Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1987 43 Amarflug: Fyrst A síðan B og svo allt stafrófið eftir Gísla Maack Hörður Einarsson, sem ég hef aldrei hitt svo ég viti til, fer eins og köttur í kring um heitan graut í grein sinni í Morgunblaðinu 24. mars sl. Hann forðast að tala um efnisatriði greinar minnar og reynir að afgreiða skrif mín sem dylgjur og heift. Hvað varðar dylgjurnar, þá er ég svo heppinn að grein mín fékk nákvæma skoðun af sérfræðingum Morgunblaðsins, sem óskuðu eftir að ég fjarlægði allt, sem flokkast gæti undir dylgjur. Ég er því vænt- anlega með „siðferðisvottorð" blaðsins í þeim efnum. Hins vegar virðist Hörður Einarsson óbundinn af slíku og eignar mér skoðanir og tilfinningar í stað þess að fjalla málefnalega um þau atriði, sem koma fram í grein minni. Afarkostirnir Það sem kætti mig mest í grein Harðar var þegar hann talað um „að ég hafi sett félaginu afarkosti og Agnar Friðriksson hafi neyðst til að taka á mér“. Það sem Hörð- ur á líklega við er að í byijun júlí 1986 setti ég forstöðumanni fjár- máladeildar þá afarkosti að annað hvort fengi ég greiddan hluta af vangoldnum launum mínum eða að ég myndi leita mér að vinnu annars staðar. Þegar hér var komið var ég búinn að vinna hjá Arnarflugi í 14 mánuði samfellt og aldrei feng- ið greidd laun á réttum tíma. Það verður að taka á svona mönnum, sem heimta umsamin laun. Hörður eignar mér þá skoðun að ég telji að Arnarflug eigi ekki til- verurétt, af því ég geti ekki lengur haft gott af félaginu. Er það al- menn skoðun stjómarformannsins að starfsmenn hans séu að „hafa gott af félaginu"? Ég var nú svo einfaldur að halda að þetta væri einföld sala á vinnuafli og að báðir aðilar nytu góðs af. Ég minni líka á, að það var mín eigin ákvörðun að hætta hjá félaginu og því ekki rétt að tala um þetta eins og ég hafi misst af einhveiju góðgæti. Blekkingarnar Það eru kannski ekki ósannindi að segja ekki allan sannleikann, en það er vissulega blekking. Bæði Hörður Einarsson og fleiri af nýju hluthöfunum hafa sagt opinberlega, að staða Arnarflugs hafi verið miklu verri en þeim hafi verið sagt. Nú verður maður að gefa sér það, að fyrri stjómendur Amarflugs hafi haft einhveija hugmynd um hvað var að gerast og hafi þeir ekki sagt nýju hluthöfunum frá því, þá er það blekking. Það em orð Agnars Frið- rikssonar sjálfs, að hann hafi ekki vitað um væntanlegan bakreikning frá Líbýumönnum vegna eldsneytis- ins, þegar hann réð sig til félagsins og því talið stöðu félagsins miklu betri en hún var. Þarna hefur Agn- ar verið blekktur. Aætlunargerðin Vorið 1986 hætti Qármálastjóri Amarflugs störfum, en ekki var talin ástæða til að ráða í stöðu hans, þar sem nýju hluthafamir skyldu hafa fijálsar hendur um ráðningu fjármálastjóra. Sá maður, sem gegndi þessari stöðu, var oft eina raunsæja röddin í röðum stjómenda Arnarflugs, og því eftir- sjá af honum. Þrem vikum áður en pílagríma- flugið átti að byija, varð mér ljóst að stjórnendur Arnarflugs gerðu sér enga grein fyrir hversu mikið fjár- magn þyrfti til að halda stöðvunum fimm gangandi og standa við um- samin laun á umsömdum tíma. Ég tók mig því til ótilkvaddur og gerði áætlun um útgjöld á þessum stöðv- um, og til að fá heildarupplýsingar um fjárstreymi bætti ég við upplýs- ingum, fengnum frá skrifstofu- stjóra Arnarflugs, um viðhalds- kostnað og flugvélaleigu. Þannig mátti fá heildarmynd af fjárþörf í verkefnið. Þetta var gert 3 vikum áður en pílagrímaflugið átti að heíj- ast og var því alls ekki grundvöllur fyrir ákvörðunartöku um þetta flug, þar sem verð og samningar voru ákveðnir u.þ.b. 3 mánuðum áður. Þessi greiðsluáætlun leiddi berlega í lós, að Amarflug þurfti að útvega verulegt fjármagn til að geta rekið þetta flug. Þessar upplýsingar komu flatt upp á Agnar Friðriksson framkvæmdastjóra og vora tilefni ferðar hans til Alsír til að reyna að fá greiðslur fyrr en samningar sögðu til um. Alsírmenn gáfu hon- um munnlegt loforð þar um, sem síðar reyndist haldlítið, eins og við mátti búast. Ég hef fengið það staðfest síðar, að þessi áætlun stóðst mjög vel, ef frá eru taldar þær upplýsingar, sem vora fengnar frá skrifstofustjóra Arnarflugs. Síðan hafa fallið til margs konar útgjöld, sem rekja má beint til slæmrar fjárhagsstöðu fyr- irtækisins, eins og t.d. dagsektir á flugvélum o.fl. Einnig vora einstak- ir launaliðir hækkaðir eftir að ég lét af störfum og fleira mætti telja. Þegar ég var stöðvarstjóri Amar- flugs í Keflavík, tókst mér að lækka stöðvarkostnað um u.þ.b. 25% með því að fara yfir bókfærðan stöðvar- kostnað og láta færa kostnað af stöðinni sem ekki tilheyrði þeim rekstri. Það væri fróðlegt að fá tækifæri til að skoða hvað pfla- grímaflugið þarf að bera af kostn- aði, sem uppranninn .er í öðrum rekstri fyrirtækisins. Ég tel það rétta ákvörðun, að Arnarflug hætti erlendu leigu- flugi, því félagið hefur ekki stjórnunarlega getu til að annast svo flókinn rekstur. Hins vegar þætti mér miður ef þessi útflutn- ingur á þekkingu og reynslu frá íslandi legðist af, því þetta er arðbær starfsemi, ef vel er að rnálum staðið. Innanlandsflugið Það gleður mig ósegjanlega mik- ið að sveitarstjórnarmenn á Islandi hafa ekki látið glepjast, á sama hátt og ríkisstjómin, til ábyrgðar á rekstri Arnarflugs. Það var þó sannanlega reynt að fá þá til samstarfs i nýja hlutafélaginu. Því langar mig að spyija stjóm- arformann Arnarflugs eftirfarandi spuminga: 1. Hveijir era hluthafar í Amar- flug, innanlandsflug hf. — eða hvað það nú heitir? 2. Hvert er hlutafé þessa félags, og hvernig greiðist það? 3. Leigir móðurfélagið dótturfélag- inu flugvélar og aðstöðu, og þá á hvaða verði? 4. Verður sameiginlegur starfsald- urslisti fyrir flugmenn móður- og dótturfélagsins? 5. Hvaða spamaður næst með því að skilja þennan rekstur frá aðal- starfseminni? Með tilliti til landsfrægrar „hreinskilni" stjómarformannsins, er ég ekki í vafa um að hann mun upplýsa þegna þessa lands um ofan- greind atriði. Meintar dylgjur um viðhaldsmál Hvar í grein minni stendur að stjómendur Amarflugs beiti flug- menn og flugvirkja þrýstingi í viðhaldsmálum? Hvergi. Gísli Maack „Þeir, sem hafa fjárfest eða gengið í ábyrgð fyrir Arnarflug, eru nú fastir í netinu og geta ekki snúið við. Þeir hljóta því að þylja allt stafrófið, eftir geð- þótta stjórnar Arnar- flugs.“ Ég hvet menn hins vegar til að láta ekki undan þrýstingi í við- haldsmálum. Með þessum orðum á ég við þann þrýsting, sem fjár- hagsstaða Amarflugs, og þar með varahlutaskortur, veldur þeim mönnum, sem eiga að sjá um þessi mál. Ég á einnig við þá baráttu, sem forráðamenn tæknidefldar heyja daglega við fjármáladeildina til að tryggja eðlileg aðföng vara- hluta. Snemma árs 1986 hætti einn af forsvarsmönnum tæknideildar, með þeim orðum, að félagið gæti þá notað launin hans til varahluta- kaupa. Það vora oft ekki stærri upphæðir sem illa gekk að fá yfir- færðar. Fyrir menn, sem vinna að örygg- ismálum, verður að skapa heilbrigt umhverfi og það má alls ekki vera þeirra hlutverk að þurfa að taka tillit til fjárhagsstöðu félagsins. Afskiptin, sem vissulega voru Stjómarformaðurinn neitar allri aðild að ákvörðunartöku um yfir- töku hans á félaginu. Þetta er ekki rétt. Hann var spurður álits á öllum meiriháttar ákvörðunum, allt frá samningagerð við Air Algerie til samnings um leigu flugvéla af UAS í pílagrímaflugið, sem hann samdi um ásamt Agnari Friðrikssyni í lok júní 1986. Auðvitað var gamla stjómin opinberlega með ákvörð- unartökuna, en gætti þess af kostgæfni að taka engar ákvarðan- ir í blóra við nýju hluthafana. Hugleiðingar um starfrófið Stjómarformaðurinn segir orð- rétt í grein sinni í Morgunblaðinu 24. mars sl: „Einkaaðilar og ríkis- vald hafa sagt A í ákvörðun sinni að endurreisa Amarflug og hljóta því einnig að segja B.“ Þetta er einmitt mergur málsins og tilefni fyrirsagnarinnar hér að ofan. Þeir, sem hafa fjárfest eða gengið í ábyrgð fyrir Amarflug, era nú fastir í netinu og geta ekki snú- ið við. Þeir hljóta því að þylja allt stafrófið, eftir geðþótta stjómar Arnarflugs. Eins og ég tíunda ítar- lega í grein minni í Morgunblaðinu þá era ýmis atriði vægast sagt ótrygg í framtíð Amarflugs. Þessi atriði þóttu þó ekki svaraverð og afgreidd sem dylgjur. Nýjustu hlutaíjárauglýsingar Amarflugs lofa 160 millj. kr. hagn- aði af kaupum á Boeing 737-vélinni. Er stjórn Arnarflugs tilbúin að taka á sig lagalega ábyrgð á þessari fullyrðingu? Höfundurerfyrrverandi verk■ efndsíjóri Amarflugs í Saudi- Arabíu. Ford Scorpio ’86 Bfll ársins 1986. Ekinn 45 þ. km. Með lituðu gleri, ABS bremsukerfi, veltistýri, fullkomnum steríógræjum o.fl. Skipti á nýl. ódýrari bfl. Upplýsingar í símum 23393 og 16700. KENWOOD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.