Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 67 Hreinsum Reykjavíkurfjörur Göngnm vel um landið okkar Hættum að útbia umhverf i okkar með allskyns óþverra Til Velvakanda Jóna E. Jónsdóttir, leiðsöffu- maður skrifar Mikið er ég hjartanlega sammála forsvarsmönnum Sindra-Stáls um skilningsleysi yfirvalda á umhverf- isvemd. Það fer illa fyrir bijóstið á mér að sjá hvemig við göngum um landið okkar. Fólk losar sig við rusl Ég hef oft hugsað eftir göngu- ferð I fjörunni á Seltjamamesi, auðvitað á Seltjamamesi, þvf Reyk- víkingar eiga enga Qöru sem hægt er að nýta til gönguferða, en það er nú annar sálmuri Ég hef sem sé oft hugsað eftir góða gönguferð, þegar á vegi mlnum varð rusla- haugur, sem nýbúið var að koma „Ég skora á ykkur, þcssa sem hlutdeild eigið I þvl að útbla ____ hverfi okkar með ailskyns óþverra: Takið ykkur tak og látið skynsemina ráða.“ garðinum, sitjandi að loknu dags- verki með finu konunni sinni og fínu bömin sér við hlið, sem öll hjálpuðust að við að setja heimilis- sorpið I flnu kerruna sem hengd var aftaní flna bflinn og flutti það út I Uótu náttúruna og var losað þar. Hvemig hugaar svona fólk ég bara spyr? Þetta er óþolandi. En aftur að aðgeröum eða öUu heldur aðgerðarleysi yfirvalda. Það er skylda ykkar að uppfræða fólk um hættuna sem stafar af gömlum bflrafgeymum og rafhlöðum. Maður sér þessa hluti á vtð og dreif um allt land, fólk hendir þessu frá s' hvar sem er, n\jög sennilega vegna fáfræði. Mcira að segja má oft sjá j smáböm vera að leika sér með j gamlar rafhlöður inni á heimilum, 1 sléikjandi þær og sjúgandi. Það vantar fræðslu um þessa hluti, ykkur ber skylda til að vara fólk við þessum óþverra með dag- iegum viðvörunum I fjölmiðlum. Þá j sakar ekki að láta fylgja með beiðni I og viðvörun til allra Islendinga um I skaðsemi loftmengunar. Því þar eru I þeir líka frekar illa upplýstir. Migl minnir að hafa heyrt að mælingar 1 sem gerðar voru á loftmengun f Reykjavík sýndu að höf ckar væri TII Velvakanda Ég vil taka undir tímabæra grein Jónu E. Jónsdóttur, leiðsögumanns, sem birtist í Velvakanda hinn 26. maí og bar fyrirsögnina „Göngum vel um landið okkar — Hættum að útbía umhverfi okkar með allskyns óþverra". Það er forkastaniegt að mönnum skuli haldast uppi að kasta rusli og það heilu bílförmunum á útivistarsvæðum almennings. Beita þyrfti háum sektum í því skyni að taka fyrir slíkt háttarlag. Hér á höf- uðborgarsvæðinu ætti að vera hægt að hafa nokkurt eftirlit með þessu þó það sé erfiðara í dreifbýlinu. Éins og Jóna segir í grein sinni eiga Reykvíkingar varla fjörur sem hægt er að nýta til gönguferða. Þetta er fyrst og fremst draslara- hætti að kenna og reyndar einnig slæmum frágangi skolplagna sum- staðar. Ég vil nefna fjöruna fyrir neðan Ánanaust og Eiðisgranda. Þetta gæti verið fegursta göngufjara og vantar ekki mikið uppá að hún sé það. Sjávarbakkann þyrfti að græða upp og tína upp allt drasl sem þama hefur safnast fyrir. (Þetta á sjálfsagt einnig við um aðrar fjörur borgarinnar). Þama hafa borgaryfírvöld látið setja upp girðingu meðfram allri ströndinni sem ekki er til fegurðar- auka. Mér fínnst hún „tukthúsleg" og er girðingin síst til þess fallin að auka aðdráttarafl strandarinnar. Ættu ekki merkin með tilkynningun- um um að öll sorplosun sé bönnuð að nægja? Þó ég vilji ekki bera í bætiflákann fyrir sóðana hefur mér dottið í huga að það sé ekki að ástæðulausu sem menn losa sig við sorp á víðavangi. Gæti verið að það vantaði sorp- móttöku hér í borginni, þar sem tekið er við stærri hlutum sem kasta þarf? Mörgum þykir kannski langt að aka út á sorphauga og vita ekki hvemig móttakan fer fram þar. Þykjast þess- ir menn því ef til vill hafa nokkra afsökun fyrir því að losa sig við drasl á „auðveldan hátt“. Sorpmóttöku þar sem menn gætu losað sig við drasl gegn vægu gjaldi þyrfti að koma upp einhverstaðar í borginni og auglýsa starfsemi hennar. Ef þetta væri gert yrði minna um að menn freistuðust til að nota fjörurn- ar fyrir sorphauga. Að lokum: Göngum vel um landið og látum það ekki henda okkur að fleyja drasli á víðavangi hvort sem er innan borgarmarkana eða utan. Jóhannes Háar vísi- tölubætur — framlengið húsnæðis- málasíj órnarlánin Til Velvakanda Húabyggjandi skrifar: Ég vil taka undir með þeim sem skrifað hafa um „okurlánin" í Vel- vakanda að undanfömu. Þessi lán hafa hækkað gífurlega í verðbólg- unni sem stjómmálamenn lofuðu að koma í veg fyrir en nú sitjum við sem treystum á þá í súpunni. Þessi lán áttu að vera til þriggja áratuga en raunin er sú að þau verða að greiðast upp að mestu leyti á nokkr- um árum. Mikið hefur verið um þetta talað og skeggrætt af stjómmála- mönnum en afskaplega lítið gert. Fyrir kosningamar var þetta mál mikið rætt og lofúðu þá margir stjómmálamenn úrbótum en nú heyrist ekki mikið um þetta mál skrafað lengur og ekki bólar á úrbót- unum. Þetta ber ekki að skilja svo að við þeir húsbyggendur sem tóku þessi endemis lán séum að biðja um einhveija ölmusu. Það sem við förum hins vegar framá er að lánin fáist greidd upp með jöfnum greiðslum á jafn löngum tíma og um var samið í upphafi þannig að greiðslubyrgðin jafnist út. Fengjust t.d. húsnæðis- málastjómarlán framlengd með þessum hætti yrði það mörgum til bjargar. BBC BROWN BOVERI Ný gerð af sjálfvörum ★ Snertifrí ★ 6kA rofgeta ★ 1, 2 og 3 póla ★ Hjálparsnerta ★ Gæði = Öryggi Vatnagörðum 10, Símar 685855 & 685854. ALVORU ÚTIHURDIR Á islandi duga aðeins ALVÖRU ÚTIHURÐIR. Borgar sig að standa f endalausu viðhaldi? Útihurð áTslandi verður að geta staðið af sér rok, rigningu, snjó, frost, sandfok, sól o.fl., en það gera aðeins alvöru útihurðir. í sýningarsal okkar er glæsilegt úrval ALVÖRU ÚTIHURÐA, hurða sem byggðar eru á áratuga reynslu okkarvið framleiðslu útihurða fyrlr okkar hörðu veðráttu. U I I I I □ □ □ □ □Tq □"□ = Velkomin I sýningarsal okkar að Kársnesbraut 98, Kópavogi, þar getið þið skoðað okkar glæsilega úrval i ró og næði. HYGGINN VELUR HIKO-HURÐ HURÐAIÐJAN U ULLlrCVil KÁRSNESBRAUT 98-SÍMI43411 200 KÓPAVOGUR KROSSVIÐUR T.d. vatnslímdur og vatnsheldur - úr greni, blrki eða furu. SPÓNAPLÖTUR T.d. spónlagðar, plast- húðaðar eða tilbúnar undir málningu. Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket. Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu verðL SPARIÐ PENINGA! - Smíðið og sagið sjálf! Þið fáið að sníða niður allt plötuefni hjá okkur í stórri sög ■ ykkur að kostnaðarlausu. BJORNINN Við erum í Borgartúni 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.