Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 66 urSiV&vcö þvi' h^ort 'eg 9se.ti fengih sberri ójúkrcLStofu?" ást er... ... aÖ vinna hann i fyrstu lotu TM Reg. U.S. Pat. Off.-all rights reserved c1985 Los Angeles Times Syndicate Of lítil tillitsemi í umferðinni Ökumaður hringdi: „Með aukinni umferð er engu líkara en tillitsem- in fari minkandi í umferðinni hér í Reykjavík. Margir ökumenn hreinlega olnboga sig áfram þegar umferðin er þung og troðast á kosnað annarra. Eg held að það myndi frekar borga sig að öku- menn sýndu almennt meiri tillit- semi í umferðinni og jafnframt yrðu ákeyrsluniar færri. Þannig yrði umferðin greiðari og allir kæmust leiðar sinnar fyrr en með núverandi hamagangi." Er öndunum gefið of mikið? HJ hringdi: „Mig langar til að benda á að nú á þessum góðviðris- dögum er öndunum á Tjörninni gefið alltof mikið af brauði. Af- leiðingin er sú að þær éta ekki helminginn af því brauði sem til þeirra er kastað og svo fljóta rotn- andi brauðbitar út um allar tjöm. Það er mikill óþrifnaður af þessu. Þetta ættu þeir að athuga sem gera það sér til skemmtunnar að gefa öndunum á góðviðrisdögum. “ Amstradklúbbur? Tölvueigandi hringdi: „Fyrir skömmu var spurt eftir Amstrad- klúbbnum í Velvakanda og spurt hvort hann væri einnig fyrir þá sem eru með Amstrad pcw og pc. Ég hef ekki séð neitt svar frá þeim. Þar sem ég hef áhuga fyrir að komast í samband við aðra pcw eigendur langar mig til að spyij- ast fyrir um hvort þeir hafi einhver samtök sín á rnilli." Svörttaska Svört taska með vetlingum o. fl. tapaðist á Hávallagötu eða þar í grennd fyrir skömmu. Ef einhver hefur fundið hana er hann beðinn að hringja í síma 2 63 91. Bílbeltin þyrftu að veraþægilegrií notkun Sigríður hringdi: „Mér skilst að nú eigi að fara að sekta fólk sem ekki notar bílbelti. En áður en byijað verður á því þyrftu að koma bílbelti sem auðveldara væri að setja á sig. Ég ferðast mikið sem farþegi, þar sem ég á ekki bíl sjálf, og í mörgum bílum er festingin svo langt niðri að ég verð að biðja bflstjórann að festa beltið fyrir mig. Eins er þetta í aftursætunum, þar er mjög óþægilegt að spenna á sig beltin. Ef skylda á notkun bflbelta fínnst mér að þau þyrftu að vera þægi- legri." V erðmerkingar Anna hringdi: „Fyrir skömmu var kvartað undan því í Velvakanda að verðmerkingar vantaði víða á vörur sem stilit er út í búðar- glugga. Ég vil taka undir þetta. Það er mjög óþægilegt að geta ekki lesið verðið á vörunum um leið og maður skoðar þær. Kaup- menn ættu að taka sig á og verðmerkja allar vörur sem þeir stiila út.“ Svart leðurveski Svart leðurveski var tekið úr bfl í Þingholtsstræti fyrir helgina. Veskið er merkt Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis og voru í því skilríki og fl. sem eigandan- um vantar sárlega. Ef einhver hefur fundið veskið eða skilríkin er hann beðinn að hringja í Guð- berg í síma 61 90 62. HÖGNI HREKKVlSI Víkverji skrifar „þAE> ER/ILD(2EI FLÖARFRIPOR \ þESSO 5TARFI." Nú eru liðnar fímm vikur frá alþingiskosningum og ekkert bólar á nýrri ríkisstjóm. Komist enginn skriður á stjómarmyndun í þessari viku má búast við, að óþolin- mæði byiji að gæta hjá almenningi. Það er að vísu ekkert nýtt að stjóm- armyndun taki langan tíma, sem út af fyrir sig er vísbending um veilu í stjómkerfí okkar. En sjald- an, a.m.k. hin seinni ár, hefur verið jafn mikið um yfírlýsingar af því tagi, að þessi vinni ekki með þessum og undir forsæti þessa stjómmála- foringja, og nú. Forystumenn stjómmálaflok- kanna verða að gæta að sér. Fólk ber takmarkaða virðingu fyrir stjómmálamönnum og baráttu þeirra. Mörgum koma tilraunir fíokkanna til stjómarmyndunar fyr- ir augu á þann veg, að þetta séu litlir strákar að leika sér í sand- kassa og tveir hrópa gjaman að þeir vilji ekki vera með þeim þriðja o.sv. frv. Þótt færa megi rök að því, að það komi skattgreiðendum bezt, þegar til skemmri tíma er litið, að sem lengst bið verði á myndun nýrr- ar ríkisstjómar (!), er ljóst, að alvarleg vandamál bíða úrlausnar. Margir viðmælendur Víkveija í dagsins önn hafa áhyggjur af því, að stjómleysið leiði til þess að við glötum því, sem áunnizt hefur f efnahagsmálum og verðbólgan vaxi á ný. Til þess má ekki koma. XXX Lengi var það svo, að hægt var að kaupa benzín á einum stað á höfuðborgarsvæðinu eftir kl. 21.00 á kvöldin. Sfðan tóku olíufé- lögin upp sjálfsala, þannig að nú er hægt að kaupa benzín í sjálfsöl- um á fjölmörgum benzínstöðvum á þessu svæði. En þeir, sem era á ferð í bifreiðum þurfa á margvís- Iegri annarri þjónustu að halda og hafa ekki heldur alltaf handbæra þá tegund af peningaseðlum, sem sjálfsalar taka við. Er þetta ekki orðin úrelt skipan hjá olíufélögunum að loka benzí- nstöðvum kl. 21.00 á kvöldin eða rúmlega það? Bifreiðafjöldinn er orðinn svo gífurlegur á höfuðborg- arsvæðinu að full ástæða virðist til að þessar þjónustustöðvar séu opn- ar til miðnættis. En sjálfsagt er ekki við því að búast að svo verði, meðan engin samkeppni ríkir meðal olíufélaganna. XXX að er vej til fundið hjá Sverri Hermannssyni, menntamála- ráðherra, að halda menningarhátí- ðir á landsbyggðinni. Á sl. ári var slík hátið haldin á Akureyri og nú í þessari viku verður hún haldin á ísafírði. Þar frumsýnir Þjóðleik- húsið m.a. nýtt leikrit. Á sama tíma er Sinfóníuhljómsveit íslands á hljómleikaferð um Austurland. Framtak af þessu tagi er mikils- verður þáttur í því að halda uppi byggð um landið'allt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.