Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 60
Y86I ÍVIUL .2 aU0ACIU(.QI8qt .QIQA.ia(4UOflOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
18
60
t
Móðir min og amma okkar,
SVAVA SIGURBJÖRNSDÖTTIR,
Laugarásvegl 39,
Reykjavik,
andaðist í Borgarspítalanum laugardaginn 30. maí.
Ulja Huld Sœvars,
fna Karlotta Ámadóttir,
Svava Kristín Ámadóttir.
t
SIGURGEIR MAGNUSSON
frá Hólavöllum, Fljótum,
fyrrv. verkstjóri við Skeiðfossvirkjun,
lést 30. maí í Sjúkrahúsi Siglufjarðar.
Jarðarförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju föstudaginn 5. júní kl. 2 e.h.
F.h. vandamanna,
Lfney Bogadóttir,
Steinunn Sigurgeirsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
ÓSKAR A. SIGURÐSSON
bakarameistari,
Feilsmúla 4,
lést í Vífilsstaðaspítala 31. maí.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Hrefna Pálsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
BALDVIN BALDVINSSON,
Kleppsvegi 38,
Reykjavfk,
lést i Borgarspítalanum laugardaginn 30. maí.
Þrúður Finnbogadóttir.
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
GUÐMUNDUR FINNBOGASON
járnsmiöur,
Grettisgötu 20b,
andaðist laugardaginn 30. maí. Útförin auglýst síðar.
Dœtur og tengdabörn.
t
Eiginmaður minn,
ÓSKAR ÍSAKSEN
bifreiðarstjóri,
Ásvallagötu SB,
lést í Borgarspítalanum 31. maí.
Margrét ísaksen.
t
Móðir okkar,
ÞÓREY PÉTURSDÓTTIR,
Laugavegi 70b,
Reykjavfk,
andaðist í Landspítalanum 31. maí.
Börnin.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÞÓRDÍS EINARSDÓTTIR STRAND,
Stigahlfð 22,
verður jarösett frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 3. júní kl. 13.30.
Einar Strand,
Erla Einarsdóttir Strand,
Einar Þór Strand.
Unnur Tryggvadóttir
frá Völlum — Minning
Bróöir okkar og mágur, t
GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON
frá Bolungarvík,
Jaðarsbraut 41, Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 4. júní kl.
11.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðriður Halldórsdóttir, Halldór Guðmundsson,
Margrét Halldórsdóttir, Benedikt Jónsson,
Kristin Halldórsdóttir, Guðmundur Sigurjónsson,
Ásta Halldórsdóttir, Ósk Ólafsdóttir.
Fædd 27. desember 1907
Dáin 24. maí 1987
Bjartur vormorgunn um Eyja-
§örð. Að kvöldi leggur þoku frá
hafí, sem byrgir sýn.
Þennan dag, 24. maí sl., lagði
harmskugga yfir fjölskyldu okkar.
Unnur Tryggvadóttir, húsfreyja á
Byggðavegi 101A á Akureyri, and-
aðist 79 ára að aldri. Hún var
fóstursystir mín og náfrænka, ákaf-
iega kær öllum vandamönnum og
fjölda vina.
Davíð skáld Stefánssona segir á
einum stað:
Hveiju sem ár
og ókomnir dagar
að mér víkja,
er ekkert betra
en eiga vini,
sem aldrei svílg'a.
Þessi sannindi óma í minni, er
við kveðjum þessa ljúfu konu. Unn-
ur Tryggvadóttir fæddist 27.
desember 1907, dóttir hjónanna
Nönnu Amgrímsdóttur (málara) og
Tryggva Kristinssonar, kennara og
organista. Hún var yngri dóttir
þeirra, sú eldri, Kristím Hólmfríður,
dó tvítug að aldri úr berklum. Ekki
naut Unnur lengi móður sinnar, því
að hún andaðist 10. apríl 1908. Þá
tóku foreldrar mínir hana í fóstur,
en faðir hennar var föðurbróðir
minn. Hjá þeim ólst Unnur upp á
Völlum í Svarfaðardal og var hvers
manns hugljúfi. Móðir mín hafði
eftir Sæmundi bróður mínum á
bemskuárum þeirra: „Ekki veit ég
hvemig við hefðum farið að, ef við
hefðum ekki fengið hana Unni
litlu."
Unnur var kát, orðheppin, órög
til Ieikja og rösk til starfa, er fram
liðu stundir. Aðeins eins árs aldurs-
munur var á henni og Ingibjörgu
systur minni og vom þær alla ævi
ákaflega samrýndar og veit ég ekki
til að nokkum tíma kæmi upp miss-
ætti þeirra á milli. Þær sóttu saman
bamaskóla til Dalvíkur, þar sem
Tryggvi frændi var kennari og
dvöldu þá á heimili móðurbróður
Unnar, Angantýs Amgrímssonar,
og konu hans, Elínar Tómasdóttur
prests á Völlum. Þykist ég vita að
sú tilhögun hafi að nokkru ráðist
til þess, að styrkja samband Unnar
við föður hennar og systur.
Unnur sótti einn vetur nám í
Kvennaskólanum á Blönduósi og
vissi ég ekki til að hún æskti frek-
ari skólagöngu. Dvaldist hún því
nær alla æsku sína á Völlum, nema
hvað hún fór öðru hverju til föður
síns, eftir að hann flutti til Siglu-
fjarðar og var þar nokkra mánuði
í senn. Þar var líka fyrir mikil
frændmennafjöld. Tryggvi byggði
sér hús áfast við hús Jóns bróður
síns og varð sú fjölskyldugrein því
einnig mjög nátengd Unni. Seinna
var hún líka á vist með frændkonu
okkar, Þóm Jónssdóttur, og manni
hennar, Pétri Bjömssyni, kaup-
manni á Siglufirði.
Unnur hafði ákaflega fallega
söngrödd og langaði föður hennar
til þess að hún þjálfaði hana og
fékk hana til að dveljast vetrartíma
á Siglufirði til að njóta handleiðslu
Sigurðar Birkis söngmálastjóra. En
lengra vildi hún ekki sækja á þeirri
braut. Nutum því aðeins við í heima-
sveitinni þessarar fögm raddar í
kirkjusöng og við fleiri tilefni.
Hinn 15. ágúst 1936 giftust þau
Unnur og Jakob Tryggvason organ-
isti, og stóð brúðkaup þeirra á
heimili Þóm og Péturs Bjömssonar.
Ekki vom það nein skyndikynni,
því Jakob var frá ungum aldri org-
anisti í Svarfaðardal, ákaflega
handgenginn föður mínum og kær
allri fjölskyldunni. Þau bjuggu í
Reykjavík til ársins 1941, er þau
fluttu til Akureyrar, er Jakob tók
við starfi kirkjuorganista þar,
ásamt kennslu og mörgum öðmm
störfum að tónlistarmennt. Jakob
stundaði um skeið framhaldsnám í
London og dvaldi Unnur þar hluta
af námstímanum, ásamt dætram
þeirra ungum. Að öðm leyti hafa
þau búið óslitið á Akureyri í rösk-
lega 45 ár.
Unni og Jakob varð þriggja bama
auðið. Elst er Nanna Kristín tónlist-
arkennari, gift Gísla G. Kolbeins-
syni, þá Soffía Guðrún leikkona,
sem gift var Pétri Einarssyni, og
yngstur er Tryggvi Kristinn kenn-
ari, kvæntur Svanhildi Jóhannes-
dóttur leikkonu. Bamaböm eiga
þau sex.
Ekki er mér gmnlaust að fleiram
hafí farið eins og mér af þeim, sem
náin kynni höfðu af þeim hjónum
báðum, að líta á það sem eitthvert
náttúmlögmál að þeirra heimili yrði
sem foreldrahús. Þó að ég hafí ekki
kunnugleika til að dæma um það,
þykir mér ólíklegt að Unnur hafí
veirð kröfuhörð við flölskyldu sína
sér til handa. Ég held það hafi ver-
ið eðlislægur þáttur í skapgerð
hennar að vera jafnan veitandi,
jafnt við skylda sem vandalausa.
Ljúflyndi hennar, hjálpsemi og hlut-
tekning í annarra kjömm var svo
djúpstæð, að aldrei örlaði á öðm
en að heimilið væri þeim opið, sem
þangað leituðu, jafnt í gleði sem
harmi. Þangað komu nemendur
Jakobs, vinir bamanna, bamaböm-
in og vinir þeirra. Þar held ég að
hafí lítið borið á kynslóðabilinu.
Nú fækkar óðum frændum og
vinum, sem vom jafnaldrar okkar
Vallasystkina, og er það í samræmi
við lífsins lögmál, að hveijum er
mælt æviskeið, mislangt að vísu.
En margt er að þakka þeim, sem
með elskusemi gerðu bersku og
æsku þannig, að ljúft er að minnast
flestra stunda frá því skeiði.
Þar í átti hún Unnur okkar sinn
stóra hlut og sannari kveðju fínn
ég henni ekki en þá, sem felst í
vísuorðum Davíðs og ég vitnaði til
hér að framan.
Blessuð sé minning góðrar konu.
Sigríður Thorlacius
Systraminning:
Steinþóra Grímsdóttir
Siglinn Grímsdóttir
Steinþóra
Fædd 16. apríl 1896
Dáin 17. maí 1987
Siglinn
Fædd 15. október 1904
Dáin 13. maí 1987
Okkar ástkæm móðursystur
verða í dag lagðar til hinstu hvílu.
Löng ævi er að baki og söknuðurinn
er mikill en minningin um þær mun
aldrei gleymast.
Steinþóra Grímsdóttir fæddist í
Nikhól í Mýrdal 16. apríl 1896 og
var hún því 91 árs þegar hún dó.
Hún andaðist á Hrafnistu í
Reykjavík 17. maí sl. Þökk til þeirra
sem önnuðust hana í erfiðum veik-
indum hennar.
Siglinn Grímsdóttir var fædd í
Nikhól í Mýrdal 15. október 1904
og var hún því 83 ára þegar hún
lést. Siglinn andaðist skyndilega 13.
maí sl. Það urðu því aðeins 14 dag-
ar á milli þeirra.
Þær vom saman alla ævi og sam-
ferða í síðustu ferðina. Foreldrar
þeirra vom Grímur Sigurðsson,
bóndi í Nikhól og kona hans Vil-
borg Sigurðardóttir.' Grímur og
Vilborg eignuðust 13 börn, þau em
nú öll látin, nema Vilhjálmur, sem
lifir í hárri elli í Kanada.
Steinþóra giftist Guðjóni Guð-
mundssyni, skipstjóra, en hann
fórst með b/v Svíða sem fórst með
allri áhöfn í desember 1941 og var
það mikið áfall fyrir elsku Þóm.
Þóra og Guðjón áttu yndislegt og
fallegt myndarheimili. Þau eignuð-
ust 3 syni, Steingrím, skrifstofu-
mann, kvæntan Hrefnu Karlsdótt-
ur, Eyjólf, skipstjóra, kvæntan
Sigurrós Guðjónsdóttur og Guðjón,
markaðsstjóra, kvæntan Auði Ell-
ertsdóttur.
Við systumar þökkum þeim móð-
ursystmm okkar fyrir allt gott. Þær
tóku alltaf vel á móti okkur og einn-
ig vom þær okkur mikill styrkur
þegar við misstum móður okkar á
unglingsámm. Við vitum að það
verður vel tekið á móti þeim og
biðjum Guð að geyma þær.
Við sendum elskulegum frænd-
um okkar og fjölskyldum þeirra
innilegar samúðarkveðjur.
Lilla og Adda