Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 4

Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987 Umsækjandi um presta- kall óskar nafnleyndar BISKUP íslands auglýsti nýlega sjö prestaköll laus til umsóknar. Umsóknir bárust um sex þeirra og hefur einn umsækjendanna óskað nafnleyndar. Samninganefndir Stéttarfé- lags verkfræðinga og Félags ráðgjafarverkfræðinga undirrit- uðu nýjan kjarasamning á miðnætti aðfaranótt föstudags og um leið var frestað verkfalli verkfræðinga sem staðið hafði í rétta viku. í samtali við Morgunblaðið vildi Högni Jónsson formaður Stéttarfé- lags verkfræðinga lítið tjá sig um Sá sem óskaði nafnleyndar var eini umsækjandinn um Bólstaðar- hlíðarprestakall í Húnavatnspróf- astsdæmi. Aðrir umsækjendur eru: Jón ísleifsson, cand. theol. í samninginn, en félagsfundur er fyr- irhugaður í næstu viku þar sem samningurinn verður kynntur. Þó sagði Högni að verkfræðingar hefðu slegið mikið af kröfum sínum en ekki hefði verið reiknað út hvaða meðalhækkun þeir hefðu fengið á endanum. Högni sagðist engu geta spáð um hvort þessi samningur yrði sam- þykktur í félaginu. Reykjavík, sem sækir um Sauð- lauksdal í Barðastrandarprófasts- dæmi, Sr. Flosi Magnússon, settur prestur á Bíldudal, sem sækir um Bíldudal í Barðastrandarprófasts- dæmi, Sr. Bjami Th. Rögnvaldsson í Reykjavík, sem sækir um Prests- bakka í Húnavatnsprófastsdæmi, Ægir Fr. Sigurgeirsson, cand. the- ol. í Hafnarfírði, sem sækir um Höfðakaupstað í Húnavatnspróf- astsdæmi og Hulda Hrönn M. Helgadóttir, cand. theol. í Reykja- vík, sem sækir um Hrísey í Eyja- § arðarprófastsdæmi. Enginn sótti um Raufarhöfn í Þingeyjarprófastsdæmi. Samkvæmt nýjum lögum um veitingu prestakalla verða kjör- mönnum, þ.e. sóknamefndarmönn- um og varamönnum þeirra, fljótlega send gögn varðandi umsækjendur. Viðkomandi prófasti verður síðan falið að boða kjörmenn prestakalls- ins á sameiginlegan fund þar sem val sóknarprestsins fer fram. V erkfræðingar skrifuðu undir VEÐURHORFUR í DAG, 13.06.87: YFIRLIT á hádagl í gær: Um 1100 km suðsuövestur í hafi er 1035 millibara hæð og önnur heldur minni fyrir norðan Jan Mayen. Yfir vestanverðu Grænlandshafi er dálítið iægðardrag. SPÁ: Vestan gola um vestanvert landið en hæg norðlæg eða breytileg átt í öðrum landshlutum. Lóttskýjað verður með köflum inn til landsins á suður-, noröur- og norðausturlandi en skýjaö annars staðar. Hiti á bilinu 10 til 13 stig um sunnanvert landið en 6 til 9 stig nyrðra. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: SUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Fremur hæg vestlæg átt. Skýj- að og sums staðar þokusúld um vestanvert landið en bjart veður austan til. Hiti á bilinu 8 til 16 stig, hlýast austanlands. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius \J Skúrir * V Él = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyrl hltl B veður hálfskýjað Reykjavik 9 úrkomafgr. Bergen 11 skýjað Helsinki 16 alskýjað Jan Mayen 1 úrkomafgr. Kaupmannah. 13 skýjað Narssarssuaq 13 rlgning Nuuk 6 rlgning Osló 10 rlgning Stokkhólmur 13 þokumóða ÞórshSfn 7 skúr Algarve 22 skýjaö Amsterdam 17 skýjað Aþena 33 léttskýjað Barcetona 21 skýjað Berlln 1S skýjað Chicago 23 þokumóða Feneyjar 23 þokumóða Frankfurt 17 rigning Hamborg 14 akýjað Las Palmas 24 skýjað London 17 skýjað LosAngeles 16 akýjað Lúxemborg 16 skýjað Madrfd 27 skýjað Malaga 22 láttskýjaö Mallorca 26 léttskýjað Mlaml 27 láttskýjað Montreal 13 rignlng NewYork 18 akýjað Parfs 20 skýjað Róm 30 lóttskýjað Vín 24 skýjað Washington 22 alskýjað Wlnnlpeg 16 skýjað Hæstiréttur: Fimm ára fangelsi fyrir að valda dauða konu sinnar HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær 39 ára Reykvíking, Magnús Friðrik Óskarsson, i fimm ára fangelsi fyrir að vera valdur að dauða eiginkonu sinnar í maí 1986. Málavextir voru þeir að Magn- ús lenti í átökum við eiginkonu sína að morgni 6. maí 1986, er hann ætlaði að kom í veg fyrir að hún færi á brott og yrði sér úti um fíkniefni. Hann greip báð- um höndum um háls hennar og hélt henni þannig, keflaði hana og batt. Skömmu síðar hugði hann að henni og sá þá að hún var meðvitundarlaus og virtist látin. Magnús og menn, sem voru gest- komandi hjá honum, kölluðu þá til sjúkrabifreið, er flutti konuna á slysadeild, en hún var úrskurðuð látin þegar þangað kom. Hæstiréttur taldi sannað að atferli Magnúsar gagnvart eigin- konu sinni hafi verið orsök að dauða hennar. Álitaefni var hins vegar hvort afleiðing árásarinnar yrði metin honum til sakar vegna ásetnings eða gáleysis. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að afleiðingamar væm gáleysis- verk, þar sem varhugavert væri að álykta að Magnús hafí hlotið að sjá það fyrir að bani hlytist af atlögu hans. Hins vegar hafi hann mátt gera sér grein fyrir að svo gæti farið. Var hann því dæmdur til refsingar samkvæmt 2. mgr. 218. greinar almennra hegningarlaga, sem fjallar um líkamsárás sem leiðir til dauða. Þótti refsing hæfileg 5 ára fang- elsi, sem er staðfesting á dómi héraðsdóms frá 31. október í fyrra. Þá var Magnúsi einnig gert að greiða allan kostnað af áfrýjun sakarinnar. Málið dæmdu hæstaréttardóm- aramir Magnús Thoroddsen, Guðmundur Jónsson, Guðrún Er- lendsdóttir og Halldór Þorbjöms- son og Gaukur Jörandsson, settur hæstaréttardómari. Þróunarsamvinnustofnun íslands: Dr. Björn Dagbjartsson ráðinn framkvæmdastjóri DR. BJORN Dagbjartsson verk- fræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þórunarsam- vinnustofnunar íslands. Hann var ráðinn f stað Þórs Guðmunds- sonar viðskiptaf ræðings sem hætti að eigin ósk hjá stofnun- inni eftir fimm ára starf. Bjöm Dagbjartsson er fímmtug- ur að aldri. Hann lauk prófí í efnaverkfræði frá tækniháskólan- um í Stuttgart árið 1964 og doktorsprófí /rá Rutgers háskólan- um 1971. Árið 1972 varð hann sérfræðingur hjá Rannsóknastofn- un fískiðnaðarins og forstjðri stofnunarinnar frá 1974 til 1984. Hann var ráðgjafi FAO við þróunar- hjálp á Maldive-eyjum í suð-austur Asíu um fjögurra mánaða skeið árið 1981 og fékk þá leyfí frá störf- um hjá Rannsóknastoftiun fískiðn- Dr. Björn Dagbjartsson aðarins. Bjöm sat á Alþingi frá 1984 til 1987. Ymis fargjöld í millilandaflugi hækka um 7,5% FLUGLEIÐIR hafa ákveðið hækkun á fargjöldum í milli- landaflugi frá og með 1. júlí næstkomandi. Öll fargjöld til Bandaríkjanna hækka um 7,5% og lægstu fargjöld til Evrópu hækka einnig um 7,5%. INNLENT k. o A Sem dæmi um hækkanir má nefna að super-apex-farmiði til Kaupmannahafnar hækkar úr 10.950 kr. í 11.780 kr. Pex-far- miði til London hækkar úr 14.360 í 15.450 kr. Apex-farmiði til New York hækkar úr 24.900 í 26.780 kr. í öllum tilvikum er um að ræða flug báðar leiðir. Svokölluð normal fargjöld Flugleiða á Evrópuleiðum hækka ekki. Sæmundur Guðvins- son, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að fólk sem greiðir farseðla sína fyrir 15. júní fái fargjöldin á núver- andi verði, þó það ferðist ekki fyrr en eftir 1. júlí. Sæmundur segir að fargjalda- hækkunin sé til að mæta kostnað- arhækkunum sem orðið hafa hér innanlands að undanfömu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.