Morgunblaðið - 07.04.1987, Síða 67

Morgunblaðið - 07.04.1987, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1987 67 Ekki aftur þriggja flokka stjórn S.L. skrifar: Kæri Velvakandi. Mér er mikill uggur í bijósti yfir þróun þjóðmálanna síðustu daga og vikur. Getur verið að við séum að stefna aftur inn í þriggja flokka stjórn með tilheyrandi glundroða og verðbólgu, sem ger- ir húsbyggjendur gjaldþrota og þrengir að atvinnulífinu? Ég var satt að segja að vona að við vær- um að fara inn í tímabil stöðug- leika og festu, þar sem Sjálfstæð- Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til ad skrifa þættinura um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja miili kl. 13 og 14, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvi til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. isflokkurinn stjórnaði landinu í samvinnu við annaðhvort Alþýðu- flokkinn eða Framsóknarflokkinn. Ég skora á þá sjálfstæðismenn sem ætla að veita Albertsflokkn- um brautargengi að athuga, hvaða afleiðingar það hefði fyrir þjóðina að hafa hér til frambúðar þriggja flokka kerfi með glund- roða og verðbólgu og eilífu samningamakki einhverra pólitík- usa. „Góður og traustur fulltrúi“ Til Velvakanda. Þar sem að Helgi Seljan er að hætta á Alþingi langar mig að senda honum fáein kveðjuorð, enda veit ég að það verður margur sem saknar hans, bæði í hans kjördæmi og einnig af Alþingi, vegna þess að þar er áferðirini mikill mann- vinur sem hvergi hefur komið fram öðruvísi en iáta gott af sér leiða. Hann hefur verið góður og traustur fulltrúi þjóðar sinnar, hans verður áreiðanlega mikið saknað í Austur- landskjördæmi og víðar. Helgi er einn af þeim mönnum sem geta allt er þeim dettur í hug. Hann er góður hagyrðingur, leikari og söng- maður góður, ritfær og svo mætti lengi telja. Þegar Helgi var ungur maður sagði Lúðvík1 Jósefsson mér að hann ætlaði að gera Helga að eftirmanni sínum og Lúðvík varð ekki fyrir vonbrigðum með arftaka sinn. Helgi hefur reynst foreldrum sínurii dásamlega vel, sem þau kunna vel að meta, margt fleira mætti segja um vin minn Helga, en ég bið hann að taka viljann fyr- Helgi Seljan ir verkið. Jakob, sem var 50 ár í þingvörslu, sagði mér að það væri enginn þingmaður eins vel kynntur á Alþingi og Helgi. Jóhann Þórólfsson Þessir hringdu . . Ljós frakki Ljós frakki var tekinn í mis- gripum í Langholtskirkju fyrir nokkru síðan. Eigandi frakkans er beðinn að hringja í síma 3 33 65. Gullúr - fundarlaun Gullúr (Seiko Lessli) tapað- ist við Hótel Sögu eða í Broadway fyrir nokkru. Sá sem hefur fundið úrið er beðinn að hringja í síma 667192. Fundarlaun. Hvíturjakki Hvítur jakki var tekinn í mis- gripum í Skíðaskálanum Hverad- ölum hinn 14. mars. Sá sem tók jakkann er beðinn að hafa sam- band í síma 666370. Svartur leðurjakki Sá sem tók í svartan leðuijakka í misgripum í fatageymslunni í Þórskaffi, laugardagskvöld 28. mars, er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 68 81 63 eða 4 61 78 og spyija eftir Guð- björgu. Gamlar hljómplötur Sigurður Bogi Sævarsson hringdi: Hann sagðist safana gömlum hljómplötum frá tímabilinu 1950 til 1970 og vill kaupa notaðar plötur frá þessu tímabili. Síminn hjá Sigurði er 99- 1638. Kommúnista- þvættingur Skúli hringdi: „Ég er orðinn ansi þreyttur á þessum kommúnistaþvætting sem lesa má í Morgunblaðinu dag eft- ir dag. 1. apn'l voru t.d. langar greinar eftir Álfheiði Ingadóttur og Jón Baldvin. Hvers vegna get- ur þetta fólk ekki geta skrifað í sín blöð, Þjóðviljann og Alþýðu- blaðið? Þar að auki var lítið málefnalegt í þessum greinum, þær voru fyrst og fremst skítkast og aftur skítkast." Hjörtur var ekki höfund- urinn Af gefnu tilefni vill Hjörtur 0. Aðalsteinsson, dómarafulltrúi í Sakadómi, láta koma fram að hann er ekki höfundur greinar sem birtist í Velvakanda 2. apríl og alnafni hans er höfundur að. Afmæli ökukennara- félagsins Ökukennari hringdi: „Ég hef ekki séð neitt minnst á 40 ára afmæli Ökukennarafélagsins í blöðunum en það var síðastliðið haust. Hefur stjóm félagsins kannski alveg gleymt afmælinu?" Góð saga Þakklát móðir hringdi: „Ég vil þakka fyrir góða sögu, söguna um Mola litla sem að As- gerður Helgadóttir las á Útrás fyrir skömmu. Þetta var mjög góð saga og vel lesin." Gullhringur Stór gullhtingur með rauðum steini tapaðis í Hraunbæ við Fé- lagsheimiliFáks hinn 24. febrúar. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 67 31 17 eftir kl. 18. Hvernig er bænin rétt? Gamall prestur hringdi: Sagðist hann hafa lært eftirfar- andi kvöldbæn af móður sinni en spyr hver sé höfundur bænarinnar og hvernig fyrra erindið sé rétt. Ég aumur bið nú þig bænheyr þú Jesú mig. Bjargi mér blóð þitt rauða frá bráðum andardauða. Síðasta svefndúrinn svæf þú mig, Jesú minn. Veit mér hann verði hægur vertu mér þá nálægur. Svört leðurtaska S.T. hringdi: „Ég varð fyrir því óhappi að svartri leðurtösku sem í voru per- sónuskilríki, peningar o. fl. var tekin á vinnustað mínum. Ef ein- hver finnur svarta leðutösku með persónudkilríkjum bið ég hann vinsamlegast að hringja í síma 2 25 47. Svörttaska Svört taska var tekin í mis- gripum Fjölbrautarskólanum í Breiðholti meðan á verkfalli kenn- ara stóð. Sá sem tók töskuna er beðinn að hafa samband í síma 2 37 02. Góð grein 9131 -4509 hringdi: „Ég er sam- mála því sem fram kemur í grein sem birtist í Velvakanda hin 1. apríl og bar fyrirsögnina: Þýðir ekkert að fela sig bak við grunn- laun byijandans. Vil ég hvetja lesendur Morgunblaðsins til að lesa þessa grein.“ Kanelbrún dúfa Fyrir nokkrum dögum kom dúfa sem hefur villst í hús að Borgarholtsbraut 1 í Kópavogi. Dúfan er kanelbrún á höfði og stéli. Eigandi dúfunar getur hringt í síma 4 16 12. Ekkert er auðveldara en að finna fermingar- gjöfina í ár því það er svefnsófi í frískum “stæl“ litum. Mllo-sófinn Stærð 150 sm á breidd, þægilegt sæti og notalegt rúm. Verð kr. 18.860.- Útborgun 6.000.- Rest á 6 mán. Litir: Blár/svartur og rauður svartur. Aphrodlte-sófinn er reglulegur stálsófi sem kostar kr. 27.680.- Útborgun kr. 6.000.- Rest á 7 mán. Við bjóðum yður stœrstu húsgagnaútstillingu landsins. Geysilegt úrval á hagstœðu verði meft góðum afborgun- arkjörum. Viðtökum greiðslukortin sem útborgun og staðgreiðslu. hiisqagna-höllin B REYKJAVÍK Pax-sófinn er 190 sm á lengd og 160 sm breiður útsleginn. Pax er þægilegur að sitja í með 2 pullum. Verð kr. 29.980.- Útborgun 6.980.- Rest á 8 mán. Litir: Ijósgrátt, Ijósbrúnt, Ijósblátt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.