Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
4
Morgunblaðið/Kristján G. Amgímsson
Boeing 737-300 flugvél Lufthansa á Keflavíkurflugvelli á sunnudaginn.
Áæthinarflug- Luft-
hansa til Islands
hófst á sunnudag
ÞÝSKA flugfélagið Lufthansa hóf beint áætlunarflug milli
Munchen og Dusseldorf í Þýskalandi og Keflavíkur á sunnudag-
inn. Lufthansa er fyrsta erlenda flugfélagið sem tekur upp beint
áætlunarflug til íslands og með Boeing 737-300 flugvélum, en
líklegt er að Flugleiðir kaupi tvær slikar flugvélar innan tíðar.
Keflavík er 162. viðkomustaður
Lufthansa víðs vegar í heiminum.
Fyrst um sinn mun félagið fljúga
hingað einu sinni í viku, á sunnu-
dögum, yfir sumarmánuðina en
félagið gerir ráð fyrir að áætlun-
arferðum íjölgi í framtíðinni.
Lufthansa gerir aðallega ráð fyrir
að þýskir og íslenskir ferðamenn
notfæri sér þessa nýju þjónustu
félagsins en að sögn forstjóra fyr-
irtækisins er áhugi Þjóðveija á
íslandi sífellt að aukast.
Tekið var á móti flugáhöfn og
fyrstu farþegum Lufthansa til ís-
lands með blómum og ámaðarósk-
um á sunnudaginn. Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða,
Kjartan Lárusson formaður ferða-
málaráðs og Hans Hermann
Haferkamp sendiherra Vestur-
Þýskalands á íslandi buðu flugfé-
lagið velkomið til íslands en Dr.
Ambrosius forstjóri Lufthansa í
Evrópu og Jurgen Raps flugstjóri
þökkuðu móttökumar.
Dr. Ambrosius minntist í ávarpi
sínu á að tengsl íslands og Þýska-
lands í flugsögunni væru orðin
gamalgróin og rifyaði upp að árið
1929 hefði Lufthansa keypt 75%
hlut í nýendurreistu Flugfélagi
íslands. Sigurður Helgason ri§aði
einnig upp að þegar Flugfélag
Dr. Ambrosius forstjóri Lufthansa flytur ávarp undir glerlista-
verki Leifs Breiðfjörð i Flugstöð Leifs Eirikssonar.
íslands var endurreist í seinna
úufthansa
f ^ )j sameinuðust, yrðu færri en stæiri
jgf -jM og samstarf milli þeirra myndi
•» < ,jP‘jaukast. Það væri fyrirsjáanlegt
Tekið á móti fyrstu flugáhöfn Lufthansa á íslandi með blómum. í framtíðinni.
Morgunblaíií/KGA
Horst Tappert og eiginkona hans fá afhent blóm við komuna til
íslands á sunnudaginn.
„Derrick“ á Islandi:
Sagði flugstöðina í
Keflavík vera þá
fallegustu í Evrópu
Vitum að þessar
ferðir verða vinsælar
- segir Dr. Ambrosius forstgóri
Lufthansa 1 Evrópu
HORST Tappert, sem leikur
heimilisvin Islendinga, lögre-
gluforingjann Stephan Derrick
í samnefndum sjónvarpsþátt-
um, var í hópi fyrstu farþeg-
anna sem Lufthansa flutti
hingað til lands frá Þýskalandi
á sunnudaginn. Tappert kom
hingað til lands í boði Germ-
aníu og flutti erindi á sumar-
hátíð félagsins á sunnudags-
kvöld.
Tappert sagði í stuttu ávarpi
við komuna til landsins að hann
hefði heyrt mikið um fegurð ís-
lands en fyrstu áhrifin af landinu
við að sjá flugstöðvarbygginguna
væru yfirþyrmandi. „Ég er ákaf-
lega undrandi; ég þekki nú tvær
gullfallegar flughafnir í Evrópu.
Onnur er í Keflavík en hin er í
Nizza. Og þetta er mikið hrós,“
sagði Tappert.
Tappert sagðist vera mjög án-
ægður með að vera kominn hingað
til lands þar sem atvinna hans
væri metin að verðleikum. Hann
sagðist vonast til að svo mætti
verða lengi enn og að hann myndi
eyða skemmtilegum stundum á
íslandi.
„VIÐ höfum lagt á það áherslu
undanfarín ár að taka upp áætl-
unarflug til áhugaverðra staða
fyrír ferðamenn, eins og Catan-
ia á Ítalíu, Antalya í Tyrklandi
og Jersey á Ermarsundi. Beina
flugið til Keflavíkur er liður i
þessarí áætlun,“ sagði Dr. Am-
brosius forstjóri Lufthansa i
Evrópu þegar Morgunblaðið
spurði hann um ástæður þess
að Lufthansa tók upp beint
áætlunarflug milli Þýskalands
og íslands.
Dr. Ambrosius sagði að til að
byija með gerði Lufthansa aðeins
ráð fyrir að fljúga til íslands á
sumrin en reynslan af öðrum
áætlunarleiðum hefði sýnt að
fljótlega yrði þörf á heilsársþjón-
ustu brýn. „Við vitum að Þjóðveij-
ar hafa mikinn áhuga á landi
ykkar því margir Þjóðveijar hafa
komið á alla helstu ferðamanna-
staðina og vilja reyna eitthvað
nýtt. Við höfum gert markaðs-
rannsóknir og vitum að þessar
ferðir eiga eftir að verða vinsælar
enda hefði Lufthansa aldrei farið
af stað með þessa áætlun nema
telja að hún myndi bera sig og
við erum mjög bjartsýn," sagði
Dr. Ambrosius.
Dr. Ambrosius var spurður
hvort Lufthansa myndi veita
íslensku flugfélögunum Amar-
flugi og Flugleiðum keppni í flugi
milli íslands og Þýskalands. Am-
brosius sagði að auðvitað yrði
eitthver samkeppni milli félag-
anna en Lufthansa teldi að þeirra
sambönd minu auka á viðskiptin
auk þess sem íslensku félögun
fljúga ekki til Munchen eða Duss-
eldorf. „Við teljum því að okkar
áætlun sé viðbót og og verði til
að auka ferðamannastrauminn
milli landanna og ég held ekki að
við séum með því að taka neitt
frá öðrum.“
Dr. Ambrosius var að lokum
spurður um álit hans á nýju flug-
stöðvarbyggingunni. „Hún er
mjög falleg og áhrifamikil og mun
vafalaust gegna mikilvægu hlut-
verki í uppbyggingu ferðamála á
íslandi."
Morgunblaðið/KGA
Dr. Ambrosius forstjóri Lufthansa í Evrópu og Sigurður Helga-
son forstjórí Flugleiða ræðast við í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.