki komið fram
í bókhaldinu, ellegar
gleymst.“
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Kópavogur — Kópavogur
Bæjarmálaflokkurinn og Týr, fólag ungra sjálfstæðismanna i Kópa-
vogi, býður öllum velunnurum Sjálfstæðisflokksins i opið hús
laugardaginn 28. mars kl. 21.00. Veitingar og skemmtiatriði.
Húsvíkingar á réttri leið
Opið hús aö Árgötu 14 kl. 16.00 laugardaginn 28. mars.
Efstu menn listans mæta.
Sjálfstæðisfélagið.
Vestur-Húnvetningar
Efstu menn D-listans verða á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins, Brekkugötu 2 (gamla V.S.P.), Hvammstanga föstudaginn 27.
mars 1987 kl. 17.00-19.00. Komið og fáið ykkur kaffi með frambjóð-
endum. Allir velkomnir.
D-listinn.
Sjálfstæðismenn
Langholtshverfi
—-Opiðhús —
Opið hús i kosningaskrifstofunni á Langholtsvegi 124, laugardaginn
28. mar8 kl. 14.00-17.00. Frambjóðendur og forustumenn Sjálfstæð-
isflokksins I Reykjavík mæta. Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Þjóðmálafundur
í Aratungu
Boðað er til almenns stjórnmálafundar í Aratungu föstudagskvöldið
27. mars kl. 21.00. Rædd veröur staða og stefna þjóömála, hvað
hefur áunnist og hvar úrbóta sé þörf. Framsögu flytja þingmennirn-
ir Árni Johnsen, Eggert Haukdal og Arndis Jónsdóttir kennari. Siöan
verða almennar umræður. Fólk er hvatt til þess að mæta og leggja
hönd á plóginn.
Sjáifstæðisféiagið Huginn.
Mosfellssveit
— Kjalarnes — Kjós
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn I Hlégarði mánudaginn
30. mars 1987 kl. 20.30.
Fundarefni: Stjórnmálaéstandið og kosningabaráttan framundan.
Frambjóðendurnir Matthlas, Salome og Víglundur mæta á fundínn.
Allir velkomnir.
Á réttri leiö.
Fulltrúaráð sjéifstæðisféiaganna i Kjósarsýsiu.
Kópavogur
— kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins i Kópavogi er i Sjálfstæðis-
húsinu, Hamraborg 1, 3. hæð. Skrifstofan verður opin alla virka
daga frá kl. 9.00-19.00. Simsvari er opinn allan sólarhringinn, simi
40708, kosningasimar 44017 og 44018.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Mývetningar á réttri leið
Almennur stjórnmálafundur i Myllunni hótel Reynihlíö laugardaginn
28. mars kl. 13.30.
Frummælendur Halldór Blöndal, Björn Dagbjartsson og Vigfús B.
Jónsson.
Sjólfstæðisfélagið.
Grenvíkingar og nær-
sveitamenn á réttri leið
Almennur stjórn-
málafundur I
félagsheimilinu
sunnudaginn 29.
mars kl. 20.30.
Frummælendur:
Halldór Blöndal og
Tómas Ingi Olrich.
Sjélfstæðisfélagið.