Morgunblaðið - 13.06.1987, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987
Davíð Oddsson
vígir nýjan skotvöll
NTR skotvöllur Skotfélags Reylqavíkur fyrir haglabyssuskotfimi,
SKEET, verður formlega opnaður laugardaginn 13. júní kl. 14.00.
Mun Davíð Oddsson borgarstjóri taka völlinn formlega í notkun,
með því að hleypa af fyrsta skotinu á þessum nýja velli Skotfélags
Reykjavíkur, en skotvöllurinn er á útiæfingasvæði Skotfélagsins i
Leirdal í Grafarholti.
Opnun vallarins hefst kl. 14.00,
en að henni lokinni verður haldið
sérstakt vígslumót, þar sem flestar
færustu haglabyssuskyttur félags-
ins munu taka þátt.
Haglabyssuskotfími af því tagi
sem hér um ræðir, SKEET, er al-
þjóðleg íþróttagrein og er keppt í
henni á Ólympíuleikum. Hún felst
í því að skyttan reynir að hæfa
leirskífur sem kastað er úr tveimur
smáhýsum, en skífur þessar fara
með miklum hraða.
í tilefni þessara tímamóta í sögu
félagsins hefur Sportvörugerðin
sem er umboðsaðili ensku skota-
verksmiðjunnar Eley, ákveðið að
bjóða SKEET-skot í verslunum í
Reykjavík á sérstöku kynningar-
verði og mun tilboð þetta standa
vikuna 14.-21. júní. Jafnframt gef-
ur Sportvörugerðin þátttakendum á
vígslumótinu skotfæri til notkunar
í mótinu og veitir einnig verðlaun,
en þau verða 250 skot fyrir 1. sætið.
Margrét Bóasdóttir, sópransöngkona, á æfingu í Hallgrimskirkju í gær
Hallgrímskirkjuhátíð lýkur í dag:
Hátíðin mikils virði
fyrir land og þjóð
- segir Margrét Bóasdóttir sem syngur
einsöngskantötu á lokatónleikunum
LISTAHÁTÍÐ Hallgrímskirkju lýkur í dag, með Bach—tónleikum
klukkan 17.00. Á efnisskránni eru þijú verk eftir Johann Sebastian
Bach, Der Geist hilft unserer Schwachheit auf, mótetta fyrir tvo
fjögurra radda kóra, Falsche Welt, kantata fyrir sópran, kór og
hljómsveit og Singet dem Herm ein neues Lied, mótetta fyrir tvo
fjögurra radda kóra. Flytjendur á tónleikunum eru Mótettukór
Hallgrímskirkju, Margrét Bóasdóttir, sópransöngkona, auk kammer-
sveitar. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Margrét Bóasdóttir, sópransöng-
kona, er fædd árið 1952, ættuð úr
Mývatnssveit. Hún lauk söngnámi
sínu við Tónlistarháskólann í Heid-
elberg/Mannheim 1981. Síðan
sérhæfði hún sig í ljóða— og órat-
oríusöng hjá prófessor Konrad
Richter við tónlistarháskólann í
Stuttgart og lagði þá sérstaka
áherslu á túlkun barokktónlistar.
Margrét starfaði sem söngvari og
kennari í Þýskalandi, þangað til hún
flutti heim til íslands aftur árið
1985. Hún bjó þá um eins árs skeið
á ísafírði, eða þar til hún fluttist
að Grenjaðarstað í Aðaldal, þar sem
eiginmaður hennar er þjónandi
prestur. Morgunblaðið átti stutt
spjall við Margréti og spurði hvem-
ig henni gengi að starfa sem
söngkona úti á landi.
„Það gengur vel.“ svaraði Margr-
ét. „Ég kenni við Tónlistarskólann
á Akureyri, auk þess sem ég hef
haft nóg að gera við að syngja.
Jafnframt því að æfa þessa kant-
ötu, var ég að syngja með Passíu-
kómum á Akureyri. Ég hef Iíka
verið að syngja með Húsavíkur-
kómum, bæði á Akureyri og
Húsavík, auk þess sem við komum
til Reykjavíkur. og sungum Messu
eftir Dvorák í Kristskirkju, undir
stjóm Úlriks Ólasonar."
Hefurðu sungið þessa kantötu,
Falsche Welt, hér áður?
„Nei, þessi kantata hefur aldrei
áður verið flutt hér. Þetta er mjög
sérstakt verk. Fyrsti kaflinn er
fyrsti kaflinn úr Brandenburgar-
konsertinum eftir Bach, en þar er
leikið á tvö hom, þijú óbó, fagott
og strengjahljóðfæri. Þá taka við
recitativo og aríur til skipti. í recita-
tivo kemur fram meginmál textans,
með hjálp þriggja hljóðfærra. Þau
eru orgel, selló og fagott.
Texti kantötunnar byggir á ritn-
ingartextum 23. sunnudags eftir
Þrenningarhátíð en pistillinn fjallar
um það að „stunda á hið efra og
ekki hið neðra og þessa heimslega,
þar sem Guð mannanna er mag-
inn,“ og guðspjallið er um undirferli
Faríseanna og spuminguna um
skattheimtu keisarans. Það má
segja að hún byggi á sögunni um
falsspámennina. Bach samdi verkið
eftir að hann var kominn til Leipzig
í fasta stöðu sem kantor. Hann
samdir flest sín kirlqulegu verk eft-
ir það.
Ég verð að segja að það er mér
mikil ánægja að fá að taka þátt í
þessu verkefni, og þessari hátíð.
Þetta átak er mikils virði fyrir land
og þjóð og ég vona að fólk gefí sér
tíma til að koma og hlusta á fallega
tónlist í fallegu húsi.“
Samkeppni um byggingu ráðhúss
Tillaga Margrétar og Christer gerir ráð fyrir tveimur samhliða byggingum. Hér sést líkan af húsinu
séðu úr suðri. Ef vel er að gáð sést móta fyrir tjörninni sem gera á við horn Vonarstrætis og Tjamar-
götu, þaðan liggur lækur milli húsanna. í baksýn eru húsin við Vonarstræti 12 og Oddfellohúsið.
Tveir ungir arki-
tektar hlutu
fyrstu verðlaun
Framkvæmdir gætu hafist næsta vor
TVEIR ungir arkitektar, Mar-
grét Harðardóttir og Steve
Christer hlutu fyrstu verðlaun í
samkeppni um ráðhús Reykja-
víkurborgar. Þrátíu og átta
tillögur bárust i keppnina en
þremur þeirra var vísað frá
vegna skorts á gögnum. Þegar
verðlaunin voru afhent við há-
tiðlega athöfn í Borgarleikhús-
inu í gær sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri og formaður dóm-
nefndar að löngu væri tímabært
að reisa ráðhús þar sem yfir-
sfjórn borgarinnar hefði aðsetur
sitt. „Það er von mín að borgar-
stjóm samþykki að húsið verði
byggt, svo að þessi gamla borg
eignist ráðhús teiknað af þessu
unga fólki,“ sagði hann.
Dómnefnd verðlaunaði fjórar til-
lögur, þar sem tvær deildu með sér
þriðju verðlaunum. Einnig voru
samþykkt kaup á fjórum tillögum,
og fjórar teikningar hlutu viður-
kenninguna „athyglisverð tillaga".
Teikning Guðmundar Jónssonar
fékk önnur verðlaun, en þriðju verð-
launum deildu Hörður Harðarsson
annars vegar og Hróbjartur Hró-
bjartsson, Richard Ólafur Briem,
Sigríður Sigþórsdóttir og Sigurður
Björgúlfsson hins vegar.
Fyrstu verðlaun eru að upphæð
2.090.000 krónur, önnur verðlaun
1.036.000 krónur og þriðju verlaun
527.000 krónur. Ein tillaga var
keypt á 340.000 krónur, en þijár á
115.000 krónur.
Borgarstjóm verða á næstunni
kynntar þessar átta teikningar og
má vænta ákvörðunar um eftir
hvaða teikningu verði farið innan
tíðar. Borgarstjóri sagði það von
sína að framkvæmdir hæfust fljót-
lega eftir næstu áramót og gengi
allt að óskum væri hægt að taka
húsið í notkun snemma árs 1989.
Á fjárhagsáætlun borgarinnar í ár
er 60 milljónum króna varið til
þessa verkeftiis.
Ráðhúsinu er ætlað að rísa á lóð-
inni nr. 11 við Vonarstræti, við
homið á Vonarstræti og Tjarnar-
götu. Tvflyft timburhús sem þar
stendur á steinsökli verður fundinn
annar staður. í ráðhúsinu á yfír-
stjóm borgarinnar að eiga aðsetur
sem nú er til húsa í Austurstræti,
Pósthússtræti og við Skúlatún og
þar verður fundarsalur borgar-
stjómar sem nú er í Skúlatúni. í
byggingunni verða skrifstofur
borgarstjóra, borgarritara, borgar-
lögmanns, endurskoðanda, bókara,
starfsmannastjóra, lögfræði-,
stjómsýslu-, fjármála- og hagsýslu-
deildar.
I keppnislýsingu vom þátttak-
endur beðnir að gera einnig ráð
fyrir ferðamannaþjónustu í húsinu
og yrði hluti af henni Íslandslíkan
það sem að hluta var sýnt í Borgar-
leikhúsinu á afmæli Reykjavíkur í
fyrra. Auk þess á að vera aðstaða
til heilsuræktar, mötuneyti og hús-
vörslu í byggingunni og bílageymsl-
ur í kjallara.
Guðrún Harðardóttir og Steve
Christer luku bæði námi frá AA-
skólanum í Lundúnum árið 1984.
Aðalkennari þeirra var Peter Cook.
Þau störfuðu um 18 mánaða skeið
hér á landi en hafa undanfarið eitt
og hálft ár rekið arkitektastofu í
Lundúnum.
í samtali við blaðamann sögðust
þau hafa þrisvar tekið þátt í sam-
keppni hér á landi, um Stúdenta-
garða, nýtt þinghús og breytingar
á Amarhóli. „Þessi tillaga hefur
tekið allan okkar tíma frá því um
áramót. Eins og gefur að skilja eig-
SVS og Varðberg:
Fyrirlestur um niður-
stöður ráðherrafundar
Atiantshafsbandalagsins
STJÓRN Samtaka um vestræna
samvinnu (SVS) og stjórn Varð-
bergs efna til sameiginlegs
fundar með félagsmönnum og
gestum þeirra um niðurstöður
utanr íkisráðherraf undar Átl-
antshafsbandalagsins sem lauk í
gær. Hádegisfundur verður
haldinn í Átthagasal Hótels Sögu
í dag, 13. júní, og hefst hann
kl.12.00.
Fundurinn er einungis ætlaður
félagsmönnum í SVS og Varð-
bergi, svo oggestum félagsmanna.
Gestur fundarins og framsögu-
maður verður George W. Jaeger,
yfírmaður í stjómmáladeild NATO.
Umræðuefni hans er: „Samskipti
austurs og vesturs í framhaldi af
Reykjavíkurfundi NATO“.
Framsöguerindið verður flutt á
ensku, og ræðumaður svarar fyrir-
spumum fundargesta að því loknu.
George W. Jaeger