Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Lyngási 7 9 210 Garðabæ S 52193 og 52194
Innritun
Innritun í Fjölbrautaskólann í Garðabæ fyrir
haustönn 1987 stendur nú yfir. Boðið er upp
á kennslu á þessum brautum:
EÐ — Eðlisfræðibraut (4 ára nám)
ET — Eðlisfræðibr. — tölvulína (4 ára nám)
FÉ — Félagsfræðabraut (4ára nám)
FF — Félagsfræðabraut
— fjölmiðlalína (4 ára nám)
F2 — Fiskvinnslubraut (2 ára nám)
HA — Hagfræðabraut (4ára nám)
HT — Hagfræðabr. — tölvulína (4 ára nám)
HE — Heilsugæslubraut (2 ára nám)
ÍÞ — íþróttabraut (4ára nám)
MÁ — Málabraut (4 ára nám)
MF — Málabr. — ferðamálalína (4 ára nám)
MH — Myndmennta-
og handíðabraut (4 ára nám)
NÁ — Náttúrufræðibraut (4ára nám)
TÓ — Tónlistarbraut (4 ára nám)
TÆ — Tæknibraut (3 ára nám)
TT — Tækniteiknun (1 árs nám)
UP — Uppeldisbraut (2 ára nám)
VI — Viðskiptabraut (2 ára nám)
ÞJ — Þjálfunarbraut (2 ára nám)
Umsóknir skal senda til Fjölbrautaskólans
í Garðabæ, Lyngási 7-9, 210 Garðabæ.
Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl.
8.00-16.00, símar 52193 og 52194. Þeir sem
þess óska geta fengið send umsóknareyðu-
blöð. Innritun stendur yfir til 5. júní nk.
Skólameistari er til viðtals í skólanum alla
virka daga kl. 9.00-12.00.
Skólameistari.
fVerzlunarskóli íslands
Innritun 1987 —1988
Nemendur með grunnskólapróf:
Umsóknir, ásamt staðfestum Ijósritum af
grunnskólaskírteinum, skulu hafa borist
skrifstofu skólans fyrir kl. 15.00 föstudaginn
5. júní nk.
Teknir verða inn í 3ja bekk 275 nemendur,
sem er talsverð aukning frá fyrri árum. Ber-
ist fleiri umsóknir verður valið inn í skólann
á grundvelli einkunna þeirra, sem nú eru að
Ijúka grunnskólaprófi, en umsóknir eldri nem-
enda fá víðtækari athugun.
V.í. tekur inn nemendur af öllu landinu og
úr öllum hverfum Reykjavíkur.
Að loknu 2ja vetra námi útskrifast nemendur
með verslunarpróf.
Nemendur með verslunarpróf:
Umsóknir skulu hafa borist eigi síðar en 5.
júní nk. á sérstöku eyðublaði sem fæst á
skrifstofu skólans.
Fyrirhugað er að taka inn í 5ta bekk:
25 nem. í verslunarmenntadeild, 25 nem. í
máladeild, 75 nem. í hagfræðideild og 25
nem. í stærðfræðideild. Námi lýkur eftir 2 ár.
Tilgangur náms í verslunarmenntadeild er
að búa nemendur undir sjálfstæðan atvinnu-
rekstur og almenn skrifstofu- og verslunar-
störf. Námi lýkur með verslunarmenntaprófi.
Máladeild leggur áherslu á latínu og frönsku.
Hagfræðideild leggur áherslu á undirbúning
undir viðskiptanám á háskólastigi. Stærð-
fræðideild leggur áherslu á undirbúning undir
raungreinanám á háskólastigi. Lágmarks-
kröfur til þess að innritast í mála-, hagfræði-
eða stærðfræðideild er verslunarpróf með
aðaleinkunn 6,50. Námi lýkur með stúdents-
prófi.
Fullorðinsfræðsla:
Innritun á haustönn í starfsnám og öldunga-
deild Verzlunarskóla íslands (skrifstofubraut,
bókhaldsbraut, verslunarpróf og stúdents-
próf) fer fram á skrifstofu skólans 3.-5. og
9.-10. júní 1987 kl. 9.00-19.00.
Kenndar verða eftirtaldar námsgreinar:
Bókfærsla, bókmenntir, danska, enska,
franska, hagfræði, íslenska, efna- og eðlis-
fræði, saga, stærðfræði, stjórnun, tölvubók-
hald, tölvufræði, vélritun, verslunarréttur og
þýska.
Skrifstofa skólans er opin til kl. 19.00 og
veitir allar frekari upplýsingar.
Innritun fyrir skólaárið
1987-88
Innritað er á skrifstofu skólans alla virka
daga frá kl. 9.00 til 13.00 og fram til föstu-
dagsins 5. júní, símar 51490 og 53190.
Haustönn 1987
- 2. stig fyrir samningsbundna iðnnema.
- Grunndeild háriðna.
- Grunndeild málmiðna.
- Grunndeild rafiðna.
- Grunndeild tréiðna.
- Framhaldsdeild í rafeindavirkjun 3. og 4.
önn.
- Framhaldsdeild ívélsmíði (iðnvélavirkjun).
- Fornám með starfsívafi. Auk almenns
námsefnis innifelur námið verkefnavinnu í
verknámsdeildum skólans og starfskynningu.
- Tækniteiknun.
- Tækniteiknun með tölvu. Boðnir verða
námsáfangar í tækniteiknun með tölvu
(Autocad) fyrir tækniteiknara og tækni-
menn.
- CNC-tækni (CAM). Áfangar úr námsefni
iðnvélavirkja er fjallar um sjálfvirkni vinnslu-
véla verða í boði fyrir iðnaðar- og tækni-
menn.
- Verkleg þjálfun stúdenta fyrir tækniskóla-
nám.
- Meistaraskóli fyrir byggingariðnaðarmenn.
Vorönn 1988.
Á vorönn bætist við eftirtalið nám:
- 3. stig í hárgreiðslu.
- 1. stig fyrir samningsbundna iðnnema.
- 3. stig fyrir samningsbundna iðnnema.
Samvinnuskólinn Bifröst
Umsóknarfrestur um skólavist í 1. bekk
næsta vetur er til 10. júní nk. Um 30 nýnem-
ar verða teknir í skóla. 1. bekkur samsvarar
3. ári framhaldsskólastigsins og samvinnu-
skólapróf eftir tvö námsár á Bifröst er
hliðstætt stúdentsprófi og veitir rétt til há-
skólanáms.
Inntökuskilyrði almennt verslunarpróf eða
tvö námsár í framhaldsskóla með viðskipta-
greinum. Heimavist og öflugt félagslíf. Mjög
góð námsaðstaða í litlum hópum og fullkom-
in tölvubúnaður.
Allar frekari upplýsinar veitir skólastjóri á
Bifröst í síma 93-5001.
Skólastjóri.
Frá Héraðsskólanum
Reykholti, Borgarfirði
Skólaárið 1987-1988: 9. bekkur fornám,
íþróttabraut, viðskiptabraut, almennt bóknám.
Umsóknarfrestur er til 20. júní.
Allar upplýsingar gefa skólastjóri og yfirkenn-
ari í símum 93-5200, 93-5210 og 93-5201.
fundir — mannfagnaöir |
&&Q ..
Aðalfundur SÁÁ
verður haldinn í safnaðarheimili Langholts-
kirkju þriðjudaginn 9. júní 1987 kl. 17.30.
Aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Ath! 9. júní kl. 17.30 í safnaðarheimili Lang-
holtskirkju.
Stjórnin.
Seltirningar
í kvöld verður rabbfundur meö Vígundi Þorsteinssyni aö afloknum
kosningum, á Austurströnd 3.
Kaffi og konfekt. Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Seltirninga.
liriMDAI IUR
F • U ■ S
Heiðmerkurferð
Hin árlega skógrœktarferð Heimdallar i reit félagsins í Heiðmörk
verður farin miðvikudaginn 3. júní nk. Farið verður frá Valhöll, Háa-
leitisbraut 1, kl. 19.30. Félagar eru hvattir til að mæta.
Heimdallur.
Samvinnubankinn á Akranesi:
Beinlíntisatnband tekið í notkun
Samvinnubankinn á Akranesi
tók í notkun beinlínusamband við
Reiknistofnun bankanna mánu-
daginn 25 maí sl. Beinlínusam-
bandið gerir það að verkum að
öll afgreiðsla verður mun ein-
faldari og fljótvirkari en verið
hefur.
Ömólfur Þorleifsson, útibússtjóri
Samvinnubankans á Akranesi,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þessi breyting hefði það öðm
fremur í för með sér að aliar við-
skiptafærslur bankans færu nú
beint til móðurtölvu Reiknistofnun-
ar og af þeim sökum sparaðist mikil
vinna sem áður þurfti að sinna varð-
andi þær. Starfsfólki er auðvelduð
vinnan og þetta er viðskiptavinum
til mikilla þæginda. Ömólfur sagði
að eðlilega væri þessi breyting stórt
stökk fyrir starfsfólk útibúsins og
tæki það nokkra daga að þjálfast.
Því mætti búast við að afgreiðsla
tæki lengri tíma fyrstu dagana og
vildi hann koma því á framfæri við
viðskiptavini bankaútibúsins að þeir
sýndu biðlund ef afgreiðslan yrði
ekki eins skjót og hún ætti að vera.
Heitt kaffi væri á könnunni í af-
greiðslusalnum og gæti fólk fengið
sér kaffisopa meðan beðið væri eft-
ir afgreiðslu. — JG
Frá afgreiðslu Samvinnubankans á Akranesi.