Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
40 ár frá Marshallhjálp:
Aætlun sem markaði
sögulegustu tíma-
hvörf samtímans
Washington, Reutcr.
FJÖRUTÍU árum eftir að roskinn bandarískur hermaður og stjórn-
málamaður Georg Catlett Marshall, kunngerði áætlun sem miðaði að
því að reisa Evrópu úr rústum, eftir styijöldina, er þessara hugmynda
Marshalls nú minnzt sem gagnlegasta og gjöfulasta atbeina í banda-
rískri utanríkisstefnu.Shultz utanríkisráðherra orðaði það svo, að
áætlunin hefði markað sögulegustu tímamót í nútímanum.
Marshall kynnti áætlun sína þann né kennisetningum né hugmynda-
5-júní 1947 í útskriftarræðu við Har-
vard háskólann. Marshall var ut-
anríkisráðherra Harry Trumans,
Bandaríkjaforseta og ein skærasta
stríðshetja Bandaríkjanna
Um þessar mundir voru flest Evr-
ópulönd í rústum í bókstaflegri
merkingu og fæst þeirra sýndust
hafa burði til þess að gera skipulegt
átak til að snúa þessu við. Alténd
ekki á eigin spýtur. Þar við bættist,
að fljótlega tók að bera á þvi að ógn-
unar kynni að vera að vænta úr
austri og samvinna bandamanna
gegn Þjóðverjum var að fara veg allr-
ar veraldar. Útlitið var sannarlega
ekki glæsilegt.
í ræðu sinni í Harvard sagði Mars-
hall meðal annars:„Það verður að
teljast rökrétt að Bandaríkin geri allt
sem í þeirra valdi stendur til þess að
eðlilegur efnahagsbati náist í heimin-
um. Ef það lánast ekki, verður engin
pólitískur stöðugleiki, enginn raun-
verulegur friður." Marshall hafði
áhuga á að aðstoð Bandaríkjamanna
yrði veitt á hvað uppbyggilegastan
máta og reynt yrði að koma í veg
fyrir vaxandi togstreitu milli austurs
og vesturs. Hann sagði: „ Stefnu
okkar er ekki beint gegn neinu landi
fræði. Stefnu okkar er beint gegn
hungri, fátækt, ringulreið og örvænt-
ingu.“
Vonir Marshalls um að unnt yrði
að eyða tortryggni stórveldanna
brugðust. Sovétríkin neituðu allri
samvinnu, þó svo að öll Vestur Evróp-
ulöndin sýndu fullan samstarfsvilja.
Á árunum 1948 til 1961 vörðu
Bandaríkjamenn 13.3 milljörðum
dollara til bráðahjálpar og uppbygg-
ingar í Vestur Evrópu. Fjármagnið
var notað til enduruppbyggingar at-
vinnuvega og þróunar nýrra, heilu
borgimar voru reistar úr rústum fyr-
ir Marshallfé og samgönguleiðir, eins
og jámbrautir og vegir sem höfðpu
skemmzt í stríðinu lögð upp á nýtt.
Og svo mætti lengi telja. Sérfræðing-
ar segja að væri Marshallféið fram-
reiknað til núvirðis mætti ætla það
um 90 milljarða dollara.
Það sem þykir hvað merkast við
framkvæmd Marshalláætlunarinnar
þegar horft er til baka nú, er að fram-
lögin urðu til raunhæfari uppbygg-
ingar en önnur hjálp sem hefur verið
veitt, fyrr og síðar. Og umfram allt
reyndist hún hvarvetna hvatning fyr-
ir þjóðimar að taka þátt í uppbygg-
ingarstarfinu, og hjálpa sér sjálfar.
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, kvartaði undan smáþreytu i baki, eftir að hún hafði sýnt til-
þrif við múrverk á kosningaferðalagi sinu um Suðaustur-England í gær.
Bretland:
íhaldsf lokkurinn held-
ur hlut sínum og vel það
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÖRYGGIS- og varnarmál voru að-
almál annarrar viku kosningabar-
áttunnar héma í Bretlandi. Neil
Kinnock, leiðtoga Verkamanna-
flokksins, tókst illa til við að skýra
út stefnu flokksins á þessu sviði,
enda er hún mótsagnakennd.
íhaldsflokkurinn náði fmmkvæð-
inu í kosningabaráttunni. Banda-
Samskípti Breta og ír-
ana fara hríðversnandi
laginu hefur ekki tekist að vekja
á sér athygli. Útlit er fyrir, að
skólamál og efnahagsmál komist
aftur í sviðsljósið. Einnig er ljóst,
að sljórnarstfll Margaret Thatcher
verður mikið í sviðsljósinu í seinni
hluta kosningabaráttunnar, eftir
að leiðtogar Verkamannaflokksins
réðust harkalega að forsætisráð-
herranum í gær og fyrradag.
Lokaþáttur
íhaldsflokksins
London, Reuter.
BRETAR hótuðu írönum í gær með refsiaðgerðum ef stjómvöld í
Teheran gæfu ekki skýringu á því hvers vegna breskur stjórnarerind-
reki var numinn á brott og barinn til óbóta. Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands, sagði að athæfið væri „hneykslanlegt".
íranar hafa hótað því að kæra stjórnarerindrekann, Edward Chaplin,
og breska blaðið The Daily Telegraph sagði í gærmorgun að hann
ætti dauðadóm yfir höfði sér.
Chaplin er næst æðsti stjómarer-
indreki Breta í íran. Sex vopnaðir
byltingarverðir, sem tengjast íranska
innanríkisráðuneytinu, rændu hon-
um í síðustu viku, börðu hann til
óbóta og héldu honum í einn sólar-
hring.
Talsmaður utanríkisráðuneytisins
í London sagði að Bretar vildu fá
útskýringu, afsökunarbeiðni og svar
við mótmælabréfí, sem írönum var
afhent á sunnudag. í bréfínu var
yfirlýsingu írana um að Chaplin yrði
sóttur til saka mótmælt.
Haft var eftir ónefndum stjómar-
erindrekum að einhvers konar
aðgerðir virtust óumflýjanlegar. Til
greina kæmi að fækka starfsliði
íranska sendiráðsins í London, en
einnig gæti svo farið að stjómmála-
sambandi við írana yrði slitið.
Thatcher sagði að stjómin gerði
allt, sem í sínu valdi stæði, til að
tryggjaöryggi breskra stjómarerind-
reka í íran.
Talsmaður breska utanríkisráðu-
neytisins sagði að háttsettur starfs-
maður sænska sendiráðsins í
Teheran, sem gætir hagsmuna Breta
í íran, hefði verið kvaddur í íranska
utanríkisráðuneytið í gær ásamt
Chaplin. „Á fundinum kom skýrt
fram hjá íranska embættismanninum
að Chaplin yrði ákærður," sagði tals-
maðurinn.
í The Daily Telegraph sagði að
ákæmmar á hendur Chaplin vörðuðu
„eiturlyf, spillingu, þjófnað og það
að grafa undan efnahagnum á
stríðstímum" og ætti hann dauða-
refsingu yfir höfði sér.
Breska utanríkisráðuneytið hefur
ekki viljað staðfesta þessa frétt og
sagði einn starfsmaður: „Það er ótrú-
legt að þetta skuli hafa verið skrifað
því að sem stjómarerindreki nýtur
hann friðhelgi og það kemur því
ekki til greina að hann svari til saka.“
íranskur stjómarerindreki, sem
starfar hjá ræðismanni Irana í Manc-
hester, var handtekinn í síðustu viku
og sakaður um búðahnupl. íranar
hafa mótmælt því hvernig farið var
með manninn, Áhmad Ghassemi, og
halda fram að breska lögreglan hafí
barið hann. Lögreglan ber Ghassemi
aftur á móti þeim sökum að hafa
stolið úr verslun, keyrt ógætilega og
ráðist á lögregluþjón og skemmt úr
hans.
Sir Geoffrey Howe, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði við blaðamenn
að íranar spyrtu saman mál Ghas-
semis og Chaplins, þótt því hefði
verið neitað. Ghassemi var látinn
laus gegn tryggingu og á að koma
fyrir rétt 11. júní. íranar segja að
hann njóti friðhelgi stjómarerind-
reka. Bretar segja að friðhelgin
einskorðist við ræðismannsstörf
hans, en Chaplin njóti aftur á móti
algerrar friðhelgi.
kosningabaráttu
snúast um
þátttöku Margaret Thatcher í leið-
togafundinum í Feneyjum í næstu
viku.
Eftir að Neil Kinnock gerði þá
skyssu að ræða, hvað gerast mundi
eftir innrás Sovétmanna í Bretland
án nokkurra kjamorkuvopna, var
hann ekki spurður um annað á frétta-
mannafundum í síðastliðinni viku.
íhaldsmenn með Margaret Thatcher
í broddi fylkingar gerðu sér mikinn
mat úr þessu. Þeir náðu fmmkvæðinu
og fylgisaukning Verkamannaflokks-
ins í skoðanakönnunum hefur verið
stöðvuð. Leiðtogar Verkamanna-
flokksins óttast nú, að þeim takist
ekki að ná fylgi frá íhaldsflokknum
á síðustu tíu dögum kosningabarátt-
unnar eftir mistök Kinnocks í
vamarmálum. Framgangur þeirra
hefur allur verið á kostnað Bandalags
fijálslyndra og jafnaðarmanna, sem
tekst illa að ná til kjósenda í þessari
baráttu. Leiðtogar þess, David Owen
og David Steel, hafa sótt að Verka-
mannaflokknum, eftir að hafa ráðist
af krafti gegn íhaldsflokknum í upp-
hafi. Þessi breyting hefur ekki haft
nein áhrif á gengi þeirra, enn sem
komið er að minnsta kosti.
Skoðanakannanir gefa til kynna
styrka stöðu íhaldsflokksins og að
sókn Verkamannaflokksins hefur
stöðvast. Margar skoðanakannanir
hafa birst í síðustu viku og um helg-
ina. Meðaltal úr þeim er: íhaldsflokk-
urinn 43%, Verkamannaflokkurinn
34% og Bandalagið 21%. Miðað við
vikuna á undan hafa íhaldsflokkurinn
og Verkamannaflokkurinn bætt við
sig einu prósenti, en Bandalagið tap-
að tveimur.
í lokaþætti kosningabaráttunnar,
sem búast má við, að snúist um efna-
hagsmál, ætla íhaldsmenn að notfæra
sér leiðtogafundinn í Feneyjum.
Thatcher hefur nú þegar fengið uppk-
ast að sameiginlegri yfirlýsingu
þjóðarleiðtoganna. Ef dæma má af
fyrri yfirlýsingum, verður hún stuðn-
ingur við stefnu Thatcher í efnahags-
málum. Einnig er búist við, að á
fundinum komi fram stuðningur við
þá stefnu bandarískra stjómvalda að
eyða skammdrægum eldflaugum í
Evrópu. Slíkur stuðningur mundi slá
eina vopnið úr höndum Verkamanna-
flokksins í vamarmálum.
„Níu lífum Karamis lokið..“
Beirut, Reuter.
EINATT var komizt svo að orði, að Rashid Karami væri eins og kött-
urinn og hefði níu líf. Og níu sinnum var hann kvaddur til að vera
forsætisráðherra Líbanons,og oft þegar mest á reið. Hann glímdi við
verk sitt af atorku, lifði af alls konar sviptingar í pólitísku lífi. Varð
fyrir aðkasti og slapp lífs í óeiginlegri og eiginlegri merkingu. Þar
til nú. „Níunda lífi hans er lokið“ sögðu harmi lostnir landar hans,
þegar spurðist út um morðið.
Karami var á leið til Beirut í
hyrlu, eftir 10 daga veru í heimabæ
sínu sínum Miriyta, við Tripoli.
Nokkru eftir að þyrlan hóf sig á
loft, sprakk sprengja undir sæti ráð-
herrans. Flugmaðurinn nauðlenti
eins fljótt og unnt var. Innanríkis-
ráðherra landsins sem var í þyrlunni
svo og stjórnandi hennar slösuðust
en munu ekki vera í lífshættu.
Rashid Karami var fæddur 30.
desember 1921 og var af efnaðri og
áhrifamikilli fjölskyldu. Hann nam
lögfræði við í Kairó og hann var
kjörinn á þing þrítugur. Hann komst
fljótt til metorða og þótti harðskeytt-
ur og snjall. Hann var sunni
múhammeðstrúarmaður og barðist
af ákafa fyrir því að efla ítök sunn-
ita í stjómkerfi landsins. Hann var
skipaður dómsmálaráðherra
skömmu eftir að hann var kjörinn á
þing, og síðan forsætisráðherra í
september 1955 og var yngstur
þeirra, sem hafa gegnt starfinu í
Líbanon.
Hann sagði af sér hálfu ári síðar,
vegna deilna við Chamoun, þáver-
andi forseta, meðal annars um
afstöðuna til Nassers. Karami tók
höndum saman við aðra múhamn-
meðstrúarmenn í andstöðu og andófí
við Chamoun 1958 og leiddi baráttu
gegn forsetanum og öðlaðist traust
margra og virðingu. Chamoun fór
upp úr þessu frá völdum og Fuad
Shebab, hershöfðingi, sem tók við
af honum skipaði Karami forsætis-
ráðherra. Átti það að vera liður í
að sameina og sætta þjóðina eftir
uppreisnina. Karami studdi umbóta-
aðgerðir Shebab af heilum hug.
Hann vildi nánara samstarf við
Egypta, undir forystu Nassers, en
hann taldi hyggilegt að hafa einnig
gott samstarf við Bandaríkjamenn.
Á næstu árum var Karami fimm
sinnum forsætisráðherra, fyrst hjá
Shebab, og síðan Charles Helou.
Árið 1969 sagði Karami af sér eftir
að uppreist stuðningsmanna Pa-
lestínumanna hafði verið brotin á
bak aftur með valdi. En þegar borg-
arastyijöldin í landinu brauzt út fyrir
alvöru 1975, sneri Suleiman Franji-
eh sér til Karamis og bað hann reyna
að sætta stríðandi öfl í landinu. Þeg-
ar Elias Sarkis varð svo forseti, sagði
Karami af sér.
Karami var andvígur íhlutun Sýr-
lendinga, síðla árs 1976, þegar þeir
björguðu hersveitum kristinna
manna frá því að bíða ósigur.
En Rashid Karami var þó lengst
af hlynntur Sýrlendingum - og
stundum svo að mönnum þótti nóg
um. Eftir að slit urðu með kristnum
og Sýrlendingum náðust fullar sætt-
ir við Karami. Allar götur síðan
hefur hann stutt þá með oddi og egg
og verið afdráttarlaus andstæðingur
Arafats, eftir að hann fylkti liði sínu
í Tripoli 1983 og réðst gegn Pa-
lestínumönnum sem voru hlynntir
Sýrlendingum.
Enn var svo Rashid Karami
kvaddur að taka við árið 1984, þeg-
ar komið var á stofn þjóðarsátta-
stjórninni fyrir frumkvæði Amins
Gemaeyls, forseta, að visu eftir
þrýsting frá Sýrlendingum. En Kar-
ami tókst ekki ætlunarverk sitt, og
sagði af sér vegna ágreinings við
Gemaeyel um afstöðuna til Sýrlend-
inga. Gemaeyel forseti neitaði að
taka afsögn hans til greina, og við
það sat. Þrátt fyrir margvíslegan
ágreining þeirra í millum var greini-
legt að Gemaeyel leit svo á að
Karami væri einn fárra, sem hugsan-
lega gæti knúið í gegn sættir með
stríðandi öflum.
Karami var yfirvegaður stjórn-
málamaður, hugrakkur og skapstill-
ing hans þótti aðdáunarverð. Hann
var gæddur óbilandi bjartsýni á
framtíð Líbanons og henni varð ekki
haggað, þrátt fyrir allt sem yfir