Morgunblaðið - 08.04.1987, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
Blóðbankinn sinnir aðeins bráðatilfellum vegna verk-
falls náttúrufræðinga:
Hjartasjúklingar sendir
til útlanda í aðgerðir
BYRJAÐ er að senda þá
sjúklinga tíl útlanda, sem
ekki er talið að þoli bið eftir
hjartaaðgerðum. Um 30
manns bíða eftir að gangast
undir slíkar aðgerðir en öll-
um stærri aðgerðum hefur
verið slegið á frest vegna
uppsagna og verkfalls Félags
íslenskra náttúruf ræðinga
sem gerir það að verkum að
Blóðbankinn getur ekki sinnt
nema aðkallandi verkefnum.
Þrír líffræðingar, þar af er
einn til vara, vinna nú í blóð-
bankanum á undanþágu frá
verkfalli náttúrufræðinga en
aðrir starfsmenn Blóðbankans
í Félagi íslenskra náttúrufræð-
inga sögðu upp 1. apríl síðast-
liðinn um leið og verkfall
félagsins tók gildi. Starf
líffræðinganna felst aðallega í
blóðhlutavinnslu og því að gera
samræmingarpróf og blóð-
flokkapróf. Mjög mikið álag er
Morgunblaðið/Július
Ólafur Jensson yfirlæknir
á þessum starfsmönnum nú og
til dæmis þurfti að kalla út
næturvaktarmann klukkan 9 í
gærmorgun en hann vann nótt-
ina áður til klukkan 4.
Bjöm Harðarson, annar
líffræðinganna sem nú starfar
hjá Blóðbankanum, sagði að
þetta vinnuálag hlyti að koma
niður á öryggismálum bankans
því þótt líffræðingamir gætu í
sjálfu sér staðið vaktir í 2-3
sólarhringa í einu, hlyti slíkt
að lokum að enda með að þeir
gætu ekki unnið sitt starf af
fyllstu nákvæmni.
Ólafur Jensson yfirlæknir
Blóðbankans sagði í samtali við
Morgunblaðið að upp á síðkast-
ið hefðu komið inn aðkallandi
tilfelli eins og óhjákvæmilegt
væri, í viðbót við slys. Þannig
þyngdist róðurinn á degi hveij-
um og vandinn væri raunveru-
lega orðinn illþolandi.
Ólafur sagði það einnig
kvíðvænlegt að á síðustu mán-
uðum hefði enginn afrakstur
verið af starfsauglýsingum
Blóðbankans og erfítt að fá fólk
til að ráða sig þar í vinnu. Þetta
væri óvenjulegt því áður hefði
fólk sótt eftir að vinna þar og
sýnt staðnum mikla hollustu.
Svo virtist að sú hollusta væri
að minnka á síðustu mánuðum
og væri þetta sjálfsagt bein
afleiðing af launakjömm og því
að keppt væri um sérþjálfaða
háskólamenntaða starfskrafta
á þessu sviði, til dæmis við físk-
eldi.
Blóðsöfnunardeild Blóðbank-
ans starfar enn á eðlilegan hátt
þótt minni þörf sé á blóðgjöfum
þar sem minna er um aðgerðir.
Mótefnamælingar fara fram
eins og áður á blóði sem gefíð
er og skimpróf vegna lifrar-
bólguveiru.
Morgunblaðið/Júlíu8
Björn Harðarson og Asa Karlsdóttir, líffræðingar hjá Blóðbankan-
um, en þau vinna nú starf sem 14 manns sinntu áður.
Happdrættisvinningar á
ferðakaupstefnu Utsýnar
SÍÐASTLIÐINN laugardag
efndi Ferðaskrifstofan Útsýn hf.
til ferðamarkaðar í Broadway í
samvinnu við Flugleiðir hf., Arn-
arflug hf. og Almennar trygg-
ingar hf., auk þátttakenda frá
Portúgal, Spáni og Ítalíu. Kynnt-
ar voruferðir, gisting og áhuga-
verðir staðir í um 20 Iöndum,
bæði í leiguflugi og áætlunar-
flugi, t.d. tíl sólarlanda og einnig
á hinn nýja eftirsótta stað Titisee
í Svartaskógi, sem mikla athygli
vekur.
Ferðamarkaðurinn var fjölsóttur
og komu þangað á þriðja þúsund
manns yfír daginn. Honum lauk
með happdrætti, leikfangahapp-
drætti fyrir böm og ferða- og
farseðlahappdrætti fyrir fullorðna.
Eftirtaldra vinninga má vitja á
skrifstofu Útsýnar, Austurstræti
17:12525 — bangsi, 12609 — brúða
og brúðurúm, 12578 — símasett,
13025 — 2ja daga kynnisferð til
Lissabon fyrir tvo — 12786 — Gist-
ing fyrir 2 í 2 vikur á Benal Beach,
Costa del Sol, 12816 — Flugfarseð-
ill á áætlunarleið Amarflugs.
Eftirspum í hópferðir Útsýnar
hefur aldrei verið slík. Að meðal-
tali hefur verið selt í sem svarar
eina flugvél daglega undanfamar
vikur. Til að anna eftirspuminni
hefur Útsýn aukið framboðið til
Portúgal og Spánar um 800 sæti.
Fólk sem var á biðlista er beðið að
hafa samband hið fyrsta.
(Fréttatilkynning frá Útsýn.
Vinningsnúmer birt án ábyrgðar)).
Þær (talið frá vinstri) íris Gústafsdóttir, Margrét Albertsdóttir og
Jóna Alla Axelsdóttir kynna sér ferðamöguleika Útsýnar i sumar.
Fyrsta þotan keyrir inn á flughlaðið á ísafjarðarflugvelli eftir tveggja
tíma flug frá Nuuk á Grænlandi. ísafjarðarflugvöllur er að mestu
malarvöllur og virðist það ekki hafa valdið neinum vandræðum í
þetta sinn.
ísafjörður:
Þotuöldin er
loksíns hafin
ísafirði.
ÞOTA lenti í fyrsta sinn á ísa-
fjarðarflugvelli sl. laugardags-
kvöld. Flugvélin, sem er í eigu
Þotuflugs hf., var að koma frá
Nuuk í Grænlandi með 9 sjómenn
sem áttu að fara um borð i skip
þeirra hér á ísafirði.
Flugtíminn frá Nuuk til ísafjarð-
ar var um 2 klukkustundir og að
sögn Guðbjöms Charlessonar um-
dæmisstjóra flugmálastjórnar á
Vestíjörðum, sem var flugumferð-
arstjóri þegar vélin lenti, gengu
lending og flugtak tíðindalaust.
Hann sagði að aðflug að ísafjarðar-
flugvelli ætti ekki að vera neitt
vandamál fyrir álíka flugvélar en
malarbraut eins og hér er væri frek-
ar það sem kæmi í veg fyrir að
smærri þotur notuðu völlinn að
staðaldri.
Flugstjóri í þessari fyrstu þotu-
ferð til IsaQarðar var Stefán
Sæmundsson. Hann hafði stuttan
stans á Isafjarðarflugvelli enda
komið kvöld. Flaug hann héðan
beint til Reykjavíkur og mun flug-
ferðin þangað hafa tekið um 20
mínútur.
— Úlfar
ísafirði:
Utför Olafs
Rósinkarssonar
^ ísafirði.
ÚTFÖR Ólafs Rósinkarssonar
sjómanns frá Snæfjöllum á Snæ-
fjallaströnd var gerð frá ísafirði
miðvikudaginn 1. apríl, þrátt fyr-
ir stórviðri sem hér geisaði.
Ólafur hóf sjómennsku um 16
ára gamall og stundaði hana fram
á sjötugsaldur, lengst af með þekkt-
ustu aflamönnum ísfirðinga, þeim
Páli Pálssyni á togaranum Sólborgu
og Ásgeiri Guðbjartssyni á Guð-
björgu. ísafjarðarkirkja var þéttset-
in, en vegna veðurs var kirkjugest-
um bannað að fylgja kistunni að
gröfmni í kirkjugarði Ísfirðinga i
Engidal. Aðeins nánustu aðstand-
endur fylgdu og varð snjómoksturs-
tæki að fara fyrir bílunum hluta
leiðarinnar.
Rækjuverksmiðja O.N. Olsen
bauð til erfisdrykkju að athöfninni
lokinni, en Ólafur Rósinkarsson
starfaði þar síðustu árin.
- Úlfar
Flugleiðir:
Fljúga til Færeyja
og áfram til Glasgow
FLUGLEIÐIR hófu flug til Fær-
eyja með áframhaldandi flugi til
Glasgow sl. mánudag, en félagið
flaug á þessari flugleið fyrst í
fyrrasumar við góðar undirtekt-
ir, að sögn Sveins Sæmundssonar
deiidarstjóra hjá Flugleiðum. í
vetur hefur verið flogið tvisvar
í viku til Færeyja, en flug til
Glasgow þaðan hefur legið niðri
yfir vetrartímann.
Famar verða tvær ferðir í viku
frá Reykjavík, á mánudögum og
föstudögum, og síðan verður þriðju
Færeyjarferðinni bætt við frá og
með 18. maí nk. og þá með áfram-
haldandi flugi til Bergen í Noregi.
Sú ferð verður farin frá Reykjavík
á laugardögum.