Morgunblaðið - 27.03.1987, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
61
Tryggingafélögin taki á þess-
um málum af meira raunsæi
Kæri Velvakandi.
í Morgunblaðinu laugardaginn
14. mars sl. birtist frétt undir fyrir-
sögninni „Slysakönnun Samvinnu-
trygginga" en þar segir að
starfsmenn tryggingafélagsins hafi
komist að þeirri niðurstöðu eftir að
hafa kannað slysaskýrslur félagsins
undanfarin 7 ár, gáleysi ökumanna
sé helsta orsök umferðarslysa og
ætla ég ekki að vefengja það. En
síðar kemur, að mér finnst sú
hæpna fullyrðing að of hraður akst-
ur og ölvunarakstur eigi minnstan
þátt í slysum og vísa til eigin
skýrslna undanfarinna ára.
Ég vil leyfa mér að gagnrýna
tryggingafélagið fyrir þennan
fréttaflutning og í því sambandi
ættu forráðamenn tryggingafélaga
að varast að byggja um of á göml-
um skýrslum en leita heldur nýrra
og haldbetri upplýsinga, t.d. á
slysadeildum spítalanna svo og í
lögregluskýrslum um þessi mál,
áður en farið er að alhæfa hver
Svar við fyrirspurn Ó.P. í Morg-
unblaðinu 21. mars sl.
Þær kröfur sem gerðar eru til
að fá útgefin skírteini atvinnuflug-
manna er að finna í Reglum um
loftferðir, nánar tiltekið í Reglugerð
um skírteini gefin út af flugmála-
stjóm. Þar stendur m.a. í kaflanum
atvinnuflugmaður III. flokks/flug-
vél: „Hann skal hafa lokið: a.m.k.
eins árs almennu námi að loknum
grunnskóla, með fullnægjandi
árangri að mati skólans eða öðru
hliðstæðu námi og hafa gott vald
á íslenzku máli.“
í kaflanum atvinnuflugmaður II.
flokks/flugvél og atvinnuflugmaður
I. flokks/flugvél stendur auk þess:
,,b) stúdentspróf í ensku, stærð-
fræði og eðlisfræði eða öðru hlið-
stæðu námi að mati flugmálastjórn-
ar.“
Undanfarið hefur bóklegt at-
vinnuflumannsnám farið fram við
flugliðabraut Pjölbrautaskóla Suð-
umesja.
Frá síðustu áramótum hefur
flugliða'orautin ekki starfað vegna
þess að verið er að athuga og endur-
skipuleggja bóklega atvinnuflug-
mannsnámið.
I dag er því ekki ljóst hvaða kröf-
ur verða gerðar til þess að fá að
Könnumst
ekki við
fólkið
Velvakandi góður,
Okkur fjölskylduna langar til
þess að vita hvort að þú gætir ekki
komið á framfæri fyrirspurn um
jólakveðjur sem við höfum fengið
þijú síðastliðin jól frá fólki sem við
áttum okkur ekki á hvert er. Fyrst
kom jólakort með mynd af lítilli
telpu með jólasveinahúfu,
u.þ.b. 1-2 tveggja ára. Því miður
er það kort týnt og ekki hægt að
sýna myndina af þeim sökum, en
hún var tekin á einkaheimili í stofu.
Póststimpillinn er Reykjavík.
Betsý, Halli, Randí, Elías og
Guðbjörg, Vopnafirði.
mesti eða minnsti slysavaldurinn í
umferðinni sé og byggja þá einung-
is á eigin könnun, en tryggingafé-
lögin í landinu eru á milli 15 og
20 talsins.
Það er meira en vafasamt og
beinlínis óvarlegt að gera of lítið
úr áhættuþáttum eins og áfengis-
neyslu og of hröðum akstri og að
óþarft sé að vara við þeim.
Nú eru tryggingafélögin undir
„slagorðinu" „Fararheill ’87, átak
bifreiðatryggingafélaganna í um-
ferð“ að gera sameiginlegt átak
með mikilli áróðursherferð til að
reyna að fækka slysum í umferð-
inni og er það vel og ber sannarlega
að þakka félögunum fyrir það nauð-
synlega framtak. í dagblöðum og
öðrum fjölmiðlum hafa birst hvatn-
ingaorð til ökumanna að láta af
sofandahætti og kæruleysi í um-
ferðinni, en eitt hefur gleymst. Það
fer lítið fyrir þessum áróðri að vara
við ölvunarakstri en vitað er að
áfengið, sem einmitt oft á tíðum
he§a bóklegt atvinnuflugmanns-
nám.
Reykjavík 23. mars 1987,
Ingveldur Dagbjartsdóttir,
skírteinadeild
flugmálastjórnar.
leiðir af sér gáleysi, kæruleysi og
stundum of hraðan akstur, er einn
slysavaldurinn hvað umferðina
snertir eins og víða annars staðar
í þjóðfélaginu.
Ég held að tryggingafélögin öll
ættu að taka á þessum málum af
meiri raunsæi og alvöru og gera
sér betur grein fyrir ástandinu og
hvemig bregðast eigi við vandanum
og í áróðri sínum vara við hættun-
um, því ef það er ekki gert næst
minni árangur og getur þá skaðað
allt þjóðfélagið og ég fæ ekki betur
séð en það sé ekki síður slæmt fyr-
ir tryggingafélögin sjálf, en oft
kvarta þau undan því að trygginga-
iðgjöldin nægi ekki til að mæta
auknum útgjöldum vegna sífellt
aukinna tjóna og það kemur sann-
arlega niður á tryggingatakanum
líka. Það ætti því líka að vera hag-
ur félaganna að vel sé á málum
haldið og að markvisst sé unnið
með að tryggja sem best öryggi
ökumanna og vegfarenda og stuðla
að bættri umferðarmenningu og
fækkun umferðaróhappa og slysa.
Megi tryggingafélögin og allur
almenningur bera gæfu til að vinna
saman með heill allrar þjóðarinnar
að markmiði, og að lokum: Gleymið
ekki í næstu áróðursherferð vamar-
orðunum „forðist of hraðan akstur"
og „áfengi og akstur fara ekki sam-
an“, með því ætti áróðurinn fyrir
bættri og betri umferðarmenningu
að vera markvissari og miða að
„Fararheill ’87“.
Áhugamaður um
umferðaröryggi
HEILRÆÐI
Til sjómanna:
Á neyðarstundu er ekki tími til lesninga. Kynnið ykkur því í tíma
hvar neyðarmerki og björgunartæki eru geymd. Lærið meðferð þeirra.
Þurfa atvinnuflug-
menn stúdentspróf
V
0OSr\o-reen\nýL !"
ást er...
.. . ástarjáíning í
Vaglaskógi.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all nghts reserved
° 1987 Los Angeles Times Syndicate
HÖGNI HREKKVÍSI
, |?eTlA EK f’VOTTABJÖRM AV \>VO (VIATINN SINN."