Morgunblaðið - 13.06.1987, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987
47
Bíldudalur hefur vaxið nokkuð síðustu ár og eru nú 372 íbúar þar.
skipvetji norður á Ingólfsfjörð.
„Þormóður var ákaflega veikbyggð-
ur, það voru 14 tommur á milli
banda, sem er alltof mikið, og dæl-
umar höfðu vart undan," riijar
Sigurmundur upp, og bætti því við
að hann hefði sjálfur heyrt skip-
veijana á Þormóði tala um það á
Bíldudal að vonandi fengju þeir
gott veður á leiðinni suður því þeim
virtist lítast heldur illa á skipið. „Og
það má bæta því við að þeir skip-
veijar frá Bíldudal sem voru á
skipinu höfðu allir ákveðið að hætta
eftir þennan túr því þeir töldu skip-
ið vera liðónýtt, sem það og var,
því það var byggt fyrir litlar vélar
en búið var að setja í Þormóð nærri
300 hestafla vel,“ sagði Sigurmund-
ur að lokum.
að segja,“ sagði Jón.
„Þetta slys var mikið áfall, það
veit Guð.“ Það er Kristín Jónsdótt-
ir, elsti íbúi Bíldudals, sem þetta
segir við blaðamann Morgunblaðs-
ins, en hún er orðin 91 árs gömul.
Hún missti í slysinu dóttur sína
Fjólu sem gift var Gunnlaugi bróður
Jóns Jhannessonar. „Ég var á leið-
inni inn á Jaðar að sækja litla
strákinn þeirra, hann Gunnlaug
Fjólar sem þá var ekki nema þriggja
mánaða gamall, þegar ég frétti
hvað komið hefði fyrir Þormóð.
Gunnlaugur litli Pjólar átti að vera
hjá mér og manninum mínum, en
við bjuggum þá á Hóli, á meðan
þau væru í burtu. Á leiðinni inn á
Jaðar hitti ég símstöðvarstjórann,
Guðjón Guðmundsson, og spurði
hann hvort ekki væri eitthvað að
frétta af Þormóði. „Nei ég hef ekk-
ert frétt af Þormóði, en það fréttist
af honum seinna í dag,“ sagði Guð-
jón. Ég áttaði mig ekki á því þá
að hann hafði þegar fengið fréttim-
ar, en þegar ég kom inn í gamla
bakaríið sá ég hvar Erla, systur-
dóttir Jakobínu Pálsdóttur, lá uppi
í dívan og grét og þá var það að
móðir hennar, Sigríður sagði mér
hvað hefði gerst.
Hér áttu allir um sárt að binda
eftir slysið og ég veit ekki hvort
staðurinn hefur nokkru sinni borið
sitt barr almennilega eftir það.
Mörgu er ég búin að gleyma en
þessu slysi gleymi ég aldrei," sagði
Kristín að lokum.
KSS.
Bílddælingar afhjúpa á sjómannadaginn minnisvarða um Þormóðssly-
sið og alla þá Arnfirðinga sem i timans rás hafa farist á sjó. Við
minnisvarðann standa þeir Jón Kr. Ólafsson, en hann var frumkvöð-
ull að gerð minnisvarðans, og Sr. Flosi Magnússon, sóknarprestur
og sveitarstjóri, ásamt dætrum sinum Láru og Völu.
Faðir minn treysti sér
ekki yfir fjörðinn með
mig.
Marinó Magnússon á Bfldudal
var búsettur á Auðkúlu í Amarfirði
þegar Þormóður fórst og hugðist
hann komast suður um þetta leyti
og mátti reyndar litlu muna að
hann færi með Þormóði í hina örlag-
aríku ferð. „Það vom að gróa
saman á mér nefgöngin og ég
þurfti því að komast suður til að
leita mér lækninga," sagði Marinó
í upphafi samtalsins. „Esjan kom
venjulega_ við á ísafírði og Patreks-
fírði, en Ágúst Sigurðsson hafði þá
lagt drög að því fá hana inn til
Bfldudals, og hugðist ég þá fara
með henni,“ sagði Marinó. „Faðir
minn var búinn að láta vita af því
að ég ætlaði til Reykjavíkur og
hafði því beðið um að vera látinn
vita þegar skipið kæmi svo ég kæm-
ist með. Þegar skilaboðin um að
Þormóður væri á leið inn til hafnar
bámst til mín var ég staddur inni
á Borg, en hún er fyrir innan
Hrafnseyri, og lítill tími til stefnu.
Auk þess var skollinn á kafalds-
bylur og orðið kolófært, svo faðir
minn treysti sér ekki til að flytja
mig yfír fjörðinn á trillunni sinni.
Þess vegna varð það nú að ég fór
ekki með Þormóði. Ég komst hins
vegar fáeinum dögum seinna suð-
ur, og þá með Esjunni og eftir þetta
kom hún alltaf héma við,“ sagði
Marinó.
„Maður er mörgn búinn
að gleyma en þessu
gleymir maður aldrei.“
En það vom fleiri sem vom nærri
því að fara um borð í Þormóð á
Bfldudal. Jón Jóhannesson var þá
25 ára ^ gamall og nýkvæntur
Amdísi Ágústsdóttur, dóttur hjón-
anna Jakobínu Pálsdóttur og
Ágústs Sigurðssonar, sem bæði fór-
ustrneð skipinu.
Ég var munstraður á Þormóð
sem kokkur fyrir þessa ferð, en
veiktist og treysti mér því ekki til
að fara,“ sagði Jón Jóhannesson.
„Ég bað því Gunnlaug bróður minn
til að fara, sem hann og gerði.
Þetta var alveg hræðilegt slys og
það kom sér illa að missa svona
marga framámenn hér í plássinu,
því þeir fóm allir, liggur mér við
B&B
OMM
LAUGARDAG
KL.11-4 e.h.
SUNNUDAG
KL. 1 - 5 e.h. í
ÞAR FÆRÐU ALLTAF [ ITTHVAÐ FALLFGT