Morgunblaðið - 07.04.1987, Side 31

Morgunblaðið - 07.04.1987, Side 31
f;l MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1987 31 Hádegisverður á hálendinu. Þrívegis affelgaðist i miklum hliðarhalla. í lokaáfangann yfir Sprengisand og Hofsjökul. Við lögðum af stað snemma á fimmtudagsmorgun yfir Sprengi- sand. Fljótlega settust tveir skógar- þrestir á bílana hjá okkur þrátt fyrir fulla ferð og fengu þeir auðvit- að í svanginn. Við héldum áfram upp að Miklafelli, en sunnan við það Útsýnið skoðað. Fjærst sést yfir í Kerlingafjöll og i Loðmund. Næst bilunum er Kjalfell. er fjalltindurinn Klakkur. Þar er jökull er góð uppleið á Hofsjökul. Við fórum upp á jökulinn í um 1.400 metra hæð og eftir að halla tók undan keyrðum við í gegnum mikið snjóhaf eins og keyrt væri í gegnum 50 til 60 metra þykkan hveitihaug sem náði vel yfir stuðara bílana. Við fórum niður jökulinn eftir lor- an, hæðarmæli og áttavita á 20 til 30 km hraða og komum niður norð- an við íjallið Sátu, sem er á norðvestanverðum Hofsjökli. Stefnt á Hveravelli Þaðan var stefnan tekin beint á Hveravelli og vorum við komnir þangað kl. 22.00. Við héldum þar til í skála Ferðafélagsins sem stend- ur við laugina Guðlaugu. Þar er upphitað hús árið um kring með hveravatni. Föstudagurinn fór í að hvíla sig og njóta útsýnisins. Við fórum ofan í Guðlaugu enda ekki vanþörf á. Birta fór seinnihluta dagsins og þegar við vöknuðum um kl. 5.00 um morguninn var orðið heiðskírt og fallegt veður svo við drifum okkur af stað. Við fórum upp á Langjökul í norðri og stefnd- um á hvíld við Fjallkirkju, sem er í austurbrún Langjökuls. Þar er skáli Jöklarannsóknafélagsins sem fjórir okkar tóku þátt í að smíða. Við Fjallkirkjuna hvíldum við okkur Klakabrynjaður í frosthörkum. vel, nutum lífsins og fórum í sól- bað. Síðan var stefnan tekin á Þursaborgir, sem eru drangar sem standa upp úr jöklinum. Þar mætt- um við fyrsta vélsleðahópnum af þremur sem var að keyra inn á hálendið S þessu glæsilega veðri. Þar voru gamlir félagar okkar á ferð, Vilhelm Andersen og félagar úr Jöklarannsóknafélaginu. Síðar mættum við hópi, sem kom sérstak- lega til að taka á móti okkur. Við komum niður af Langjökli kl. 17.00 á laugardeginum og vor- um við þá búnir að ná takmarkinu, að fara yfir jöklana þijá á jeppun- um. Við ókum sem leið lá í Húsafell þar sem dælt var aftur í dekkinn og haldið til Reykjavíkur í einum áfanga." Meö FIAT UN0 sanna ítalskir hönnuöir rækilega hæíni sína. Hér fara saman glæsilegt útlit og framtíðar tækni, mikil hagkvæmni og hámarks notagildi. Þaö er ekki aö ástæðulausu aö FIATUN0 er einn mest seldi bíll- inn í Evrópu. Hann er einfaldlega einstakur, þegar tekiö er tillit til aksturseiginleika, útlits, öryggis, þæginda, og sföast en ekki síst, hvaö þú færö mikið fyrir peningana. Skelltu þér strax í reynsluakstur. Eftir þaö veistu nákvæmlega hvaö veriö er aö tala um. i essemm sía a

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.