Morgunblaðið - 08.04.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1987
53
Kjaftagangur í Ólafi
M. Jóhannessyni
eftirBjörn Br.
Björnsson ogSigurð
Hróarsson
í Morgunblaðiru þriðjudaginn
31. mars skrifar Ólafur M. Jóhann-
esson greinarstúf um sjónvarpið,
sem ekki verður komist hjá að gera
athugasemdir við.
Hann gerir að umtalsefni þáttinn
Geisla, sem undirritaðir hafa um-
sjón með.
Ólafur kvartar fyrst yfir því að
stór hluti af efni þáttarins sé send-
ur út beint úr sjónvarpssal, í stað
þess að taka hann upp úti í bæ.
Síðan segir: „í síðasta Geisla-
þætti var þó boðið uppá eitt
frumlegt atriði; heimsóknina í bak-
húsið við Lindargötu, þar sem
Hrafn Gunnlaugsson, yfirmaður
innlendrar dagskrárgerðar ríkis-
sjónvarpsins og kvikmyndagerðar-
maður, er að hanna viðamikla
leikmynd fyrir nýjustu kvikmynd
sína sem nú er í burðarliðnum.
Ræddi Björn við leikmyndahönnuð-
inn og búningameistarann, Karl
Júlíusson, á vinnustaðnum. Það
var mikið að mennirnir fengu að
fara útúr húsi með myndavélarnar,
en það er ekki sama Jón og séra
Jón!“
Þessa klausu er ekki hægt að
skilja á annan veg en svo, að hér
hafi verið gerð undantekning varð-
andi hefðbundna vinnslu Geisla til
að hygla „leikmyndahönnuðinum“
Hrafni Gunnlaugssyni (þótt einnig
komi fram að Hrafn sé alls ekki
hönnuður þeirrar leikmyndar sem
Qallað var um!) — og jafnframt „að
mennirnir fengu að fara út úr húsi“
vegna þess að í hlut átti „leik-
rnyndahönnuðurinn" Hrafn, en ekki
einhver annar leikmyndahönnuður
(t.d. Karl Júlíusson), og þá væntan-
lega með „leyfi“ deildarstjóra
„leikmyndahönnuðarins" Hrafns
Gunnlaugssonar.
Nú er öllum ljóst sem fylgst hafa
með skrifum Ólafs um sjónvarpið
að hann hefur sérstaka andúð á
Hrafni Gunnlaugssyni og notar flest
tækifæri (og fleiri til) til að bera
hann út. Óg þótt við höfum lítinn
áhuga á einkastyijöldum Ólafs,
höfum við enn minni áhuga á að
vera notaðir þar í fallbyssufóður.
Staðreyndir í þessu máli eru:
1. Fyrir hvern Geisla hafa umsjón-
armenn einn tökudag sem þeir
ráðstafa að vild, og þurfa því ekk-
ert leyfi til „að fara úr húsi“.
2. Hrafn Gunnlaugsson hefur aldr-
ei í þann tíma sem við höfum haft
umsjón með Geisla, gert minnstu
tilraun til að hafa áhrif á efnisval
eða efnismeðferð okkar. Allar dylgj-
ur þar um eru hreinn þvættingur.
Um hitt getum við verið sam-
mála Ólafi að þáttur eins og Geisli
væri að mörgu leyti mun betri ef
hægt væri að taka hann upp á vett-
vangi atburðanna og skreyta með
myndefni af því sem um er fjallað.
Ástæður þess að sú leið er ófær,
er sú sama og stendur allri dag-
skrárgerð í sjónvarpinu fyrir þrifum
— fjárskortur. Það óþolandi fjár-
svelti sem stofnunin býr við kemur
niður á öllum sviðum og ekki síst
innlendri dagskrárgerð.
Ug eitt smáatriði að lokum. Ólaf-
ur segir í greinarstúf sínum: „En
lítið er nú um frumsamið efni hjá
ríkissjónvatpinu og virðist leikara-
stéttin nánast útlæg hjá stofnun-
inni.“
Nú vill svo neyðarlega til að eitt
atriði í Geisla sl. sunnudag var
frumsaminn leikþáttur eftir leikar-
ann Þór Tulinius.
Höfundar eru umsjónarmenn
Geisla.
Úr afgreiðslusal Sparisjóðs Svarfdæla.
Spansjóður Svarf-
dæla tekur í not-
kun beinlínuvinnslu
Dalvík.
UM ÞESSAR mundir er Spari-
sjóður Svarfdæla að taka í
notkun beinlínuvinnslu við
Reiknistofnun bankanna og er
þetta fyrsti afgreiðslustaðurinn
úti á landi sem tengist stofnun-
inni með þessum hætti. Með
beinlinuvinnslu bókast færslur
samstundis á gjaldkeraborð.
Bankastofnanir í Reykjavík hafa
haft beinlínuvinnslu í notkun um
nokkurn tíma og eru afgreiðslustað-
ir úti á landi nú farnir að huga að
þessum nýjungum. Fyrstur ríður á
vaðið Sparisjóður Svarfdæla en í
kjölfar hans munu fylgja Sparisjóð-
irnir í Ólafsvík og á Siglufirði. Með
þessu skapast aukin þægindi og
öryggi fyrir viðskiptavini ásamt því
sem öll afgreiðsla verður fljótvirk-
ari og öruggari. Þannig geta
viðskiptavinir t.d. fengið að vita
nær samstundis allar hreyfingar á
tékkareikningi sínum svo og upplýs-
ingar um önnur viðskipti sín við
Sparisjóðinn.
Að sögn Friðriks Friðrikssonar,
sparisjóðsstjóra, var allur tölvubún-
aður sem til beinlínuvinnslunnar
þurfti fenginn frá Einari J. Skúla-
syni. Sagði hann það samdóma álit
bankamanna að sá búnaður hafi
reynst vel þar sem hann hafi verið
tekinn í notkun og að afgreiðslufólk
væri ánægt með þetta fyrirkomu-
lag. Fullyrti Friðrik að þetta yrði
til aukins hagræðis fyrir viðskipta-
vini og kvaðst vona að þeim myndi
falla vel í geð.
Mikil aukning viðskipta hefur
orðið hjá Sparisjóði Svarfdæla
síðustu ár og eru nú ráðgerðar veru-
legar breytingar á húsnæði sjóðsins.
Sparisjóðurinn er til húsa í Ráð-
húsinu og þarf að gera endurbætur
á afgreiðslusal og vinnuaðstöðu.
Fréttaritari
Ferdaskrifstofan
Ididndi
KYNNIR ÍSLENDINGUM
•V
TUníS
Golf og sól.
Sláist í för fjölmargra ánægöra Evrópubúa til TÚNIS.
Háborg tónlistarinnar og annarra fagurra lista.
TyRKBNd
Viö kynnum Islendingum nýtt ævintýraland.
Á faraldsfæti með FARANDA
Ferdaskrifstofan
faiandi
er fyrir þig.
Vesturgötu 5, Reykjavík,
S. 17445.
ML) ERU KOSNINGAR
ERAMUNDAN
Ert þú í vafa um hvaða
lista þú átt að kjósa?
komdu þá við í Söginni
Þar eru yfir 40 mismunandi listar
í framboði sem endast örugglega
lengur en eitt kjörtímabil.
Bjóðum einnig sóplista.
Við sérsmíðum einrlig lista eftir óskum.
KJÓSIÐ GÓLFLISTANN!
Höfðatúni 2, Reykjavík. Sími 22184