Morgunblaðið - 07.04.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1987
59
Minning:
SigurðurJ. Jónasson
pípulagningameistari
Fæddur 10. september 1896 \
Dáinn 28. mars 1987 ' \
í dag er kvaddur Sigurður Jónas
Jónasson, pípulagningameistari.
Hann var fæddur í Reykjavík, sonur
hjónanna Sigríðar Sigurðardóttur og
Jónasar Jónassonar, snikkara frá
Stokkseyri. Hann ólst upp hjá foreld-
rum sínum þar til móðir hans lést
af barnsförum árið 1902, þá fór
hann í fóstur á Vorsabæjarhjáleigu
í Flóa og dvaldi þar til unglingsára.
Hann eignaðist tvær systur,
Agústu f. 1898 er lifir bróður sinn
og Sigríði er lést á síðasta ári. Til
Reykjavíkur fluttist hann ungur að
árum og vann þar við ýmis störf en
1920 hélt hann til Noregs og starf-
aði þar við bústörf, skógarhögg og
við fjárgæslu, þar sem hann dvaldi
einn í íjallakofa með hund með sér
við gæsluna, þess tíma minntist
hann oft með ánægju.
Hann var við nám í lýðháskólan-
um í Voss í Noregi, 1922—23, sem
einnig var honum minnisstæður tími.
Heim til íslands var haldið 1925 og
hóf hann þá að vinna í Vélsmiðjunni
Héðni, síðan lærði hann pípulagnir
og lauk prófi í þeirri iðngrein. Hann
starfaði mikið í sínu stéttarfélagi,
sat í stjórn þess mörg ár og var
síðustu árin heiðursfélagi þess.
Árið 1930 kvæntist hann Rann-
veigu Eyjólfsdóttur. Þau bjuggu nær
öll sín búskaparár á Ásvallagötu 53,
böm þeirra urðu Qögur; Jónas, lést
ársgamall, hin eru Sigríður Þórdís,
gift Hjálmari Pálssyni, búsett á
Blönduósi, Eyjólfur Jónas, kvæntur
Sigríði í. ísleifsdóttur, búsettur í
Reykjavík, Agða Sigrún, gift Gesti
Guðmundssyni, búsett á Blönduósi,
einnig ólst upp hjá þeim dóttursonur
þeirra, Eyþór Ingi. Barnabörain eru
12 og hópur bamabamabama.
Sigurður var alla tíð hraustur og
var vel ern síðustu árin, fylgdist vel
með þjóðmálum, las dagblöðin og
fylgdist vel með fréttum. Hann var
°g dyggur stuðningsmaður Alþýðu-
flokksins.
Síðustu árin fékk hann sér dag-
lega gönguferð, venjulega niður að
Tjöm, þar sem síðasta gönguferðin
endaði þ. 28. nóvember sl., en þá
féll hann á hálku og lærbrotnaði og
var lagður inn á Landspítalann. Þá
fylgdi annar sjúkleiki í kjölfarið,
hann gekkst undir erfíða aðgerð og
lést þann 28. mars, eftir rétta 4
mánaða legu.
Hann er kvaddur með söknuði,
fari hann í friði, Guðsblessun fylgi
honum.
Eyþór og Ingþór
*
sem fylgir þér hvert semer
Olympia Carrera, þýska ritvélin sem fékk verðlaun fyrir hðnnun,
er ritvélin fyrir hina fjölhæfu.
Ferðaritvél í sérflokki, einungis 6,5 kíló og með innbyggðum
alspennubreyti. Lyklaborðið er aðlagað að fingrunum
og auðveldar hraða og villulausa vélritun við hvernig borð sem er.
Getur allt sem þær stóru gera, dregur lóðréttar línur, og hefur
mismunandi leturgerðir, 24 stafa leiðréttingaminni, síendurtekningu
á öllum stöfum og sérstakan ásláttarjafnara (buffer)
- þannig nærðu góðum frágangi án fyrirhafnar.
Olympia Carrera er tengjanleg við allar tölvur.
...hún hefurþað allt og meiratil.
Ca.i'itira.
OLYMPtAO
/ Vi'
• I I
I. I.i 1.1
. .. I » t » I 1 \ \ \ \ \
i i i i i i i ii i m m 5 m
/* | I I I i | | | | | 1 I | :
. te
Ekjaran
ÁRMÚLA 22, SÍMI (91) 8 30 22, 108 REYKJAVÍK
Þvottheldni og styrkleiki
í hámarki
• Kópal innimálningin fæst nú í fjórum gljástigum.
• Nú velur þú þann gljáa sem hentar þér best og
málningin er tilbúin beint úr dósinni.
• Nú heyrir það fortíðinni til að þurfa að blanda
málninguna með herði og öðrum gljáefnum.
VELDU KÓPAL í FJÓRUM GLJÁSTIGUM:
'málning'if
nuilningl/
má/ning'if
málning'i
i«oalHURom,
ASTEIN, TRÉ, ¥ÍU
•WVMíTWALNINO,
A STEIN, TRt.
WG, VATMSTVI
VftopLHunom,
.ÖLJAS TlQi
.glJastvg,
GjUAST/q
,<3\_JAST/q