Morgunblaðið - 07.04.1987, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1987
13
var spurt, hvort draumurinn væri
ekki jafn raunverulegur og það
sem menn búa sér til sem sinn
raunveruleika. Víst er að nú ger-
ist það mjög áberandi, hversu
leitað er sterkt eftir túlkun tilfínn-
inga og um leið lögð áhersla á
ákafa höfnun hvers konar
„perfectionisma". Tilfínningin er
sú andstæða vélmennskunnar,
sem nú er að verða friðarvin
mannsins og því eru söngvar
Schuberts að ná enn meiri vin-
sældum en nokkum tíma fyrr.
William Parker og Dalton Baldwin
eru listamenn, sem kunna sitt en
eiga einnig til þau blæbrigði, sem
snerta við tilfínningum manna. í
lagaflokknum Malarastúlkan
fagra voru nokkrir söngvar sem
William Parker söng snilldarlega
vel, sérstaklega söngvamir Die
liebe Farbe og Des Baches Wieg-
enlied. Á undan Malarastúlkunni
fluttu listamennimir fímm söngva
og þrjá þeirra við ljóð eftir
Goethe, Ganymed, „An Schwager
Kronos“ og Prometheus, sem þeir
fluttu með mikium tilþrifíim. Þrátt
fyrir að William Parker sé frábær
söngvari hafði hann ekki Schubert
svo á val|ffr sínu að óumdeilanlegt
sé og svo virðist sem hann njóti
sín best í viðkvæmum söngvum
hans, eins og undir það síðasta í
Malarast&lkunni, en hafí síður tök
á opnari og einföldum söngvum,
þó hann vissulega syngi allt vel.
Um undirhiikarann þarf ekki mörg
orð, hann er frábær listamaður
og fínnur að ekki má ofleika með
fallegt tónmál Schuberts.
Strengleikar
Strengjakvartett, er kennir sig
við Síbelíusar-akademiuna, lék um
helgina í Norræna húsinu. Á efnis-
skránni voru strengjakvartettar
eftir Haydn, Beethoven og Síbelíus.
Haydn-kvartettinn er ópus 76 nr. 1
og í flokki sex kvartetta er bera
tileinkunina „Erdödy", þar með eru
„Keisarakvartettinn“ og tveir aðrir,
sá fyrri kenndur við „fímmundir“
og sá síðari við „sólaruppkomu".
Þessi tónverk þykja einhver bestu
verk Haydns, enda er það jafnvel
leiknum tónlistarmönnum, eins og
kvartett Síbelíusar-akademíunnar,
alls ekki vandalaust verk að flytja
þessa elskulegu tónlist með öllu án
hnökra. Annað verkið var ópus 59
nr. 3, sá þriðji af þeim er voru til-
einkaðir Razumovsky. Sá þriðji
þykir vera þeirra dramatískastur
og því stundum verið kallaður hetju-
kvartettinn og er hann ekki síst
frægur fyrir kraftmikla fúgu í loka-
kaflanum. Túlkunin á þessum
kvartett var víða mjög glæsileg,
einkum þó lokakaflanum. Tónleik-
unum lauk með ópus 56 eftir
Síbelíus. Þetta er eini strengja-
kvartettinn sem Síbelíus samdi
(1909) og þótti mörgum hann bera
þess merki að vera frekar saminn
fyrir sinfóníska strengjasveit en
kvartett. Verkið er mjög persónu-
legj; og síðasti þátturinn einkum
sérkennilegur og vel saminn. Þama
var leikur Finnanna frábær, enda
valinn maður í hvetju rúmi og með-
al annars sá frægi Arto Noras, sem
margir telja einn af bestu sellóleik-
urum heimsins. Auk hans léku þrír
aðrir kennarar við Síbelíusar-aka-
demíuna, Seppo Tukiainen, er lék
fyrstu fíðlu, Erkki Kantola, aðra
fíðlu, og Veikko Kosonen á lágfíðlu.
Hvanneyri:
Innbrota-
faraldur
upplýstur
Hvannatúni í Andakíl.
INNBROTIÐ í Hvítárskóla og á
annan tug annarra innbrota á
síðustu vikum upplýstust nú fyrir
skömmu. Frá því var sagt í Morg-
unblaðinu að brotist hafði verið
inn í Hvitárskála hér í sveit. í
raun var þetta aðeins annað af
tveimur innbrotum umrædda
nótt.
Lögreglunni á Akranesi hefur nú
í samvinnu við lögregluna í Borgar-
nesi tekist að hafa uppi á þremur
17—18 ára piltum, sem hafa framið
þessi innbrot. í framhaldi af þeirri
rannsókn kom í ljós, að umræddir
piltar höfðu á samvisku sinni á
annan tug annarra afbrota, flest á
Akranesi en einnig í Reykjavík og
víðar.
Að sögn Viðars Stefánssonar,
rannsóknarlögreglumanns á Akra-
nesi, sannaðist sekt þjófanna eftir
ábendingu forráðamanns á seinni
innbrotsstaðnum hér í sveit. Hluti
þýfísins fannst falinn undir brú á
leiðinni yfir Geldingadraga.
- D.J.
V^terkurog
k./ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Umboðs- og módelskrifstofa, Hverfisgötu 46, Reykjavík, símar46219,621088
NY NAMSKEIÐ
AÐ HEFJAST. _
Auglýsingaskrifstofur!
Vanti ykkur módel, leitið þá til
Módelmyndar. Við höfum módel
frá 4ra ára aldri
Stigl
Byrjendur, sett upp sýning, tekið próf.
Stig II
Snyrtisérfræðingur og hárgreiðslumeistari.
Stig III
Lokastig, tískuljósmyndari vinnur með módelum
Þessi |y I J
módel .I!,pJ W
eru búin Jlif] W h II § Arl
að taka sín próf 11 I!r J
á tískusýningarnámskeiði Kennari Kolbrún
og gekk mjög vel. Aðalsteinsdóttir
Tökum að okkur uppsetningar á tískusýningum, s
smáum fyrir fyrirtæki og verslanir
Ný andlit. Nýtt fólk
tii nlWlf TgBÍBi W / m Ms' H99H >*víj§||S|
máy 'jGBSli
mg' m %S I ' T '• JC*. _ s ' |
Afhending skírteina hjá Módelmynd verður á Hverfisgötu 46, miðvikudag 15. apríl kl. 15-21