Morgunblaðið - 16.06.1987, Side 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
133. tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 16. JUNI 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mesti ósigur ítalskra
kommúnista frá 1968
Bettino Craxi, fyrrum
f orsætisráðherra brosir sínu
breiðasta til varaformanns
Sósialistaflokksins, Claudio
Martelli, þegar fyrir lá að
flokkurinn h&fði unnið mikinn
kosningasigur. Myndin var tekin
í höfuðstöðvum flokksins i Róm
i gærkvöldi.
Rómaborg, Reuter.
ALLT benti til þess í gærkvöldi að sósíalistar hefðu unnið stór-
lega á í kosningunum á Ítalíu um helgina og að kommúnistar
hefðu beðið sinn mesta ósigur frá 1968. Hefur flokkurinn
vart fengið verri útreið í kosningum á Ítalíu eftir strið.
Talningu atkvæða var að mestu
lokið í gærkvöldi en búist var við
að endanleg úrslit yrðu ekki kunn
fyrr en í dag. Samkvæmt tölvuspám,
sem byggðu á talningunni, og þykja
áreiðanlegar, hafði fylgi sósíalista
aukizt um rúman fjórðung, úr 11,4%
í rúm 14%. Kristilegir demókratar
voru taldir mundu fá 34% atkvæða
í stað 32,9%.
Kommúnistum hafði verið spáð
rösklega 30% atkvæða en í gær-
kvöldi stefndi fylgið í 26%, sem er
þremur prósentustigum minna en í
kosningunum 1983 og minnsta fylgi
Svíngrand-
ar flugvél
Islamabad, Reuter.
Orrustuþota af gerðinni F-16
eyðilagðist er hún rakst á svín í
flugtaki frá Sargodha-flugstöð-
inni í Pakistan.
Þotan var að fara í æfíngaflug
að kvöldi dags. Hún var komin á
fleygiferð á flugbrautinni og í þá
mund að hefla sig til flugs þegar
hún ók á villisvín, sem fór í gagn-
stæða átt við flugvélina. Við árekst-
urinn brotnaði nefhjól þotunnar.
Nefíð skall í brautina, eldur kvikn-
aði og hún gjöreyðilagðist. Atvikið
átti sér stað 17. desember sl.
Að sögn vestrænna sendifulltrúa
gengu flugmenn í Sargodha-flug-
stöðinni berserksgang daginn eftir
óhappið og skutu á annað hundrað
villisvína í skóglendi umhverfís hana.
kommúnista frá 1968. Úrslitin eru
meiriháttar áfall fyrir flokkinn, sem
verið hefur utan stjómar frá 1947.
Alessandro Natta, leiðtogi komm-
únista, viðurkenndi ósigurinn og
sagði að sundurþykkja meðal vinstri-
manna hefði leitt til ófara flokksins.
Kjósendum hefði ekki þótt nógu
traustvekjandi sá möguleiki að
kristilegir demókratar hyrfu úr ríkis-
stjóm í fyrsta sinn eftir stríð. Talið
var að nýstofnaður flokkur umhverf-
issinna hefði tekið fylgi frá
kommúnistum, en fylgi hans stefndi
í um 3%. Einnig er talið að stórum
hópi fylgismanna Kommúnista-
flokksins hafí ekki þótt Natta fylla
skarð það, sem Enrico Berlinguer,
fyrrum flokksformaður, skildi eftir
sig er hann féll frá 1984.
„Maður uppsker eins og maður
sáir,“ sagði Bettino Craxi, fyirum
forsætisráðherra, leiðtogi sósíalista,
f gærkvöldi. Stjóm hans sat í hálft
fjórða ár og hefur engin ríkisstjóm
setið jafn lengi á Ítalíu eftir stríð.
Craxi sagði að kjósendur vildu
greinilega stöðugleika og þeir
treystu ekki kommúnistum fyrir
stjómartaumunum.
Amaldo Forlani, leiðtogi kristi-
legra demókrata, tók undir með
Craxi og sagði kjósendur vilja nýja
samsteypustjóm flokkanna fimm,
sem verið hefðu við völd á Ítalíu
undanfarin sex ár. Stjómmálaskýr-
endur töldu í gærkvöldi að langan
tíma mundi taka að koma saman
nýrri stjóm vegna deilna sósíalista
og kristilegra demókrata.
Sjá einnig „Kjósendur vilja fá
stöðugleika..." á bls. 28.
Reuter
Nýtt frumkvæði Reagans í afvopnunarmálum:
Vill upprætingu allra
skammdrægra flauga
Woalilnnd nn DaiiIav
Washington, Reuter.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, sagði í sjónvarpsávarpi í
nótt að hann hefði fyrirskipað
samningamönnum sínum í Genf
að reyna að fá Sovétmenn til að
fallast á útrýmingu allra skamm-
drægra kjamaflauga, hvar sem
þær væru í hehninum.
Á borði samningamanna liggja
tillögur um eyðingu skamm- og
meðaldrægra flauga í Evrópu, hin
svonefnda tvöfalda núllausn. Reag-
an vill hins vegar stíga skrefí lengra
og eyða öllum skammdrægum
flaugum í heiminum ásamt meðal-
drægum flaugum í Evrópu. Samn-
Sovétríkin:
Fyrrum ráðherra fang-
elsaður fyrir mútuþægni
Moskvu, Reuter. ^
VLADIMIR Sushkov, fyrrum aðstoðarráðherra innan sovéska
valdakerfisins, hefur verið dæmdur tíl 13 ára vistar innan fang-
elsismúra, að því er Tass-f réttastof an skýrði frá i gær. Hæstiréttur
Sovétrikjanna kvað upp dóminn í gær en Sushkov var fundinn
sekur um að hafa þegið mútugreiðslur frá erlendum fyrirtækj-
um. Þá hafa tveir fyrrum sovéskir embættismenn verið dæmdir
til vistar í vinnubúðum fyrir að hafa neytt mann til að játa á sig
tvö morð sem hann hafði ekki framið.
Vladimir Sushkov, sem er 67
ára gamall var skipaður aðstoðar-
ráðherra á sviði utanríkisverslun-
ar árið 1974. í ágústmánuði í
fyrra birti dagblaðið Izvestia frétt
um að hann hefði verið hand-
tekinn. Að sögn blaðsins hafði
hann komist hjá tollskoðun er
hann sneri heim eftir ferðir sínar
erlendis. Hafði þetta reynst hon-
um leikur einn þar eð tollverðimir
vom undirmenn innan ráðuneytis
hans.
Valentina, eiginkona Sushkovs,
var dæmd til 11 ára fangelsisvist-
ar fyrir að hafa þegið mútu-
greiðslur samtals að upphæð
392.000 rúblur (um 24 milljónir
ísl.). Hún gegndi hárri stöðu innan
vísinda- og tækninefndar forsæt-
isráðuneytisins. Sagði í frétt Tass
að hún hefði verið annáluð fyrir
fégræðgi sína og hefðu fulltrúar
erlendra fyrirtækja nefnt hana
„Gullfrúna" af þeim sökum. Sush-
kov var sagður hafa þegið
127.000 rúblur (um 7,6 milljónir
ísl.) í mútur og aðstoðarmaður
hans hlaut einnig sex ára dóm
fyrir sömu sakir.
Dagblaðið Sovetskaya Rossiya
skýrði frá því í gær að tveir emb-
ættismenn hefðu verið dæmdir til
vinnubúðavistar fyrir að hafa
neytt mann til að játa á sig tvö
morð sem hann var saklaus af.
Sagði í frétt blaðsins að með þessu
hefðu mennimir ætlað að flýta
fyrir frama sínum með því að fá
manninn til að játa óhæfuverkin
á sig. Rétti morðinginn gaf sig
hins vegar fram áður en til þess
kom að taka átti manninn af lífi.
Forystumenn innan sovéska
kommúnistaflokksins hafa hvatt
til þess að fylgst verði nánar með
verkum embættismanna inann
dómskerfísins. Skýrt hefur verið
frá fjölmörgum dæmum þess að
saklausir menn hafí verið fangels-
aðir þrátt fyrir algeran skort á
sönnunargögnum. Mikhail S.
Gorbachev Sovétleiðtogi hóf þeg-
ar að berjast gegn spillingu og
mútuþægni embættismanna er
hann komst til valda í marsmán-
uði árið 1985. Fjölmargir fyrrum
embættismenn dveljast nú bak við
lás og slá og aðrir, sem gerð.ust
sekir um enn alvarlegri glæpi,
hafa verið leiddir fyrir aftöku-
sveitir.
ingsdrögin gera ráð fyrir að
stórveldin haldi 100 meðaldrægum
flaugum á sínu landi hvort og sagð-
ist Reagan vona að með tímanum
yrði þeim eytt líka.
Utanríkisráðherrafundur NATO
í Reykjavík í síðustu viku lýsti
stuðningi viðtvöföldu núlllausnina.
Reagan skýrði einnig frá nýaf-
stöðnum fundi leiðtoga sjö helztu
iðnríkja heims í Feneyjum. Hann
gagnrýndi fjölmiðla harðlega fyrir
að halda því fram að fundurinn hefði
skilað litlum árangri í efnahagsmál-
um. „Við náðum öllum okkar málum
fram,“ sagði forsetinn.
Sjá einnig „Vestrænir ráða-
menn óttast...“ á bls. 29.
V-þýzkt her-
skip fyrir árás
Bonn, Reuter.
FIMM fallbyssuskot hæfðu vest-
ur-þýzkt birgðaskip er það
fylgdist með flotaæfingum Var-
sjárbandalagsins á Eystrasalti i
gær. Eldur kviknaði og leki kom
að skipinu. Þrir sjóliðar særðust.
Talið er að pólskt herskip hafí
skotið að birgðaskipinu, Neckar.
Talsmaður stjómarinnar í Bonn
sagði að um mannleg eða tæknileg
mistök hefði verið að ræða.
Skipin voru stödd 25 sjómílur
undan strönd Sovétríkjanna, og því
á alþjóðlegri siglingaleið. Fjögur
skotanna hæfðu Neckar miðskips
og eitt þeirra aftarlega, rétt við
vélarrúmið. Fljótlega tókst að ráða
niðurlögum elds og að stöðva leka.
Neckar er 2.370 lestir.