Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
Sambandsstjórnarfundur Verka-
mannasambands Islands:
Útflutningur á ferskum fiski
ógnar atvinnuörygginu
Morgunblaðið/Einar Falur
Æft fyrir fegurðarkeppni
STÚLKURNAR tíu, sem keppa um titilinn Fegurðardrottning íslands 1987, æfa þessa viku fyrir
keppnina undir stjórn Sóleyjar Jóhannsdóttur og Katrínar Hafsteinsdóttur. Stúlkurnar tíu verða
kynntar i veitingahúsinu Broadway n.k. föstudagskvöld og úrslitin verða tilkynnt i Broadway á
annan dag hvítasunnu, n.k. mánudagskvöld.
Söltunin greiðir 500 millj-
ónir í Verðjöfnunarsjóð
Hækkun á markaðsverði fer nær öll í sjóðinn
Saltfiskframleiðendur greiddu
á síðasta ári 200 milljónir króna
í Verðjöfnunarsjóð Fiskiðnaðar-
ins. Þá voru greiddar 370 milþ'ónir
króna af rækju og 70 miiyónir af
hörpudiski. I ár stefnir í að
greiðsla af saltfiski verði allt að
500 milþ’ónir króna, en minni
breytingar verða á greiðslu af
ræig'u. Af botnfiskvinnslu er salt-
fiskverkunin eina greinin, sem
greiðir í sjóðinn, alls um og yfir
10 krónur af hverju kflói utflutn-
ingsverðs, FOB. Fulltrúar fisk-
verkenda hafa krafizt þess, að
sjóðurinn verði lagður niður, en
fulltrúar rflds, útgerðar og sjó-
manna í stjórn sjóðsins hafa lagzt
gegn því.
Helztu rök fiskframleiðenda gegn
greiðslum í sjóðinn eru þau, að þær
rýri samkeppnisaðstöðu söltunar og
rækjuvinnslu gagnvart öðrum
vinnslugreinum og útflutningi á
ísfiski, þar sem afkoma og greiðslu-
geta er skert með greiðslunni í
sjóðinn. Ennfremur benda þeir á, að
sjóðurinn skekki markaðsstarfsemi.
Afurðir fyrir markað, sem ekki er
tilbúinn til að greiða samkeppnis-
hæft verð, fá greiðslur úr sjóðnum
og þar með sé framleiðsla fyrir þá
markaði örvuð óverðskuldað. A sama
hátt sé dregið úr framleiðslu fyrir
markaði, sem vilji og geti greitt
hærra, þar sem stór hluti verð-
hækkunar sé tekinn í sjóðinn.
Sigurður Haraldsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri SÍF og fulltrúi
saltfiskframleiðenda í saltfískdeild
Verðjöfnunarsjóðs, hefur tekið sam-
an tilbúið dæmi um áhrif verð-
hækkunar á saltfiski. Samkvæmt því
færi 15% hækkum markaðsverð
framleiðendum 6% hækkun en hækki
greiðslu í sjóðinn um 65%. Með þessu
móti, segir Sigurður, að hækkun
markaðsverðs skili sér ekki nægilega
til ffamleiðenda, sem þýði að dregið
sé úr hvatanum til að framleiða fyr-
ir markaði, sem greiða vel.
SAMNINGAR tókust milli
Sveinafélags rafeindavirkja og
ríkisvaldsins seinnipart laugar-
dagsins og hefur verkfalli
félagsins verið frestað fram yfir
almenna atkvæðagreiðslu um
samninganna. Verði samning-
arnir felldir tekur verkfallið
aftur gildi þriðjudaginn 9. júní.
Samningamir eru svipaðir þeim
og samist hefur um við félög opin-
FUNDUR sambandsstj órnar
Verkamannasambands Islands
samþykkti einróma á sunnudag
að fela framkvæmdastj órn og
skipulagsnefnd sambandsins að
undirbúa skipulagsbreytingar á
sambandinu með það að mark-
miði, að því verði deildaskipt og
tryggt meðal annars að sérdeild
fiskvinnslufólks fari með öll
samningamál þess í framtíðinni.
Tillögur þessar verði lagðar fyr-
ir formannafund VMSÍ 15.
september næstkomandi, sem
skili fullmótuðum tillögum til
13. þings sambandsins á Akur-
eyri í haust.
Þá lýsti fundurinn yfir áhyggj-
um af þróun í sjávarútvegi, þar
sem útflumingur á ferskum físki
ógni atvinnuöiyggi fískvinnsiu-
fólks í mörgum byggðarlögum.
„VMSÍ telur brýnt að snúa þessari
þróun við hið allra fyrsta og legg-
ur eftirfarandi til:
1. Allur útflutningur á ísuðum físki
berra starfsmanna á undanfömum
vikum. Almenn skrifleg atkvæða-
greiðsla verður um samninginn og
er búist við að henni ljúki síðari
hluta þessarar viku, en félagsmenn
em dreifðir víða um land. Atkvæðis-
rétt hafa um 115 félagsmenn, sem
starfa hjá Pósti og Síma, Flugmála-
stjóm, Vita- og hafnarmálastjóm,
Ríkisútvarpinu og Ríkisspítölunum.
verði háður leyfi Sjávarútvegs-
ráðuneytisins.
2. Við veitingu leyfa verði tekið
mið af þjóðhagslegri hagkvæmni
útflutnings á ísuðum fiski.
3. Verði kvótaskipting áfram notuð
sem tæki til stjómunar fískveiða,
skal ekki eingöngu miða kvóta við
veiðiskip, heldur verði fullt tillit
tekið til fískvinnslunnar í þeim efn-
um.
4. Öll sala á óveiddum físki (kvóta)
verði bönnuð.
Á árinu 1986 jókst útflutningur
á ísfiski um 140% og hefur greini-
lega stóraukist það sem af er þessu
ári og virðist vera að ná til æ fleiri
landsvæða.
Innanlands og erlendis hefur á
undanfömum árum verið varið
tugum milljarða króna til upp-
byggingar í fískiðnaði og til að
vinna markaði. Allt útlit er fyrir
að með óheftri þróun missum við
markaði okkar erlendis til sam-
keppnisþjóða okkar. Þá myndi
blasa við byggðaröskun meiri en
áður hefur þekkst, fjöldaatvinnu-
leysi og gjaldþrot sveitarfélaga.
Einnig hefur verið upplýst, að
stór hluti þess ísfísks, sem fluttur
er út, er keyptur af fískvinnslufyr-
irtækjum erlendis, en ekki seldur
beint til neytenda eins og haldið
hefur verið fram.
VMSÍ samþykkir ekki að
íslenskir útgerðarmenn eigi físki-
miðin við landið.
VMSÍ mun fylgjast náið með
þróun þessara mála og láta hana
til sín taka".
Auk sambandsstjórnarmanna
sátu fundinn nokkrir forystumenn
verkalýðsfélaga, sem ekki eiga
sæti í sambandsstjóm.
Sveinafélag rafeindavirkja:
Samningar tókust og
verkfalli frestað
Sérdeild sér um
samninga fisk-
vinnslufólks
Burðaþol bygginga á Suðurlandi:
Eftirlit með mis-
munandi hætti
I TILEFNI af umræðum um
burðarþol bygginga og jarð-
skjálfta á Suðurlandi ræddi
Morgunblaðið stuttlega við bygg-
ingarfulltrúi víðs vegar á
Suðurlandi og innti þá eftir því
hvemig eftirliti með burðarþoli
væri háttað í þeirra umdæmi.
Selfoss
„Byggingarfulltrúi hefur hér með
höndum eftirlit með burðarþoli
bygginga og er í því eftirliti fylli-
lega farið eftir reglugerðum," sagði
Bárður Guðmundsson byggingar-
fulltrúi á Selfossi. „Við göngum
hart á eftir burðarþolsteikningum
og stærri byggingar látum við
kanna sérstaklega, samanber það
að við létum kanna Fjölbrautar-
skóla Suðurlands sérstaklega með
tilliti til jarðskjálfta."
Bárður gat þess, að á árinu 1982
hefðu byggingar bæjarins verið
kannaðar. „Sú bygging, sem var
hvað veikbyggðust var Gagnfræða-
skólinn, en ástand hans var þó langt
frá því að vera hættuiegt; einungis
hætta á eignatjóni en ekki hmni."
Bárður sagði enn fremur, að Al-
mannavamaráð hefði bent á að
æskilegt væri að gera allsheijar
úttekt á húsum bæjarins, en slíkt
hefði enn ekki verið gert, enda
væri þar um viðamikla athugun að
ræða og kostnaðarsama.
Hella
„Almennt séð eru menn orðnir
mjög meðvitaðir um hönnun með
tilliti til jarðskjálfta á mínu eftirlits-
svæði, núorðið að minnsta kosti,"
sagði Gísli Guðmundsson bygging-
arfulltrúi Rangárvallahrepps, en
hans svæði er Rangárvallahreppur
og hreppamir vestan við á. „Hér
fyrirfínnast þó hús frá sjöunda ára-
tugnum og jafnvel yngri, sem eru
að mestu eða öllu leyti hlaðin úr
vikursteini; ójámbent. Ekki vil ég
þó kenna viðkomandi hönnuðum
um, heldur var það oftar, að hús-
byggjendur byggðu sín hús sjálfír
í skjóli eftirlitsleysis af opinberri
hálfu. Þá þótti einfaldara að hlaða."
Að sögn Gísla er nú fylgst bæði
með hönnun og framkvæmd. „Þó
hafa einstök sveitarfélög ekki stað-
ið sig í stykkinu við framkvæmd
byggingareftirlits."
„I mínu umdæmi eru m.a. þijú
íbúðarhús í byggingu: tvö timbur-
hús og eitt steinsteypt. Vel byggð
timburhús eru almennt talin jarð-
skjálfta hvað best. Það steinsteypta
var hins vegar hannað sérstaklega
með tilliti til jarðskjálfta."
Að sögn Gísla er lítið um opin-
berar byggingar í hans umdæmi.
„Hér er þó verið að byggja eitt
dvalarheimili aldraðra, reyndar með
hléi núna. Ekki hefur verið gerð
sérstök úttekt á jarðskjálftaþoli
þess, enda einungis um ein- til
tvflyíft hús að ræða.“
Gísli ræddi sérstaklega um land-
búnaðarhús. „Jámbinding í steypt-
um útihúsum hefur aukist
undanfarin ár. Líklega vegna þess
að nú em bændur sjálfír famir að
sjá gömlu útihúsin, sem steypt vom
upp, jafnvel án nokkurrar jám-
bindingar springa illa eða jafnvel
hrynja."
Stokkseyri
„Ég get nú ekki sagt að eftirlitið
sé hér mjög virkt og byggir það á
því, að ég er staðsettur í
Reykjavík," sagði Bogi Þórðarson
byggingarfulltrúi I Stokkseyrar-
hreppi og verkfræðingur á verk-
fræðistofunni Hnit. „Það er gengið
hart á eftir teikningum, en annað
eftirlit er misjafnt; þó er reynt að
fylgjast með því að eftir teikningum
sé farið. Flest hús á Stokkseyri em
einnar hæðar byggingar og flest
byggð fyrir mína tíð.“
Bogi gat þess að á staðnum
væri gömul skólabygging, en ekki
hefði farið fram úttekt á henni.
„Einnig má minnast á frystihúsið,
sem var endurbyggt að hluta eftir
bmnann, en um hana get ég lítið
sagt, þar sem ég var ekki viðstadd-
ur.“
Hveragerði
„Eftirlitið hér er hliðstætt og
víðast hvar annars staðar," sagði
Guðmundur Baldursson byggingar-
fulltrúi í Hveragerði. „Hér er ekki
mikið um stórar byggingar og hús
yfírleitt þess eðlis, að þau standast
snarpa jarðskjálfta."
Guðmundur tók til dæmis þijár
stórar byggingar: Gmnnskólann,
Hótel Örk og Tívolíbygginguna.
„Teikningar að gmnnskólanum
vom yfírfarnar áður en byggingar
hófust og smávægilegar breytingar
gerðar áður en þær hófust. Hótel
Ork er traust bygging, þar sem
herbergi em lítií og allir veggir
steyptir. Og um Tívólibygginguna
er það að segja, að Almannavamir
vom hér með æfingu nýlega og
leist þeim mjög vel a'hana."
Vík í Mýrdal
„Ég held að ástandið hér í
hreppnum sé þokkalegt," sagði Sig-
urður Ævar Harðarson byggingar-
fulltúi á Vík í Mýrdal. Sigurður gat
þess þó, að ekki væri tæknimaður
í þessu eftirliti, heldur væri hann