Morgunblaðið - 27.03.1987, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
Karpov á sigur-
inn svo til vísan
Skák
Margeir Pétursson
Það eru yfirgnæfandi líkur á
því að Anatoly Karpov, fyrrum
heimsmeistari, fái enn eitt
tækifæri til þess að leggja Gary
Kasparov að velli í einvígi.
Reynsla Karpovs hefur reynst
honum þung á metunum í ein-
víginu við 24 ára gamlan landa
hans, Andrei Sokolov, í Linares
á Spáni. Að loknum tíu skákum
af fjórtán hefur Karpov hlotið
sex og hálfan vinning, en So-
kolov aðeins þrjá og hálfan.
Karpov þarf þvi aðeins einn
sigur til viðbótar til að tryggja
sér sigurinn.
Það er í endatöflunum, sem
Karpov hefur reynst algjör ofjarl
hins unga andstæðings síns, og
eftir því sem liðið hefur á einvígið
hafa yfirburðir hans aukist. Það
var bara í fyrstu skákinni sem
Karpov átti í erfiðleikum, síðan
hefur hann unnið aðra, sjöttu og
nú síðast tíundu skákina. I níundu
skákinni var hann nálægt því að
vinna með svörtu. Er skákin fór
í bið hafði hann peði meira í enda-
tafli, en með frækilegri vöm tókst
Sokolov að halda jafntefli. Eftir
það fannst Sokolov kominn tími
til að taka frídag, en tíunda skák-
in var síðan tefld á sunnudaginn
var.
Þá náði Sokolov ekki að jafna
taflið með drottningar-indverskri
vöm frekar en fyrri daginn og
strax eftir 22 leiki hafði Karpov
tekist að knýja fram þægilegt
endatafl, þar sem hann gat í ró-
legheitunum sótt að stöku peði
Sokolovs á miðborðinu. Það hall-
aði síðan jafnt og þétt á Sokolov
og er skákin fór í bið spáðu flest-
ir Karpov sigri. Það kom nokkuð
á óvart að strax eftir að tekið var
til við taflið að nýju á mánudaginn
lagði Karpov til atlögu. Eftir mikl-
ar sviptingar kom síðan upp
einföld staða þar sem Sokolov
virtist í fljótu bragði eiga góða
jafnteflismöguleika þó hann væri
peði undir. En Karpov Ieiðrétti
allan slíkan misskilning með
glæsilegri riddarafóm í 58. leik
og eftir það varð ljóst að hann
yrði fyrri til að koma upp nýrri
drottningu.
Einn aðstoðarmanna Karpovs,
alþjóðlegi meistarinn Elizbar
Ubilava, sagði að Karpov hefði
fundið riddarafómina klukkan
þijú aðfaranótt mánudagins. Er
Sokolov hafði gefíð skákina kom
hann fréttaritara AP-fréttastof-
unnar fyrir sjónir sem vonsvikinn
og þreytulegur. Hann tók sér
síðan frest á þriðjudaginn J>egar
tefla átti elleftu skákina. I dag,
fimmtudag, mun hann vafalaust
gera úrslitatilraun til að rétta hlut
sinn, en þá hefur hann hvítt.
Tíunda einvígisskákin:
Hvitt: Anatoly Karpov
Svart: Andrei Sokolov
Drottningarindversk vörn
1. d4 - RfG 2. c4 - eG 3. Rf3
- b6 4. g3 - Ba6 5. b3 - Bb4+
6. Bd2 - Be7 7. Rc3 - 0-0
í annarri, flórðu og sjöttu skák-
unum lék Sokolov hér 7. — d5
8. cxd5 — Rxd5 en fékk aðeins
hálfan vinning út úr þeim skákum.
8. e4 — d5 9. cxd5 — Bxfl 10.
Kxfl - exd5 11. e5 - Re4 12.
De2
í áttundu skákinni reyndi
Karpov hér nýjan leik, 12. Hcl!?,
en eftir 12. — c5 13. Kg2 — Rc6
14. Hel - Rxc3 15. Bxc3 - Dd7
16. Dd3 - Hac8 17. Bd2 - h6
var staðan u.þ.b. í jafnvægi og
eftir 18. Db5? - Df5! náði So-
kolov frumkvæðinu þó það dygði
aðeins til jafnteflis.
12. - Rxc3 13. Bxc3 - Dd7 14.
Kg2 - Rc6?!
I þessari stöðu hefur langoftast
verið leikið 14. — c5 15. Hhdl —
Rc6, en Sokolov vill bíða með að
setja þrýsting á miðborðið.
Karpov hefur svar á reiðum hönd-
um.
15. Hhel - Rd8 16. Rgl!
Karpov ætlar að svara 16. —
Re6 með 17. f4 og riddarinn
hrekst fljótlega á brott.
16. - c5 17. f4 - cxd4 18. Bxd4
- Df5 19. Hadl - Bb4 20. Hf 1
- Re6 21. Dd3!
Tryggir hvíti þægilegt enda-
tafl. Aætlun Sokolovs sem hófst
með 14. — Rd8 hefur því ekki
reynst sérlega vel.
21. - Dxd3 22. Hxd3 - Hac8
23. Rf3 - Hc2+?!
Hér var líklega vænlegra að
leika 23. — Hfd8 með hugmynd-
inni 24. — Rc5.
24. Hf2 - Hfc8 25. f5 - Rxd4
26. Rxd4 - Hxf2+ 27. Kxf2
27. - Hcl 28. g4 - Kf8 29. Kf3
- Hfl+ 30. Kg3 - Hcl 31. Kf4
- h6 32. h4 - Ke8 33. Rf3 -
Hc2 34. a4 - Hb2 35. Rd4 -
Be7 36. h5 - a6 37. Kf3 - Bc5
38. Re2 - d4 39. Rf4 - Kd7
40. e6+! - Ke8 41. Ke4 - a5
I þessari stöðu lék Karpov bið-
leik. Þar sem hann hefur alla þá
stöðulegu yfírburði sem hægt er
að hugsa sér kom engum á óvart
þó honum tækist að innbyrða
vinninginn daginn eftir.
42. Hf3 — Hbl 43. Rd5 - Hgl
44. Kd3 - Hxg4 45. f6 - Bd6
46. Rxb6 - Hg5 47. fxg7 -
Hxg7 48. Rc4 - Bb4 49. exf7+
- Hxf7 50. Hxf7 - Kxf7 51.
Re5+! - Kf6 52. Rc6 - Bel 53.
Rxd4 - Bb4 54. Rc6 - Bel 55.
Ke2 - Bc3 56. Kd3 - Bel 57.
Kc4 - Kg5
58. Rxa5!! - Bxa5 59. b4 - Bd8
Eða 59. - Bc7 60. Kc5 -
Kxh5 61. b5 - Kg4 62. b6 -
Bxb6+ 63. Kxb6 - h5 64. a5 og
hvíta peðið verður á undan upp í
borð.
60. a5 - Kxh5 61. Kb5 - Bg5
62. a6 — Be3 63. Kb6 og svart-
ur gafst upp.
Kosninga-
skrifstofa
Sjálfstæð-
ismanna
í Eyjum
OPNUÐ hefur verið kosninga-
skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í
Vestmannaeyjum og er hún í
Eyveijasalnum við Vestmanna-
braut. Kosningastjórar eru Geir
Jón Þórisson og Guðjón Hjör-
leifsson.
Kosningaskrifstofan er opin alla
daga vikunnar kl. 13.00-23.00 og
er ávallt heitt á könnunni. Kosn-
ingasímar eru 1648 og 1006.
1927 1987
Við eigum 60 ára afmæli í dag
í tilefni dagsins bjóðum við viðskiptavinum
okkar upp á kaffi og meðlæti.
Ath.: Við lokum kl. 17.00.
G.J. Fossberg vélaverzlun hf.
Skúlagötu 63 - Reykjavík- Símar 18560- 13027
Morgunblaðið/SigurgJónasson
Fremst frá vinstri: Ómar Garðarsson, Guðrún Jóhannsdóttir, Bragi
I. Ólafsson, Erna Jónsdóttir, Sigurður Einarsson, Sigurbjörg Axels-
dóttir, Sigurður Jónsson. Aftari röð frá vinstri: Stefán Agnarsson,
Magnús Þór Jónasson, Guðjón Hjörleifsson kosningastjóri, Ólafur
Lárusson, Geir Jón Þórisson kosningastjóri, Ingvar Siguijónsson,
Inga Jóna Jónsdóttir, Ingibjörg Johnsen, Svanhildur Gísladóttir og
Siguijón Birgisson.
BRIPS
Arnór Ragnarsson
14. mars sl. var haldið í Borgar-
nesi Vesturlandsmót í tvímenningi.
22 pör frá 5 félögum á Vesturlandi
tóku þátt í mótinu. Spilaður var
Barómeter-tvímenningur og sá Ás-
geir Kristjánsson um útreikning og
keppnisstjóm.
Efstu pör urðu þessi:
Alfreð Viktorsson —
Guðmundur Siguijónsson 171
Ellert Kristinsson —
Marinó Kristinsson 93
Jón Þ. Bjömsson —
NíelsGuðmundsson 56
Jón Á Guðmundsson —
Guðjón I. Stefánsson 50
Rúnar Ragnarsson —
Unnsteinn Arason 46
Þorvaldur Pálmason —
Þórður Þórðarson 44
Halldór Haligrímsson —
Karl Ó. Alfreðsson 35
Bjöm Þorvaldsson —
Jóhann Gestsson 34
Þá var dregið í undanúrslitum
Bikarkeppni sveita á Vesturlandi
og eigast eftirtaldar sveitir við: Sv.
Alfreðs Viktorssonar, Akranesi
gegn sv. Ragnars Haraldssonar,
Gmndarfirði og sv. Inga Steinars
Gunnlaugssonar eða sv. Böðvars
Bjömssonar, báðar frá Akranesi
gegn sv. Þóris Leifssonar, Borgar-
fírði.
Frá Hjónaklúbbnum
Þegar sex umferðum af átta er
lokið í Monrad-sveitakeppninni er
staða efstu sveita þannig:
Steinuimar Snorradóttur 120
ElínarÁmadóttur 111
Ólafar Jónsdóttur 108
yalgerðar Eiriksdóttur 104
Ásthildar Sigurgísladóttur 101
Dóru Friðleifsdóttur 99
DrafnarGuðmundsdóttur 97
Svövu Ásgeirsdóttur 93
Bridsdeild Barð-
strending’afélag-sins
Mánudaginn 23. mars lauk baró-
meterkeppni félagsins með sigri
Þórðar Möller og Rögnvalds Möller.
Staða efstu para að lokinni
keppni:
Þórður Möller -
Rögnvaldur Möller Þórarinn Ámason — 344
Ragnar Bjömsson 277
Sigurður ísaksson —
Isak Sigurðsson 239
Amór Ólafsson —
Viðar Guðmundsson 211
Friðjón Margeirsson —
Valdimar Sveinsson 196
Ragnar Þorsteinsson —
Helgi Einarsson 170
Jóhann Guðbjartsson —
Garðar Ólafsson 138
Þorsteinn Þorsteinsson -
Sveinbjöm Axelsson 128
Jónas Jóhannsson -
Hafsteinn Björgvinsson 126
Mánudaginn 30. mars hefst
fírmakeppni félagsins. Spilað er í
Armúla 40 og hefst keppni stund-
víslega kl. 19.30.
Bridsdeild
Sjálf sbjargar
Þriggja kvölda tvímenningi lauk
með sigri Péturs Þorsteinssonar og
Páls Siguijónssonar, sem hlutu 551
stig.
Röð næstu para:
Sigríður Sigurðardóttir —
Þórarinn Ámason 521
Rafn Benediktsson -
Magnús Sigtryggsson 497
Guðmundur Þorbjömsson —
Þorbjöm Magnússon 494
Gísli Guðmundsson —
Karl Karlsson 477
Meyvant Meyvantsson —
Ragnar Þorvaldsson 476
Georg Kristjánsson - .
Steindór Berg 476
Síðasta keppni vetrarins verður
tveggja kvölda einmenningur. Spil-
að er á mánudögum kl. 19.
Bridsdeild Rang-
æingafélagsins
Eftir 3 umferðir í tvímenningnum
er staðan þessi:
Lilja Halldórsdóttir —
Páll Vilhjálmsson 202
Sigurleifur Guðjónsson —
Óskar Karlsson 199
Helgi Straumfjörð —
Thorvald Imsland 186
Daníel Halldórsson —
Guðlaugur Nielsen 111
Hjördís Eyþórsdóttir —
Sigurður Jónsson 104
Kristinn Sölvason —
Stefán Gunnarsson 103
Baldur Guðmundsson —
Ámi Hjaltason 102
Næsta umferð verður spiluð 1.
apríl í Ármúla 40.