Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
59
Minning:
Guðbjörg Eiríks-
dóttirfrá Siglufirði
Fædd 30. ágúst 1899
Dáin 22. maí 1987
Guðbjörg Eiríksdóttir frá Siglu-
fírði er látin. Hún var Skagfirðingur
að uppruna, fædd á Hóli í Lýtings-
staðahreppi 30. ágúst 1899. For-
eldrar hennar voru hjónin Jóhanna
Ivarsdóttir og Eiríkur Eiríksson.
Þau áttu fimm böm. Guðbjörg var
þeirra yngst. Hún ólst upp hjá for-
eldrum sínum, fluttist unglingur til
Sauðárkróks að föður sínum látnum
og dvaldist síðan um hríð á Akur-
eyri þar sem hún lærði að sauma.
Ung að árum, 6. maí 1922, gift-
ist Guðbjörg Páli S. Jónssyni
Snorrasonar, hreppstjóra í Auð-
brekku í Hörgárdal. Kona Jóns og
móðir Páls var Sigríður Jónsdóttir
hreppstjóra á Laugalandi á Þela-
mörk Einarssonar. Þegar þau
Guðbjörg og Páll giftust var hann
trésmíðameistari á Sauðárkróki.
Árið 1928 fluttust þau til Siglu-
fjarðar. Þar var Páll um langan
aldur byggingafulltrúi og bæjar-
verkfræðingur. Hann átti dijúgan
þátt í ýmsum framfaramálum Sigl-
firðinga, stjómaði til að mynda
gerð fyrstu steinsteypugatna sem
lagðar vom í íslenskum kaupstað.
Guðbjörgu og Páli varð fjögurra
barna auðið. Stúlku misstu þau í
fmmbernsku en hin vom Haraldur,
trésmíðameistari og kunnur skíða-
kappi og skíðakennari í Reykjavík;
Olga, sem starfar í apóteki og er
húsmóðir í Hafnarfirði; og Sverrir
sem lést fyrir aldur fram.
Heimili Guðbjargar og Páls á
Siglufirði mun ýmsum minnisstætt.
Störf húsbóndans vom þess eðlis
að margur átti við hann erindi
heima og bömin vom öll vinsæl og
vinmörg. Ófáir munu þeir sem áttu
þar góðar og glaðar stundir. Guð-
björg var myndarleg húsmóðir og
þeirrar gerðar að fólki leið vel í
návist hennar. Þó að heimilið væri
verksviðið og tíðum umfangsmikið
gaf hún sér þó tíma til þess á sumr-
in „að vera í síld“ eins og títt var
um siglfirskar húsmæður á þeim
dögum.
Frá Siglufirði fluttust þau Guð-
björg og Páll árið 1953 til
Reykjavíkur og nokkm síðar til
Hafnarfjarðar. Páll lést 6. ágúst
1965 og eftir það var Guðbjörg á
vegum dóttur sinnar og tengdason-
ar, Þorbergs forstjóra Ólafssonar.
Guðbjörg Eiríksdóttir var gerð
úr því efni sem
„bognar aldrei - brotnar i
bylnum stóra seinast.“
Ég hef ekki kynnst konum sem
þolað hafa meiri harma en hún.
Ung missti hún komunga dóttur
sem fyrr segir. — Yngri sonur henn-
ar, óvenjulega vel gerður drengur
og hið besta mannsefni, lést af slys-
fömm 16 ára. Það var reiðarslag —
ekki einungis fyrir fjölskylduna
heldur alla sem höfðu haft einhver
kynni af unga, bjartleita dreng-
skaparmanninum, Sverri Pálssyni.
— Nokkmm ámm síðar ber sorgin
enn að dymm. Ungur tengdasonur
hennar, Thormod Larsen, dmkknar
og lætur eftir sig konu og son. —
Þá verður nokkurt stormahlé. Fjöl-
skyldan flyst suður, eins og það var
kallað á Siglufirði, og hér á hún
góð ár. Guðbjörg eignast nýjan
tengdason, einstakan öndvegis-
mann sem reynist gömlu hjónunum
styrkur vinur. En „allir dagar eiga
kvöld". Páll Jonsson deyr um miðjan
sjöunda áratuginn. — Ekki löngu
síðar fellur í valinn sonarsonur
hennar og ber sá nafn Sverris heit-
ins. — Og enn heggur sá er engum
vægir í sama knémnn. Haraldur
Pálsson, einn Qölhæfasti skíðamað-
ur sem íslendingar hafa átt, verður
bráðkvaddur að lokinni hressingar-
göngu á skíðum skömmu fyrir jól
1983.
Guðbjörg Eiríksdóttir tök örlög-
um ástvina sinna sem hetja. Hún
bognaði ekki. Hún lagði ekki árar
í bát. Hún stutti þá sem eftir lifðu,
var fundvís á sólskinsbletti í heiði,
naut þess að vera til þó að heilsu-
brestur ýmiss konar bagaði hana
nokkuð síðustu árin.
Nú er hún horfin okkur. En eftir
lifa minningar um þrekmikla dugn-
aðarkonu. Eftir lifa minningar um
fórnfysi og kærleika, gleði og bjart-
sýni. Eftir lifa minningar um árin
góðu við „fískisæla fjörðinn". í Ijósi
þeirra kveðjum við Guðbjörgu
Eiríksdóttur með virðingu og þökk
og biðjum niðjum hennar og öðrum
ástvinum blessunar Guðs.
Ólafur Haukur Árnason
Kveðja til ömmu
Á yndislegum vormorgni kvaddi
elskuleg amma okkar, Guðbjörg
Eiríksdóttir, jarðneskt líf og hélt til
æðri heima. Hún var vel undirbúin
fyrir þessi vistaskipti, með staðfasta
trú á Guð sinn og líf eftir dauðann.
Góða og langa á hún lífssöguna.
Hún fæddist á Hóli, Lýtingsstaða-
hreppi í Skagafírði, þann 30. ágúst
1899. Foreldrar hennar voru hjónin
Jóhanna ívarsdóttir og Eiríkur
Eiríksson. Þau eignuðust fímm börn
og var amma yngst þeirra.
Hún tilheyrði aldamótakynslóð-
inn svokölluðu og mundi tímana
tvenna. Uppvaxtarár hennar voru
erfið frá sjónarhomi nútímans. Þá
gekk lífíð út á það að hafa í sig og
á. Amma var mikil búkona, tamdi
sór nákvæmni og nýtni og snyrti-
mennsku við öll sín verk, og ekkert
verk var svo lítið, að ekki skyldi til
þess vandað og í öllu kom til hjálp-
ar skarpskyggni hennar og mikil
verklagni. Ur höndum hennar
spratt, þó háöldruð væri, fínleg
handavinna, bæði útsaumur, hekl
og pijónavörur, sem ber hagleik
hennar fagurt vitni.
Mynd hennar er skýr í hugum
okkar. Hún var stoltið okkar, glæsi-
leg kona og virk fram til hinztu
stundar. Hún bar þess ekki merki
að vera háöldruð. Hún var kona sem
lifði lífínu lifandi, með brennandi
áhuga á öllu því er gerðist í kring-
um hana, ekki sízt þjóðmálunum.
Hún hafði fastmótaðar skoðanir,
var rökföst í umræðum og glöggt
auga hennar sá eldsnöggt út aðalat-
riðin.
Amma okkar var hæg í fram- -
göngu, en föst fyrir, hún átti þó
létta lund sem létti fyrir henni þeg-
ar sorgin kvaddi dyra, því hún fór
ekki varhluta af henni.
Síðustu æviárin dvaldist hún á
Hrafnistu í Hafnarfírði og þar leið
henni mjög vel. Hún naut þess að
geta sótt skemmtanir og dansleiki
sem haldnir voru öldruðum. Þá átti
hún það til að taka í munnhörpuna
sína og leika lag á góðra vina fund-
um og á meðal ættingjanna.
Við kveðjum ömmu okkar með
virðingu og einlægri þökk. Hún var
okkur lífsgæfa. Bamabörn
Blómmtofa
FriÓfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar við öil tilefni.
Gjafavörur.
Legsteinar
ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiöjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjöröur
ab-mjólk
er öllum góð!
Það skilurðu þegar
þú hefur lesið textann á
umbúðunum. Hún er kalk- og
próteinrík eins og aðrar
mjólkurafurðir og kjörin sem
morgunverður eða skyndi-
máltíð, í hádegi eða að kvöldi,
þá ýmist með blöndu af
korni og ávöxtum
eða ávaxtasafa.
ab-mjólk
fyrir þinn innri
mann!