Morgunblaðið - 27.03.1987, Síða 62

Morgunblaðið - 27.03.1987, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ Verð varla spilandi þjálfari Rætt við Helga Ragnarsson hefur undanfarin tvö ár starfað sem hansknattleiksþjálfari í Noregi íslenskir handknattleiksmenn hafa löngum farið utan til að iftka íþrótt sfna og gert það meft miklum ágœtum og góðum árangri. Á hinn bóginn hefur ekki verið eins algengt aft íslenskir handknattleiks- þjálfarar leggji leift sína út fyrir landssteinana. Þaft hefur þó komið fyrir og menn skilað hlutverki sfnu með sóma. Einn þeirra er Hafnfirft- ingurinn Helgi Ragnarsson sem hefur nú starfað sem þjálfari f Noregi f tvö ár og er nú hjá norska 1. deildarliðinu Fredriksborg/SKI. Heimþrá innst inni Mér hefur alltaf liðið vel hér í Noregi, enda er aðstaðan hér til að þjálfa í handknattleik ákjósan- leg. Svo hef ég verið heppin með Helgi er flestum íþróttaáhuga- mönnum kunnur, enda gerði hann garöinn frægan með F.H. í knatt- spyrnu á árum áður og hefur verið handknattleiksþjálfari með athygl- isverðum árangri, bæði á íslandi erlendis. Noregur er ekki fyrsta landið sem Helgi þjálfar í fyrir utan fs- land. Á árunum 1980 og 1981 þjálfaði hann færeyska liðið Stjern- en frá Klaksvík og stjórnaði færeyska landsliðinu á Norður- landamóti í Noregi 1981. Sl. sumar réöst hann svo sem þjálfari til S.l. F. í Stavanger í Noregi. Með sér hafði Helgi tvo leikmenn frá Is- landi, þá Jakob Jónsson og Svein Bragason, sem léku báðir vel meö S.I.F. það keppnistímabil. Frábær árangur Það er skemmst frá því að segja að tiltekið keppnistímabil var sann- kölluð hátíð fyrir handknattleikinn í Stavanger. Liðið byrjaði á að sigra í bikarkeppninni og loks í deildar- keppninni, þar sem það háði harða baráttu við FSB/SKI, en þjálfari þess var þá annar íslendingur og Hafnfirðingur líka, Gunnar Einars- son. „Ég tel að hugarfarsbreyting hafi fyrst og fremst átt sér stað hjá leikmönnunum, bæði hvað varðar metnað á æfingum og í leikjum," segir Helgi, aðspurður um hverju hann þakki góðan ár- angur í Stavanger. „Með komu okkar íslendinganna voru menn viljugri við að leggja meira á sig og ná lengra en áöur, en liðið haföi í mörg ár þar á undan hafnað um miöja deild. Við jukum æfingar úr tveimur, þremur á viku upp í sex og það sannaðist heldur betur að æfingin skapar meistarann." - Hver er helsti munur á norsk- um handknattleiksmönnum og íslenskum? „Á íslandi eru miklu betri ein- staklingar, leikmenn sem eru viljugri að leggja á sig mikla vinnu til að verða góðir handknattleiks- menn. Jákvætt hugsafar í þá veru og keppnisskap er mikið ríkara í íslenskum handboltastrákun en ég finn hér hjá Norðmönnunum. Enda stöndum við mun framar á alþjóða mælikvarða." Hjá höfuðandstæð- ingunum Svo áfram sé rakinn ferill Helga, þá jókst hróður hans mjög innan handknattleiks í Noregi og eftir árs dvöl í Stavanger voru mörg lið sem vildu fá kappann. Með góðri að- stoð Gunnars Einarssonar, sem hætti aö þjálfa vegna náms, tókst FSB/SKI að fá Helga til sín. Hann gerði eins árs samning við félagið og tók þar með við þjálfun sinna höfuöandstæöinga frá árinu á und- an. Hjá FBI/SKI leika nú tveir íslendingar, þeir Erlingur Kristj- ánsson og Snorri Leifsson. Er Helgi ánægður með árangur sinna manna, norskra sem íslenskra? „Til að ná árangri í íþróttum, sérstaklega í boltaíþróttum, þurfa menn að hafa með sér dálitla keppni svona af og til. Slíka keppni höfum við ekki haft í vetur. í upp- hafi leiktímabilsins meiddust tveir af máttarstólpum liðsins, landliðs- mennirnir Tor E. Helland og Lars T. Rongland. Meiðsli beggja eru það alvarleg að hvorugur spilaði á yfirstandandi tímabili. Við höfum tapað sex leikjum með aöeins eins marks mun, þannig að þaö eru svosem ekki alltaf „jól“ í þessari íþrótt. Hins vegar áttum við mögu- leika á að komast í úrslitakeppni fjögurra efstu liða en því miður gekk það ekki, við enduðum í fimmta sæti. • Helgi (t.h.) og Erlingur Kristjánsson, en þeir tveir deila nú fbúð. Erlingur hefur verift mikill styrkur fyrir FSB/SKI, auk þess sem Helgi kveður hann kunnáttumann í bakstrí. • Ekki óalgeng sjón f Stavangerhöllinni, þegar Helgi þjálfaði S.I.F. liðin, Stavanger og FSB/SKI eru að mínum dómi best skipulögöu handknattleiksfélögin í Noregi. Hins vegar er því ekki að leyna að ég fæ heimþrá og hef hana sjálf- sagt alltaf innst inni. Sakna þess að vera ekki með í baráttunni heima á íslandi. Samningurinn minn rennur út í vor og ég hef ákveðið að flytjast heim á nýjan leik og taka að mér þjálfun 2. deild- arliðs ísfirðinga í knattspyrnu í sumar." - Eftir að hafa gert garðinn fræg- ann sem knattspyrnumaður, langar þig aldrei að breyta til í þjálfuninni og taka knattspyrn- una alfarið fyrir? „Ekki neita ég því. Knattspyrnu- þjálfun hefur alltaf verið ofarlega í huga mér og ég hef nú reyndar fengist lítillega við hana. Þjálfaði meistaraflokk kvenna í FH á gull- aldarárum þeirra, þjálfaði líka Þrótt frá Neskaupsað í 2. deild 1978 og var aðstoðarþjálfari meistara- flokks FH 1984. Svo hef ég þjálfað marga yngri flokka í knattspyrnu. Ég hef verið handknattleiksþjálfari í tólf ár og neita því ekki að ég hef mikinn hug núna á að breyta til og snúa mór aöallega að knatt- spyrnuþjálfun. Hvort verður ofan á, handknattleikur eða knatt- spyrna verður tíminn hins vegar að leiða í Ijós. Hins vegar er það Ijóst að snúi óg mér að knatt- spyrnuþjálfun verð ég ekki spilandi þjálfari." viðtal: Bjarni Jóhannsson Mótun íþróttastefnu til ársins 2000 DAGANA 21. og 22. mars gekkst íþróttasamband íslands fyrír ráð- stefnu um mótun íþróttastefnu til ársins 2000. Ráftstefnan var haldin f húsakynnum sambands- ins f Laugardal og voru þátttak- endur 80 frá sérsamböndum, héraðssamböndum, fþrótta- bandalögum, stjórn ÍSÍ, stjóm UMFÍ og Ólympfunefnd. Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra setti ráðstefnuna, en ráðstefnustjóri var Hannes Þ. Sigurðsson, varaforseti ÍSÍ. Sex vinnuhópar störfuöu á ráð- stefnunni og tóku til meðferðar alla helstu þætti íþróttastarfsins, ásamt skipulagi samtakanna. Ýmsar athyglisverðar tillögur, hugmyndir og ábendingar komu fram varðandi æskilega þróun á næstu árum. Meðal þeirra má nefna: • að kannaðir verði möguleikar á aö íþróttasambandið komi upp sjónvarpsstöð á eigin spýtur eða í samráði við aðra, þar sem sýna má t.d. kappleiki og aðra íþrótta- viðburði, fræðsluefni og kynningu á heilsurækt ásamt viðtölum við íþróttafólk. • að kannað verði hvort ráölegt sé að koma á fót fyrirtæki til fram- leiðslu á myndböndum til sýninga í sjónvarpi og til notkunar við kennslu. • að efla verði almenningsíþróttir með öllum ráðum. • Að mótun grunnþjálfunar barna fari fram í grunnskólunum með áherslu á almenna heilsu- rækt, andlega og líkamlega uppbyggingu með tilliti til aldurs. • Að íþróttaháskóli verði stofn- aður og rekinn á Laugarvatni. • Að gerð verði áætlun um bygg- ingu íþróttamannvirkja til alda- móta með endurmati á 4ra ára fresti. • Að hvetja sveitarstjórnir til samstarfs um byggingu stærstu íþróttamannvirkjanna, sem vart er á færi einstakra sveitarfélaga að byggja. • Að vinna að samræmingu á bókhaldskerfum deilda, félaga, sérsambanda og íþróttafélaga með tilliti til upplýsingagjafar og samanburöarmöguleika milli ára. • Kannaðir voru og ræddir fjár- mögnunarmöguleikar hreyfingar- innar. • Áhersla var lögð á samræm- ingu félagsgjalda einstakra félaga. Niðurstöður ráðstefnunnar fara til frekari úrvinnslu til nefndar, sem nú er starfandi á vegum sam- bandsins að mótun íþróttastefnu til næstu aldamóta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.