Morgunblaðið - 13.06.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987
37
Lúðuveiðar Amen-
A
kana við Island
— meðalefnisí
nýútkomnu Sjó-
mannadagsblaði
FIMMTUGASTI árgangur Sjó-
mannadagsblaðsins er nýkominn
út. Sjómannadagsblaðið er sem
kunnugt er hátíðarblað sjómanna-
stéttarinnar, gefið út af Sjó-
mannadagsráði í Reykjavík og
Hafnarfirði, og kemur út i tilefni
sjómannadagsins ár hvert.
Sjómannadagsblaðið hefur tekið
allmiklum stakkaskiptum á síðustu
tveimur árum og er nú stærra og
fjölbreyttara en nokkru sinni.
Pétur Sigurðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs, skrifar um öryggis-
mál sjómanna en í blaðinu er auk
þess birt yfírlit yfír tillögur öryggis-
málaneftidar sjómanna, sem Pétur
var formaður fyrir, og skýrt frá hvað
gert hefur verið til að hrinda þeim
í framkvæmd.
„Helför þriggja skipa“ heitir þátt-
ur eftir Asgeir Jakobsson um ofsa-
veðrið 26. janúar 1955, þegar ensku
togaramir Lorella og Roderigo fórust
með allri áhöfn norð-vestur af
Straumnesi og nýsköpunartogarinn
Egill rauði strandaði undir
Grænuhlíð. Pimmtíu og þrír sjómenn
týndu lífi sínu í þessu aftaka veðri.
Helgi Skúli Kjartansson skrifar
um „Samvinnuútgerð í Reykjavík og
Hafnarfírði", en í atvinnuleysi
kreppuáranna var það eitt þrauta-
ráðið að sjómenn stofnuðu svokölluð
„áhafnarfélög" um útgerð skipa
sinna þegar útgerðarmennimir ætl-
uðu að leggja þeim vegna taprekst-
urs.
„Barist á mörgum vígstöðvum"
er yfírskrift á ítarlegu viðtali við
Pétur Sigurðsson, þar sem hann seg-
ir frá sjómennsku sinni, störfum fyrir
Sjómannafélag Reykjavíkur, þing-
mennsku í 28 ár, og hinu mikla
uppbyggingarstarfí sjómannadags-
ins í öldmnarmálum.
Sigmar Þormar fjallar um „Þróun
sjávarútvegs á Nýfundnalandi", lýsir
uppgangi hans og niðurlægingu, sem
að lokum leiddi til þess að eyjar-
skeggjar töpuðu sjálfstæðinu.
í greininni „Ágrip af sögu Thore-
félagsins" segir Guðmundur
Sæmundssor. frá hinni merku tilraun
Þórarins Túliníusar til að koma milli-
landasiglingum okkar á íslenskar
hendur.
Ólafur Þór Ragnarsson skrifar
hugleiðingu á sjómannadaginn sem
hann nefnir „Að gráta á skjáinn" og
Höskuldur Skarphéðinsson rekur
fimmtíu ára sögu Skipstjórafélags
íslands.
Sveinn Bjömsson, listmálari, stýri-
maður og lögregluforingi, segir frá
sjómennsku sinni og sjómannamynd-
um, en forsíðu blaðsins prýðir að
þessu sinni mynd af einu málverka
hans.
Fjallað er um hið mikla ritverk
Lúðvíks Kristjánssonar, íslenzka
sjávarhætti, sem nú er allt komið út
í fimm stórum bindum; Jóhanns J.E.
Kúlds er minnst stuttlega og birtur
frásöguþáttur eftir hann; og sagt er
frá starfsemi fyrirtækisins „Lifandi
myndir", sem undanfarin tíu ár hefur
unnið að gerð heimildarkvikmynda
úr sögu sjávarútvegs á íslandi, síðast
„Silfur hafsins", sem sýnd verður í
Sjónvarpinu núna á sjómannadaginn.
Þá er í blaðinu sagt frá hátíða-
höldum sjómannadagsins í Reykjavík
1986, greint frá sjóslysum og
drukknunum frá síðasta sjómanna-
degi og birt nýsett lög um sjómanna-
daginn.
Loks er að nefna viðamestu grein
blaðsins: „Sprökuveiðar Ameríkana
við ísland 1884—1897“. Þar er ijall-
að um þátt úr sögu fiskveiðanna við
ísland sem fremur hljótt hefur verið
um, þegar fískimenn úr Gloucester
í Bandaríkjunum komu hingað á
skonnortum sínum fímmtán sumur
samfleytt og stunduðu lúðuveiðar úti
fyrir Vestfjörðum með bækistöð á
Þingeyri við Dýrafjörð. Voru'
Ameríkanamir á þriðja hundrað þeg-
ar þeir voru hér flestir. Hér er safnað
í einn stað flestu því sem þegar hef-
ur verið skrifað um þessar veiðar og
m.a. dregnar fram í dagsljósið
bandarískar heimildir.
Sjómannadagsblaðið er 112 bls.
að stærð og ríkulgea myndskreytt.
Það er sett og prentað í Prentstofu
G. Benediktssonar.
Ritstjórar Sjómannadagsblaðsins
eru Garðar Þorsteinsson (ábm.) og
Jakob F. Ásgeirsson.
Blaðið verður að vanda selt í lausa-
sölu út um allt land á sjómannadag-
inn, 14. júní nk., en er auk þess
dreift í bókabúðir og sölutuma á
höfuðborgarsvæðinu. Allur ágóði af
sölu blaðsins rennur sem fyrr til sam-
taka sjómannadagsins, en þau hafa
sem kunnugt er staðið fyrir upp-
byggingu Hrafnistu-heimilanna í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Björg
Frá útförínni sem gerð var frá Melgraseyrarkirkju.
Fjölmenni við útför
Þórðar á Laugalandi
^ Reykjanesi.
ÚTFOR Þórðar Halldórssonar
frá Laugalandi var gerð frá
Melgraseyrarkirkju siðastliðinn
laugardag að viðstöddu fjöl-
menni, enda var Þórður þekktur
og vinsæll höfðingi í sinni sveit.
Þórður gegndi mörgum trúnað-
arstörfum fyrir sveit sína. Var hann
oddviti Nauteyrarhrepps og sýslu-
nefndarmaður í fjölda ára, átti sæti
f Sambandi íslenskra sveitafélaga,
í skólanefnd Reykjanesskóla, var
formaður Búnaðarfélags Nauteyr-
arhrepps, fulltrúi á fundum búnað-
arsambands Vestfjarða og
Stéttarsambands bænda.
Eftirlifandi kona Þórðar er Helga
Jónsdóttir frá Skarði á Snæfjalla-
strönd. Býr hún á Laugarholti með
dóttur þeirra hjóna, Guðrúnu, sem
annast hefur foreldra sína um ára-
bil. Helgu og Þórði varð sjö bama
auðið og em þau öll á lífí.
— Björg.
Douib Taoufik frá Marokkó:
„Við þurfum að
auka samskiptin“
HÉR á landi er nú staddur Ma-
rokkómaðurinn Douib Taoufik
sem er búsettur í ZÚrích í Sviss
og rekur þar fyrírtækið Dicotex.
Það selur hönnun á skyrtum um
allan heim en Taoufik hefur
fleiri jám í eldinum. Blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við Taouf-
ik á heimili Armanns Reynisson-
ar framkvæmdastjóra.
„Nú erum við búin að hanna
tískuna fyrir næsta ár og því eins
konar millibilsástand hjá mér. Fyrir
skömmu kynntist ég Armanni
Reynissyni í Sviss og fékk áhuga á
að koma á viðskiptum milli Marok-
kómanna og íslendinga. Faðir minn
rekur stórfyrirtæki í Casablanca í
Marokkó og ég hef góð viðskipta-
sambönd þar en einnig víða í
frönskumælandi Afríku og Araba-
löndum t.d.Saudi-Arabíu." _
Taoufík hefur ásamt Armanni
rætt við fulltrúa hjá Útflutningsráði
og hrósuðu þeir félagar mjög við-
tökunum. Þar væri greinilega um
að ræða stofnun sem hyggðist veita
þjónustu en ekki bara lifa fyrir
sjálfa sig.
Þeir töldu nauðsynlegt að auka
stjómmálaleg og menningarleg
samskipti landanna sem ættu margt
sameiginlegt þótt löng sé leiðin
milli þeirra. Skipti á ræðismönnum
myndu stuðla mjög að þessu og
gera verslunarviðskipti auðveldari.
Taoufik sagðist vilja athuga
möguleika á útflutningi á ýmsum
fiskveiðitækjum og fískveiðitækni
frá íslandi en Marokkómenn eru
miklir fískimenn og eru t.d. fremst-
ir allra þjóða í útflutningi á sardín-
um. Einnig kæmi til greina
útfiutningur á vikursteinum sem
notaðir eru í fataiðnaði til að þvo
nýjan fatnað og gefa litnum sérs-
takt yfírbragð. Sem dæmi um þetta
má nefna „ snjóþveginn" fatnað.
Douib Taoufik. MorP>''biaðið/JúiíuS
Einnig mætti nefna vélar og út-
búnað til að steypa hleðslusteina
úr vikri.
Frá Marokkó gætu íslendingar
keypt fosfat en Marokkómenn
framleiða mest allra þjóða af þeirri
vöru. Enn fremur flytja Marokkó-
menn út mikið af ávöxtum og gætu
íslendingar hugsanlega náð hag-
stæðari samningum en við núver-
andi viðskiptalönd okkar. Loks má
neftia sardínur í dósum, matarolíu,
leðurvörur og hráefni í snyrtivörur
en síðast en ekki síst sólarlanda-
ferðir. í Marokkó eru ijölmargar
góðar baðstrendur.
Morgunbiaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Keppnin var jöfn og í síðustu þrautunum keyrðu menn duglega í von um sigur.
Torfærukeppni á Hellu:
Norðanmenn signrsælir
KLIFUR í bröttum brekkum,
buslugangur í vatni og óvænt
stökk voru meðal þrauta sem
keppendur í torfærukeppni
björgunarsveitarínnar á Hellu
þurftu að giíma við sl. laugar-
dag. Mikið fjölmenni fylgdist
með keppninni í bliðskaparveðrí,
en keppt var í tveimur flokkum.
Sigurvegari í flokk i sérútbúinna
jeppa varð Akureyringurinn
Davíð Sigurðsson á Jeepster, en
í flokki óbreyttra Gunnar frá
Hafdal Skagaströnd á Willys.
Þrautimar í keppninni reyndust
margar hveijar fullléttar og var
minna um ævintýraleg tilþrif en oft
áður. í staðinn varð keppnin mun
jafnari og úrslit réðust ekki fyrr en
í síðustu þrautunum. Flokkur sérút-
búinna jeppa var í slakara lagi,
jeppamir ekki sterkir á velli. Davíð
Sigurðsson nældi í fyrsta sætið á
lokasprettinum, en hann fékk 898
stig hjá dómumm keppninnar. Þor-
steinn Valsson á Willys fékk 833
stig, Hjörtur Óskarsson á Willys
477 og Þjóðólfur Gunnarsson á
Sigurvegari i flokki óbreyttra jeppa varð Gunnar Hafdal frá Skaga-
strönd á Willys. Hann stekkur hér upp eina þrautina og sést
mannhafið í baksýn.
Bronco 363.
í flokki óbreyttra jeppa var
mjórra á mununum, Gunnar Hafdal
fékk 970 stig, en Bergur Bergsson
967. Báðir óku Willys. Þessi flokkur
vakti meiri lukku, sérstaklega í
tímabraut. Jafnir í þriðja sæti urðu
Björn Magnússon og Þórður Gunn-
arsson með 920 stig, báðir óku
Willys. Steinar Sigurðsson á Willys
varð fímmti og Ólafur Pétursson á
Cherokee sjötti.
- GR