Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 22
föstud. 12. júní kl. 10°° fyrir utan Höfða í
Reykjavík. Flutt verður tónlist og stutt
ávörp. Vertu með f að stuðla að friði og
taktu þátt í lengsta boðhlaupi sögunnar.
55 þjóðir taka þátt í þessu 43.000 km friðar-
hlaupi, en 3000 km koma í hlut íslands.
Hlaupið verður um land allt og lýkur hlaup-
inu í Reykjavík sunnud. 28. júní með
skemmtun á Lækjartorgi.
Öllum er heimil þátttaka og eru eindregið
hvattir til að mæta og hlaupa fyrsta spölinn
með kyndilberanum.
Nánari upplýsingar í íþróttamiðstöðinni
Laugardal. Símar 689725 og 689726.
STÍGÐU SKREF
í ÞÁGU FRIÐAR
EFTIRTAUN FYRIRTÆKISTYRKJA FRIÐARHLA UPIÐ:
KORPUS HF
PRENTSMIÐJAN ODDI
KASSAGERÐ REYKJA VÍKUR
SAMVINNUBANKINN
LANDSBANKINN
IÐNAÐARBANKINN
BÚNAÐARBANKINN
FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN
SAMVINNUFERÐIR-LANDSÝN
FLUGLEIÐIR
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ
JAPIS HF.
DAVÍÐ S. JÓNSSON
OSTA OG SMJÖRSALAN
MJÓLKURSAMSALAN
RADÍÓBÚÐIN
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í heilræðum frá síðustu öld má fínna
mörg snilliyrðin.
Betra er þunnt brauð hjá sér, en
steiktarteprur hjá stórhöfðingjum,
segir á einum stað.
Úr heilræði þessu má þó lesa dýpri
merkingu, eins og hvatningu til
nægjusemi og sjálfstæðis, einnig
stolt og mannlega reisn. Heilræðið
getur því jafnt átt erindi til lands-
manna í dag sem fyrrum.
„Steikarteprur" getum við svo
eldað fyrir okkur sjálf, í stórhöfð-
ingjastíl að sjálfsögðu. Steikumar í
dag eru úr fiski.
Ofnsteiktar
lúðusteikur
1 kg lúða, skorin í 2 cm þykkar
sneiðar
V4 tsk. paprika
V4 tsk. rifínn laukur
V2 sítróna, safínn
50 gr smjörlíki
salt og pipar
1. Smjörlíkið er brætt, blandað
er út í feitina papriku, rifnum lauk
og sítrónusafa.
2. Lúðusteikunum (heilum eða
skomum) er komið fyrir á eldföst-
um diski og er feitiblöndunni hellt
yfír steikumar og þær marineraðar
í u.þ.b. 15 mínútur.
3. Lúðusteikumar eru síðan sett-
ar undir grill í ofni og steiktar í 5
mínútur á hvorri hlið. Marinaðinu
ausið yfír fískinn nokkrum sinnum
á bökunartíma.
4. Berið fram með soðnum kart-
öflum og hrásalati eins og t.d.
rifnum eplum og rifnum gulrótum,
jógúrt og sítrónusafa.
Á björtum sumardögum hæfír
vel höfðinglegri íslenskri steik
ferskur eftirréttur eins og:
Rabarbarapæ
Fyrst er útbúin pæskel.
1 V2 bolli hveiti
V2 bolli smjörlíki
5 msk. ískalt vatn
1. Smjörlíkið er unnið upp í
hveitið en mjög gróft. Það er síðan
unnið saman með vatninu og hnoð-
að létt. Deig eins og þetta sem
notað er sem pæbotn á að með-
höndla sem allra minnst svo botninn
verði sem stökkastur.
2. Deigið er sfðan flatt út á plötu
og unnið frá miðju þannig að það
verði stökkara. Þegar búið er að
fletja það út hæfílega þunnt er það
sett á botn og hliðar pæmóts, einn-
ig er ágætt að nota djúpt tertu- eða
kökumót. Þá er útbúin fylling:
1 bolli sykur
V4 bolli hveiti
V4 tsk. múskat
3 egg, léttþeytt
500 gr rabarbari
1. Blandað er saman hveiti, sykri
og múskati og það síðan þeytt með
eggjunum. Rabarbarinn er skorinn
í 2ja—3ja cm stóra bita og þeim
hrært saman við.
2. Fyllingin er síðan sett út í
brauðklætt mótið og er afgangurinn
af deiginu flattur út og skorinn í
ræmur. Þær eru lagðar á ská yfír
fyllinguna og þannig mótaðir tíglar.
3. Rabarbarapæið er síðan bakað
í 220 gráðu heitum ofni í 50—60
mínútur.
Berið fram kælt.
Verð á hráefni
lkgstórlúða ... kr. 270,00
1 sítróna ... kr. 15,00
3 egg ....... kr. 33,00
Kr. 318,00