Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 70
T’?
70
■vr'Tr í nn/rnrrir*- ;3i^;.,nvinrow
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
Flateyrarhreppur:
Gatnagerð og um-
hverfísmál í fyrirrúmi
Mikil atvinna en skortur á húsnæði
Flateyri.
MEGIN viðfangsefni sveitarfé-
lagsins á þessu ári verða á sviði
gatnagerðar og umhverfismála
að sögn sveitarstjóra og odd-
vita Flateyrarhrepps. Eitt
einbýlishús er í byggingu i
hreppnum á bænum Fremri-
Breiðdal. Einnig er unnið við
byggingu nýrrar bensínstöðvar
á vegum Olíufélagsins hf. við
innkeyrsluna inn í þorpið. At-
vinna hefur verið afar mikil og
mikii eftirspurn eftir húsnæði.
Framkvæmdir á vegum fyrir-
tækja eru þær helstar að Olíufé-
lagið hf. er að leggja síðustu hönd
á byggingu nýrrar bensínaf-
greiðslu, við innkeyrsluna inn í
þorpið. Eldri afgreiðslustaður fé-
lagsins var fyrr á þessu árin
gefínn slysavamadeildinni á
staðnum. Björgunarsveit deildar-
innar mun fá þar inni og mun
aðstaða hennar verða allt önnur
og betri en í núverandi húsnæði.
Vorverk hófust hér strax í byrj-
un maí. Vorhreinsun er langt á
veg komin og þegar eru hafnar
framkvæmdir við ræktun og fegr-
un þorpsins. Sumarið 1985 var
Jón Bjömsson landslagsarkitekt
fenginn til þess að skipuleggja
útivistarsvæði á tveim stöðum í
plássinu. Annars vegar er það
hinn gamli „Græni garður", og
hins vegar umhverfí kirkjunnar
og heilsugæslustöðvarinnar. Nú í
sumar verður áfram unnið við að
hrinda þessum hugmyndum í
framkvæmd og er þegar byrjað á
síðamefnda svæðinu. Á árinu
1986 voru Flateyrarkirkju gefnar
250 þúsund krónur frá Sparisjóði
Önundarfjarðar, til þess að fegra
umhverfí hennar og mun sveitar-
félagið annast framkvæmdir.
Sveitarstjóri er Kristján Jón
Jóhannesson og oddviti hrepps-
nefndar er Ægir E. Hafberg.
Fréttaritari Morgunblaðsins hitti
þá að máli fyrir framan heilsu-
gæslustöð og elliheimili staðarins,
þar sem þeir fylgdust með jarð-
Stærsta verkefni sumarsins er vinna við gatnagerð. Fyrirhugað
er .að leggja bundið slitlag á Brimnesveg og Hjallaveg.
Ægir E. Hafberg oddviti, Kristján Jón Jóhannesson sveitarstjóri
og Þórleifur Ingvarsson verksljóri fylgjast með jarðvegsvinnu
vegna fegrunarframkvæmda.
vegsvinnu vegna fegmnarfram-
kvæmda. Að þeirra sögn verður
stærsta verkefri sumarsins vinna
við gatnagerð. Fyrirhugað er að
leggja bundið slitlag, svokallaða
klæðningu, á Brimnesveg, Hjalla-
veg og ef til vill víðar.
Af öðmm framkvæmdum árs-
ins nefndu þeir Kristján og Ægir,
að ef framlag fæst úr Ofanflóða-
sjóði þá verði áfram unnið að
gerð snjóflóðavama í Eyrarfjalli,
ofan við íbúðabyggðina. Eins og
lesendum Morgunblaðsins er
kunngt af fréttum frá í vetur, þá
féllu nokkur snjóflóð ofan við
efstu húsin á eyrinni á síðastliðn-
um vetri. Framlag fékkst á ijár-
lögum ríkisins til undirbúnings-
framkvæmda við byggingu
bamadagheimilis, en núverandi
húsnæði er langt frá því að upp-
fylla núgildandi kröfur um slíka
stofnun. Auk þess er dagheimilið
í eigu kvenfélagsins Brynju.
íþróttahús er í byggingu, áfast
sundlaug sem þegar er í notkun.
Útveggir íþróttahússins em vel á
veg komnir, en framkvæmdir em
ekki hafnar á þessu ári.
Að lokum vildu forsvarsmenn
sveitarfélagsins taka fram að mik-
il atvinna hefði verið allt þetta
ár. Eftirspum eftir húsnæði væri
mikil og svo virtist sem sókn til
búsetu hér væri vaxandi, eftir
vemlega fækkun íbúa undanfarin
tvö ár. Ekki hefur verið unnt að
anna eftirspum eftir leiguhúsnæði
á þessu ári. Aðeins er eitt íbúðar-
hús í byggingu í hreppnum, á
bænum Fremri-Breiðdal og er þar
ennfremur verið að byggja stóra
vélaskemmu.
- EFG
Bjarnarfj örður:
Endurbætur á skólahúsi og
félagsheimilimi á Klúku
Þar verður rekið hótel í sumar
Laugurhóli, Bjaraarfirði.
Hlutfallslega miklar fram-
kvæmdir standa nú yfir í Bjarn-
arfirði miðað við íbúafjölda þar.
Nýlega er lokið við byggingu
refahúss í Framnesi, þá er verið
að ljúka byggingu sundskýlanna
við Gvendarlaug á Laugarhóli,
og langt komið byggingu nýs
íbúðarhúss á Klúku. Framundan
eru svo endurbætur á skólahús-
næðinu og félagsheimilinu á
Laugarhóli fyrir um hálfa millj-
ón króna.
Framkvæmdir hér í Bjamarfírði
hafa verið mestar í byggingum á
undanfömum ámm. Hafa verið
byggð ný íbúðarhús á Hóli, sem er
einkaelliheimili Ingimundar Ingi-
mundarsonar frá Svanshóli, og á
jörðinni Klúku, en þar býr Pálmi
Sigurðsson. Þá er einnig að ljúka
S>yggingu sundskýlanna við Gvend-
arlaug, hjá Klúkuskóla.
íbúðarhúsið á Hóli og sundskýlin
em byggð af Ólafí Ingimundarsyni
á Svanshóli. Verktaki með honum
við sundskýlabygginguna er Magn-
ús Rafnsson á Bakka. Sundskýlin
vom vígð til notkunar 9. maí síðast-
liðinn en eftir er að ganga frá
umhverfí þeirra og sundlaugarinn-
ar.
Öllum þessum húsum er það sam-
eiginlegt að vera timburhús og að
notaður er jarðvarminn á staðnum
til kyndingar þeirra. Er hann lagður
í sérstakt kerfí af slöngum í gólfum
húsanna og hefir gefist einstaklega
vel.
Þá er þessa dagana verið að hefj-
ast handa um viðamiklar endurbæt-
ur á skólahúsnæði og félagsheimil-
inu á Laugarhóli. En þar ætla konur
í Bjamarfirði að reka sumarhótel
Margir mættu við vígslu sundskýla á Laugarhóli. Lengst til vinstri
er Ríkarður Másson sýslumaður.
nú í sumar. Em þegar komnar mikl-
ar pantanir og virðast því margir
ætla að njóta fegurðar og kyrrðar
í Bjamarfírði í sumar. Á fjárlögum
þessa árs vom veittar krónur 800
þúsund til endurbóta við skólana á
Laugarhóli og Drangsnesi.
Refabændur í Bjamarfirði, en
þeir em þrír, hafa ásamt öðmm
komið sér upp fóðurblöndunarstöð
á Hólmavík sem rekin er sem hluta-
félag. Sendir fóðurblöndunarstöðin
svo fóðrið tilbúið heim á bæina.
Kom nokkmm sinnum fyrir í vetur,
að hún varð að leigja snjómoksturs-
tæki til að þetta væri hægt og láta
ryðja veginn um Bjamarfjörð og
Bessastaðaháls.
Þá hefír nýlega verið haldinn
fundur á Hólmavík á vegum Orku-
stofnunar. Þar fara fram rannsókn-
ir á jarðhita og fersku vatni til
fískeldis. Meðal ákjósanlegra staða
til slíkra hluta er Bjarnarfjörður.
Ámi Hjartarson hjá Orkustofnun
sagði að unnið verði að rannsóknum
varðandi þetta verkefni í sumar.
Auk þess verða helstu fram-
kvæmdir í sumar við að ganga frá
umhverfí sundlaugar og bygginga
á Laugarhóli. Þá verður einnig
rekstur sumarhótelsins lyftistöng
fyrir atvinnu kvenna í Bjamarfírði.
- SHÞ.
INNLENT
Frá framkvæmdum við nýju höfnina í Skipavík. Morgunbiaðið/Ámi
Hafnarframkvæmdir í Hólminum:
Ymsir horfa kvíðnir á
breytingn hafnarinnar
Stykkishólmi.
SMÆRRI bátunum i Stykkis-
hólmi fjölgar jafnt og þétt og á
meðan kvótinn nær ekki til
þeirra verður sjálfsagt fram-
hald á slíku. Annars stunda þeir
nú mest grásleppuveiðina sem
hefir verið með betra móti um
þessar slóðir og ef ekki kemur
eitthvað sérstakt fyrir má búast
við góðri vertíð, uppbót á vertí-
ðina í fyrra, sem var með lakari
móti.
Allir þessir bátar þurfa svo góða
höfn og það hefír verið höfuðverk-
urinn undanfarin ár og margir
möguleikar til umræðu, því svo
fetur farið að ein höfn dugi ekki.
vetur hafa verið miklar umræður
um hvernig nýting gömlu hafnar-
innar yrði sem best. Hefír verið
hugað þar að skjólgarði og innan
hans gæti svo orðið góð lega fyrir
báta. Með þetta í huga hefír verið
byrjað á garði í átt til Súgandiseyj-
ar. Eru þetta miklar framkvæmdir,
sem verða unnar í áfongum og sjálf-
sagt ráða þar um fjármunir sem
fást til slíks.
Ýmsir horfa kvíðnir á breytingu
hafnarinnar, sem er bæði hin feg-
ursta og eðlilegasta, en þessi
framkvæmd hefír verið í athugun
lengi og mikil vinna og fyrirhöfn
að baki, þar sem sveitarstjórinn
okkar, Sturla Böðvarsson, hefír
ásamt hafnarnefnd og ekki síst
Pétri Ágústssyni formanni hennar,
unnið þama mikið starf. Öllum hér
um slóðir og þeim sem á þurfa að
halda er mikið í mun að vel takist.
— Árni