Morgunblaðið - 08.04.1987, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
SigTirvegarar í mælskukeppni grunnskóla Reykjavíkur, sveit Hagaskóla, Daniel Freyr Jónsson,
Pétur Snæland, Kristján Eldjárn og Orri Hauksson.
Yormót tómstundastarfs
grunnskóla Reykjavíkur
keppninni sem var í Breiðholts-
skóla 1. apríl.
Umræðuefnið var „Bannað
verði að flytja inn tóbak til lands-
ins“. Eftir snarpa keppni sigraði
Hagaskóli. Ræðumaður kvöldsins
var kjörinn Kristján Eldjám úr
Hagaskóla. Sveit Hagaskóla
skipa: Daníel Freyr Jónsson, Pét-
ur Snæland, Kristján Eldjám og
Orri Hauksson.
Helgina 27.-29. mars var hald-
ið skákmót grunnskóla Reykjavík-
ur. 30 sveitir mættu til keppni.
Sigurvegari var A-sveit Selja-
skóla. Sveitina skipa: Þröstur
Ámason, Sigurður Daði Sigfús-
son, Sæberg Sigurðsson og
Kristinn Friðriksson.
í öðm sæti varð Hagaskóli og
í þriðja Ölduselsskóli.
Föstudaginn 10. apríl kl. 13.30
lýkur vormóti tómstundastarfsins
í Breiðholtsskóla. Þær greinar
sem keppt verður í em leiklist,
ljósmyndakeppni, brids, kvik-
myndagerð, hugmyndaförðun,
borðtennis, fluguhnýtingogtölvu-
forritasamkeppni.
Þeir unglingar í gmnnskólum
Reykjavikur sem hafa áhuga á
þátttöku í áðumefndum keppnis-
greinum geta fengið nánari
upplýsingar hjá íþrótta- og tóm-
stundaráði.
Uppskemhátíð tómstunda-
starfsins verður um mánaðamótin
apríl-
maí, en þar fá á annað hundrað
unglingar verðlaun og viðurkenn-
ingu fyrir frammistöðu sína.
TÓMSTUNDASTARF grunn-
skóla borgarinnar, sem skipu-
lag^t er af íþrótta- og
tómstundaráði, hefur verið
með hefðbundnum hætti þetta
skólaár. Haustið ’86 voru starf-
ræktir 192 flokkar með 1992
þátttakendum, á vorönn ’87
verða u.þ.b. 150 flokkar með
15—1600 þátttakendum. Tóm-
stundastarfi íþrótta- og tóm-
stundaráðs í grunnskóla lýkur
með vormóti í fjölmörgum tóm-
stundastarfsgreinum.
Undanfamar vikur hefur staðið
yfír keppni í mælskulist meðal
unglinga í grunnskólum borgar-
innar. Þátttakan var allgóð, ellefu
skólar tóku þátt í keppninni, sem
er skipulögð og stjómað af
íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur. Keppnin var
skemmtileg og spennandi og
stundum erfítt fyrir dómnefndir
að skera úr um sigurvegara.
Það vakti athygli að í keppn-
inni milli Seljaskóla og Austur-
bæjarskóla voru allir keppendur
stúlkur, að undanskildum einum
pilti sem var í liði Austurbæjar-
skóla.
Austurbæjarskóli sigraði og
mætti sveit Hagaskóla í úrslita-
Frá skákmóti grunnskóla Reykjavíkur.
Áheyrendur á mælskukeppni vormóts tómstundastarfs
Yngri nemendurnir leggja sig alla fram við dansinn.
Stykkishólmur:
Mikill áhugi
fyrir danskennslu
Stykkishólmi.
ÞAÐ VAR ánægjulegt að koma
niður i Hljómskálann í Stykkis-
hólmi og fylgjast þar með
danskennslu yngstu nemend-
anna. Fjörið og ánægjan lýstu
úr hveiju andliti og krafturinn
við að gera sitt besta og nokkru
síðar uppi í íþróttahúsi þar sem
eldri hópurinn æfði allskonar
dansa og líkamshreyfingar.
Eygló Bjamadóttir, húsfreyja í
Stykkishólmi, lærði danskennslu
hjá Heiðari Ástvaldssyni og hefir
síðan kennt dans. Og nú hefir verið
sérstakur áhugi í Stykkishólmi í
vetur og er þessi kennsla bæði i
sambandi við grunnskólann og
einnig fá hinir eldri æfingu. Þetta
er mikið ánægjuefni fyrir Hólminn
að hafa þennan vettvang og geta
með því beint komandi kynslóð á
réttan veg. Fengið honum áhuga
fyrir því holla heldur en að eyða
tíma í fánýti og jafnvel það sem
verra er. Þetta hefir einnig hjálpað
gegn vímunni sem hefír flætt um
allt og nú kennt fólkinu þá hörðu
lexíu að lífið er ekki tómur leikur
og það er mikil verðmætasóun að
eyða lífinu í verra en ekki neitt.
Þessi vettvangur hefir sín áhrif og
þau koma fljótt í ljós.
Eygló hefir starfskonur með sér,
bæði Eddu og Elsu, sem hafa ekki
minni áhuga og gera sitt til að sem
bestur árangur náist, sem sagt allt
í takt.
Æskan er framtíðin. Hana þarf
að búa vel undir lífið. Þar þurfa
margar hendur að vinna að._
— Árni
Eldri hópurinn æfir dansinn í íþróttahúsinu.
Morgunblaðið/Ami
Fyrirlestur:
Réttvísin gegn
Ólafi Friðrikssyni
PÉTUR Pétursson þulur mun
annað kvöld, fimmtudag kl. 20.30
flytja fyrirlestur sem hann nefn-
ir „Réttvísin gegn Ólafi Friðriks-
syni“. Fyrirlesturinn verður
fluttur i Odda, húsi Félagsvís-
indadeildar Háskóla íslands á
vegum Félags áhugafólks um
verkalýðssögu.
Sagnfræðistofnun Háskóla ís-
lands gaf á sl. ári út bókina
Réttvísin gegn Ólafi Friðrikssyni
eftir Pétur Pétursson og Harald
Jóhannsson. Pétur mun í fyrirlestri
sínum fjalla um baráttu Ólafs Frið-
rikssonar fyrir Nathan Friedmann
og pólitísk_ áhrif þeirrar baráttur.
Olafur Ásgeirsson sagnfræðing-
ur mun einnig greina frá stjórnleys-
ishugmyndum Ólafs Friðrikssonar
og hvaða þátt þær áttu í pólitískri
baráttu hans.