Morgunblaðið - 07.04.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIIÐJUDAGUR 7. APRIL 1987
45
Stjömu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri Gunnlaugur. Ég er
fædd 10.07.1954 kl. 8.45 og
á að heita Krabbi. Nú langar
mig til að vita um stöðu
tunglanna á þessum tíma og
hvemig innrætið er. Einnig
langar mig að vita hvemig
árið er hjá mér og hvort
heppilegt sé að breyta um
starf. Eg vinn innan heil-
brigðiskerfisins núna. Ef þú
hefur pláss í þættinum væri
svarið ánægjuleg hressing
með morgunkaffinu. Með
vinsemd, undarlegur
Krabbi."
Svar:
Þú hefur Sól, Merkúr, Júpíter
og Úranus í Krabba, Tungl
í Sporðdreka, Venus og
Rísandi í Ljóni, Mars í Bog-
manni og Naut á Miðhimni.
Breytingar
Það að Úranus er samstöðu
við Sól gerir að þú ert ekki
hinn dæmigerði íhaldssami
Krabbi. Úranusi fylgir þörf
fyrir að breyta til, að vera
öðruvísi, fara eigin leiðir og
vilja spennu í líf sitt. Úranús-
arfólk fær einnig óvænt
„rafmagnsstuð", þ.e. fær
skyndilegar hugmyndir og
tekur oft óvæntar ákvarðan-
ir.
Nœmleiki
Þú ert eigi að síður tilfinn-
ingarík og næm eins og allir
Krabbar. Ert næm á and-
rúmsloft, vorkennir fólki og
finnur til með þeim sem eiga
bágt. Úranus gerir hins veg-
ar að þú vilt vera sjálfstæð
og því reynir þú að forðast
að láta þennan næmleika
hafa of sterk áhrif á þig og
forðast að taka á þig skuld-
bindingar.
Dýpt
Tungl í Sporðdreka styrkir
næmleika Krabbans. Þú ert
því sérstaklega næm og til-
fínningarik, jafnvel um of.
Þú þarft því að draga þig í
hlé annað slagið, einangra
þig frá umhverfínu og
hreinsa tilfinningar þínar.
Sporðdrekinn gefur þér síðan
dýpt, áhuga á sálfræði og því
að komast til botns í hveiju
viðfangsefni.
Hreyfmg
Mars í Bogmanni táknar að
þú þarft að geta hreyft þig
í starfí. Þetta er ör hlið á
persónuleika þínum, eirðar-
leysi, óþolinmæði og stund-
um fljótfæmi.
Hlý
Ljón Rísandi táknar að þú
ert stolt og hlý í framkomu.
Þú ert opin, amk. á yfirborð-
inu, og hefur gaman af því
að vera miðja I umhverfi
þínu. Þú ert stjómsöm og
vilt hafa áhrif á umhverfí
þitt. Naut á Miðhimni táknar
að þú vilt öryggi innan þjóð-
félagsins og vilt fást við störf
sem em gagnleg og upp-
byggjandi.
Hœfileikar
Þegar á heildina er litið má
segja að þú hafír hæfileika á
sviðum sem hafa með heil-
brigðismál að gera. Hins
vegar er í þér ákveðin upp-
reisn, þ.e. þörf fyrir sjálf-
stæði og fjölbreytileika sem
samræmist því kannski ekki
að vinna alltof lengi í sama
starfí. Hæfíleikar þínir liggja
hins vegar á mannlegu svið-
unum, þar sem næmleiki og
ímyndunarafl fá notið sín.
ÁriÖ framundan
Á næsta ári, 1988, fer Úran-
us yfir Mars, Júpíter yfir
Miðhimin og Plútó yfir Tungl.
Ég tel að á næsta ári verði
því heppilegur tími til að
breyta til.
GARPUR
m I^LLLj ■ 1 > 1
GRETTIR
DYRAGLENS
\J\ LTU H/tm
W 1
öriVLUGA/
UOSKA
Ht/AE) EK/tPHJÓNABANDlNU
— i
FERDINAND
SMAFOLK
HERE'STHE"lONE BEA6LE"
MAKIN6 MIS MISTORIC
FLI6MT ACR055 TME
ATLANTIC TO PARI5...
FAR BELOUJ ME CAN
5EE TME PARK UJATERS
OF TME ATLANTIC...
VOUR UOATER PI5M 15
6ETTIN6 L0UI..I TMINK
\'V BETTER FILL IT...
TME PARK UIATER5 OF
TME ATLANTIC PI5APPEAR
BENEATH MIS PLANE...
-*2r
Hér er „Voffinn eini“ í
sögulegu flugi sínu yfir
Atlantshaf til Parísar ...
Langt niðri sér hann úfnar
öldur Atlantshafsins ...
Það er farið að minnka í
vatnsdollunni þinni, ég
held ég verði að fylla
hana...
Úfnar öldur Atlantshafs-
ins hverfa undir flugvél
hans____
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hrólfur Hjaltason og Jónas
P. Erlingsson unnu aðaltvímenn-
ingskeppni Bridsfélags
Reykjavíkur, sem lauk sl. mið-
vikudag. Helstu keppinautar
þeirra voru Ásmundur Pálsson
og Karl Sigurhjartarson, en þeir
urðu að láta sér lynda annað
sætið. Athyglisvert slemmuspil
kom upp í síðustu umferðinni:
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁK52
VKD9
♦ -
♦ ÁKG754
Vestur Austur
♦ 987 ♦ DG103
¥753 111 ¥G2
♦ KD2 ♦ Á97653
♦ D832 ♦ 6
Suður
♦ 64
¥Á10864
♦ G1084
♦ 109
Fjórar slemmur koma til
greina á spil NS: sex og sjö lauf,
og sex og sjö hjörtu. Og frá
bæjardyrum AV er fóm í tígli
álitlegur kostur. Svo tölumar í
salnum voru æði misjafnar, bút-
ur, geim, fóm á sjötta og
sjöunda sagnþrepi, og allt upp í.
sjö hjörtu dobluð!
Það er skemmtilegt að velta
fyrir sér bestu spilamennskunni
í sex laufum í norður með tígli
út. Það er hætta á að gefa slag
á trompdrottninguna, eða spaða,
ef hjartagosinn liggur fjórði í
vestur.
Það kemur til greina að
trompa tvo spaða. Þá sættir
maður sig við að gefa slag á
laufdrottninguna, en vinnur spil-
ið oftast þótt hjartað liggi illa.
Það er freistandi að taka tvo
efstu í laufi, en sú spilamennska
heppnast illa i þessari legu. Svo
kannski er best að spila hrein-
lega litlu laufi, og vonast til að
hjartað falli.
Spilamennskan í sjö laufum
er einnig umhugsunarverð.
Líklega er best að byija á því
að taka hjartahjónin til að kanna
hvort gosinn fellur annar í aust-
ur, sem hann gerir. Þá er hægt
að yfírtaka hjartahámann með
ás og nota innkomuna til að
svína fyrir laufdrottninguna.
Komi hjartagosinn ekki í leitirn-
ar verður að stigna spaða til að
komast inn í blindan til að svína
í trompinu.
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp í 1. deild-
arkeppni sovézka meistaramóts-
ins fyrir áramótin í skák
stórmeistaranna Kupreitschik,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Sveschnikov.
24. Kxf6! - Kxf6 (Eða 24. -
Hxg4?, 25. Dh6+) 25. Dh6+ -
Ke7, 26. Hxg5 og svartur gafst
upp, því með tvö peð undir og
berskjaldaðan kóng er baráttan
vonlaus. Úrslitakeppni sovézka
meistaramótsins 1987 er um
þessar mundir að ljúka. Fyrir
síðustu umferðina var staðan
þannig: 1. Ehlvest 10 V2 v., 2.
Beljavski 10 v. og biðskák, 3.
Eingom 10 v., 4. Salov 9 v. og
2 biðskákir o.s.frv.