Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 62
©2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rognvaldsson
rjsr
Stund
milli stríða
Aíslandi borgar sig yfirleitt ekki
að bíða boðanna þegar gott
veður gefst. Því reyna flestir að
njóta veðurblíðunnar eins fljótt og
kostur er, því skjótt skipast veður
í lofti. Blaðamaður Morgunblaðsins
rakst þó á einn sem var útsjónasam-
ari en menn eiga að venjast og tók
hann tali.
„Það jafnast fátt á við það að
sóla sig hérna í Öskjuhlíðinni. Það
er fallegt hér og friðsælt, þannig
að þegar gerir gott veður reyni ég
að vinna hratt og fá pásu inn á
milli svo ég komist hingað", sagði
Jón Reynir HilmaBson, en hann lá
og sólaði sig í mestu makindum
inni í flutningabíl sínum, sem hann
hafði lagt þannig að hann nyti
bæði sólar og skjóls. „Það er fínt
að vera hér inni í húsinu í sól og
logni, það myndast góð molla. En
Reykvíkingar nota þennan sælureit
alltof lítið. Ég kem hingað oft með
íjölskylduna meðan aðrir þeysa til
Hvergerðis eða þaðan af lengra.
Það eina sem í raun háir staðnum
er slæm umgengni á næturnar,
sérstaklega um helgar."
Tja, ég nota nú númer 38 ...
Reuter
Konungleg
nærföt
Karl Bretaprins hefur lent í
ýmsu um dagana, enda
margt sem felst í þeirri ljúfu
skyldu að vera krónprins þess sem
eftir er Bretaveldis.
Nú á dögunum heimsótti hann
Samtök sjálfstæðra tískuhönnuða
í Lundúnaborg. Þar voru honum
færðar að gjöf þessar stórglæsi-
legu silfurlitu nærbuxur, sem
hannaðar voru af Perry nokkrum
Beard. Hugmyndin að munstrinu
er hins vegar fengin frá átjándu
aldar listamanninum Rocco Bar-
que.
Reuter
Bongó- og gæruhippar?
Hipparnir Rónald
o g Mikjáll
0
Itískuvöruverslun í Bem í Sviss
bar nýlega á sérkennilegri
gluggaskreytingu. Sáu menn ekki
betur en þar væru komnir tveir
valdamestu menn heims, þeir
Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti,
og Mikhail Gorbachev, aðalritari
sovéska kommúnistaflokksins. Að
þeir skyldu vera staddir í Bern þótti
nú reyndar ekki svo ótrúlegt, jafn-
vel þó svo þeir væru í búðarglugga.
Aðalnývirkið þótti hins vegar
klæðaburður félaganna, sem til
þessa hefur einkennst af dökkum
fötum og dauflegum. Helst hefur
verið að Reagan skarti litskrúðug-
um bindum og Gorbachev sést öðru
hveiju á Lloyds-skóm.
Nú var hins vegar annað uppi á
teningnum. Báðir voru nefnilega
uppáklæddir eins og þeir væru að
skella sér á konsert með poppgoðinu
Prince. Reagan í mittislausum bol
og gallafötum úr bandaríska fánan-
um. Til þess að auka enn á dýrðina
var hann með dólgslegt belti um
sig miðjan.
Gorbachev var á hinn bóginn í
fötum með hvítum, grænum og
rauðum röndum, en á milli voru litl-
ar stjömur, hamrar og sigðar. Um
hálsinn hafði hann hinsvegar al-
magnaða hálsfesti með hinu gamla
friðarmerki sjöunda áratugarins.
Bak við foringjana voru fánar risa-
veldanna hnýttir saman.
Tilgangur verslunarinnar með
uppákomunni var að vekja á sér
athygli (nema hvað?), en í henni
eru aðallega seldur bandarískur
tískuvarningur.