Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987
27
Morgunblaðið/Sverrir
Margrét Harðardóttir og Steve Christer taka við fyrstu verðlaunum í samkeppni um ráðhús Reykjavík-
ur úr hendi Daviðs Oddssonar bogarstjóra.
Tillaga Guðmundar Jónssonar hlaut ðnnur verðlaun. Á innfelldu
myndinni sést höfundurinn.
um við enn eftir að útfæra teikning-
una að fullu. Hyggjumst við nú
taka til við að gera útlit og frágang
hennar þannig úr garði að okkar
hugmyndir verði öllum ljósar sem
eiga eftir að ganga um húsið," sagði
Christer.
Hann sagði að í húsunum væru
stórir glerveggir, þannig að útsýni
yfir Tjömina og umhverfi hennar
yrði sem best. „Við gældum líka
við þá hugmynd að þökin ættu sér
að fyrirmynd vængi flugvélar sem
hefðu flögrað niður og lent á þess-
um stað, en súlumar sem halda því
uppi séu eins og sef eða reirstöngl-
ar.“
Tillaga þeirra Guðrúnar og
Christers gerir ráð fyrir tveimur
samhliða byggingum með boga-
dregnu þaki. Aðalinngangur er frá
Vonarstræti og beinn innakstur frá
götunni [ bflageymslu á þremur
hæðum. Á homi Vonarstrætis og
fyamargötu er gert ráð fyrir lítilli
tjöm og rennur úr henni lækur á
milli bygginganna, út í Tjömina. í
umsögn dómnefndar segir að þegar
komið sé að aðalinngangi seytli
vatn til beggja handa og megi ef-
ast um útfærslu hugmyndarinnar
við íslenskar aðstæður. „Höfundi
tekst á tilltölulega einfaldan máta
að skapa mjög sérstaka byggingu
og undirstrikar sjálfstæði hennar í
efnisvali og formum," segir orðrétt
í umsögninni.
Þíng norræna heimilis-
lækna haldið í Reykjavík
Þátttakendur hittast í Laugardalslaug í kvöld
ÞAÐ GERIST ekki á hveijum degi að þinghald hefjist i sundlaug.
En þannig byrjar fimmta þing norrænna heimilislækna sem haldið
verður í Reykjavík dagana 14. til 17. júní. Þátttakendur eru beðnir
að mæta í Laugardalslaugina kl. 20.30 í kvöld með baðföt og hand-
klæði. Þar verður boðið upp á flatkökur og svaladrykki og Katrin
Fjeldsted læknir og borgarfulltrúi býður þátttakendur velkomna.
Þingið verður sett í Háskólabíói rædd á málþingum og má nefna
kl. 10.00 sunnudaginn 14. júní og
verður forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, viðstödd setninguna.
Þingið fer fram f Háskóla íslands.
Haldin verða málþing og Qölmargir
fyrirlestrar og niðurstöður rann-
sóknarstarfs í heimilislækningum á
Norðurlöndunum verða birtar á
veggspjoldum. Ýmis mál verða
sem dæmi að makar lækna og böm
munu fjallað um læknafjölskylduna
og hvemig læknastarfið kemur nið-'
ur á fjölskyldunni. Einnig verður
fjallað um kostnað, vemd, menntun
og kennsluaðferðir í heimilislæknis-
fræði o.fl. Þátttakendur á þinginu
era um 800 talsins.
Ljósmynd BREIN
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra tendrar kyndil friðar-
hlaupsins.
Friðarboðhlaupið hafið
ALÞJÓÐLEGT friðarboðhlaup hófst í gærmorgun fyrir utan Höfða,
er Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra tendraði kyndil sem
hlaupið verður með umhverfis Iandið. Steingnrímur hljóp fyrsta
spöhnn með kyndilinn en síðan
sambands íslands við honum.
Friðarboðhlaupið hófst í New
York 27. aprfl síðastliðinn og er
gert ráð fyrir að því ljúki 7. ágúst.
Tilgangur hlaupsins er að gera
hveijum og einum kleift að stuðla
að friði með þátttöku sinni. Alls
munu 55 þjóðir taka þátt í friðar-
boðhlaupinu sem verður um 43.000
km. langt.
Hlaupið verður rangsælis hring-
inn í kringum landið og í gær var
hlaupið frá Reykjavík til Keflavíkur
Svemn Bjömsson forseti
um Garð, Sandgerði, Hafiiir,
Grindavík og þaðan til Hveragerðis.
í dag hefst hlaupið kl. 7.30 í
Hveragerði og verður hlaupið um
Suðurland og á Kirkjubæjarklaust-
ur og á morgun, sunnudag, er
ferðinni heitið til Hafnar í Homa-
firði.
íþróttafélög og ungmennafélög
um allt land taka þátt í hlaupinu
en það er einnig opið öllum almenn-
ingi.
VOLVOSALURINN SKEIFUNNI 15
P&Ó/SÍA
Nýja símakerfiö er þáttur í stöðugt aukinni þjónustu við okkar ágætu viðskiptavini.
691610
Opið í Volvosal, Skeifunni 15, alla daga frá 9-18 og á laugardögum frá 10-16.