Morgunblaðið - 08.04.1987, Page 26

Morgunblaðið - 08.04.1987, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987 Að trúa á Albert eftirJón Sigurðsson Sé eitthvað að marka skoðana- kannanir þessa dagana, eru undar- leg tíðindi í vændum. Samkvæmt þessum könnunum er fólk í stór- hópum að fylkja liði, ekki um málefni, heldur um persónu Alberts Guðmundssonar. Skrifari þessara orða hefur ekki lagt í vana sinn að fást um stjorn- mál. Honum þykir hins vegar staðan, sem við blasir, of glæfraleg til þess að leggja ekki skoðun sína undir í umræðum um þetta mál. Skrifarinn hefur lagt sig fram um að reyna að skilja það fólk, sem vill styðja Albert Guðmundsson til trúnaðarstarfa í þágu samfélagsins, eftir það, sem gerst hefur. Þetta hefur honum gengið afar illa og skulu hér á eftir raktar nokkrar helstu ástæður til þess. Viðhorf Alberts Guðmundssonar til þeirra atburða, sem að lokum leiddu til þess, að hann var þvingað- ur til að hverfa úr ríkisstjóminni, bera vott um furðulega blindu. Hann virðist með engu móti geta skilið, að ráðherra, hvað þá fjár- málaráðherra, verður að vera hafinn yfir allan grun um atferli eins og skattsvik. Sé hann það ekki, ber honum að víkja. Tilefnið til að hann segði af sér var þess vegna komið fram fyrir löngu. Albert þótti þá og þykir enn sem „mistök" hans séu ekki til að gera veður út af og tók því ekki það frumkvæði, sem honum bar skylda til. Þetta olli því, að ekki var tekið á málinu fyrr en í síðustu lög. En málið er í rauninni verra en þetta. Albert hefur í íjölmiðlum fengið að ræða greiðslurnar frá Hafskip eins og þær væru í sam- ræmi við eðlilega og sjálfsagða viðskiptahætti. Hér var um að ræða afslætti í flutningsgjöldum, sem Afengis- og tókbaksverslun ríkisins hafði greitt. Séu afslættir veittir af þjónustu eiga menn því að venj- ast, að sá njóti afsláttarins, sem greiddi fyrir þjónustuna. Hér var ráðherrann þess vegna að helga sér greiðslu, sem ÁTVR bar með réttu. Greiðsluna fékk hann hljóðlega til sín vegna þeirra alkunnu ítaka, sem hann átti hjá stjórnendum Hafskips og hún hefði hvorki komist til vit- undar almennings né til skatts, ef Hafskip hefði ekki farið á hausinn. Um það atferli, að taka með leynd fjármuni, sem menn eiga ekki, eru almennt notuð önnur orð en afslætt- ir og mistök. Albert hefur skýrt þetta með því, að hann hafi ráðstafað flutning- unum til Hafskips og því bæri honum greiðslan. Þar tekur ekki betra við, því þá væri ráðherrann að ráðstafa viðskiptum áfengis- verslunarinnar til þóknanlegs skipafélags og taka sérstök um- boðslaun fyrir það — til viðbótar umboðslaunum fyrir vínið, sem flutt var. Það er því sama frá hvaða horni þetta mál er skoðað. Siðleysið skín af því í allar áttir. Málið komst upp fyrir einstaka tilviljun og máltækið segir, að sjaldan sé ein báran stök. Það er engin ný bóla, að Albert Guðmundsson leggi sinn eigin mór- alska mælikvarða á hvað forystu- maður í stjórnmálum getur eða getur ekki leyft sér. Sú var tíðin að háttvirtur alþingismaður, Albert Guðmundsson, lýsti því yfir opin- berlega, að hann tæki ekki mark á gjaldeyrislöggjöf landsíns. Sú yfir- lýsing ein sér hefði átt að nægja til að hann teldist óhæfur til setu í ríkisstjórn, ef eðlilegs siðgæðis hefði þá verið gætt. En hvað er það þá, sem dregur fólk til fýlgis við Albert Guðmunds- son? Skrifarinn er á því, að höfuð- ástæðumar séu tvær. Önnur er samúð með honum, af því að honum var ýtt tii hiiðar. Sú samúð getur byggst á því, að menn hafa ekki hugsað málið, sbr. það, sem hér að framan er rakið. Einhveijir fyllast samúð af því að þeir hafa sjálfir brenglaða siðgæðiskennd, en varla svona margir. Hin ástæðan er sú, að Albert er góður og velviljaður maður og hefur til að bera hvort tveggja, næma tilfinningu fyrir vandræðum manna, sem til hans leita, og dugnað til að vasast í að leysa þau. Hann hefur æðimörgum manninum gert greiða af þessari ástæðu, að vísu oftast á kostnað ríkisins eða Reykjavíkurborgar. Svo hefur hann gert það á kostnað Hafskips, Eimskips eða annarra, sem við ekki þekkjum til. Sérkenni þessarar fyrirgreiðslustarfsemi Al- berts er mikið dómgreindarleysi, sem aftur jaðrar við siðleysi, um hvað er hægt og hvað er ekki hægt að leyfa sér. Það virðist t.d. sem Albert skynji alls ekki óréttlætið, sem í því er fólgið, þegar hann leys- ir úr vandræðum eins manns, utan við lög og rétt, án þess að skeyta hætishót um hundruð eða þúsundir annarra manna, sem eins stendur á um, en ekki njóta sömu fyrir- greiðslu. Hún er grönn, línan milli fýrir- greiðslu og spillingar, og óvíst, að Albert hafi i góðsemi sinni nokkurn tíma tekið eftir henni. Nú er það svo, að stjórnmál snú- ast um vandamál borgaranna allra saman og í hópum og það er aðal réttarríkisins að borgararnir séu jafnir fyrir lögunum. Albert Guð- mundsson hefur alla tíð fyrst og fremst rekið sína pólitík með fyrir- OG STAKIR LEÐURSéPM Fjölbreytt úrval — Gott verð BÚSTOFN Smiöjuveqi 6, Kópavogi símar 45670 — 44544. LEÐURSÓFASETT Jón Sigurðsson „Vegna þessa hefur fylgið í kringnm Albert öll einkenni trúarhreyf- ingar fremur en stjórn- málasamtaka. Sjáifur talar hann um vakn- ingu. Það einkenni samtakanna er hættu- legt, þegar litið er til pólitískrar sögu og varnaðarmerki fyrir alla hugsandi menn.“ greiðslu við einstaka menn. Af því leiðir sjálfkrafa mismunun í með- ferð á málum manna. Nafn Borg- araflokksins er íhugunarefni í þessu ljósi. Miðað við pólitík Alberts Guð- mundssonar er þetta flokkur borgaranna eins og eins en ekki allra saman, hvað svo sem sagt er um „flokk fólksins“. Kaldhæðnin í stöðunni er hins vegar sú, að geta Alberts til að stunda svo umfangs- miklar fyrirgreiðslur fólst í tengsl- um hans við Sjálfstæðisflokkinn. Því skal ekki trúað, að neinn flokk- ur semji við Albert um aðild að ríkisstjórn, og þar með er hann héðan í frá orðinn getulaus á því eina sviði, þar sem hann hafði þann vafasama heiður að bera af. Að öllu samanlögðu felur stuðn- ingur við Albert í sér stuðning við það, að ráðherrar megi vera óheið- arlegir í meðferð fjármuna sinna og annarra. Það er stuðningur við það, sem ekki fæst upplýst um laumulega meðferð fjár, eins og dæmið sannar um 20% umboðslaun- in, sem virðist hafa verið tekin fyrir að útvega Guðmundi jaka pening- ana frá Eimskip og Hafskip. Það er enn fremur stuðningur við spill- ingu í þágu hinna útvöldu. í stjórnmálasögu hlýtur ferill Alberts Guðmundssonar að teljast merkilegt fyrirbrigði. Hann hefur hlotið mikið kjörfylgi og hefur í kring um sig hirð aðdáenda og njót- enda þeirrar fyrirgreiðslu, sem hann hefur stundað. Hann hefur aldrei, svo þessum skrifara sé kunn- ugt, látið frá sér neitt á prenti um stjórnmálastefnu, en það virðist ekki skipta fylgismenn hans neinu máli. Hann kemur fyrir í fjölmiðlum sem mikið göfugmenni og sá mann- vinur, sem hann er. Honum virðist því fyrirgefast mikið, svo mikið, að hann sýnist jafnvel vinna fylgi á því að reka manni kjaftshögg og bijóta úr honum tönn, bara af því að hann sér svo mikið eftir því. Vegna þessa hefur fylgið í kringum Albert öll einkenni trúarhreyfingar fremur en stjórnmálasamtaka. Sjálfur talar hann um vakningu. Það einkenni samtakanna er hættu- legt, þegar litið er til pólitískrar sögu og varnaðarmerki fyrir alla hugsandi menn. í því sambandi er Albert sjálfur ekki hættulegur, en reynsla sögunnar kennir okkur, að í forystu hreyfingar af þessu tagi sækja hættulegir menn. Niðurstaðan af þessum skrifum er einföld. Albert Guðmundsson stóðst ekki þær siðgæðiskröfur, sem gera verð- ur til ráðherra, í því réttarsamfé- lagi, sem við viljum búa í. Þess vegna varð hann að víkja, amk. úr fremstu röð forystumanna sam- félagsins. Albert hefur sýnt að hann skilur hvorki upp né niður í þessu siðgæð- ishjali. Honum verður einna helst líkt við mann, sem er villtur, en veit það ekki. Á mælikvarða hinna, sem hafa haldið áttum, er Albert haldinn siðblindu, sem ekki er un- andi við í hópi fremstu forystu- manna. Á alþýðlegra máli, sem Albert kann eflaust betur að meta, heitir þetta að kunna ekki að skammast sín. Vilji menn kjósa sér mann af þessu tagi til forystu, er það að sjálfsögðu mál hvers og eins. Það var einhvern tíma sagt, að lýðræðið færði hverri þjóð þá forystu sem henni hæfði. En það ber að viður- kenna, að mér, sem þetta skrifar, þykir gæfulegri forysta en forysta Alberts Guðmundssonar hæfa þess- ari þjóð. Höfundur er lögfræðingur og fyrrverandi ráðnneyt iss tjóri. Mýrdalssandur: Reiknað með að nýi veg-- urínn verði mun snjóléttari Selfossi. NÝTT vegarstæði hefur í grófum dráttum verið ákveðið yfir Mýr- dalssand. Vegurinn verður mun neðar á sandinum og er hæð hans yfir sjávarmáli 25 til 40 metrar. Hæð núverandi vegar er mest 104 metrar yfir sjávarmáli. Gert er ráð fyrir að nýi vegurinn verði mun snjóléttari auk þess sem auð- veldara er að græða upp nánasta umhverfi hans og minnka sandfok til muna. Nýi vegurinn byijar austan við Múlakvísl, fer rétt ofan við Hjörleifs- höfða, yfir Blautukvísl í átt að Þykkvabæjarklaustri og tengist væntanlega Suðurlandsvegi hjá nú- verandi brú yfir Skálm. Óveruleg stytting verður á vegalengdinni yfir sandinn en helstu kostir þessarar nýju leiðar er að þarna má vænta. minna sandfoks og mun auðveldara er að græða upp með melgresi með- fram veginum. Reiknað er með að vegurinn verði lagður bundnu slitlagi 1990 og hverf- ur þá einn versti og leiðinlegasti vegarkaflinn í Vestur-Skaftafells- sýslu. Meðfylgjandi kort sýnir legu nýja vegarins yfir Mýrdalssand. — Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.