Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 72
 STERKTKDRT ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI 1987 VERÐ í LAUSÁSÖLU 50 KR. Laxveiði á stöng hófst í fyrstu ánum í gær. Hér glímir Friðrik Þ. Stefánsson við fallegan 10 punda lax og Jón G. Baldvinsson er honum til aðstoðar. Á innfelldu myndinni eru þeir Friðrik og Jón varafor- maður og formaður Stangaveiðifélags Reykjavikur, með nýrunna og fallega flugu veidda laxa úr Norð- urá í gaer. Við hlið bónda síns stendur Elín Möller. / • >/\ ■ <* ' 'x / V''\T/ ýýýk Morgunblaðið/Guðmundur Laxveiðivertíðin hafin Góð veiði í Norðurá og Þverá STANGVEIÐI hófst í þremur laxveiðiám í gær, Norðurá, Þverá/Kjarrá og Laxá á Ásum. Er óhætt að segja að vertíðin hafi farið vel af stað. Lokatölur dagsins fengust ekki, en í Norð- urá veiddust fyrir hádegi 14 laxar og bættu menn nokkrum við eftir hádegið. Fyrsta Iaxinn veiddi Ólafía Sveinsdóttir, 9 punda hrygnu á Stokkhylsbroti klukkan 25 minútur yfir sjö. Ólafía dró þarna þijá á stuttum tíma. Annars veiddust flestir laxanna í Norðurá á Brotinu og á Eyrinni. Stærstu laxarnir voru um 12 pund. Betur veiddist í Þverá, enda lengra veiðisvæði og fleiri stangir. 15 komu á land úr Þverá fyrir hádegi, þar af sá stærsti á sumr- inu til þessa, 15 punda lax sem Ingvar Vilhjálmsson veiddi í Kirkjustreng klukkan hálf átta. í Kjarrá veiddust sjö laxar á fyrri vaktinni og frést hafði um ein- hvem afla á þeirri seinni. Lítið fréttist af Laxá á Ásum, en óstað- festar fregnar hermdu að menn þar hefðu eitthvað orðið varir, en sjaldnast er veiði að hafa í Laxá fyrstu dagana. Alþýðubandalag og Kvennalisti: Neikvæðar undirtektir við málaleitan Alþýðuflokks Búist við ákvörðun forseta í dag FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir ræddi við for- menn stjórnmálaflokkanna í gær, og er búist við að hún taki ákvörðun um það í dag hvort hún felur Jóni Baldvin Hanni- balssyni, formanni Alþýðuflokksins umboð til stjómarmynd- imar eða ákveður að láta forystumenn stjórnmálaflokkanna halda áfram óformlegum viðræðum, án þess að einum þeirra hafi verið falið stjórnarmyndunarumboð. Framkvæmdastjóm Alþýðu- bandalagsins átti þriggja tíma langan fund í gær um drög þau að málefnasamningi sem Jón Raldvin sendi flokknum um helg- ina og varð niðurstaða fundarins sú, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins, að Alþýðubandalagið hafnar því að ganga til viðræðna við Alþýðuflokk á þeim forsendum að þriðji samstarfsflokkurinn verði Sjálfstæðisflokkur. Fyrstu viðbrögð Kvennalista við samskonar erindi Alþýðuflokks eru neikvæð. Fari svo að forseti veiti formanni Alþýðuflokksins umboð til stjómarmyndunar á hann ekki annan kost til myndun- ar þriggja flokka ríkisstjómar en þann að óska eftir viðræðum við Sjálfstæðisflokk og Framsóknar- flokk. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er áhugi fram- sóknarmanna á viðræðum við Alþýðuflokk mjög takmarkaður, en þó er búist við að þeir muni ekki hafna boði um formlegar við- ræður þessara flokka. Framsókn- armenn beina nú einkum sjónum sínum að framlengingu á lífi nú- verandi ríkisstjómar, með fulltingi Stefáns Valgeirssonar. Sjálfstæð- ismenn eru lítt hrifnir af þeirri hugmynd, jafnvel þótt framsókn- armenn vilji eftirláta þeim forsæt- isráðherraembættið í slíkri stjóm. Sjá á bls. 40: Af innlendum vettvangi: Kratar og Fram- sókn notuðu helgina til hins ýtrasta. málið lagt fyrir skaðabótanefnd, sem gerir upp tjón, sem verða vegna dvalar vamarliðsins. Usli á refabúum vegna þotuflugs: Læður gutu fyrir tímann og aðrar átu afkvæmi sín MIKILL taugatitringur greip um sig á refabúum í Lunda- reykjadal i Borgarfirði síðdegis á laugardag eftir að þota hafði flogið yfir dalinn á miklum hraða. Að sögn refabænda ærðust læðurnar og gutu sumar þeirra fyrir tímann og dæmi voru um að nokkrar ætu afkvæmi sín. Hafa læðurnar verið órólegar síðan atvikið átti sér stað og þvi ekki fullkannað hversu mikið tjón hlaust af þessum sökum. Talið var hugsan- legt að þarna hafi verið um varnarliðsþotu að ræða og hefur vamarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins óskað eftir nán- ari upplýsingum um flug varnarliðsvéla á laugardag. Sigurður Oddur Ragnarsson, refabóndi á Oddsstöðum, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði verið staddur í fjárhúsi er hann heyrði þotuna fljúga yfir og skömmu síðar hefði orðið eins og sprenging með drunum sem smátt og smátt fjöruðu út. „Er ég kom út úr fjárhúsunum sá ég þotu á leið suður yfir dalnum og sýndist mér það vera vamarliðsþota," sagði Sigurður. „Þegar ég kom svo í refabúrið skömmu síðar var greinilegt að þotuflugið hafði valdið þar miklum usla og læðum- ar vom upptrekktar af æsingi. Síðan hafa sumar þeirra gotið fyrir tímann og brögð hafa verið að því að aðrar, sem vom nýgotn- ar, hafi étið afkvæmi sín. Sumar em enn ekki búnar að ná sér og era að bera yrðlingana í kjaftinum fram og aftur um búrið.“ Snorri Stefánsson, refabóndi á Lundi, hafði svipaða sögu að segja, en taldi þó að tjón hefði orðið minna hjá sér en á Oddsstöð- um. Sverrir Haukur Gunnlaugs- son, skrifstofustjóri vamarmála- skrifstofu utanríkisráðuneytisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að unnið hefði verið að því í gær að fá nánari upplýsingar um at- vikið og fengist væntanlega staðfesting á því í dag hvort um vamarliðsþotu hafí verið að ræða eða ekki. Hann kvaðst hafa haft samband við Snorra Stefánsson á Lundi vegna þessa máls og óskað eftir tjónamati, en hafi vamarliðs- þota verið þama á ferð verður Arangurslaust leitarf lug út af Austfjörðum FOKKERVÉL Landhelgisgæsl- unnar fór í gærdag í leitarflug út af Austfjörðum, vegna neyðar- sendinga sem flugmenn á varnar- liðsvél töldu sig hafa heyrt um 150 mílur austur af Dalatanga. Ennfremur fóru leitarvélar frá varnarliðinu á staðinn þar sem talið var að neyðarsendingin hefði komið frá. Leitarvélamar urðu ekki varar við neitt óvenjulegt á þessum slóðum og var leit hætt síðdegis í gær. Icelandic Freezing Plants í Grimsby: Ihuga sölu á fiski til Marks og Spencer VIÐRÆÐUR standa nú yfir milli Icelandic Freezing Plants Ltd, dótturfyrirtækis SH í Grimsby, og verzlanakeðjunnar Marks og Spencer í Bretlandi um hugsanlega sölu á íslenzk- nm fiski. Fyrirtækið Marks og Spencer krefst mikilla gæða og hreinlætis við framleiðslu fiskisins, en greiðir líka hærra verð en flestir aðrir kaupendur á fiski. Sala matvæla er vaxandi þáttur í verzlunum Marks og Spencer og þar sem gæði þeirra em ótvíræð, er verðið mun hærra en hjá öðmm. Ingólfur Skúlason, framkvæmda- stjóri Icelandic Freezing Plants, sagði í samtali við Morgunblaðið, að óvíst væri hvort af sölunni yrði. Nú væri rætt um ýmsar vömteg- undir, en verð og magn væri órætt. Marks og Spencer krefst mikilla gæða, sem ekki væri vandamál, en það krefst einnig sérstakrar um- gengni um vinnslusali frystihúsa, sem framleiddu fískinn. Sú um- gengni væri ekki fyrir hendi hjá öllum frystihúsum, en því mætti auðvitað kippa í liðinn. Kröfumar væm sem sagt miklar en greiðslan jafnframt hærri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.