Morgunblaðið - 31.05.1987, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 31.05.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1987 9 HUGVEKJA Söfnuður Krists - eftir séra JÓN RAGNARSSON Texti þessa sunnudags er tekinn úr leiðbeiningum Jesú til lœrisveina sinna. Leiðbeiningum ogforsögn hans um, hvers þeir megi vœnta, þegar hann er ekki lengurhjá þeim íþeirri manns- mynd, sem hann hafði mœtt þeim í. Hann talar um tvídræga af- stöðu lærisveina hópsins, safnað- ar síns. Þeir mega vænta sín ills frá mönnum, en góðrar hjálpar frá Drottni. Þeir munu þola marga þraut, en líkn Guðs mun ekki linna í erfiðleikunum. Þær aðstæður, sem Jesús er að lýsa, eru aðstæður allra krist- inna manna. Allrar kristinnar kirkju allra tíma. Þær aðstæður eru: Kristur er ekki hjá söfnuði sínum í holdlegri mannsmynd. Hann er ekki áþreif- anlegur — en samt raunverulegur. Hann er viðmælandi án þess að sjást, eða mál hans hafi tiltekinn róm. Hann talar almennum orð- um, en það eru engin tvímæli um, að það er málflutningur lífs og kærleika. Kristur er með söfnuði sínum í anda, eins og hann hét fyrstu lærisveinum sínum. Andi hans er Hjálparinn, sem hann talar um í Guðspjalli dagsins. Hjálparinn er návist Jesú. Samvistir hans við mannfólkið — söfnuð sinn — hvar á jörð, sem er. Söfnuðurinn, sem biður, starfar og sækir helgar tíðir, er heimilis- fang þessa lífsþróttar. Söfnuður- inn er í rauninni málgagn Krists og mannshönd hans. Sá söfnuður, sem hlýðir hjálp- aranum og gengur erinda Krists, hann sætir sömu viðtökum og Kristur fékk. Hann hlýtur aðdáun, hylli, þakkir og samfylgd. Hann mætir misskilningi, þröngsýni, þijósku, flærð, hyskni, svikum og hatri. Það er í slíkum aðstæðum, sem við reynum trúna, og finnum, að þrátt fyrir góðan vilja, þá er fylgd- in við Krist ekki heil. Við sofnum, þegar hann biður okkur að vaka með sér. Við flýjum líka af hólmi, þegar Kristi er sýnt ofbeldi og yfírgangur. Við bregðumst þeim Kristi, sem hvarvetna mætir okk- ur í mönnum, sem búa við áþján. Eins og lærisveinamir í gras- garðinum forðum, þá óttumst við um eigið skinn, og þá ekki bara um líkamlegar skeinur og sárs- auka. Okkar eigið skinn er engu síður sú hugmynd, sem við höfum um okkur sjálf — og sem við viljum hampa framan í fólk. Sú mynd er oftar en ekki sjálfsblekking. Pétur postuli hafði öðrum meira ítrekað traust sitt á Kristi og lýst yfír einlægum vilja sínum til að fylgja honum. Hann var fljótur að afneita öllum kynnum af þeim manni á einni morgunstundu. íslenskir söfnuðir búa við frið- sæld og mara í lognmollu þess, að vera taldir sjálfsagður þáttur í lífi þjóðarinnar — þjóðkirkjan. Fréttir úr umheiminum sýna okk- ur þó, að víða er Kristur svikinn og handtekinn, hæddur og kross- festur. Honum bregst víða fylgd þeirra, sem best hafa unað með honum í velgengni. Við sjáum líka, að Hjálparinn er að verki í orðum manna og athöfnum. Víða gefur hann trúnni kraft og kjark, til að ganga fram fyrir skjöldu og láta reyna á sig. Gefur hverflyndum mönnum ein- urð, til að kannast við Krist. Ganga erinda hans og ljá orðum hans róm. Við biðjum þess ekki, að íslensk kirkja þurfi að líða þjáningar og ofsókn, en við hljótum að biðja þess, að Guð sendi Hjálparann — að Kristur verði í verki með okk- ur, ef við þurfum að láta reyna á heilindi játningar okkar. Við búum við vinsamlegar að- stæður. Vel búin kirkjuhús og áhuga góðra manna á málum kirkjunnar — og góða kirkjusókn — stundum. Guðsþjónustuhald með dýrð- legri prakt og fögrum söng og gripum, er samt ekki hið sama og nálægð Guðs. Andi Drottins — Andi sannleik- ans getur gengið þvert á hefð- bundnar trúariðkanir og helgi- hald. Andinn er frjáls að því að nota annað orðaval, en það sem okkur þykir hæfa helgum stað og tíðum, ef það rekur erindi Krists. Sjávarlóð á Stór-Reykjavikursvæðinu til sölu. Listhafendur leggi inn nöfn sín og simanúmer fyrir 5. júní merkt: „Lóð — 2412“. Höfðar til .fólks í öllum starfsgreinum! Selás eða Árbæjarhverfi Einbýlishúsalóð, einbýlishús í byggingu eða fullbúið hús 220-300 fm í Selási eða Árbæjarhverfi óskast til kaups. Tilboð sendist á auglýsingadeild Mbl. fyrir 6. júní nk. merkt: „Einbýli — 916“. Gengi: Kjarabréf 2,083 - Tekjubréf 1,165 - Markbréf 1,027 - Fjölþjóðabréf 1,030 Hjá Fjárfestingarfélaginu færðu þinn eigin ráðgjafa til aðstoðar í fjármálum þínum Heir, sem stofna fjármálareikning hjá Fjárfestingar- félaginu, fá sinn einkaráðgjafa sér til aðstoðar í fjármál- um, auk þess sem þeir fá fullan aðgang að allri þjónustu verðbréfamarkaðs Fjárfestingarfélagsins. Fjármálareikningurinn hentar sérstaklega vel fyrir þá, sem vilja fjárfesta í hlutabréfum og verðbréfum, svo og þeim sem eru að minnka við sig húsnæði og vilja fjár- festa mismuninn í verðbréfum. Heir sem stofna fjármálareikning hjá okkur njóta þjónustu varðandi kaup, sölu og umsýslu hvers konar verðbréfa, umsjón með innheimtu og greiðslum, t.d. af skuldabréfum og kaupsamningum, tekjur af verðbréfaeign sinni, - og síðast en ekki síst aðstoð við reglulegan sparnað. Njóttu ráðlegginga ráðgjafa Fjárfestingarfélagsins, hafðu samband við skrifstofu okkar og fáðu upplýsingar um nýja fjármálareikninginn. FJÁRFESÍINGARFÉIAGÐ Hafnarstræti 7 101 Reykjavík (91) 28566
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.