Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐ.IUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
AF INNLENDUM
VETTVANGI
eftir AGNESIBRAGADÓTTUR
Stj órnarmy ndunarviðræður:
Kratar og- Fram-
sókn notuðu helg-
ina til hins ýtrasta
ÞÓTT enginn fari nú formlega með umboð til stjómarmyndunar
verður ekki annað sagt en Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur
hafi notað helgina til hins ýtrasta í óformlegum stjórnarmyndunar-
viðræðum. Þannig ræddu kratar við Alþýðubandalag og Kvennalista
og Framsókn ræddi m.a. við Borgaraflokk. Framsóknarflokkurinn
hefur útilokað stjóraarsamstarf við Borgaraflokk eftir þessar við-
ræður, þar sem Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins hefur kynnt sér sjónarmið Sjálfstæðisflokksins hvað
varðar samstarf við Borgaraflokkinn. Mun hann, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins hafa komist að þeirri niðurstöðu, að sjálfstæðis-
menn útiloki með öllu samstarf við Borgaraflokk, að svo komnu
máli og þar með komi samstarf Framsóknarflokks ekki til greina
við Borgaraflokk.
Neikvæð viðbrögð Al-
þýðubandalags og
Kvennalista
Engin niðurstaða fékkst í þess-
um viðræðum, en Alþýðuflokkur
sendi Alþýðubandalagi og Kvenna-
lista drög að málefnasamningi og
æskti svara frá Kvennalista fyrir
miðnætti í gær og frá Alþýðu-
bandalagi á hádegi í dag. Síður er
búist við að svör þessara flokka
verði jákvæð, og þar með eru þeir
út úr myndinni að mati alþýðu-
flokksmanna. Eini kosturinn sem
eftir er, að mati þeirra, er því
myndun ríkisstjórnar Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Framsókn-
arflokks, þar sem þeir hafna
þátttöku í fjögurra flokka ríkis-
stjóm.
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokks sagði er hann
kom af fundi forseta í gær: „Ég
hef sagt það að við ætlum ekki að
gerast þriðja hjól undir vagni frá-
farandi ríkisstjómar og ræðum við
þá flokka því aðeins að það sé
undirskilið að þar sé allt til um-
ræðu: málefnasamningur, verka-
skipting og stjómarforysta."
„Nei, það myndi aldrei verða á
vetur setjandi og aldrei endast,"
svarað Jón Baldvin er hann var
spurður hvort hann teldi fjögurra
flokka ríkisstjóm líklegri úr þessu.
Hann bætti við: „Það er ekkert
annað en pólitískur uppboðsmark-
aður.“ Hann var spurður hvort
hann útilokaði fjögurra flokka
stjóm: „Ég nenni ekki einu sinni
að hugsa um þann kost,“ sagði Jón
Baldvin.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er þetta erindi Alþýðu-
flokksins einskonar aðdragandi að
viðræðum við Framsóknarflokk,
því fæstir reikna með jákvæðum
svörum Kvennalista eða Alþýðu-
bandalags við málefnadrögum
Alþýðuflokks.
Andstaða í röðum
framsóknarmanna við
viðræðum við krata
Heimildir Morgunblaðsins úr
forystu Framsóknar herma aftur á
móti að vilji til viðræðna við Al-
þýðuflokk fari enn minnkandi í
Framsóknarflokki, ef svo má að
orði komast um vilja sem nánast
enginn er. Sömu heimildir herma
að forysta Framsóknar sé nú kom-
in á þá skoðun, nánast einróma,
að eina stjómin sem myndanleg er
sé samstjóm Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks með stuðningi
Stefáns Valgeirssonar. Steingrím-
ur Hermannsson hefur þegar spurt
Stefán Valgeirsson hvort hann
væri reiðubúinn til samstarfs, en
svör Stefáns hafa ekki verið af-
dráttarlaus, þar sem hann sagði
að hann þyrfti að ræða við sína
menn fyrir norðan. Hann mun þó
ekki hafa tekið málaleitan
Steingríms fjarri, en sagt að allt
færi þetta jú eftir málefnum.
Slík stjóm myndi hafa stuðning
32 þingmanna, sem myndi nægja
til þess að fá fjárlög samþykkt og
veijast vantrausti. Framsóknar-
menn myndu að sögn samþykkja
Þorstein Pálsson sem forsætisráð-
herra í slíkri stjóm en sjálfstæðis-
menn munu ekki ýkja ginnkeyptir
fyrir slíku stjómarmynstri og telja
það allt of veika stjóm. Framsókn-
armenn segja aftur á móti að
samstarf við Alþýðuflokk sé nánast
út úr myndinni, þar sem ágreining-
ur flokkanna sé geysilega mikill
og persónuleg andúð í garð Jóns
Baldvins svo mikil og almenn að
hún verði ekki þögguð niður. Aðrir
framsóknarmenn segja þó að and-
úðin sé að mestu leyti til í nösunum
á flokksforystunni, og hún risti
ekki ýkja djúpt. Hún sé eiginlega
blásin upp og mögnuð til þess að
friðþægja svokallaða „landbúnað-
armafíu" Framsóknarflokksins.
Forseti Islands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir á nú um þijá kosti að
velja, samkvæmt mati viðmælenda
minna. Hún getur falið Jóni Bald-
vin umboð til stjómarmyndunar,
gefið lengri frest til óformlegra
viðræðna eða tekið formenn þeirra
þriggja flokka, sem nú er talið
líklegast að geti myndað ríkis-
stjóm, þ.e. Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks, á eintal og gefið þeim
óformleg fyrirmæli um að setjast
nú á rökstóla og reyna að mynda
ríkisstjóm.
Líklegast talið að
Jón Baldvin fái um-
boðið næstur
Líklegast er nú talið að forsetinn
afhendi Jóni Baldvin Hannibals-
syni, formanni Alþýðuflokksins
umboð til stjómarmyndunar og
hallast flestir að því að það verði
þegar í dag. A hinn bóginn telja
menn að hann muni ekki eiga ýkja
árangursríkar viðræður við aðra
flokka, þar sem hann mun einung-
is stefna að myndun þriggja flokka
ríkisstjómar. Sjálfur hefur Jón
Baldvin sagt að fjögurra flokka
ríkisstjórn væri ekkert annað en
pólitískur uppboðsmarkaður og
hann nennti ekki einu sinni að
hugleiða þann möguleika. Fari svo
að Alþýðubandalag og Kvennalisti
svari honum neitandi, (reyndar
benda fyrstu viðbrögð Kvennalista
til þess að svarið verði neikvætt,
samkvæmt mínum heimildum), þá
á hann engra kosta völ. Hann verð-
ur að snúa sér til Framsóknar, og
þar mun hann fá óblíðar viðtökur.
Því er ekki við því að búast að Jón
Baldvin muni halda umboði til
stjómarmyndunar lengi.
Framkvæmdastjóm Alþýðu-
bandalagsins kom saman til fundar
kl. 18 í gær og stóð fundur hennar
í tæpa þrjá tíma. A fundinum fóru
fram ýtarlegar umræður um drög
þau að málefnagrundvelli, sem Al-
þýðuflokkur sendi Alþýðubanda-
lagi til samþykktar eða höfnunar.
Samkvæmt heimildum Morgnn-
blaðsins varð niðurstaða fundarins
sú að Svavari Gestssyni var falið
að ræða við Jón Baldvin og skýra
honum frá þeirri niðurstöðu fram-
kvæmdastjómar að Alþýðubanda-
lagið væri reiðubúið til þess að
ræða við Alþýðuflokkinn um mál-
efni, en flokkurinn væri ekki
tilbúinn til þess að samþykkja að
því væri slegið fyrirfram föstu, að
slíkar viðræður væru undirbúning-
ur að myndun tiltekinnar ríkis-
stjómar. Með öðmm orðum hafnar
Alþýðubandalagið því að slíkar við-
ræður við Jón Baldvin séu undir-
búningur að myndun ríkisstjómar
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks. Má því líta þann-
ig á að þessi tilraun Jóns Baldvins
fari út um þúfur, en Svavar og
hann munu eiga fund fyrir hádegi
nú í dag, þar sem Svavar greinir
honum frá þessari niðurstöðu.
Langvinnar stjórnar-
myndunarviðræður
framundan
Að vísu eru ákveðnir menn í
Alþýðuflokki sem eru ekki sann-
færðir um að svör Kvennalista og
Alþýðubandalags verði með öllu
neikvæð. Benda þeir á að Jón Bald-
vin hafi ekki fengið tækifæri til
þess að ræða við þessa fiokka, með
umboð í höndum og hann hafi talið
að ekki væri fullreynt með mögu-
leika á samstarfí við Kvennalista
þegar Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins sleit formleg-
um stjómarmyndunarviðræðum við
Kvennalista og Alþýðuflokk sl.
miðvikudagskvöld.
Sömu aðilar segjast þó ekki ýlq'a
bjartsýnir, þar sem lögbindingar-
leið lágmarkslauna, sem er
„ófrávíkjanlegt skilyrði" Kvenna-
lista komi ekki til greina af hálfu
Alþýðuflokks.
Forysta Sjálfstæðisflokksins
hefur farið sér hægt um helgina
og ekki staðið í óformlegum við-
ræðum við fulltrúa annarra flokka.
Það sjónarmið er enn rílqandi hjá
forystu Sjálfstæðisflokksins að eini
kosturinn til þess að mynda sterka
ríkisstjóm sé samstjóm Sjálfstæð-
isflokks, Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks, en þar á bæ, sem
annars staðar, gera menn sér vissu-
lega grein fyrir örðugleikum á
myndun slíkrar ríkisstjómar.
Það er þvl ekki við því að búast
að mikil breyting verði á stjómar-
myndunarviðræðum þó að einhver
einn stjómmálaforingjanna fái
formlegt umboð í hendur og fátt
bendir til þess að þjóðin fái starf-
hæfa ríkisstjóm á allra næstu
vikum.
Minning:
Guðrún Jóhanns-
dóttir, Stóru-Tungu
Fædd i.júlí 1897
Dáin 21. maí 1987
í dag fer fram að Staðarfelli í
dölum vestur útför mikillar heiðurs-
konu, Guðrúnar Jóhannsdóttur,
sem um margra ára bil bjó með
manni sínum, Pétri Ólafssyni, að
Stóru-Tungu á Fellsströnd í Dölum.
Guðrún var fædd 1. júlí 1897 á
Þórkötlustöðum í Grindavík. Faðir
hennar, Jóhann Eyjólfur Brynjólfs-
son, var sjómaður og fórst í róðri
1. nóvember 1900, en móðir var
Agnes Ámadóttir, ættuð úr
Grindavík.
Fljótlega eftir þetta hörmulega
slys flutti móðirin með bam sitt frá
Þórkötlustöðum vestur í Staðar-
hverfi í Grindavík og bjó þar að
Móum til ársins 1908. Um það leyti
fluttist Guðrún, komung _að aldri,
á heimili foreldra minna, Ólafíu og
Einars, sem bjuggu í Garðhúsum í
Jámgerðarstaðarhverfi. Afi minn,
Einar Jónsson, og amma, Guðrún
Sigurðardóttir, voru þá enn á lífi
og var unga telpan mjög hænd að
þeim.
Ég man eftir afa mínum frá 1916
til 1918 og tók vel eftir hve blíður
hann var við þessa fallegu ungu
stúlku. Það sama hefur mér verið
sagt um ömmu mína, en eftir henni
man ég svo að segja ekki.
Það gladdi mig, þegar ég fyrir
einum til tveim áratugum varð þess
vísari, eftir áreiðanlegum heimild-
um, að afi minn, sem var nokkuð
vel efnum búinn, hafði eftir að hann
var orðinn rúmfastur sent ungu
stúlkuna, Guðrúnu, með leyndustu
skilaboð til nærliggjandi bæja. Sýn-
ir það best hve vel hann treysti
henni.
Árin liðu og heimilið stækkaði
og alltaf var Guðrún Jóhannsdóttir
á sínum stað.
Menn halda kannski að það sé
hægðarleikur að starfa og vera
Skógræktarferð Kvenfé-
lagasambands Kópavogs
nokkurs ráðandi á stóru heimili,
þegar að heimilisfólkið er farið að
skipta tugum, nei, svo er alls ekki.
í Garðhúsum voru oft um og yfir
30 manns og því í mörgu að snú-
ast. Að vísu var móðir mín kven-
skörungur, en hún þurfti að
sjálfsögðu aðstoðar við og ég held
að varla hafi verið betra samstarf
millum neinna en hennar og Guð-
rúnar. Auðvitað var á hveijum tíma
mikið af afbragðsfólki í Garðhúsum,
því ber ekki að neita, en mér finnst
Guðrún ævinlega bera af.
Þegar að Guðrún Jóhannsdóttir
fór loks alfarin frá Garðhúsum,
ásamt manni sínum, Pétri Ólafs-
syni, sem hún kynntist þar á
heimilinu, og hélt áleiðis til síns
nýja heimilis vestur á Fellsströnd
held ég að margir hafi saknað henn-
ar, en allir óskað henni gæfu og
gengis.
Þess sem ég minnist ekki síst í
fari frú Guðrúnar er hve nærgætin
og góð hún var við okkur börnin á
heimilinu og það fannst mér hald-
ast alla hennar löngu ævi. Varla
kom hún svo í heimsókn hér suður,
eftir að hún flutti vestur, að hún
ekki liti inn til okkar bamanna,
glöð og skemmtileg að vanda.
Þar sem að lífsskoðun mín er sú,
að þótt líkami okkar hverfi af yfir-
borði jarðar við andlát deyji lífið
sjálft ekki gæti því farið svo, að
einhvem tímann í framtíðinni ætt-
um við eftir að hittast á ný á allt.
öðmm vettvangi.
Fjölskyldan frá Garðhúsum send-
ir heimilisfólkinu í Stóm-Tungu á
Fellsströnd dýpstu samúðarkveðjur.
Ólafur E. Einarsson
Á AÐALFUNDI Kvenfélagasam-
bands Kópavogs 28. mars sl. var
samþykkt að tilnefna þrjár konur
í Skógræktarnefnd, eina frá
hverju aðildarfélagi en aðildar-
félögin eru Kvenfélag Kópavogs,
Kvenfélagið Freyja og Kvenfé-
lagið Edda.
Nefnd þessi, sem skipuð er þeim
Soffíu Eygló Jónsdóttur, Jónínu Þ.
Stefánsdóttur og Maríu Magnús-
dóttur, biður konur að fjölmenna
að Einbúa í Kópavogi fimmtudag-
inn 4. júní kl. 20.00 til að hlúa að
og gefa áburð þeim tijáplöntum
sem gróðursettar vom vorið 1985.
Einar Sæmundsson landslags-
arkitekt bæjarins verður einnig á
svæðinu.
Hlúð að tijáplöntunum við Einbúann vorið 1986.