Morgunblaðið - 27.03.1987, Síða 41
JúU .': :l Jív-Tr?3" ■
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
Samningar
og prósentur
eftirHafþór
Guðjónsson
Prósenta merkir „af hundraði".
Svo einfalt. Engu að síður hefur
þetta hugtak orðið að hrollvekju.
Fólk kippist við, fölnar, fyllist óró-
leika, verður óttaslegið þegar það
heyrir talað um prósentur. Og at-
vinnurekendur fagna að leikslokum
þegar þeir sjá að launþegar hafa
gleypt möglunarlaust við prósent-
unum. Samningar eru orðnir að
reikningskúnstum sérfræðinga. Við
sem stöndum utan við þetta þorum
ekki að opna kjaftinn af ótta við
að fara með rangt mál, vitleysu.
Við þekkjum ekki hugtökin, við
skiljum ekki. Þess vegna þegjum
við.
Ég hef átt þess kost að fylgjast
nokkuð grannt með samningavið-
ræðum HÍK og fjármálaráðuneytis-
ins undanfamar vikur. í upphafi
þessa mánaðar skildi ég lítið og
sagði margt heimskulegt. Nú er ég
að byija að læra. Ég hef fundið
fyrir því að mörgum félögum
mínum líður hálfilla þegar verið er
að fjalla um samninga og prósent-
„I umræðunni um kröf-
ur og tilboð eru notuð
orð eins og hækkun,
meðalhækkun, veg’in
meðalhækkun, nettó-
hækkun, brúttóhækk-
un, hækkun án
verðbóta og hækkun
með verðbótum.“
ur. Sú tilfinning læðist að mér að
fólk sé smám saman að loka skiln-
ingarvitunum í þeirri orrahríð talna
og prósenta sem geysar milli HÍK
og fjármálaráðuneytisins. Þetta er
slæmt. Forsenda þess að geta tekið
ábyrga afstöðu er að skilja. Þess
vegna ætla ég að reyna að útskýra.
I umræðunni um kröfur og tilboð
eru notuð orð eins og hækkun,
meðalhækkun, vegin meðalhækk-
un, nettóhækkun, brúttóhækkun,
hækkun án verðbóta og hækkun
með verðbótum. í mörgum tilfellum
er skellt fram prósentutölum án
þess að þær séu skilgreindar. Gildir
þetta bæði um okkar menn og Ind-
riða og Þorstein.
Skoðum tilboð samninganefndar
ríkisins (hér eftir skammstafað
SNR) frá 16. mars sl. SNR sagði:
Þetta tilboð þýðir rúmlega 30%
hækkun á byijunarlaun og rúmlega
20% hækkun meðallauna. Alveg
rétt! Þessar tölur fékk fólk inn í
stofu til sín. Og fólkið sagði: Þessir
kennarar. Meiri heimtufrekjan!
SNR bauð 20,36% hækkun meðal-
launa á samningstímabilinu, þ.e.
frá 1. mars 1987 til 31. desember
1988. Hér var sem sé um 2 ára
samningstilboð að ræða. Inn í
stærðinni 20,36% eru verðbætur á
laun, samtals 10,27% á samnings-
tímabilinu. Ef við drögum verð-
bæturnar frá fáum við nettóhækk-
unina á samningstímabilinu:
20,36 - 10,27 = 10,09%. Nettó-
hækkunin fæst með því að leggja
saman allar raunverulegar pró-
sentuhækkanir (þe. verðbætur ekki
með) á tímabilinu. Samkvæmt til-
boði SNR áttu meðallaun að hækka
um 4,5% 1. mars, um 1% 1. sept-
ember, um 2,2% 1. maí á næsta
ári óg 2,0% 1. september sama ár.
Nettóhækkunin merkir því það
sama og uppsöfnuð prósenta eða
lokaprósenta.
Skyldi nú ekki þetta vera nóg.
O, sei, sei, nei. Það er nú eiginlega
ekkert að marka svona tölu segja
reiknimeistarar. Það skiptir auðvit-
að meginmáli hvenær launþegi fær
umsamdar hækkanir í vasann sinn.
Þess vegna er hugtakið vegin með-
alhækkun afskaplega mikilvægt.
Segjum að meðalmaðurinn okkar í
HÍK hefði fengið alla hækkunina,
sem Indriði bauð honum, hinn
fyrsta dag samningstímabilsins. Þá
hefði vegin meðalhækkun til félaga
okkar orðið 10,09%. Ef Indriði hefði
á hinn bóginn platað okkur til að
taka alla prósentuhækkunina hinn
síðasta dag samningstímabilsins
hefði vegin meðalhækkun orðið
mjög nálægt núllinu! Ef öll pró-
sentuhækkunin hefði skilað sér á
miðju samningstímabilinu hefði
vegin meðalhækkun orðið 10,09 : 2
= 5,045%.
Hvað bauð Indriði meðalmannin-
um okkar ef við notum mælikvarð-
ann vegin meðalhækkun?
Samkvæmt útreikningum og miðað
við samningstímabilið 1.03. ’87 —
31.12. ’88: 6,57%.
Niðurstaða: Meðalmaðurinn okk-
ar hefði fengið 20,36% hækkun eða
10,09% hækkun eða 6,57% hækk-
un. Byijandi í kennslu hefði í sama
skilningsramma (nú bjó ég til nýtt
orð eða hvað?) fengið 31,44% eða
20,22% eða 16,38%. Maður með 9
ára prófaldur hefði fengið 16,14%
eða 7,03% eða 3,60%.
Veldu!
Höfundur er kennari við Mennta■
skólann við Sund.
Fulltrúar Rotaryklúbbs Ólafsvíkur afhentu forseta íslands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrstu eintökin af minnispeningum sem
gerðir hafa verið í tilefni 300 ára verslunarafmæli Ólafsvíkur og^
100 ára afmælis barnafræðslu i Ólafsvík.
+
Rotaryklúbbur Olafsvíkur:
Fé kvennaathvarfs a Norður-
landi afhent kvennaathvarfi í Rvík
Frá aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf, 25. febrúar sl. Helga
Steinunn Guðmundsdóttir (t.v), afhendir Álfheiði Ingadóttur (t.h.),
gjaldkera samtakanna, féð fyrir hönd norðankvenna.
Minnispening-
ar afhentir for
seta Islands
SAMTÖK um kvennaathvarf á
Norðurlandi voru lögð niður sl.
haust og samþykkt að fjármunir
þeirra rynnu til Kvennaathvarfs-
ins í Reykjavík. Var féð, tæplega
600 þúsund krónur, afhent nýlega
með eftirfarandi skilyrðum: Að
allar konur frá Norðurlandi eigi
rétt á greiðslu ferðakostnaðar til
að komast í Kvennaathvarfið i
Reykjavík og til þess verði 100
þúsund krónur bundnar í sérstök-
um sjóði og að féð renni að öðru
leyti til viðhalds á húsnæði
Kvennaathvarfsins í Reykjavík.
Samtök um kvennaathvarf á
Norðuriandi voru stofnuð 15. janúar
1984. Samtökin opnuðu athvarf á
Akureyri 1. ágúst sama ár ogstarf-
ræktu það í rúmlega eitt ár. A þeim
tíma dvöldu fáar konur í athvarfinu
en fleiri notfærðu sér símaþjón-
ustuna. Því var ákveðið að loka
sjálfu athvarfinu en símaþjónustan,
sem haldið var áfram um nokkurra
mánaða skeið, var lítt notuð. A
aðalfundi, sem haldinn var 25. októ-
ber sl., var samþykkt að leggja
Samtök um kvennaathvarf á Norð-
urlandi niður og að fjármunir þeirra
rynnu til Kvennaathvarfsins í
Reykjavík með áðurnefndum skil-
yrðum.
Það var svo á aðalfundi Samtaka
um kvennaathvarf, 25. febrúar sl.,
að þær Amheiður Eyþórsdóttir,
Helga Steinunn Guðmundsdóttir og
Þóra Sigurbjömsdóttir afhentu féð
og skýrðu jafnframt frá starfsem-
inni norðanlands. Meðan athvarfið
var starfrækt þar leituðu konur frá
Norðurlandi í Kvennaathvarfið í
Reykjavík, en það þjónar sem kunn-
ugt er öllu landinu. í fyrra komu
t.a.m. konur og böm frá 23 sveitar-
félögum í athvarfið, 62% úr
Reykjavík, 15% úr öðrum sveitarfé-
lögum á höfuðborgarsvæðinu og
23% frá öðrum á landinu.
Á fundinum var ákveðið að veija
fénu til þess að endurnýja eldhús
kvennaathvarfsins, stækka það og
setja nýjar innréttingar og kaupa
þvottavél. Þá vom reikningar
síðasta árs samþykktir en eins og
áður hefur verið skýrt frá bámst
Kvennaathvarfinu í Reykjavík,
rausnarlegar gjafir frá einstakling-
um, félagasamtökum og fyrirtækj-
um á árinu 1986. Námu gjafirnar
tæplega 2,5 milljónum króna og
verður þeim varið í endurbyggingu
á húsnæði athvarfsins. Fjárframlög
frá ríki og sveitarfélögum námu
samtals um 3,7 milljónum króna
og mnnu þau óskipt í rekstur at-
hvarfsins. Samtök um kvennaat-
hvarf vilja nota tækifærið og þakka
öllum velunnumm athvarfsins veitt-
an stuðning og geta þess að lokum
að í fyrra komu 135 konur og 143
börn til dvalar í kvennaathvarfinu
um lengri eða skemmri tíma.
(Fréttatilkynning)
FÉLAGAR úr Rotaryklúbb Ól-
afsvíkur gengu á fund forseta
Islands, frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, miðvikudaginn 25. mars
sl. og afhentu henni fyrstu ein-
tökin af minnispeningum sem
þeir Rotaryfélagar í Ólafsvík
hafa látið gera í tilefni af 300
ára verslunarafmæli Ólafsvíkur
26. mars og 100 ára afmæli
barnafræðslu í Ólafsvík, sem er
í októbermánuði á þessu ári.
Rotaryfélagar í Olafsvík vilja
með þessu móti minnast þessa
merkisatburðar í sögu staðarins en
þeir gengust einnig fyrir undirbún-
ingi og útgáfu á sérstöku frímerki
í samráði við Póst- og símamála-
stofnun í tilefni verslunarafmælis-
ins. Frímerkið hefur þegar verið
gefið út.
Rotaryfélagar hafa einnig afhent
forseta bæjarstjórnar Ólafsvíkur,
Kristófer Þorleifssyni, eintök númer
tvö af sömu minnispeningum.
Þá hafa Rotaryfélagar hafíð sölu
á þessum minnispeningum í Ólafs-
vík, en alls voru gerð 500 eintök
af hvorum peningi um sig, öll núm-
eruð. Ágóðanum af sölu þessara
minnispeninga hyggjast Rotaiyfé-
lagar veija til kaupa á búnaði til
menningarstarfsemi í hinu nýja fé-
lagsheimili Ólafsvíkinga.
Fermingargjöfin í ár
Alvöru skólaritvél
sVlfM fVV
BROTHER AX-10
er alvöruritvél, sem skil-
ar afritum, hefur leið-
réttingaminni, dálka-
stilli, gleiðritun,
endurstaðsetningu,
hrað til baka og síbylju
á öllum stöfum. Vegur
4,9 kg.
AX-10
AX-10 er alvöruskóla-
ritvél, sem er nægilega
hraðgeng til þess að
læra vélritun.
Borgarfell hf.T
Skólavörðustíg 23,
sími 11372.