Morgunblaðið - 31.05.1987, Síða 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
121. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 31. MAI 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Nóregur:
Nýr ban-
vænn sjúk-
dómur í
eldislaxi
Ósló. Frá Áslaugu Þormóðsdóttur, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
BREMNES-sýkin nefnist nýjasti
kvillinn, sem fundist hefur i eld-
islaxi í Noregi, og hefur sjúk-
dómur þessi mörg sömu einkenni
og Hitra-sýkin svonefnda, en
lyfjagjöf virðist enn ekki koma
að neinu haldi. Að sögn Aften-
posten hefur sjúkdómurinn
komið upp i eldisstöðvum með-
fram ströndinni allt norður til
Harstad.
Tore Hástein prófessor, sem
starfar við dýralækningastofnunina
í Ósló, segir, að Bremnes-sýkin lýsi
sér í blæðingum og vöðvabreyting-
um í fiskinum, á sama hátt og
Hitra-sýkin, en hingað til hefur
ekki orðið vart við vibrio-salmo-
icidæbakteríu.
Áhyggjur margra framleiðenda
af offramleiðslu á seiðum hafa nú
snúist upp í ótta við gjöreyðingu,
því sumir þeirra hafa tapað öllu
sínu. Margs konar sjúkdómar hafa
heijað á eldisstöðvarnar og tapið
nemur allt að 200 milljónum
norskra króna (1100 milljónum ísl.
kr.).
Dýralækningastofnunin í Ósló
tekur daglega á móti heilu kössun-
um af eldislaxi, sem fengið hefur á
sig sár og önnur einkenni sjúkdóma
og umhverfisskaða. Tore Hástein
segir þetta ekki nema eðlilegt, því
alltaf megi búast við sjúkdómum í
dýraeldi. Suma þeirra sé unnt að
koma í veg fyrir með bólusetningu,
aðra verði eldisstöðvamar að búa
við og aðlagast þeim, svo að þeir
leggist sem léttast á fiskinn. Há-
stein telur einnig nauðsynlegt að
bæta umhverfi eldisstöðvanna og
styrkja mótstöðuafl físksins til þess
að draga svo sem verða má úr
hættu á sjúkdómum.
Hitra-sýki lagðist á um 20% eld-
isstöðva í Norður-Noregi í mars og
um 35% í apríl, samkvæmt rann-
sóknaniðurstöðum úr þeim lands-
hluta, en sumar stöðvanna sluppu
þó miklu betur en aðrar. Búist er
við, að heldur dragi úr framsókn
sjúkdómsins í maí og júní. í flestum
tilfellum eru það seiði af árgangin-
um 1986, sem smitast hafa.
Grænland:
Motzfeldt vikið úr
leiðtogæmbættínu
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
JONATHAN Motzfeldt, formaður
grænlensku landstjórnarinnar,
var settur af sem pólitískur leið-
togi Grænlands á föstudagskvöld.
Meirihluti flokksráðs Siumut-
flokksins tók þessa ákvörðun eftir
fréttaritara Morgunblaðsins.
tveggja klukkustunda langan
fund, þar sem samþykkt var van-
traust á formanninn fyrir að hafa
bæði fyrir og eftir nýafstaðnar
kosningar leitað eftir samvinnu
við stjórnarandstöðuflokk Otto
Garri Kasparov:
„Skrípaleikur“ hjá FIDE
NÝJAR deilur hafa nú risið
vegna þeirrar ákvörðunar FIDE,
alþjóðaskáksambandsins, að
heimsmeistaraeinvígið í skák
milli þeirra Karpovs og Kasp-
arovs skuli fara fram í Sevilla á
Spáni. Segir í breska blaðinu
Observer, að Kasparov hafi neit-
að að taka þátt í „skrípaleikn-
um“ í kringum staðarvalið.
Kasparov segir, að með nýjum
reglum FIDE hafí hann í raun ver-
ið sviptur réttinum til að nefna einn
stað öðrum fremur en samkvæmt
þeim má hvor keppandi aðeins
kjósa eina borg af þeim, sem til
greina koma — Seattle, Dubai,
Leningrad, Sochi, Madrid og Se-
villa. Ef þeir eru ekki sammála
velur FIDE þá borgina, sem best
býður.
Karpov valdi Dubai þar sem
hann og Campomanes eiga hauka
í homi en Kasparov kvaðst aldrei
mundu tefla þar. Sevilla hlaut því
að vera sjálfkjörin með hæsta boð,
2,8 millj. doliara. Af þessum sökum
ákvað Kasparov að nefna enga
borg og sagðist ekki taka þátt í
þessum „skrípaleik".
Margt bendir nú til, að Karpov,
sem var í miklum metum hjá Brez-
hnev heitnum, sé ekki lengur í
sama uppáhaldi hjá ráðamönnun-
um í Kreml. Nýlega missti hann
sæti sitt í miðstjóm Komsomol,
æskulýðssamtökum flokksins, og
við því tók enginn annar en Kasp-
arov.
Steenholdt, Atassut, án þess að
hafa til þess pólitískt umboð.
Motzfeldt hefur sagt, að aðeins
hafi verið um að ræða óformlegar
könnunarviðræður.
Jonathan Motzfeldt hefur verið
leiðtogi Siumut og grænlensku land-
stjórnarinnar frá því að heimastjóm
var komið á í Grænlandi 1979. Hann
sat ekki flokksráðsfundinn i Nuuk
(Godtháb) á föstudagskvöld, heldur
var þá staddur í Julianeháb á Suður-
Grænlandi. Búist er við, að nýr
leiðtogi taki við hinn 9. júní, þegar
landsþing Grænlendinga kemur
saman til fyrsta fundar eftir kosn-
ingar. Siumut mun tilnefna þing-
manninn Lars Emil Johansen sem
eftirmann Motzfeldts.
Lars Emil Johansen hafði með
höndum yfírstjórn atvinnumála, þar
á meðal sjávarútvegsmála, í Græn-
landi fram að kosningunum. Þá kaus
hann að gegna starfi sem óbreyttur
þingmaður, auk þess sem tók við
embætti skólastjóra verkmennta-
skólans í Julianeháb.
Johansen lét mikið að sér kveða,
Lars Emil Johansen
þegar hann var yfírmaður sjávarút-
vegsmála Grænlands, og var m.a.
fremstur í flokki landstjómarmanna,
þegar Grænlendingar sögðu sig úr
Evrópubandalaginu.
Eftir að Jonathan Motzfeldt hefur
verið settur af sem formaður Sium-
ut, hafa stjómmálalegar línur í
Grænlandi skýrst að miklum mun.
Nú er óhugsandi, að um neins konar
samstarf geti orðið að ræða milli
Siumut og Atassut, sem er borgar-
legur flokkur. Með Lars Emil
Johansen í leiðtogasætinu er þess
að vænta, að Siumut færist skrefínu
lengra til vinstri og muni leita eftir
áframhaldandi samstarfi við
vinstriflokkinn Inuit Ataqatigiit.
Ættu vandkvæðin, sem að samstarf-
inu steðjuðu vegna persónu Jonat-
hans Motzfeldts, nú að vera úr
sögunni.
Inuit Ataqatigiit bætti við sig fylgi
í kosningunum og hefur lagt til, að
landstjómarmönnum verði fjölgað
úr sjö í átta, þannig að flokkurinn
fái nú þijú sæti í stað tveggja á
móti fímm sætum Siumut.